Morgunblaðið - 23.01.1996, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón Páll
Is Út af
Vestfjörðum
FLUGVÉL Landhelgisgæsl-
unnar, TF-SÝN, fór á sunnu-
dag í eftirlits- og ískönnunar-
flug á Dohm-banka og úti
fyrir Vestfjörðum. Næst
landi var ísbrúnin 63 sjó-
mílur norðvestur af Kópa-
nesi og 76 sjómílur norð-
vestur af Kögri.
Þéttleiki hafísjaðarins var
talsvert mikill og víða lágu
ísdreifar út frá ísjaðrinum
og einnig nýmyndun eins
og sjá má á þessari mynd
sem tekin var í leiðangrinum.
Veður til ískönnunar var
gott; hálfskýjað og ágætt
skyggni.
Hafís fyrir
Vestfjörðum
21. janúar 1996L
Nýr meirihluti tekinn við í Reykhólahreppi
Meginverk að endur-
skipuleggja fjármál
NÝR meirihluti um stjóm hrepps-
mála í Reykhólahreppi var staðfest-
ur á laugardag. Á hreppsnefndar-
fundinum var jafnframt gengið frá
ráðningu Guðmundar H. Ingólfsson-
ar úr Hnífsdal sem sveitarstjóra.
Nýja meirihlutann skipa þrír full-
trúar N-listans, sem voru í minni-
hluta, og tveir fulltrúar af fjórum
af L-listanum sem var 1 meirihluta
og er Stefán Magnússon, oddviti
gamla meirihlutans, annar þeirra.
Stefán sagði af sér sem oddviti á
hreppsnefndarfundinum og var einn
fulltrúinn af N-listanum, Þórður
Jónsson' í Árbæ, kosinn í embættið
í hans stað og Sveinn Hallgrímsson
á Skálanesi, af L-listanum, varaodd-
viti. Nýi meirihlutinn óskaði ekki
eftir áframhaldandi störfum Úlfars
Thoroddsens, fyrrverandi sveitar-
stjóra á Patreksfirði, en hann hefur
verið hreppsnefndinni til aðstoðar
undanfamar vikur. Þess í stað var
Guðmundur H. Ingólfsson, fyrrver-
andi forseti bæjarstjórnar ísafjarð-
arkaupstaðar, ráðinn sveitarstjóri til
þriggja mánaða.
Eignir auglýstar
Að sögn Stefáns Magnússonar er
það meginverkefni nýja meirihlutans
að vinna að endurskipulagningu á
fjármálum Reykhólahrepps og fyrir-
tækja hans og leita leiða til að leysa
mikinn íjárhagsvanda sveitarfélags-
ins. Á fundinum á laugardag var
kynntur samningur sem gerður hef-
ur verið við Orkubú Vestfjarða um
sölu á hitaveitu Reykhóla. Segir
Stefán að samningurinn hafi verið
undirritaður með fyrirvörum og er
unnið að því að koma honum í fram-
kvæmd. Jafnframt er gert ráð fyrir
sölu annarra eigna, svo sem eyja og
jarðarhluta. Stefán segir að þegar
hafí borist fyrirspurnir en býst við
að eignirnar verði auglýstar til sölu
á næstunni.
í málefnasamningi meirihlutans
er gert ráð fyrir að leitað verði eftir
samningum við lánardrottna um
lækkun lána sveitarfélagsins og fyr-
irtækja hans. Loks verður unnið að
gerð fjárhagsáætlunar til þriggja
ára.
Kæra þriggja íbúa Reykhóla-
hrepps vegna ýmissa stjórnsýsluat-
hafna stjórnenda sveitarfélagsins er
enn til meðferðar í félagsmálaráðu-
neytinu. Þar fengust þær upplýs-
ingar að kæran yrði send hrepps-
nefndinni til umsagnar á næstunni.
Látnum manni var
úrskurðað barn
SÉRFRÆÐINGAR hafa komist að
þeirri niðurstöðu að 99% líkur séu á
að kona, sem lést fyrir ári, hafi ver-
ið dóttir athafnamanns frá Höfn í
Hornafirði. Þessi niðurstaða þykir
auka mjög líkur á að erfðaskrá
mannsins verði úrskurðuð ógild og
að börn konunnar fá arf eftir mann-
inn.
Málsatvik eru þau að konan
komst að því á árinu 1994 að hún
væri að öllum líkindum ekki dóttir
þess manns sem hún hafði allt sitt
líf talið föður sinn. Við eftirgrennsl-
an komst hún að því að faðir henn-
ar væri að öllum líkindum athafna-
maður frá Höfn í Hornafirði. Hann
mun hafa viðurkennt fyrir henni að
hann væri faðir hennar. Þegar kon-
an var fimmtug sendi maðurinn
henni afmæliskort sem hann undir-
ritar „þinn faðir“. Konan lést
snemma á síðasta ári og mánuði
síðar féll meintur faðir hennar einn-
ig frá.
Maðurinn hafði látið gera erfða-
skrá nokkrum árum áður, þar sem
hann arfleiðir ættingja sína að öllum
eigum sínum, en þær voru allmiklar.
Börn konunnar lögðu þá fram kröfu
um að arfurinn gengi til þeirra með
þeim rökum að maðurinn hefði verið
afi þeirra.
Aldrei gengið formlega
frá faðerninu
Jón Oddsson, lögmaður barna
konunnar, sagði að maðurinn hefði
verið búinn að viðurkenna fyrir kon-
unni skömmu áður en hún lést að
hann væri faðir hennar. Hann sagði
að við jarðarför konunnar hefði hann
heimilað að sín væri getið í líkræðu
sem föður konunnar. Aldrei hefði
þó verið gengið formlega frá viður-
kenningu á réttu faðerni hennar
meðan bæði lifðu.
Á síðasta ári gerði Jón kröfu um
að lík mannsins yrði grafið upp svo
að hægt væri að komast að faðemi
konunnar með DNA-rannsókn. Til
þess kom ekki vegna þess að í ljós
kom að bæði maðurinn og konan
höfðu verið krufin og til voru sýni
úr þeim. Sýnin voru send í rannsókn
ásamt sýnum úr börnunum og móð-
ur konunnar. Jón sagði að eftir ítar-
lega rannsókn sérfræðinga hefði
komið sú niðurstaða að 99% líkur
væru á að hinn hornfirski athafna-
maður væri faðir konunnar.
Meint barnsmóðir mannsins hefur
höfðað faðernismál til þess að fá
faðerni dóttur sinnar viðurkennt.
Niðurstöðu er að vænta í næsta
mánuði. í kjölfarið mun sýslumaður
á Höfn í Hornafirði taka afstöðu til
kröfu um að erfðaskrá mannsins
verði úrskurðuð ógild. Jón sagði að
í henni hefði maðurinn skrifað að
þar sem hann ætti enga lögerfingja
gengju eigur sínar til annarra ætt-
ingja. Krafa um ógildingu erfða-
skrárinnar væri lögð fram á grund-
velli þess að manninum hefði ekki
verið ljóst þegar hann gerði erfða-
skrána að hann ætti dóttur og barna-
börn.
A-listinn sigraði með níu prósentustigum í stjórnarkjöri í Yerkamannafélaginu Dagsbrún
Fyrsta verk að kanna
afstöðu til stjómar
A-LISTINN sigraði B-listann naum-
Iega í stjórnarkjöri í Verkamannafé-
lagiúu Dagsbrún um helgina og tek-
ur Halldór Björnsson, núverandi
varaformaður, við formannsstarfinu
af Guðmundi J. Guðmundssyni á
næsta aðalfundirfélagsins. A-listinn
fékk tæplega 54% atkvæða, en fylgi
B-Iista var rétt rúm 45%. „Það hlýt-
ur að verða mitt fyrsta verk að
kanna ástandið hjá félagsmönnum
gagnvart stjórninni," sagði Halldór
í gær. „Það þýðir ekki að undirbúa
kjarasamninga í haust án þess að
vita hvernig ég stend og ef ástandið
er eins og Sigurður Rúnar [Magnús-
son, varaformannsefni B-listans]
lýsir því þá er talsverð vinna fram-
undan.“
Tveir listar voru í framboði, A-
listi stjórnar og mótframboð B-lista,
sem bauð fram undir einkunnarorð-
unum ný Dagsbrún.
„Vissi að þetta yrði erfitt“
„Ég vissi alltaf að þetta yrði erf-
itt, en var alltaf vongóður um að
við myndum hafa þetta,“ sagði Hall-
dór Björnsson í gær. „Þessi úrslit
sýna manni að auðvitað þarf að taka
til í sínum heimagarði."
Halldór sagði að engin stjórn
gæti starfað án sambands við sína
félagsmenn og því þyrfti að fara út
á vinnustaðina til að kanna hvort
íjarlægðin væri jafnmikil og af væri
látið,
„Ég er í sjálfu sér ósköp hress
yfir úrslitunum, en ég hefði kosið
sigur,“ sagði Kristján Árnason, for-
mannsefni B-listans. „Nú er búið að
hrista það mikið upp í Dagsbrún að
þeir komast ekki hjá því að taka til-
lit til vilja okkar. Þeir verða að breyta
lögum Dagsbrúnar í lýðræðisátt."
„Ekki fengið sííka
lexíu í hálfa öld“
Kristján sagði að stjórnin hefði
„ekki fengið slíka lexíu í hálfa öld“
og kvaðst „reikna fastlega með ann-
arri atlögu“ að stjórninni, þótt ekki
væri víst að hann yrði í forsvari.
„Það er búið að brýna vopnið með
þessum ungu mönnum," sagði Krist-
ján. „Þetta var ströng barátta og
við börðumst eins og hetjur nánast
hvern einasta dag. Það verður ör-
ugglega farið aftur fram að ári og
þá verður örugglega sigur.“
Kristján var þeirrar hyggju að
kosningasmölun Á-listans hefði ráð-
ið úrslitum í stjórnarkjörinu. Mikinn
fjölda ellilífeyris- og örorkuþega
hefði drifið að, sérstaklega fyrri dag
kosninganna, sem fóru fram föstu-
dag og laugardag, og bæri það því
vitni að A-listinn hefði smalað af
kappi.
„Er það eitthvað nýtt í kosningum
að fá fólk á kjörstað?" sagði Halldór
þegar hann var spurður um þessa
gagnrýni. „Ætli menn að fá kosn-
ingaþátttöku verður að leggja í það
vinnu. Ég held að menn þurfi ekki
að hneykslast á því þótt reynt sé
að hvetja fólk til að koma á kjör-
stað.“
Halldór sagði að A-listinn hefði
hafið kosningabaráttu seinna en
B-listinn. „Þeir byijuðu fyrr en við
úti á vinnustöðurn," sagði Halldór.
„Ég tel að sú vinna, sem við lögðum
af mörkum, hafi skilað sér.“
Sigurður Rúnar Magnússon, vara-
formannsefni B-listans, sagði í sam-
tali við fjölmiðla um helgina að þessi
úrslit gæfu til kynna að kominn
væri fram klofningur í Dagsbrún.
Morgunblaðið náði ekki tali af Sig-
urði Rúnari vegna þessara ummæla.
Kristján Árnason kvaðst aðeins
hafa rætt þetta lítillega við Sigurð
og sagðist „persónulega" telja „betra
að vera sameinaðir, en sundraðir"
til að ná árangri.
„Ég tel að við getum náð vit-
rænni árangri með því að standa
saman," sagði Kristján. „Sameinaðir
stöndum vér, sundraðir föllum vér.
Það sést á landsmálapólitíkinni.“
„Við verðum að vinna að því að
koma á einingu," sagði Halldór um
ummæli Sigurðar Rúnars. „Ég hef
alltaf átt gott með að vinna með
fólki. Það þarf að ná sáttum innan
Dagsbrúnar. Ég hitti mótframbjóð-
endur okkar og fann ekki annað en
að þeir væru tilbúnir til að vinna
með okkur.“
A-listi fékk 939 atkvæði eða
53,84% í kosningunum, sem haldnar
voru föstudag og laugardag, og B-
listinn 785 atkvæði eða 45,01%.
Tæplega 50% þátttaka
3.595 voru á kjörskrá og kjörsókn
var 1.744 eða 48,57%. 16 seðlar
voru auðir og fjórir ógildir. Ný stjórn
er kjörin til eins árs, en hún hefur
iðulega verið sjálfkjörin. Síðast barst
mótframboð árið 1991 og þar áður
1972. Árið 1991 var kosningaþátt-
taka um 10 prósentustigum minni
en nú, eða 38,91%. Þá var leikurinn
sýnu ójafnari. A-listinn vann með
62% fylgi gegn 35% fylgi B-lista.
Kosningunum lauk klukkan níu á
laugardagskvöld og sagði Snær
Karlsson, formaður kjörstjórnar, að
talningu hefði verið lokið klukkan
hálftólf. Hins vegar hefði verið ljóst
hvert stefndi meðan á talningu stóð,
enda munurinn 9 prósentustig. Snær
hafði orð á því að kosningaþátttaka
hefði ekki náð 50% og taldi það vera
til marks um það áhugaleysi, sem
einkenndi félagastarf á Islandi. Síð-
ast hefði þátttaka farið yfir 50% i
stjórnarkjörinu árið 1972.
(
i
(
<
(
I
(
(
<
I
fe
I
I
I
l
I
L