Morgunblaðið - 23.01.1996, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rekstur einkaskóla að Skutustöðum
Framlag úr jöfnunar-
sjóði styrki sveitar-
félagið reksturinn
FORMAÐUR stjómar jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga hefur úrskurðað að ef
Skútustaðahreppur í Mývatnssveit
greiðir rekstrarstyrk til einkaskóla
sem nú er rekinn á Skútustöðum
þá heimili lög að sveitarfélagið geti
sótt grunnskólaframlag úr jöfnunar-
sjóði vegna bama í einkaskólanum,
enda taki hreppurinn tilsvarandi eða
meiri þátt í rekstri skólans.
Sigurður Rúnar Ragnarsson,
sveitarstjóri Skútustaðahrepps, seg-
ir að þetta þýði að sveitarstjómin
verði að taka afstöðu til þess hvort
hún vilji greiða rekstrarstyrk til
einkaskólans og ljármagna þann
styrk með framlögum úr jöfnunar-
sjóði. Mál þetta verður væntanlega
tekið fyrir á næsta fundi sveitar-
stjómarinnar næstkomandi mánu-
dag.
Að sögn Sigurðar Rúnars óskaði
sveitarstjóm Skútustaðahrepps eftir
úrskurði um túlkun á lögum og
reglugerð um jöfnunarsjóð, en sveit-
arstjóm taldi ekki heimilt að hrepp-
urinn sem slíkur gæti sótt fé í sjóð-
inn til að afhenda í rekstur einka-
skólans. Skólinn tók til starfa síðast-
liðið haust og fékk hann rekstrar-
styrk frá menntamálaráðuneytinu
sem nema kennaralaunum, en í skól-
anum em 20 af 70 grunnskólanem-
um í hreppnum. Hreppurinn leigði
skólanum húsnæði en að öðm leyti
hafa foreldrar bamanna borið kostn-
að af rekstrinum.
Minna til skiptana
„Þetta er athyglisverður úrskurð-
ur að því leyti að ef einkareknir
skólar geta vænst þess að fá rekstr-
arframlög frá jöfnunarsjóði í gegn-
um sveitarfélög þá hlýtur þetta að
hafa áhrif á stöðu jöfnunarsjóðs og
greiðslu til annarra grunnskóla. Það
hlýtur að verða minna til skiptana
fyrir þá grunnskóla sem reknir em
af sveitarfélögum. Ef þetta er raun-
in þá finnst mér líklegt að menn
verði glaðari og bjartsýnni á að
stofna einkaskóla og skilja þá sveit-
arfélögin með lagaskylduna á
rekstri grunnskóla eftir með óhag-
stæðari og smærri rekstrareining-
ar,“ sagði Sigurður Rúnar.
Úrval/Útsýn
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Fjórir kátir
ÞESSIR fjórir gerðu að gamni
sínu þegar ljósmyndarinn fór til
þess að láta hreinsa bílinn sinn
á dögunum. Félagarnir heita
Andri Hermannsson, Kjartan Á.
Þórarinsson og Arnór Barkar-
son. Og sá fjórðier Snæfinnur
snjókarl.
10.000 á sumarkynningu
FJÖLMENNI var á sumarkynningu
Úrvals/Útsýnar á sunnudag. Að sögn
Goða Sveinssonar, sölu- og markaðs-
stjóra ferðaskrifstofunnar, mættu um
tíu þúsund manns þá þijá tíma sem
kynningin stóð. „Það var opið á öllum
söluskrifstofum okkar og það var
nánast öngþveiti allan tímann. Þetta
er mikil flölgun frá síðasta ári þegar
mættu um fímm þúsund manns á
kynninguna."
Töluvert meira var bókað á þessum
fyrsta söludegi sumartilboða en áður.
Að sögn Goða voru alls bókuð um
Ijögur hundruð sæti, mest á Mallorka
og Portúgal, eða samtals um 250
sæti. „Úrval/Útsýn bjóða viðskipta-
vinum sem bóka og greiða staðfest-
ingargjald fyrir 14. febrúar sjö þús-
und króna afslátt á mann. Þar að
auki fæst 5% afsláttur þegar ferðir
eru staðgreiddar. Fólk getur því spar-
að sér umtalsverðar flárhæðir," sagði
Goði, og ennfremur að almennt væri
lítil, breyting á verði frá síðasta ári.
Úrval/Útsýn kynnti tvo bæklinga
á sunnudag. Annars vegar bækling-
inn Sumarsól með fjölbreyttum ferð-
um, nýjungum jafnt sem hefðbundn-
um ferðum. Meðal nýjunga má nefna
Marbella á Costa dei Sol, Fort Myers
í Flórída, frönsku Rivieruna, sumar-
húsa- og skemmtigarðinn Duinrell í
Hollandi, fjölbreyttar Ítalíuferðir,
íbúðir í London og París og skemmti-
siglingar um Miðjarðarhaf og Karíba-
haf. I hinum bæklingi Úrvals/Útsýn-
ar eru kynntar sérferðir ferðaskrif-
stofunnar á þessu ári og kennir þar
ýmissa grasa. Um er að ræða 15
ferðir, jafn fjölbreyttar og þær eru
margar.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
145 míUjónir í
þágxi aldraðra
160 aldraðir í brýnni þörf á biðlista
í SKÝRSLU borgarstjóra með
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg-
ar fyrir árið 1996 kemur fram
að áætlað er að veita 145 milljón-
um króna til framkvæmda í þágu
aldraðra á árinu. Helstu fram-
kvæmdir er bygging hjúkrunar-
heimilis fyrir aldraða í Suður-
Mjódd en þar er gert ráð fyrir
79 hjúkrunarrýmum og verða
fyrstu rýmin tekin í notkun um
mitt ár 1997. Á biðlistum eftir
hjúkrunarrými eru 160 aldraðir
sem eru í brýnni þörf að sögn
borgarstjóra.
Góð eignastaða
aldraðra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði við fyrri um-
ræðu um fjárhagsáætlun borgár-
innar að ýmsar þversagnir væru
í málefnum aldraðra. Benti hún á
að eignastaða þeirra sem eru 67
ára og eldri væri að jafnaði mjög
góð, en að sá uppsafnaði sparnað-
ur sem lægi í eignunum nýttist
fólki að óverulegu leyti. „Þannig
nam eignaskattsstofn 65 ára og
eldri í Reykjavík árið 1994 68
milljörðum króna,“ sagði borgar-
stjóri. „95% allra hjóna og 72,3%
allra einstaklinga áttu fasteign.
Meðaleign hjóna var um 11 millj-
ónir króna og meðaleign einstakl-
inga 5,8 milljónir króna. Dreifing
eigna er auðvitað misjöfn, en
tæplega eitt þúsund hjón áttu
eign yfir 12 milljónum króna.“
Erfitt að
viðhalda eignum
Borgarstjóri sagði að margir í
þessum hópi ættu því góðar og
verðmætar fasteignir en ættu
fullt í fangi með að viðhalda eign-
inni eða greiða af henni skatta
og skyldur, þar sem tekjur væru
óverulegar. Áðrir hafi misst heils-
una og gætu í raun ekki búið leng-
ur heima en kæmust ekki með
nokkru móti í ,þá þjónustu, sem
þeir þyrftu á að halda, þar sem
opinberir aðilar hafi hvorki fjár-
magn til að byggja né reka hjúkr-
unarheimili.
Nýrri og sann-
gjamari leiðir
Önnur þversögn væri að mati
borgarstjóra að þegar aldraður
sjúklingur legðist inn á hjúkr-
unarheimili tæki sá þátt í kostn-
aði við þjónustuna, sem hefði ein-
hveijar tekjur úr lífeyrissjóði, en
hinn ekki, sem engar slíkar tekjur
hefði, þó hann ætti umtalsverðar
eignir. Þannig væri gengið á ævi-
sparnað annars en ekki hins. „Á
komandi árum mun fjölga veru-
lega í hópi aldraðra og einna
mest í hópi háaldraðra, sem helst
þurfa á þjónustu að halda,“ sagði
borgarstjóri. „Ef okkur á að tak-
ast að tryggja þeim áhyggjulaust
ævikvöld og öryggi um sinn hag
þegar og ef heilsa gefur sig, verð-
um við að þróa nýjar, réttlátar
og sanngjarnar leiðir í öldrunar-
þjónustunni sem taka mið af því
að aldraðir fái þjónustu við sitt
hæfi og greiði í samræmi við getu.
Með öðrum orðum, uppsafnaður
sparnaður aldraðra nýtist í þeirra
þágu, en um leið verði búið þann-
ig um hnútana, að þeir sem búa
við bágan efnahag gjaldi þess í
engu. Hef ég hug á að Reykjavík-
urborg taki upp viðræður við
hagsmunasamtök aldraðra um
framtíðarsýn og markmið og leið-
ir í þjónustu aldraðra."
Eiríkur Tómasson hefur skilað biskupi íslands niðurstöðu sinni um deilur í Langholtssöfnuði
Biskup hefur
úrskurðarvald
í deilunni
EIRÍKUR Tómasson, hæsta-
réttarlögmaður og lagaprófessor,
hefur skilað herra Olafi Skúla-
syni, biskupi íslands, tveimur
skýrslum um deilurnar í Lang-
holtssöfnuði. Hann kemst að því
að biskup hafi ótvírætt vald til
að úrskurða í deilunni. Jón Stef-
ánsson, organisti, leitaði til Fé-
lags íslenskra hljómlistarmanna,
FIH, eftir að sr. Flóki Kristins-
son, sóknarprestur, fékk Ragnar
Jónsson, tónlistarkennara, til að
leika á orgelið í Langholtskirkju
við messu á sunnudaginn.
Eiríkur kom að deilunni úr
tveimur áttum. Fyrst skoðaði
hann lagalegu hliðina og skilaði
áliti vegna hennar í síðustu viku.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að Eiríkur komist að því að bisk-
up hafi ótvírætt vald til að úr-
skurða í deilunni. Starfsmönnum
kirkjunnar, þ.m.t. presti, organ-
ista, sóknarnefnd, 'beri að hlíta
þeim úrskurði.
Eftir að hafa talað við deiluað-
ila skilaði Eiríkur annarri skýrslu
um deiluna í gær. Næsta skrefið
er að biskup tilkynni deiluaðilum
að honum hafi borist niðurstaða
Eiríks. Hann býður þeim að koma
á framfæri athugasemdum eða
leita sátta. Ef ekki verður hægt
að leysa deiluna með þeim hætti
úrskurðar biskup í deilunni. Ekki
er búist við að líði á löngu áður
en niðurstaða fæst.
Samningsbrot
Jón Stefánsson, organisti, leit-
aði til FÍH eftir að sr. Flóki fékk
Ragnar Jónsson, tónlistarkenn-
ara, til að leika á orgelið í Lang-
holtskirkju á sunnudaginn. Hann
fundar með Birni Th. Árnasyni,
formanni FIH, Láru V. Júlíusdótt-
ur, iögfræðingi FÍH, og Kjartani
Morgunblaðið/Þorkdl
SR. FLÓKI Kristinsson við messu í Langholtskirkju á sunnudag-
inn. Ragnar Jónsson, tónlistarkennari, lék á orgelið.
Siguijónssyni formanni Félags
organista.
Jón sagði að sr. Flóki hefði
ekki haft umboð til að fá annan
organista til starfa. „Samkvæmt
lögum um sóknarnefndir og
starfssvið sóknarnefnda ræður
sóknarnefnd starfsfólk og þ.m.t.
organista. Presturinn hefur
hvorki leyfi né umboð til að ráða
starfsmenn og allra síst í stöðu
manns sem er í starfi," sagði Jón
og tók fram að gengið hefði verið
í verk hans þvert ofan í starfs-
samning, ráðningarsamning og
kjarasamnning. Hann sagði að
kórinn ætti orgel kirkjunnar, þó
söfnuðurinn hefði afnot af því,
en sóknarpresturinn hefði ekki
beðið leyfis að fá að nota hljóð-
færið.
Björn Th. Árnason sagði að hér
væri ktárlega á ferðinni brot á
ráðningarsamningi og honum
sýndist í fljótu bragði að prestur-
inn hefði farið út fyrir verksvið
sitt. Hann sagði að koma yrði í
Ijós hvernig brugðist yrði við en
félagið styddi Jón á allan þann
hátt sem hann óskaði eftir.
Atkvæðagreiðsla fór fram um
ósk sr. Flóka um að Jón yrði leyst-
ur frá störfum á sóknarnefndar-
fundi í Langholtskirkju fyrir
helgi. Fjórtán aðal- og varamenn
sóttu fundinn. Atta voru á móti,
fjórir úr varastjórn með, einn sat
hjá og Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
eiginkona Jóns, vék af fundi.