Morgunblaðið - 23.01.1996, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Arafat sigraði
með yfirburðum
í leiðtogakjöri
Gaza, Jerúsalem. Reuter.
FYRSTU kosningar á
svæðum Palestínumanna,
Gaza og Vesturbakkanum,
til 88 manna löggjafarráðs
fóru fram á laugardag.
Yasser Arafat, leiðtogi
Frelsissamtaka Palestínu,
PLO, sigraði með yfirburð-
um leiðtogakjöri og samtök
hans fengu öflugan meiri-
hluta í löggjafarráðinu.
Samkvæmt bráðabirgða-
YASSER Arafat
fagnar sigri á
laugardag.
þrír sjálfstæðir frambjóð-
endur úr röðum helstu and-
stæðinga Arafats, heittrú-
arsamtakanna Hamas, í
ráðið. Hamas bauð að öðru
leyti ekki fram í kosningun-
um og hvatti lengst af al-
menning til að hundsa þær.
Um 600 eftirlitsmenn
tölum hlaut Arafat 88,1% í kosning-
um til leiðtogaembættis, lítt kunn
kona, Samiha Khalil, fékk 9,3% og
ógild atkvæði voru 2,6%. Titill Ara-
fats verður raís eða leiðtogi Palest-
ínumanna. ísraelar sættu sig ekki
við að kjörinn yrði forseti Palestínu-
ríkis þar sem þá væru þeir í reynd
að samþykkja stofnun þess með
formlegum hætti. Einn af helstu
samningamönnum Palestínumanna
í friðarviðræðunum við ísraela, Ma-
hmoud Abbas, öðru nafni Abu Maz-
en, sagðist í gær halda að hægt
yrði að stofna ríki Palestínumanna
áður en þriggja ára kjörtímabil ný-
kjörins löggjafarráðs rynni út.
Fatah, hreyfing Arafats, hreppti
um 60 af 88 sætum í löggjafarráðinu
en öflugir stjórnarandstæðingar eða
sjálfstæðir frambjóðendur náðu kjöri.
Nefna má Hanan Ashrawi, fyrrver-
andi talsmann samninganefndar
Frelsisamtaka Palestínu, PLO, í frið-
arviðræðunum og Haidar Abdel-
Shafi, sem var formaður samninga-
nefndarinnar. í Gaza-börg komust
Erlendir eftirlitsmenn
voru um 600, þ. á m. Jimmy
Carter, fyrrverandi Bandaríkjafor-
seti. Sögðu þeir flestir að kosning-
arnar hefðu að mestu farið vel og
lýðræðislega fram en í nokkrum til-
vikum hefðu komið upp vandamál.
Ljóst er að ýmsir andstæðingar Ara-
fats áttu erfitt uppdráttar, fengu
t.d. ekki sama aðgang að fjölmiðlum
og valdhafarnir. Einnig benti Hamas
á að Palestínumenn sem ekki eru
búsettir á hernumdu svæðunum
hefðu ekki haft kosningarétt.
ísraelskir mannréttindasinnar
sögðu að lögfræðingur, sem mót-
mælti meintum kosningasvikum í
Hebron hefði verið handtekinn.
Bróðir mannsins var í framboði í
kosningunum. Embættismenn Pal-
estínumanna sögðu lögfræðinginn
hafa hvatt til spellvirkja.
ísraelskir ráðamenn sögðu að úr-
slitin sýndu almennan stuðning Pal-
estínumanna við friðarsamningana.
Shimon Peres forsætisráðherra
hringdi í Arafat er úrslit í.leiðtoga-
kjörinu voru ljós og óskaði honum
til hamingju.
Ný ríkisstjórn tekur við í Grikklandi
Áhersla á endumýj-
un og framtíðina
Aþenu. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Costas Simitis,
forsætisráðherra Grikklands, tók
við völdum í gær. Grísk stjórn-
völd hafa verið nær lömuð undan-
farna mánuði vegna veikinda
Andreas Papandreou, fráfarandi
forsætisráðherra, og verða meg-
inverkefni nýju stjórnarinnar að
koma efriahagslífinu í gang á ný
og gera Grikki virka innan Evr-
ópusambandsins, ESB.
Simitis er 59 ára gamall lög-
fræðing og hagfræðingur. í ríkis-
stjórninni eiga sæti jafnt eldri og
reyndari menn innan Sósíalista-
flokksins (PASOK) er áður hafa
gegnt ráðherraembætti og yngri
menn sem leggja mikla áherslu á
umbætur í grísku þjóðlífi og
stjórnmálum.
Óbreytt stjórn
efnahagsmála
Yannos Papandoniou gegnir
áfram embætti efnahagsmálaráð-
herra og Alexandros Papadopoul-
os embætti fjármálaráðherra en
þeim er þakkaður sá mikli árang-
ur er náðst hefur í baráttunni við
verðbólgu. Verðbólga er nú komin
innan við 10% í fyrsta skipti frá
árinu 1973.
Það að þeir halda embættum
sínum er talið til marks um að
Simitis hyggist leggja áherslu á
aðhaldsstefnu í efnahagsmálum
og einkavæðingu ríkisfyrirtækja.
Simitis sagði á fundi með
blaðamönnum eftir að stjórn
hans tók við að hún markaði
upphaf nýs ferlis er myndi færa
Grikkland inn á 21. öldina. Ríkis-
stjórnin myndi funda einu sinni
í viku og tók forsætisráðherrann
fram að hann væri þeirrar skoð-
unar að Grikkir væru orðnir
þreyttir á að bíða. Því yrði að
grípa til aðgerða ef PASÖK ætti
að geta unnið kosningasigur á
ný á næsta ári.
Breyttar áherslur
„Þetta verður stjórn sem mun
leggja hart að sér,“ sagði Simit-
is. Hann hrósaði Papandreou en
gerði þó jafnframt ljóst að hann
myndi breyta um áherslur. Pap-
andreou var talinn nokkuð
einráður við stjórn landsjns, hann
hélt sjaldan ríkisstjórnarfundi og
lagði traust sitt á fáa nána ráð-
gjafa og samstarfsmenn, þeirra
á meðal eiginkonu sína Dimitra
Liani.
Þá vakti það athygli að enginn
af nánustu stuðningsmönnum
Papandreous heldur stöðu sinni í
stjórninni. Meðal þeirra sem fara
úr stjórninni eru Karolos Papoul-
ias utanríkisráðherra og Antonis
Livanis og George Katsifaras.
Umdeildur
utanríkisráðherra
Nýr utanríkisráðherra Grikk-
lands er Theodor Pangalos sem
áður var Evrópuráðherra. Hefur
skipan hans í embætti vakið upp
blendin viðbrögð meðal annarra
Evrópusambandsríkja enda
móðgaði Pangalos jafnt ítali sem
Þjóðveija er Grikkir fóru með
formennsku í ráðherraráðinu á
síðasta ári.
Þá hefur ráðuneytum iðnaðar,
viðskipta og ferðamála verið
steypt saman í risavaxið þróunar-
ráðuneytis undir stjórn Vasso
Papandreou, sem setið hefur í
framkvæmdastjórn ESB fyrir
hönd Grikkja.
Hélstu keppinautar Simitis um
leiðtogaembættið í Pasok, þeir
Gerassimos Arsenis og Akis Tso-
hatzopoulos, gegna áfram emb-
ættum varnar- og innanríkismála.
Simitis mun gera frekar grein
fyrir stjórnarstefnunni í þriggja
daga þingumræðum er hefjast á
mánudag í næstu viku en að henni
lokinni verða greidd atkvæði um
stjórnina.
ÁRMÚLA 13 SÍMI: 568 1200
BEINN SlMI: 553 1236
í glæsilegri '96 árgerðinni frá ARCTIC CAT er að finna fjölda athyglisverðra
nýjunga sem allir áhugamenn um vélsleða kunna að meta.
Dæmi um verð
Teg.:
Phanther Liquid ..........
Bearcat 550 Widetrack ....
EXT 580 EFI ..............
Pantera ..................
ZRT600 ...................
Wildcat EFI Touring ......
Thundercat ...............
Stgr.verð
758.000
849.000
839.000
897.000
929.000
997.000
1.098.000