Morgunblaðið - 23.01.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 25
Róttækar umbætur á bandaríska skattkerfinu ofarlega á baugi
Washington. Reuter.
Repúblikanar vilja
einn „flatan“ skatt
Gerry
Mulligan
látinn
New York. Reuter.
JAZZISTINN Gerry Mulligan
lést á heimili sínu í Darien í
Connecticut-ríki árla á laugar-
dag eftir langvarandi veikindi.
Hann var á 69. aldursári.
„Jazz-tónlistin hefur séð á
bak miklum listamanni,“ sagði
Reed Mulligan, einkasonur
saxófónleikarans er hann
skýrði frá andláti föður síns.
Mulligan var tónskáld og
hljómsveitarstjóri og markaði
nýja stefnu í jazzi ásamt Miles
Davies seint á fimmta ára-
tugnum, svokallaðan „Cool
Jazz“, eða „svalan" jazz.
Meðal kunnustu verka hans
eru Jeru, Boplicity, Venus De
Milo og Godchild.
Mulligan fæddist í New
York-borg og ólst upp í Fílad-
elfíu. Strax á táningsaldri
samdi hann tónlist fyrir út-
varpshljómsveitir og eftir að
hann fluttist til New York
1946 samdi hann í fyrstu tón-
list fyrir trommuleikarann
Gene Krupa. Mulligan stofnaði
10 manna hljómsveit árið 1951
en öðlaðist þó fyrst verulega
frægð árið eftir hann stofnaði
kvartett þar sem Chet Baker
lék á trompet.
Mulligan hélt áfram að
koma fram opinberlega meðan
heilsa entist og lék hann síð-
ast í nóvember um borð í far-
þegaskipinu Queen Elizabet II
í einni ferð þess yfir Atlants-
hafið milli Southampton og
New York.
Að sögn sonar hans taldi
Mulligan sig hafa staðið á
hátindi ferils síns er hann lék
með Baker í Carnegie Hall í
New York árið 1974.
Gerry Mulligan lék í Há-
skólabíói sem gestur Listahá-
tíðar sumarið 1994.
PARKETSLÍPUN
Sigurðar Ólafssonar
Við gerum gömlu
gólfin sem ný
Sími: 564 3500 - 852 5070
Námskeið sem gefa forskot:
TivuNámskeið fyrir 10-16 ára
Þrjú gagnleg námskeið sem veita ungmennum forskot
í skólanum og búa þau undir stöif á 21. öldinni!
Láttu þitt bam njóta þess nýjasta og skemmtilegasta!!
36 kennslustundir, kr. 15.900,- stgr.
Grunn-. framhalds- og forritunamámskeið
■ Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuráðgjof • námskelð • utgáfa
Grensásvegi 16 • sími 568 8090
hk 960217 Raðgreiðslur Euro/VISA
NEFND á vegum bandaríska Repú-
blikanaflokksins hefur hvatt til al-
gerrar uppstokkunar á skattkerfinu.
Vill hún, að núverandi kerfí verði lagt
af og í þess stað tekinn upp „flatur
skattur“, sama skattprósenta fyrir
alla.
Jack Kemp, formaður nefndarinnar
og fyrrverandi fulltrúadeildarþing-
maður, sagði þegar hann kynnti til-
lögurnar, að leggja ætti núverandi
kerfi niður með öllum sínum flóknu
frádráttarliðum og ólíku skattþrepum
en þau geta verið á bilinu 15 til 40%.
„Núverandi kerfi er ekki viðbjarg-
andi. Það er ótrúlega flókið, hræðilega
dýrt, eyðileggjandi fyrir efnahagslífíð
og umfram allt ranglátt," sagði
Kemp.
Aukinn meirihluti
samþykki skattbreytingar
Nefndin nefnir ekki hver skattpró-
sentan eigi að vera en til að ekki sé
eilíflega verið að hringla til með hana
þá leggur hún til, að samþykki tvo
þriðju hluta þingmanna þurfi til að
hækka hana.
Eftir að repúblikanar höfðu lagt
fram þessar tillögur boðaði Richard
Gephardt, leiðtogi demókrata í full-
trúadeildinni, til blaðamannafundar
og gagnrýndi þær harðlega. Sagði
hann, að með þeim væri verið að
gera hina ríku ríkari á kostnað milli-
stéttarinnar auk þess sem fjárlaga-
hailinn myndi aukast um 300 millj-
arða dollara, 19.500 milljarða ísl. kr.
Gephardt hefur sjálfur sett saman
áætlun um „flatari skatt“ og segir,
að samkvæmt henni myndu 75%
bandarískra skattgreiðenda aðeins
greiða 10% skatt af tekjum sínum.
Ríkisstjórnin andvíg
Ríkisstjórn Bills Clintons forseta
hefur sýnt lítinn áhuga á flötum
skatti og Lawrence Summers að-
stoðarfjármálaráðherra vísar honum
alveg á bug.
Bob Dole, leiðtogi repúblikana í
öldungadeild, segist hlynntur flötum
skatti svó fremi hann auki ekki á
fjárlagahallann en umbætur á skatt-
kerfinu eru það mál, sem er efst á
baugi í forkosningabaráttu repúblik-
ana. Útgefandinn og auðkýfingurinn
Steven Forbes hefur lagt mikla
áherslu á það og hann leggur til, að
17% skattur verði á öllum tekjum.
Isafjörður á beinni braut...
Aukin þjónusta Eimskips á ísafirði
Frá og með 23. janúar geta ísfirðingar og aðrir Vestfirðingar fagnað því að fyrri áfangi hins nýja
flutningakerfis Eimskips hefur tekið gildi. Nýja kerfið hefur í för með sér aukna þjónustu við ísfirðinga
- en Strandleiðin opnar þeim greiða leið til Færeyja, Bretlands og meginlands Evrópu.
Sterkari samkeppnisstaða _ vnkomudagar
Með þessum breytingum á Mán. Reykjavik
þjónustu Eimskips við þéttbýlisstaði þií. Isafjðrður I
um landið mun samkeppnisstaða Mtð. Akureyn
. , , . Fim. 1 Eskifjörður
fyrirtækja styrkjast verulega. Flutn- Fös ; pgShm"
ingstíminn frá ísafjarðarhöfn til Lau. í...~
erlendra hafna styttist um 1 - 3 daga. sunTj_______
Auk þess er nú unnt að flytja inn Mán-. Imrnin9_ham
, , _ Þri. Rotterdam
vorur fra Bretlandi og meginlandi Mið.' Rotterdam
Evrópu beint til ísafjarðar. nm. j
Strandleiðin hefur í för með sér F°s. j______
umtalsverða kosti fyrir viðskiptavini —-------
Eimskips um allt land og með henni Mán Reykjavjk
eflist samkeppnisstaða íslands. Þri | tsafjörður- ji
„Nýja flutningakerfið mun styrkja samkeppnisstöðu
Simi 456 4555 • Fax 456 4553
ÍMfjörSur
Viðkomudagar
Mán. Reykjavik
Þri. ! isafjörður
Mið. I Akureyri
Fim. ] Eskifjörður
Fös. t Þórshöfn
Lau. j
Sun.
Mán i.j Immingham
Þri. j Rotterdam
Mið. , | Rotterdam
Fim.
Fös. ;
Lau.
Sun.
Þri. ] fsafjörður