Morgunblaðið - 23.01.1996, Page 38

Morgunblaðið - 23.01.1996, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Ungt fólk, menntun og rannsóknir ÞEGAR ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tók við stjórnartaumunum síðastliðið vor, var gefin út stefnuyfirlýs- ing stjórnarinnar. Nú á nýju ári er ekki úr vegi að rifja lítillega upp loforðin sem þar voru gefin, ekki síst með tilliti til þeirrar stefnu sem ríkisstjórn- in birti í fjárlagagerð- inni. Þar mátti nefni- lega heyra annan tón en þann sem gefinn var í stefnuyfirlýsing- unni. Einkum er þetta ósamræmi að finna í menntamál- um, þar sem ríkisstjórnin gaf lof- orð um betri tíð og blóm í haga, en eftir stendur Háskóli í.molum og grunnskóli í fullkominni óvissu. Menntun er mikils virði Framtíð þjóðarinnar og sam- keppnisstaða hennar á alþjóðavett- vangi byggist að miklu leyti á góðri menntun landsmanna og öflugu rannsóknar- og vísindastarfi. í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar virðist nokkurs skilnings gæta á mikilvægi menntunar og þar er það skilgreint sem eitt af markmið- um ríkisstjórnarinnar að tryggja öllum tækifæri til náms án tillits til búsetu og efnahags. En ijárlög- in bera ekki vott um framsækna stefnu í þessum efnum og þrátt fyrir auknar fjárveitingar til nokk- Bryndís Hlöðversdóttir urra málaflokka í með- förum fjárlaganefndar er enn margt sem er athugasemda vert. Grunnskólinn Enn er ekki séð fyr- ir endann á kostnaðar- þættinum varðandi ííutning grunnskólans til sveitarfélaga, þrátt fyrir að lögunum um grunnskólann sé ætlað að taka gildi hinn 1. ágúst 1996. Má þar nefna réttindamál kennara og ýmis mál sem tengjast markm- iðinu um einsetningu skólanna innan sex ára frá gildis- töku laganna. Nefndin um rétt- indamál kennara hefur reyndar skilað af sér sínum tillögum en þegar þetta er skrifað er enn eftir að sjá niðurstöður af vinnu í kostn- aðarnefndinni. Það er reyndar með ólíkindum hversu lengi þetta starf hefur tafist og tvísýnt að það náist að hnýta alla hnúta á tilsettum tíma. Nýsköpunarsjóður námsmanna I stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar segir að öflugt rannsóknar- og þróunarstarf sé forsenda fram- farasóknar í íslensku atvinnulífi og geta líklega flestir tekið undir það. Síðar í yfirlýsingunni segir eftirfarandi: „Nýsköpunarsjóður námsmanna verður studdur og Wilhelm Norðfjörð Hugo Þórisson Upplýsingar og skráning eftir kl. 16.00 og um helgar í síma 562 1132 og 562 6632 FORELDRA OG BARNA Nú er að hefjast námskeið þar sem foreldrum gefst kostur á að kynnast og tileinka sér ákveðnar hugmyndir og aðferðir í samskiptum foreldra og bama þar verður m.a. fjaliað um hvað foreldrar geta gert til að: •aðstoða börn sín við þeirra vandamál. *að leysa úr ágreiningi án þess að bcita valdi. •byggja upp jákvæð samskipti innan fjölskyldunnar. Fræðsla 00 ráðgjöf s.f. avaroc OTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ LEITIÐ TILBOÐA BYGGINGAVÖRUR Þ. ÞORGRÍMSSON &CO ÁRMÚLA 29 ■ PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK SÍMI 553 8640/568 6100 Jltargtsiifrlftfeifr - kjarni málsins! Samkeppnisstaða og framtíð þjóðarinnar byggist á góðri mennt- un landsmanna, segir Bryndís Hlöðversdótt- ir, öflugum rannsókn- um og vísindastarfi. þátttaka námsmanna í rannsókn- arstarfi verður aukin.“ Svo mörg voru þau orð, en hvetjar eru efnd- irnar á fjárlögum? Framlag til Nýsköpunarsjóðs námsmanna stendur í stað frá árinu 1995, eft- ir að það hefur verið hækkað um 5 milljónir króna í meðförum fjár- laganefndar, en fjárlagafrumvarp- ið gerði ráð fyrir að framlög til sjóðsins yrðu skert úr 15 milljónum í 10 milljónir. Samkvæmt tillögum Stúdentaráðs Háskóla Islands er fjárþörf sjóðsins 25 milljónir eigi hann að standa undir hlutverki sínu. Nýsköpunarsjóðurinn veitti styrki til 150 verkefna sl. sumar og úthlutanir eru til mjög fjöl- breytilegra verkefna og eins og nafngift sjóðsins bendir til er um nýsköpunarverkefni að ræða. Aðrar innlendar rannsóknir Rannsóknarnámssjóður, Vís- 'indasjóður Rannsóknarráðs og Nýsköpunarsjóður námsmanna mynda ákveðna heildarmynd, sem felur í sér alla möguleika ungs fólks til þess að stunda rannsókn- arstörf á íslandi. Ef sjóðirnir eru skoðaðir saman þá kemur í ljós að Rannsóknarnámssjóður fær út- hlutað 20 milljónum á ijárlögum í stað 25 milljóna árið áður og Vís- indasjóður Rannsóknarráðs er skorinn niður um 10 milljónir á milli ára, eða úr 25 milljónum í 15 milljónir. Rannsóknarráð ís- lands hefur bent á að niðurskurður til sjóðanna grafi undan trúverð- ugleika þeirrar stefnu sem lá til grundvallar að stofnun Rannsókn- arráðs íslands og að með niður- skurðinum yrðu send mjög alvar- leg, neikvæð skilaboð til ungs hæfileikafólks og dregið úr áhuga þess og möguleikum á að hasla sér völl hér á landi. Ungt fólk á íslandi í dag Staðreyndin er sú að umhverfið hér á landi er ekki alit of fýsilegt fyrir ungt fólk sem kemur heim úr námi, eða yfirleitt til að stunda hér nám. Það hefur komið í ljós í vetur að fólk sem kemur úr námi á mjög erfitt með að eignast hús- næði, og kemur þar til samspil grejðslubyrðar námslána og hús- bréfa. Að auki er atvinnuleysi ungs fólks mjög mikið, einkanlega hjá þeim sem taka þá stefnu að fara ekki í skóla að loknu skyidunámi. Aukin framlög til innlendrar rannsóknarstarfsemi gætu bætt heilmikið fyrir ungt fólk og eins og Rannsóknarráð bendir á, aukið líkurnar á því að fólk skili sér heim úr námi og stundi rannsóknir sem nýtast íslensku þjóðfélagi. Það er í sjálfu sér jákvætt að rannsóknir í samvinnu við önnur lönd séu styrktar, en það er þó alltaf grund- völlur þess að við getum nýtt það fé sem við leggjum í rannsóknar- samstarf við önnur lönd, að hlúð sé að innlendum rannsóknum. Þarna er óijúfanlegt samhengi á milli. Höfundur er þingmnður Alþýðu- bandnlngsins í Reykjavík. Til umhugsunar fyrir friðflytjendur og landkynningarfólk Gefa á út dagskipun um, segir Hallgrímur Sveinsson, að hrósa Dönum fyrir það sem þeir gerðu vel við okkur. Hallgrímur Sveinsson NÚ ERU uppi radd- ir um að íslendingar hafí hlutverki að gegna í því að stilla til friðar meðal stríðs- hijáðra þjóða og þjóðabrota. Þetta er eflaust rétt. Ekki væri lakara fyrir slíka frið- fiytjendur að geta bent á viðurkenndar stað- reyndir úr sinni eigin þjóðarsögu, máli sínu til stuðnings. En spyija má hvort eitthvað sé það merki- legt í sögu okkar að nothæft teljist í slíkum sáttasemjarastörfum á erlendri grund. Sannarlega er það svo. Hér skulu nefnd nokkur efnis- leg atriði í þá veru. 1. Sjálfstæðisbarátta íslend- inga fór fram án þess nokkru skoti væri hleypt af og enginn var liflát- inn. Söguleg og siðferðileg rök voru þau vopn sem Jón Sigurðsson og samheijar hans notuðu. 2. Á tímum Jóns Sigurðssonar, voru sambærilegir menn og hann, annaðhvort líflátnir, dæmdir í ævi- langa útlegð eða fangelsaðir. Og enn í dag eru slíkar aðferðir notað- ar víða um heim. En hvernig hand- léku Danir Jón Sigurðsson? 3. Auðvitað áttu þeir alls kostar við þennan drengilega og sjarmer- andi mann ofan af Vestfjörðum á íslandi. En þeir létu hvorki lífláta hann, stinga honum í steininn né senda hann heim til föðurhúsanna, þrátt fyrir að oft væri hann þeim óþægur ljár í þúfu. Þess í stað báru þeir fyrir honum fulla virð- ingu, útveguðu honum vinnu í ára- tugi, aðallega við íslensku handrit- in. Þeir opnuðu honum skjalasöfn sín til fijálsra afnota og aldrei var svo lítið í danska ríkiskassanum að þeir gætu ekki borgað honum kaupið hans! Slík framkoma nýlenduveldis við frelsisleiðtoga hjálendu sinnar er umhugsunarefni. Líklega er hún einsdæmi. 4. Við vorum svo lánsamir ís- lendingar, að Danir hlustuðu á og tóku að lokum mark á sögulegum og sið- ferðilegum rökum og veittu okkur takmark- aða sjálfstjórn þegar árið 1874. Það var ein- mitt á þeim tímum sem önnur nýlendu- veldi voru í óða önn að bijóta undir sig varnarlausar þjóðir með blóðugum brandi, sem ekkert höfðu til saka unnið. 5. Nokkrum árum eftir að íslendingar lýstu yfir stofnun lýð- veldis, á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar, af- hentu Danir okkur þau þjóðarverð- mæti íslands, handritin, en margir telja að innihald þeirra sé það eina sem réttlæti tilveru okkar sem þjóðar. Þótt við værum að vísu búnir að jagast í þeim nokkuð lengi að fá þessar bækur okkar aftur, bar þeim engin þjóðréttarleg skylda til þeirrar afhendingar. Þetta vinarbragð er með fádæm- um í samskiptum þjóða og jafngild- ir því,að Bretar opnuðu British Museum og afhentu til dæmis Egyptum þjóðargersemar þeirra, sem þar eru varðveittar á hæpnum forsendum. Eða þá að Frakkar opn- uðu Louvre og gerðu slíkt hið sama. Dönsku stjórnmálamennimir Viggo Kampmann, Jörgen Jörg- ensen og Julius Bomholt, svo örfá- ir séu nefndir, voru lykilmenn í dönsku ríkisstjóminni við lausn handritamálsins á sínum tíma og tóku mikla, stjórnmálalega áhættu við lausn þess. Ýmsir forystumenn þjóðanna í dag gætu lært ýmislegt af viturlegri afstöðu þessara ágætu manna og fleiri slíkra, í því merki- lega máli. Þær skotheldu, sögulegu stað- reyndir, sem hér hefur verið bent á, eru fordæmi sem allar þjóðir heims, sem em í svipaðri aðstöðu og Danir voru í gagnvart íslend- ingum á sínum tíma, gætu tekið sér til fyrirmyndar í dag og lært af. íslendingar eru gömul sagna- þjóð. Því ætti það ekki að vera ofverkið okkar að koma svo lær- dómsríkum söguþáttum á fram- færi, þar sem þörf er á að reyna að koma vitinu fyrir menn. Borís karlinn Jeltsín hefði ábyggilega gott af slíkri uppfræðingu, svo dæmi sé tekið, þó að vísu skuli viðurkennt að tækifæri til slíkrar sögukennslu eru ekki á hveiju strái. En það sýnist vera vel til fundið fyrir sendimenn okkar er- lendis, hverju nafni sem þeir nefn- ast, að hafa þetta á hraðbergi þeg- ar þeir sjá sér leik á borði. Og það sem meira er. Ríkisstjórnin ætti beinlínis að gefa út dagskipun til diplómata sinna um að Dönum verði nú hrósað svolítið fyrir það sem þeir gerðu vel í samskiptum við okkur. Mörgum sýnist það sé tími til kominn. Betri landkynning en að benda á ofangreindar sögulegar rósir í hnappagati okkar gömlu „herra- þjóðar“ virðist vandfundin fyrir Islendinga. Að hrósa öðrum, ef þeir eiga það skilið, er hveijum manni heiður. í hörðum heimi, þar sém frelsisbarátta margra þjóða virðist enn í algleymingi, yrði tekið eftir slíkum málflutningl, ef lag- lega væri fram settur. I þessum efnum megum við ekki láta það villa okkur sýn, þó stjórn.Dana á landi okkar hafi ekki alltaf verið viturleg í tímans rás. íslendingar hafa áður gert það að boðskap sinum, að forystumenn þjóða tali saman um vandamálin og hlusti á söguleg rök, áður en gripið er til vopnaðra aðgerða. Nú þurfum við að rifja þessa taktík upp. Við höfum reynsluna. Höfundur er bóndi :í Hrnfnseyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.