Morgunblaðið - 23.01.1996, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 51
FRETTIR
Ur dagbók lögreglunnar í Reykjavík
í DAGBÓKINA eftir helgina eru
færðar 336 bókanir. Af þeim eru
11 mál vegna afskipta lögreglu
af mönnum er grunaðir voru um
höndlun fíkniefna eða höfðu slíkt
efni í fórum sínum. Allir lögreglu-
menn beina nú athygli sinni í
auknum mæli að fíkniefnatengd-
um málum sem mótvægi við
breytta skipan þeirra mála í sam-
félaginu. Auk þess væntir lög-
reglan aukinnar samstöðu á með-
al almennings svo spyrna megi
við þessum vágesti á sem flestum
sviðum. Árangurinn mun
væntanlega ekki láta á sér
standa.
Fíkniefni, þýfi og áhöld til
fíkniefnaney slu
Á sunnudagsmorgun handtóku
lögreglumenn t.d. nokkra grun-
aða fíkniefnasala þar sem þeir
höfðu verið á ferð í bifreið á
Höfðabakka. Leit var gerð á þeim
og leitað var í bifreiðinni. Á ein-
um farþeganum fannst ætlaður
hassmoli, en auk þess fundust
hlutir, sem talið er að sé þýfi úr
innbrotum. Fólkið var allt fært á
lögreglustöðina til yfirheyrslu.
Fyrr um morguninn höfðu lög-
reglumenn handtekið mann í
Mjölnisholti með ætlað fíkniefni
í fórum sínum. Þá fundust fíkni-
efni á farþega í leigubifreið um
morguninn. Á laugardagsmorgun
gerðu lögreglumenn leit í húsi
nálægt Snorrabraut. Á staðnum
fannst ætlað fíkniefni, áh'öld til
neyslu og hlutir, sem húsráðend-
ur gátu ekki gert grein fyrir.
Viðkomandi voru vistaðir í fanga-
geymslunum.
33 umferðaróhöpp
Tilkynnt var um 6 líkamsmeið-
ingar, 11 innbrot, 11 þjófnaði og
11 eignaspjöll. Þá var tilkynnt
um 38 umferðaróhöpp. Minni-
háttar meiðsli á fólki urðu í 3
tilvikum. Á sama tíma höfðu lög-
reglumenn afskipti af 44 öku-
mönnum fyrir ýmis umferðar-
lagabrot. Sex þeirra eru grunaðir
um ölvunarakstur.
Ekið var yfir fót á gangandi
Afskipti
höfð af
fólki vegna
fíkniefna
11 sinnum
19.-22. janúar
vegfaranda á Bröttugötu aðfara-
nótt laugardags. Hann var fluttur
á slysadeild. Á laugardagskvöld
var bifreið ekið á ljósastaur við
Kringlumýrarbraut nálægt Sig-
túni. Ökumaður og farþegi voru
fluttir á slysadeild eftir harðan
árekstur tveggja bifreiða á
Suðurfelli. Um nóttina voru einn-
ig tveir farþegar fluttir á slysa-
deild með sjúkrabifreið eftir harð-
an árekstur tveggja bifreiða á
Fríkirkjuvegi.
Fátt í fangageymslum
Lögreglumenn veittu fólki 14
sinnum aðstoð ýmiss konar, s.s.
við að opna læsta bifreið, koma
fólki, sem hafði lokað sig úti, inn
aftur, að flytja fólk, sem hafði
átt í erfíðleikum, á milli staða,
vegna veikinda, misnotkunar
lyfja o.fl. Tuttugu og tvisvar
þurftu lögreglumenn að fara á
vettvang vegna hávaða og ónæðis
frá fólki að kvöld- og næturlagi
og sex sinnum var tilkynnt um
ófrið á heimilum af ýmsum
ástæðum. Vista þurfti 29 manns
í fangageymslunum um helgina,
en það telst tiltölulega fátt þegar
á heildina er litið.
Tilkynnt var um að stolið hefði
verið varadekki af jeppabifreið
þar sem hún var í Skjólunum.
Rétt er að vekja athygli á að
nokkuð hefur borið á því að und-
anfömu að slíkum dekkjum sé
stolið af jeppabifreiðum sömu
tegundar. Um er að ræða Nissan
Terrano. Athygli eigenda slíkra
jeppa og reyndar annarra jeppa-
eigenda er vakin á að gera ráð-
stafanir er dugað geta til að
draga úr líkum á þjófnuðum sem
þessum.
Lítið um unglinga í
miðbænum
Tiltölulega friðsælt var í mið-
borginni aðfaranætur laugardags
og sunnudags. Fyrri nóttina
þurfti að handtaka mann vegna
ölvunar og annan vegna líkams-
meiðingar. Þá höfðu lögreglu-
menn afskipti af 4 unglingum og
færðu þá í athvarf ÍTR. Haft var
samband við foreldra ungling-
anna og þeir sóttir. Mjög lítið
hefur borið á unglingum í mið-
borginni undanfarið misseri svo
og yfirleitt utandyra eftir að úti-
vistartíma er lokið. Síðari nóttina
sáust unglingar ekki í miðborg-
inni. Um 2.500 manns voru þar
þegar flest var, en ekki var talin
ástæða til að hafa afskipti af
fólki.
Aðfaranótt laugardags hafði
maður á brott með sér verðmæt-
an rusladall úr húsi við Skúla-
götu. Lögreglumenn stöðvuðu
manninn skömmu síðar á bifreið
og færðu hvort tveggja á staðinn
aftur.
Logandi rusli kastað inn um
glugga
Eldur kom upp í sæng í rúmi
í íbúð við Laufrima að morgni
laugardags. Talið var að logandi
rusli hefði verið kastað þar inn
um opinn svefnherbergisglugga.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur málið til rannsóknar.
Á laugardag var maður hand-
tekinn á Njarðargötu. Hann var
klyfjaður þýfi úr verslunum í
nágrenninu, aðallega fatnaði.
Lögreglumenn á Suðvestur-
landi ætla á næstunni að huga
sérstaklega að búnaði ökutækja.
Jafnhliða því geta ökumenn átt
von á að þurfa að svara nokkrum
spurningum í tengslum við könn-
un sem unnið er að þá daga.
Vestnorræn mál
á Rask-ráðstefnu
ÍSLENSKA málfræðifélagið og
Málvísindastofnun Háskóla ís-
lands efna til hinnar árlegu Rask-
ráðstefnu 27.-28. janúar 1996 í
Odda, stofu 101. Þetta er 10. ráð-
stefnan í þessari ráðstefnuröð sem
kennd er við danska málfræðing-
inn Rasmus Kristján Rask (1787-
1832).
Rask var brautryðjandi í málvís-
indum og tók sérstöku ástfóstri
við íslenska tungu. Aðalefni Rask-
ráðstefnunnar er að þessu sinni
vestnorræn mál og saga þeirra
(íslenska, færeyska, norska, hjalt-
lenska).
Ráðstefnan í ár er með viða-
mesta móti. M.a. er boðið sérstak-
lega til landsins 6 fræðimönnum;
Michael Bames frá Lundúnum,
Helge Sandoy frá Björgvin, Kjart-
ani G. Ottóssyni frá Osló, Laurits
Rendboe frá Óðinsvéum, Sten
Vikner frá Stuttgart, Eivind Wey-
he frá Færeyjum og auk þeirra
flytja erindi 5 innlendir fræði-
menn; Kristján Árnason, Guðrún
Kvaran, Ásta Svavarsdóttir, Hösk-
uldur Þráinsson og Eiríkur Rögn-
valdsson. Alls verða fluttir 11 fyr-
irlestrar.
Leita vitna að slysi
RANNSÓKNADEILD lögreglunn-
ar í Hafnarfirði óskar eftir að ná
tali af sjónarvottum að alvarlegu
umferðarslysi sem varð í bænum
klukkan rúmlega 11 síðastliðinn
föstudag.
Móts við bensínstöðina, sem er
á mótum Reykjanesbrautar,
Lækjargötu og Hlíðarbergs rákust
saman flutningabíll og fólksbíll og
er ökumaður fólksbílsins stórslas-
aður.
Lögreglan vinnur að rannsókn á
tildrögum slyssins og óskar eftir
að ná tali af öllum sjónarvottum,
m.a. vegna óvissu um stöðu um-
ferðarljósa á gatnamótunum þegar
slysið varð.
Vinningstölur 20. jan. 1996
1 • 4 *6»9» 10*19*23
Vinningstölur 22. jan. 1996
3*5»6*8*9*10 *23
Eldrí úrslit á símsvara S68 1511
VINNINGAR
FJÖLDI
VINNINGSHAFA
UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA
1.5
4.362.613
■Plús
90.080
3. 4af 5
86
9.030
4.:
3.077
580
Heildarvinningsupphæö:
7.374.253
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
þeir hagsýnu kaupa
fermingargjöfina núna
o o ! fN ! Ln r>i o m
í 4 \! • I
ff A H
I
f iliMIBl m