Morgunblaðið - 23.01.1996, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVlK, SÍMI 669 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
NHK segir tilboð sitt í tryggingar FÍB þýða 30% lækkun
18.000 kr. lækkun
á meðaliðgjöldum
NHK Intemational, tryggingamiðl-
un, var með lægsta tilboðið í öku-
tækjatryggingar sem Félag ís-
lenskra bifreiðaeigenda bauð út fyr-
ir félagsmenn sína. Gísli Maack,
hjá NHK á íslandi, segir að tilboð
þeirra sé 30% undir meðaliðgjöld-
um. Meðaliðgjöld af ökutækja-
tryggingu era á bilinu 55-60 þúsund
krónur. 30% lækkun frá því nemur
á bilinu 16.500 til 18.000 krónur.
Gísli segir að NHK og FÍB ætli
að setjast niður og ræða þessi mál
út í hörgul og kvaðst hann vonast
til þess að samningar tækjust um
að NHK sæi um ökutækjatrygging-
ar félagsmanna FÍB.
„NHK hefur haft þau áhrif sem
það ætlaði sér á íslenska trygginga-
markaðnum, það er að lækka ið-
gjöldin og ogna íslendingum hlið
út í Evrópu. íslensku tryggingafé-
lögin hafa hafnað öllu samstarfi við
okkur og þá verðum við að flytja
tryggingarnar út,“ sagði Gísli.
Hann sagði að það væri alveg
ljóst að NHK þyrfti að setja upp
meiri starfsemi hérlendis til þess
að annast þessar tryggingar verði
af samningum.
„Verði þessi samningur að veru-
leika, verður þetta gert þannig að
tryggingataki geti farið á skrifstofu
hér í Reykjavík og gengið frá sínum
málum. Ég vona að allur íslenski
markaðurinn komi á eftir því ég sé
enga ástæðu fyrir því að íslendingar
greiði hærri iðgjöld en Norðmenn,
Danir eða Færeyingar," sagði Gísli.
NHK er ekki vátryggingafélag
heldur vátryggingamiðlari sem
kemur á samningi vátryggingafé-
lags og í þessu tilfelli FIB. Gísli
vildi ekki upplýsa hvaða vátrygg-
ingafélög stæðu að baki NHK Inter-
national vátryggingamiðlaranum.
Skandia á íslandi átti einnig til-
boð í ökutækjatryggingar FÍB, en
Friðrik Jóhannsson, forstjóri
Skandia á íslandi, vildi ekki gefa
upp í hverju tilboðið fælist. „Ég vil
gefa FÍB tíma til þess að skoða
þetta tilboð og vil því ekki tjá mig
frekar um málið,“ sagði Friðrik.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Ær bera í hrútmánuði
Blönduósi. Morgunblaðið.
Á BÆNUM Bakka í Vatnsdal eru
bornar þrjár ær og eru lömbin
fjögur undan þeim. Fyrst bar
Móra daginn fyrir gamlársdag
tveimur lömbum, þá Grákolla síð-
astliðinn mánudag og síðust bar
Bauga á Antoníusmessu (17. jan-
úar). Öll eru þessi lömb fædd í
hrútmánuði en nafn þetta dregur
mánuðurinn af árstíðabundnu
atferli sauðkindarinnar. Hrút-
mánuður, sem er þriðji mánuður
vetrar, nefnist einnig mörsugur.
Á myndinni má sjá þá Jón
Bjarnason bónda á Bakka (t.h.)
og Einar Pál Vigfússon kaupa-
mann halda á afkvæmum þeirra
Grákollu og Baugu en þetta
munu að öllum líkindum vera
fyrstu lömb ársins.
Morgunblaðið/Kristinn
Enn meiri flóðhæð í Reykjavík
STÓRSTREYMT var í gær og í dag. Flóð-
hæð var 4,43 metrar í Reykjavík upp úr
kl. 7 í gærmorgun. Ekki er vitað til þess
að nokkur skaði hafi orðið af og þakka
menn það 1.017 millibara loftþrýstingi
yfir landinu.
Spáð var 4,60 metra flóðhæð í morgun
en bryggjudekkið í Reykjavíkurhöfn er í
5,30 metra hæð. Spáð var sunnankalda og
súld kl. 6 með um 1.005 millibara loftþrýst-
ingi á suðvestanverðu landinu, að sögn
Braga Jónssonar veðurfræðings.
Utreikningar á sjávarhæð eru miðaðir
við að meðalloftþrýstingur við yfirborð
sjávar sé 1.013 millibör. Síðan er stuðst
við þá þumalfingursreglu að við hvert
millibar, sem loftþrýstingur lækkar,
hækki flóðhæð um einn sentimetra.
Meðalstórstraumsflóð í Reykjavík er
fjórir metrar, en innbyrðis afstaða tungls
og sólar veldur því að stórstraumsflóð er
nú óvenju hátt.
Aftur verður stórstreymi 19., 20. og 21.
febrúar næstkomandi. 20. febrúar er
spáð 4,60 metra flóðhæð á ný. 20. mars
verður flóðhæð um 4,40 metrar.
Götur eins og Sæbraut og Eiðsgrandi
eru í 6,8 metra hæð samkvæmt mælikerfi
Sjómælinga, en gamlar götur eins og Póst-
hússtræti og Austurstræti eru mun lægri.
Lægstu niðurföll þar eru í 4,6 metra hæð.
Máni ÍS virtist kominn upp á land á
Grandagarði þegar flóð var mest upp úr
kl. 7 í gærmorgun, en þá flæddi yfír bryggj-
una. Sjö klukkustundum seinna sást rétt
grilla í mastur bátsins þegar fjara var mest.
1,5% hækk-
un bygging-
arvísitölu
VÍSITALA byggingarkostnaðar
hækkaði um 1,5% frá desember til
janúar, en það jafngildir 19% verð-
lagshækkun á heilu ári. Ástæðan er
3% hækkun launa 1. janúar síðastlið-
inn, en laun vega um helming í vísi-
tölu byggingarkostnaðar.
Vísitalan hefur ekki hækkað
jafnmikið og nú frá því í marsmán-
uði 1995, en þá var hækkunin milli
‘mánaða einnig 1,5% og ástæðan sú
sama, launahækkun í kjölfar ný-
gerðra kjarasamninga. Síðustu tólf
mánuði hefur vísitala byggingar-
kostnaðar hækkað um 4,6% og síð-
ustu þijá mánuði um 1,6% sem jafn-
gildir 6,6% verðbólgu á heilu ári.
Launavísitala desembermánaðar
■hækkar um 0,2% frá fyrra mánuði.
Frá ársbyijun 1990 og til síðasta
Breytingar á vfsitölu^
byggingarkostnaðarjm
Breytingar siöustu 3 mánuöina C :
umreiknaöar til ársbreytingar
JFMAMJJÁSONDJ
1 995
ársfjórðungs í fyrra hefur vísitalan
hækkað um 23,8%. Þar af hafa laun
á almennum markaði hækkað um
20,9% samkvæmt upplýsingum Hag-
stofu íslands, en laun opinberra
starfsmanna og bankamanna hafa á
sama tímabili hækkað um 28,3%.
Lausn í sjónmáli í
deilu röntgentækna
TRYGGVI Ásmundsson læknir
hefur tekið að sér að miðla málum
í deilu röntgentækna, sem hættu
störfum á Landspítalanum 1. des-
ember sl., og stjómenda spítalans.
Tryggvi sagði eftir fund deiluaðila
í gær að hann teldi góðar líkur á
að samkomulag væri að takast í
deilunni.
Fimmtán röntgentæknar hættu
störfum eftir að stjómendur Land-
spítalans tóku ákvörðun um að fella
niður fasta yfirvinnutíma sem þeir
höfðu fengið greidda. Röntgen-
tæknamir litu svo á að ekki væri
hægt að segja upp hluta af starfs-
kjörum og þessi ákvörðun jafngilti
uppsögn úr starfi. Spítalinn hefur
fallist á að draga ákvörðunina til
baka gegn því að tekin verði upp
vaktavinna á röntgendeild Land-
spítalans. Ekki hefur náðst sain-
komulag um vaktakerfí.
Fundur í dag
Deiluaðilar sátu á fundum á
föstudag og laugardag. í gær
var aftur samningafundur og
sagði Tryggvi eftir þann fund
að hann teldi góðar líkur á að
deilan væri að leysast. Deiluað-
ilar munu koma saman til fund-
ar í dag og er búist við að þá
ráðist hvort sátt næst um þá
lausn sem nú er til umfjöllunar.
Ef samkomulag næst í dag er
hugsanlegt að röntgentæknarnir
mæti til vinnu á morgun.
Rannsaka
sauða-
þjófnað
LÖGREGLAN í Neskaupstað
rannsakar meintan sauðaþjófn-
að í Norðfirði. Um er að ræða
fimm hrúta sem hurfu í haust.
Þrír fullorðnir og tveir vet-
urgamlir hrútar hurfu frá
tveimur bæjum í Norðfirði.
Þeirra var leitað í haust og
vetur, meðal annars úr flugvél.
Þegar leit bar ekki árangur
kviknaði grunur um að hrút-
arnir hefðu lent í frystikistu.
Orðrómur um ákveðinn bæ í
því sambandi varð til þess að
hrútaeigendur báðu lögreglu
að athuga málið.
Bjarni Stefánsson sýslumað-
ur vildi hvorki játa því né neita
að sauðaþjófnaður hefði verið
kærður.