Morgunblaðið - 23.02.1996, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Ljóska
V/& komurri
aUtafa. réti
tJ/tiA. har-
-^GUdreO' y ^tesnt.i
^TV'-^r -—ir
f)f hverja skiijið f>iá '
hctnn tíc/ci bara eféir Yj
ua?sfci/jqJ Bestou „
Þajj efti 'rYj i/in oicbarf
Ferdinand
Smáfólk
£myi
n rsrrJb I OA^.
JL Aptfvivt thvm/
Qffld tfajJjaok "'Hms
Xo QjjdúL Kmjlsu
.■Wrzúfil!'*
Elsku mamma, þakka þér fyrir
smákökurnar.
Ég deildi þeim með vinum mínum
hérna í skotgröfunum.
Og bókin: „Hvernig forðast á sár
á hnjám“ mun koma að góðum
notum.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang:lauga@mbl.is
*
Ar símenntunar -
opið hús í Fjölbrauta-
skólanum við Armúla
Frá Sölva Sveinssyni:
NÚ ER ár símenntunar og af því
tilefni eru margir skólar með opið
hús laugardaginn 24. febrúar.
Starfsfólk Fjölbrautaskólans við
Ármúla býður alla velkomna þenn-
an dag kl. 13-17 að kynna sér
-starfsemi skólans, bæði grunn- og
símenntun. Kennurum er sérstak-
lega boðið að kynna sér náms-
framboð skólans og námsefni, for-
eldrum er boðið í heimsókn, nem-
endum í efri bekkjum grunnskóla,
foreldrafélögum og öðrum sem
láta sig menntun einhveiju varða.
Innritað verður á 20 námskeið
fyrir starfandi sjúkraliða og fjöl-
breytt dagskrá er í boði.
I tölvuveri skólans verður
kynntur nýjasti margmiðlunar-
búnaður sem völ er á, m.a. um
stjörnufræði og líffræði. Kennt
verður á Internetið og fólk fær
að spreyta sig. Deildarstjórar
verða á bókasafni skólans og þar
eru til sýnis allar kennslubækur
sem nú eru í notkun. Bókasafns-
fræðingur mun kenna fólki að
fletta upp í gagnabönkum um víða
veröld.
í liffræðistofu verða gerlasýni
í smásjá og ýmislegt fleira og kl.
14 kryfja nemendur smádýr og
síðan verður líffæraskoðun.
Sýnd verður lyfjagerð í apóteki
skólans og lyfjafræðingur mun
fjalla um lyijaskáp heimilisins, al-
geng lyf og hættuleg lyf. For-
varnadeild lögreglunnar mun sýna
þau fíkniefni sem algengust eru
hér og lyíjafræðingur mun skýra
þá vá sem fylgir neyslu þeirra.
Nemendur og kennarar á náms-
braut fýrir aðstoðarfólk tannlækna
kynna nám, störf og endurmenntun
í stofu A23, og á sal skólans kynna
nemendur þá starfsemi sem þeir
standa fyrir, félagslífið.
í hjúkrunarkennslustofu gefst
mönnum kostur á að láta mæla í
sér blóðþrýsting. Yfirvöld skólans
verða til viðtals og boðið er upp á
veitingar allan daginn.
Ég hvet fólk til þess að líta inn
og kynna sér starfsemi skólans.
Sjón er sögu ríkari! Þeir sem ekki
eiga heimangengt geta kynnt sér
námsframboð skólans og skipulag
á heimasíðu hans á Alnetinu,
rvik.ismennt.is/helmut/fa/. Verið
velkomin!
SÖLVI SVEINSSON,
settur skólameistari
Fjölbrautaskólans við Ármúla.
Hættum að menga
Drepum á bílunum
Frá Magnúsi Hlyni Hreiðarssyni:
FYRIR utan verslanir, sjoppur,
sjúkrahús, leikskóla, pósthús,
banka, frystihús, íþróttahús, heim-
ili, og hvar sem er í þjóðfélaginu,
alls staðar eru bílar skildir eftir í
gangi. Þótt við
ætlum bara rétt
að skreppa inn í
búð eða á meðan
við sækjum
börnin okkar í
leikskólann,
drepum við ekki
á bílnum. Af-
hverju ekki,
hveiju munar
um að snúa bíl-
lyklinum í kveikjulásnum og drepa
á bílnum? Ef við tökum okkur öll
saman og framkvæmum þessa litlu
og einföldu aðgerð þá erum við í
senn að sameinast um það að
minnka þá mengun, sem farartæk-
in gefa frá sér með útblæstrinum
og um leið að draga úr útstreymi
gróðurhússlofttegunda, því þótt
við séum lítil þjóð þá getum við
gert gagn með því að draga úr
mengun frá bifreiðum. Ég hef
grun um að það séu margir sem
hugsa þannig, að það skipti engu
máli hvort bíllinn sé í gangi í
nokkrar mínútur á meðan við sinn-
um erindum okkar, því bílarnir
mengi lítið sem ekki neitt en sam-
hliða því státum við okkur af
hreinu og fögru landi. Eru ekki
öfugmæli í þessu? Ég er ekki endi-
lega þeirrar skoðunar að við eigum
öll að hoppa upp í strætó eða að
sameinast um bíla því staðreyndin
er sú að við lifum í þannig samfé-
lagi að við þurfum að nota bíla til
að komast leiðar okkar. Það hafa
heldur ekki allir aðstöðu til að
nota almenningssamgöngur eða
að sameinast um bíla, aðstæðurnar
eru misjafnar hjá fólki. Þetta litla
atriði, að drepa á bílunum þegar
við erum ekki á ferðinni, getur
hjálpað okkur mikið til að koma í
veg fyrir mengun, en það þarf
hver og einn að gera upp hug sinn,
hugleiða af hveiju drep ég ekki á
bílnum og hvaða gagn geri ég með
því ef ég drep á bílnum þegar ég
er ekki að nota hann? Samkvæmt
minni bestu vitund er útblástur frá
díselbílum miklu hættulegri en hjá
bensínbílum. Því beini ég þeim vin-
samlegu tilmælum til notenda dís-
elbíla að hugsa sérstaklega sinn
gang, og skora á þá að drepa allt-
af á bílum sínum þegar þeir eru
ekki með þá í notkun eins og aðra
bifreiðastjóra á íslandi, hvort sem
þeir eru ráðherrabílstjórar, rútu-
bílstjórar, leigubílstjórar, einkabíl-
stjórar eða mjólkurbílstjórar.
MAGNÚS HLYNUR
HREIÐARSSON,
nemandi á umhverflsbraut
Garðyrkjuskóla ríkisins.
Magnús Hlynur
Hreiðarsson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt i
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.