Morgunblaðið - 24.03.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. MARZ 1996 B 21
N UA UGL YSINGAR
Láttu draumana
rætast!
Við höfum margra ára reynslu í beinni mark-
aðssókn og erum frumherjar í notkun nýs
sölukerfis sem er að skila stórkostlegum
árangri.
Þú munt hafa góðar tekjur og getur haft
tekjur sem nema hundruðum þúsunda á
mánuði.
Við bjóðum þér á vikunámskeið í almennri
sölumennsku með áherslu á okkar kerfi.
Þú munt starfa við sölu og markaðssetningu
hjá okkur.
Okkar styrkur liggur í:
- Heiðarlegum, öguðum og markvissum
vinnubrögðum.
- Góðu og stöðugu aðhaldi og aðstoð við
sölumenn.
- Vöru sem er viðurkennd og eftirsótt á
markaðnum.
- Sölu- og markaðskerfi sem byggt er á
nýjustu straumum í beinni markaðssókn.
ÞÚ GETUR LÁTIÐ DRAUMANA RÆTAST!
Leggðu nafn þitt inn á afgreiðslu Mbl. merkt:
„Framtíð 122“ og við höfum samband við
þig og sendum þér nánari upplýsingar.
A L M E S 88 A
l'inlMHlKNkrif Mtof an
Þjónusta við tujlýsinjt • 05 shmmttntiintð
S K R A N I N G
Venjulegt fólk: af báðum kynjum af öllum stærðum og
gerðum a aldrinum 0-100 ára sem hefur áhuga á að
Roma fram og sitja fyrir í hverskonar auglýsingum.
Ahersla á kynningu innanlands.
ijum á aldrinum
uga á að
Efnilegarfyrirsætur: Fólk af báðum kyniu
12 - 28 ára sem hefur útlit, hæfileika og ani
gtarfa sem atvinnufyrirsætur í framtíðinni.
Ahersla á kynningu erlendis.
Fagfólk: Leikarar, Skemmtikraftar,Tónlistarfólk,Sminkur,
Ljosmyndarar, Fatahönnuðir, Listafólk o.s.frv. o.s.frv.
Fullkomnasti Internet gagnagrunnur sinnar
tegundar í heiminum .héldur uTanumnýj^r
fagfófkí kleyft að leita sjálfum og finna það
þeim vantar á mettíma.
Nánari upplýsingar á Internetinu http://islandia.is/models
og á skrifstofutíma í síma 5504070.
Skráning fer fram á skrifstofunni Grensásvegi 7
f rá kl 12-18 mánudaga - föstudaga.
50% STARF
Lítið þjónustufyrirtæki í örum vexti óskar að ráða
starfsmann við bókhald sem fyrst
Starfiö felst í færslu bókhalds, afstemmingum,
innheimtu, reikningagerð o.fl.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af
bókhaldsstörfum, tölvunotkun, er sjálfstæður og
skipulagður í starfi og hefur góða framkomu.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður Bjarnadóttir
frá kl. 9-12
Vinsamlegast sendið umsóknirtil Ráðgarðs á eyðu-
blöðum er þar liggja frammi merktar
“Bókhald 50 % starf ” fyrir 30. mars n.k.
RAÐGARÐUR M
SljÓRNUSlAR CX; REKSIRARRÁÐGPF
FURUGERBI 5 109 REYKJAVÍK SÍMI 533-1800
netfang; radgard@itn.is
_
Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er sjálf-
stæð ríkisstofnun sem heyrir undir sjávarút-
vegsráðuneytið. Hlutverk stofnunarinnar er að
stuðia að framförum í fiskiðnaði með rann-
sóknum á hráefni og afurðum úr sjávarfangi.
Starfsmenn eru um 60, þar af 35 með háskóla-
próf. Stofnunin er í nýuppgerðu húsnæði og
er aðstaða og búnaður með ágætum.
í tengslum við breytingar á stjórnskipulagi
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins óskar
stofnunin eftir að ráða í eftirfarandi störf:
Aðstoðarforstjóri
Starfssvið:
Starfið felur í sér ábyrgð á eftirfarandi þáttum:
- Útfærslu og framkvæmd á stefnu RF.
- Faglegum markmiðum starfssviða í sam-
ræmi við langtímastefnu.
- Daglegum rekstri, áætlanagerð og eftirliti
með þeim.
- Starfsmannahaldi.
Aðstoðarforstjóri er formaður verkefnaráðs
og framkvæmdastjórnar og situr í fagráði.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði efnafræði, örveru-
fræði, matvælafræði, verkfræði og/eða við-
skiptafræði eða önnur sambærileg menntun
ásamt staðgóðri þekkingu á sjávarútvegi.
Starfsreynsla og góð tungumálakunnátta er
nauðsynleg. Aðstoðarforstjóri þarf að vera
framsækinn og hugmyndaríkur, hafa góða
stjórnunarhæfileika og vera lipur í samskiptum.
Þjónustustjóri
Þjónustustjóri er forstöðumaður þjónustu-
sviðs, en þar fara fram þjónustumælingar
sem unnar eru á vegum stofnunarinnar.
Starfsemi útibúa í Vestmannaeyjum, á
ísafirði, Akureyri og Neskaupstað heyrir
einnig undir sviðið.
Starfssvið:
Starfið felur í sér ábyrgð á eftirfarandi þáttum:
- Daglegum rekstri sviðsins, þ.m.t. áætlana-
gerð og starfsmannamálum sviðsins.
- Öflun verkefna og samskiptum við við-
skiptavini.
- Þróun nýrra mælinga og annarri reglu-
bundinni þjónustu.
Forstöðumaður þjónustusviðs situr í fagráði,
verkefnaráði og framkvæmdastjórn.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði efnafræði, örveru-
fræði, matvælafræði, verkfræði eða önnur
sambærileg menntun.
Starfsreynsla og góð tungumálakunnátta er
æskileg.
Forstöðumaður þjónustusviðs þarf að vera
framsækinn og hugmyndaríkur, hafa góða
stjórnunarhæfileika, þjónustulund og vera
lipur í samskiptum.
Rannsóknastjóri
Rannsóknastjóri er forstöðumaður verkefna-
sviðs, en þar fer fram fagleg þróunarvinna
og rannsóknir stofnunarinnar, aðrar en út-
seldar þjónustumælingar. Verkefni eru unnin
í hópum og bera hóparnir ábyrgð á einstök-
um verkefnum.
Starfssvið:
Starfið felur í sér ábyrgð á eftirfarandi þáttum:
- Faglegum leiðbeiningum um framgang
verkefna sem unnin eru í verkefnahópum.
- Öflun verkefna með verkefnastjórum.
- Daglegum rekstri sviðsins, þ.m.t. áætlana-
gerð og starfsmannamálum.
Forstöðumaður verkefnasviðs situr í fagráði,
verkefnaráði og framkvæmdastjórn.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði efnafræði, örveru-
fræði, matvælafræði, verkfræði eða önnur
sambærileg menntun.
Starfsreynsla og góð tungumálakunnátta er
æskileg.
Forstöðumaður verkefnasviðs þarf að vera
framsækinn og hugmyndaríkur, hafa góða
stjórnunarhæfileika og mikinn faglegan
metnað.
Upplýsingastjóri
Upplýsingastjóri er forstöðumaður upplýs-
ingasviðs, en þar fer fram útgáfa kynningar-
og kennsluefnis og skipulagning og umsjón
með námskeiðum og ráðstefnum á vegum
stofnunarinnar. Kennsla og samstarf við
menntastofnanir heyra einnig undir upplýs-
ingasvið.
Starfssvið:
Starfið felur í sér ábyrgð á og umsjón með
eftirfarandi þáttum:
- Útgáfu kynningar- og kennsluefnis.
- Upplýsingakerfum og viðhaldi upplýsinga.
- Kennslu og samstarfi við menntastofnanir.
Forstöðumaður upplýsingasviðs situr í fag-
ráði, verkefnaráði og framkvæmdastjórn.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun. Starfsreynsla og góð
tungumálakunnátta er nauðsynleg.
Forstöðumaður upplýsingasviðs þarf að hafa
góða skipulagshæfileika og vera hugmynda-
ríkur.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Nánari upplýsingar um ofangreind störf
veitir Einar Kristinn Jónsson og Maria G.
Sigurðardóttir hjá Markviss ehf., Kringlunni
6, Reykjavík, sími 588 7474, milli. kl. 9.00
og 10.00 daglega.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skulu berast til sjávarútvegs-
ráðuneytisins fyrir kl. 16.00 föstudaginn
12. apríl 1996.
Sölumaður
Heildverslun í Reykjavík óskar eftir að ráða
sölumann til starfa frá og með 1. maí nk.
Starfið felst í sölu á fatnaði til verslana.
Leitað er að snyrtilegum og framtakssömum
aðila, sem er tilbúinn að leggja sig fram í
starfi. Um hlutastarf er að ræða. Fyrirtækið
leggur til bifreið.
Umsóknarfrestur er til og með 27. mars
1996.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofu Liðsauka, sem er opin frá
kl. 9-14.
Lidsauki
Skólavörðustíg 1a-101 Reykjavík - Sími: 562 1355
Fax: 562 1311 - Kt. 600182-0729
FELAGSMALASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39 - 108 Reykjavik - Sími: 588-8500 - Fax: 568-6270
Unglingadeild
Við auglýsum eftir traustum starfsmanni til
að búa og starfa á litlu sambýli fyrir 16-18
ára ungmenni í Reykjavík.
Nauðsynlegt er reynsla og þekking af ungl-
ingamálum og að umsækjandi sé eldri en
24 ára. Umsækjandi þarf að geta hafið störf
1. maí nk.
Umsóknarfrestur er til 3. apríi nk.
Umsóknir berist til Unglingadeildar Félags-
málastofnunar, Skógarhlíð 6.
Allar nánari upplýsingar veita Anna Jóhanns-
dóttir, forstöðumaður Unglingadeildar og
Ragnheiður Sigurjónsdóttir, deildarstjóri, í
síma 562 5500.