Morgunblaðið - 24.03.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. MARZ 1996 B 27
R AÐ AUGL YSINGAR
Námsmannastyrkir
Umsóknarfrestur er til 1. maí
Veittir verða 12 styrkir hver að
upphæð 125.000 krónur
Styrkirnir skiptast þannig:
★ Útskriftarstyrkir til nema í Háskóla
íslands.
★ Útskriftarstyrkir til nema á háskólastigi/
sérskólanema.
★ Styrkir til námsmanna erlendis.
Einungis aðilar í Námsmannalínunni eiga
rétt á að sækja um þessa styrki.
Umsóknareyðublöð eru afhent í öllum útibú-
um Búnaðarbankans og á skrifstofu
Stúdentaráðs, SÍNÉ og BÍSN.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. maí til:
BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS,
markaðsdeild, Austurstræti 5,155 Reykjavík.
BÚNAÐARBANKINN
- Traustur banki
náms a
KENNSLA
Stýrimannaskólinn
í Reykjavík
GMDSS - fjarskiptanám-
skeið
Nýja neyðar- og öryggisfjarskiptakerfið
Námskeið hefst mánudaginn 25. mars kl.
16.00. Enn er pláss fyrir þrjá.
Upplýsingar í síma 551-3194, fax 562-2750.
Skólameistari.
ffl
Frá Grunnskólum
Reykjavíkur
Innritun sex ára barna þ.e. barna sem fædd
eru á árinu 1990) fer fram í skólum borgar-
innar miðvikudaginn 27. og fimmtudaginn
28. mars 1996, kl. 15-17 báða dagana.
Það er mjög áríðandi að foreldrar láti inn-
rita börnin á þessum tilgreinda tíma vegna
nauðsynlegrar skipulagningar og undirbún-
ingsvinnu í skólunum.
Iff
Frá Skólaskrifstofu
Reykjavíkur
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem
þurfa að flytjast milli skóla næsta vetur fer
fram í Skólaskrifstofu Reykjavíkur, Tjarnar-
götu 12, sími 552 8544, miðvikudaginn 27.
og fimmtudaginn 28. mars nk. kl. 10-15
báða dagana.
Þetta gildir um þá nemendur sem flytjast til
Reykjavíkur eða úr borginni, koma úr einka-
skólum eða þurfa að skipta um skóla vegna
þreytinga á búsetu innan borgarinnar.
Það er mjög árfðandi vegna nauðsynlegrar
skipulagningar og undirbúningsvinnu að
öll börn og unglingar sem svo er ástatt um
verði skráð á ofangreindum tíma.
Þá nemendahópa sem flytjast í heild milli
skóla að loknum 7. bekk þarf ekki að innrita.
O MEDIA II
áætlun Evrópusambandsins
Áætlun til eflingar evrópskum kvikmynda-
og sjónvarpsiðnaði.
Kynnir fyrstu tilboð umsókna í nýrri MEDIA
II áætlun Evrópusambandsins (1996-2000).
1) ÞJÁLFUN (fjármagn til ráðstöfunar 1996:
7,5 MECU eða um 625 milljónir íkr.)
Skilafrestur umsókna: 28. maí 1996.
(Fyrir skóla og stofnanir, sem vilja taka að
sér þjálfun og /eða kennslu í framhaldsnámi
kvikmyndagerðar).
2) UNDIRBÚNINGUR (fjármagn til ráðstöf-
unar 1996: 13 MECU eða um 1.085 milljónir-
íkr.) Skilafrestur umsókna:
- 19. apríl 1996 (stuðningur við samtök fyrir-
tækja eða iðnaðarhópa)
-30. apríl 1996 (undirbúningur verkefna)
-31. maí 19956 (rekstrarstuðningur fram-
leiðsluhyrirtækja)
(Fyrir sjálfstæða framleiðendur, framleiðslu-
fyrirtæki og samtök framleiðslufyrirtækja).
Vinnufundur um frágang umsóknargagna
vegna lána til „undirbúnings verkefna" verð-
ur haldinn laugardaginn 30. mars 1996 í
Kornhlöðunni, Lækjarbrekku (inngangur frá
Bankastræti) kl. 13.00-16.30. Aðgangur er
ókeypis. Áhugasamir vinsamlegast tilkynnið
þátttöku í síma 562 6366.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Margrét Vigfúsdóttir,
MEDIA uppiýsingaþjónustan,
Laugavegi 24, 101 Reykjavík,
sími 562 63 66, fax 562 71 71.
-e mail: mediadesk@ centr-
um.is
KÓ PAVOGSBÆR
Fossvogsdalur - Austur-
hluti - Deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi útivistarsvæðis í
austurhluta Fossvogdals auglýsist hér með
skv. grein 4.4.1. í skipulagsreglugerð nr.
318/1985. Skipulagssvæðið afm'arkast af
bæjarmörkum Kópavogs og Reykjavíkur í
norður, byggð við Stjörnugróf og Smiðjuveg
í austur, byggð við Kjarrhólma og Álfatún í
suður og félagssvæði HK í vestur.
Tillagan miðast við að austurhluti dalsins
verði nýtturtil úitivistarog aukinnartrjárækt-
ar. Jafnframt er í tillögunni auðkennt 1,5 ha
svæði sem leigt er tímabundið til uppeldis-
og skiptiræktunar.
Uppdráttur ásamt skýringarmyndum og
greinargerð verður til sýnis á Bæ.iarskipulagi
Kópavogs, Fannborg 2, 4. hæð, frá kl. 9-15
alla virka daga frá 25. mars til 24. apríl 1996.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila
skriflega til Bæjarskipulags innan auglýsts
kynningartíma.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Óskilahross
í óskilum eru eftirtalin hross, sem ekki hefur
verið vitjað síðan í apríl 1995.
10-12 vetra moldóttur hestur.
5-6 vetra stjörnóttur rauður hestur.
5-6 vetra brún hryssa.
4-5 vetra steingrá hryssa.
Verði hrossanna ekki vitjað innan tíu daga
frá birtingu á auglýsingu þessari verða þau
seld á uppboði.
Upplýsingar fást í hverfisbækistöð Gatna-
málastjóra við Stórhöfða í síma 587 6323.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík.
Garðatorg - Garðabæ
Listamenn og
handverksfólk
Verið með í að skapa líf á Garðatorgi.
Komið með ykkar framlag til sýnis og sölu
ykkur að kostnaðarlausu. Ákveðið hefur ver-
ið að fyrsta sýning verði 12., 13. og 14. apríl.
Allar nánari upplýsingar veita Helga, H-búðin,
s. 565 6550 og Ida, G.H. Ijós, s. 565 6560.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Laugarás
Við erum hjón með tvö börn og leitum að
ca 150 fm húsnæði í Laugaráshverfinu til
leigu til a.m.k. 2ja ára. Heitið er öruggum
greiðslum og góðri umgengni.
Svör sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir 30. mars
nk., merkt: „ÁS - 3“.
Góður sumarbústaður
Til kaups óskast góður sumarbústaður (heils-
árshús) í allt að 11A>-2 klst. akstursfjarlægð
frá Reykjavík. Æskilegt er að gróið land í
stærra lagi fylgi bústaðnum.
Tilboð, helst með myndum, ásamt verðhug-
myndum, berist afgreiðslu Mbl. eigi síðar en
2. apríl nk., merkt: „Bústaður - 6622.“
HÚSNÆÐI í BOÐI
Glæsileg íbúð til sölu
Glæsileg 2ja herbergja íbúð í hjarta miðborg-
arinnar er til sölu.
Nýtískulega innréttuð, í góðu steinhúsi.
Sjón er sögu rikari.
Upplýsingar í síma 553 1047.
Ævintýrin gerast enn...
Við eigum notalega „penthouse" íbúð á Costa
del Sol, en þurfum að vera heima á Fróni í
1-2 ár. Ef þið hafið áhuga á að breyta til erum
við til í að skipta á húsnæði í einhvern tíma.
Áhugasamir sendi inn upplýsingar á af-
greiðslu Mbl., merkt: „A-4136“ fyrir 31 /3.
Trésmíðavél
Óska eftir sleðasög með forskurðarblaði t.d.
CAMRO. Vantar einnig sogpoka fyrir sömu vél.
Upplýsingar í síma 562 7666/67.
Fellingavél
Viljum kaupa notaða fellingavél.
Svarað í síma 462 5836 í vinnutíma (Magnús).
Iðjulundur,
verndaður vinnustaður,
Akureyri.
Beygjuvél og blikkklippur
Óska eftir að kaupa:
1. Blikkklippur sem taka 3 metra og 2 mm
þykkt.
2. Beygjuvél sem tekur 3 metra.
Áhugasamir sendi tilboð til afgreiðslu Mbl.
merkt: „BB - 90“.
ÞJÓNUSTA
Þrif og ræstingar
Fiskverkendur - kjötvinnslur -
brauðgerðir
Bjóðum heildarlausnir á þrifum á húsnæði í
matvælavinnslu. Fyllum upp kröfur HACCP-
kerfisins, Hollustuverndar ríkisins og Heil-
brigðiseftirlits ríkisins.
Bónusþrif,
símar 552-9590 og 897-2477.