Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 1
144 SÍÐUR B/C/D/E/F/G
80. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 4. APRÍL1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Heita þjóð-
aratkvæði
London. Reuter.
BRESKI íhaldsflokkurinn hét því
í gær að beita sér fyrir þjóðarat-
kvæði verði ákveðið á næsta kjör-
tímabili að Bretland gangi í Efna-
hags- og myntbandalag Evrópu
(EMU) og taki þar með upp mynt
Evrópusambandsins (ESB) í stað
pundsins.
John Major forsætisráðherra
kvaðst vonast til þess að þetta lof-
orð gæti orðið til þess að brúa bil-
ið milli Evrópusinna og ESB-and-
stæðinga innan íhaldsflokksins.
Evrópusambandið stefnir að því
að EMU taki gildi í byijun ársihs
1999.
Bretland hefur undanþágu frá
þátttöku í myntbandalaginu, sam-
kvæmt Maastricht-sáttmálanum,
en margir ráðherrar í stjórn íhalds-
flokksins, þ. á m. Kenneth Clarke
fjármálaráðherra, telja að EMU-
aðild sé í þágu hagsmuna bresks
efnahagslífs.
■ íhaldsmenn lofa/22
Ron Brown talinn af
í flugslysi í Króatíu
Reuter
RON Brown á flugvellinum í Tuzla í Bosníu í gær, við upphaf
flugferðarinnar til Dubrovnik. Flugvél hans er í baksýn.
Dubrovnik, Washington. Reuter.
ALLAR líkur voru taldar á því í
gærkvöldi, að Ron Brown, við-
skiptaráðherra Bandaríkjanna, og
um tugur yfirmanna bandarískra
stórfyrirtækja hefðu látið lífið er
bandarísk herþota, sem þeir voru
farþegar í, fórst á leið frá Tuzla í
Bosníu til Dubrovnik í Króatíu.
Talsmaður bandaríska varnar-
málaráðuneytisins útilokaði að um
skemmdarverk hefði verið að ræða.
Talsmaður flugvallaryfirvalda i
Dubrovnik sagði, að flugskilyrði
hefðu verið slæm er þotan átti að
lenda þar, skyggni lélegt og steypi-
regn. Þotan var í blindflugsaðflugi
að flugvellinum er hún hvarf
skyndilega af ratsjám. Samband
við hana hafði verið með eðlilegum
hætti og flugmennirnir ekki gefið
neitt óeðlilegt til kynna.
Fyrstu fregnir bentu til þess að
þotan hefði farist í sjó í aðflugi til
Dubrovnik og beindist leitin að
henni að þeim slóðum. En þetta
reyndist fjarri sanni því þremur
tímum síðar kom í ljós að hún
hafði rekist á Jóhannesarfjall, 10
km suðaustur af Dubrovnik og
þremur kílómetrum norður af vest-
urenda flugbrautarinnar. Land er
erfitt yfirferðar í nágrenni slys-
staðarins sem er í um 700 metra
hæð yfir sjó.
Króatískir lögreglumenn og
læknar komust á slysstað í gær-
kvöldi og franskar og bandarískar
þyrlur freistuðu þess að flytja
menn úr friðargæslusveitum Atl-
antshafsbandalagsins þangað en
úrhellisrigning, þoka og myrkur
gerðu leitar- og björgunarmönnum
erfitt fyrir.
Kona fannst á lífi á slysstað í
gærkvöldi en hún lést á leið á
sjúkrahús. Með þotunni voru 27
farþegar og sex manna áhöfn. Hún
var af gerðinni Boeing T-43A og
svarar til 737-200 farþegaþotunn-
ar.
Bill Clinton forseti sagðist ekki
vita nákvæmlega hver örlög
Browns urðu en fór lofsamlegum
orðum um hann í þátíð. Brown var
54 ára og átti einna stærstan þátt
í sigri Bills Clintons í forsetakosn-
ingunum 1992. Hann var kjörinn
formaður Demókrataflokksins árið
1989 og er fyrsti blökkumaðurinn
sem gegnir því starfi. Brown var
í Bosníu ásamt bandarískum kaup-
sýslumönnum að kynna sér mögu-
leika á þátttöku bandarískra fyrir-
tækja í endurreisn efnahagslífs
landsins.
Kraftur
í Skeiðará
JÖKULHLAUPIÐ úr Gríms-
vatnakatlinum í Vatnajökli ryðst
fram með miklum látum í Skeið-
ará undan Skeiðarárjökli. Leir-
litað vatnið með megnum hvera-
fnyk þrýstist fram með gríðar-
þunga. Fjær standa tveir menn
uppi á jökultungu yfir útfallinu.
1100 rúmmetrar ruddust fram á
sekúndu í gær en reiknað er með
að það verði allt að þrefalt meira
í hámarki um helgina.
■ 1,3 milljónir tonna/6
Morgunblaðið/RAX
Fágætur
magaverkur
Sao Paulo. Reuter.
SEXTÍU og tveggja ára brasil-
ísk kona hafði kvartað undan
lítils háttar magaverk öðru
hveiju. Við gegnumlýsingu
kom í ljós beinagrind utanlegs-
fósturs í kviðarholi hennar.
Konan, Antonieta Hilario
dos Prazeres, gekk í gegnum
tíðahvörf fyrir áratug og því
er talið að beinagrindin geti
verið allt að 15 ára gömul.
Grindin var í „eðlilegri“ fóstur-
stellingu í kviðnum.
Friðaráætlun Borís
Jeltsíns í hættu
Moskvu. Reuter.
BARÁTTA Borís Jeltsíns, forseta
Rússlands, fyrir endurkjöri hófst
formlega í gær þegar kjörstjórnin
skráði hann sem frambjóðanda í for-
setakosningunum í júní. Aðskilnað-
arsinnar í Tsjetsjníju gætu þó dregið
úr sigurlíkum Jeltsíns og leiðtogi
þeirra, Dzhokhar Dúdajev, hafnaði
í gær friðaráætlun forsetans og
sagði að Tsjetsjenar myndu beijast
til síðasta manns.
„Örlög Rússlands ráðast af því
hvern þjóðin kýs,“ sagði Jeltsín við
kjörstjórnina og bætti við að kosn-
ingarnar myndu ráða úrslitum um
hvort Rússar héldu lýðræðinu eða
glötuðu því. „Ég hef áhyggjur vegna
þess að baráttan verður ekki auð-
veld og andstæðingarnir eru öflugir.
Ég er þó ekki hræddur og ætla að
beijast af hörku.“
Sergej Fílatov, formaður hreyf-
ingar sem berst fyrir endurkjöri
Jeltsíns, sagði að hæfileiki forsetans
til að tala mál sem rússneskur al-
menningur skildi gæti ráðið úrslitum
í kosningunum. „Því miður hafa
flestir ráðamannanna glatað tengsl-
unum við alþýðuna.“
Fílatov er enn hollur Jeltsín þótt
forsetinn hafi vikið honum frá sem
skrifstofustjóra sínum fyrr á árinu.
Við embættinu tók Níkolaí Jegorov,
sem er hallur undir afturhaldsöflin.
Samningurinn um ríkjasamband
Rússlands og Hvíta-Rússlands er
talinn styrkja stöðu Jeltsíns meðal
kjósenda sem hafa verið hallir undir
kommúnista. Dagblaðið Pravda, sem
styður kommúnistaflokkinn, fór í
gær lofsamlegum orðum um samn-
inginn og sagði hánn mikilvægt
skref í átt að sameiningu fyrrver-
andi lýðvelda Sovétríkjanna.
Stríðið í Tsjetsjníju gæti þó dreg-
ið úr sigurlíkum Jeltsíns og friðar-
áætlunin, sem hann kynnti á sunnu-
dag, er i hættu.
Flóttafólk sagði að .Rússar hefðu
gert sprengjuárásir á þorpið Shalaz-
hi og lagt helming þess í rúst en
yfirmaður hersveitanna neitaði því
að þær hefðu verið að verki.
Sprengjuárásir voru einnig gerðar á
nálægt vígi aðskilnaðarsinna í Bam-
ut og rússneskir hermerin sátu um
sex þorp þar sem nokkur hundruð
uppreisnarmanna búast. til varnar.
■ Kunna að meta festu/29