Morgunblaðið - 04.04.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 13
Á meðan tennur og bein barna og unglinga
eru að vaxa er kalkrík fœða afar nauðsynleg.
Um 70% af því kalki sem börnfá úr fœðunni
koma úr mjólk og mjólkurvörum. Þetta gerir
mjólkina að mikilvægum þœtti í daglegri
fœðu barna og unglinga.
Eftir að fullorðinsaldri ogfullum tannþroska
er náð gegna léttar mjólkurvórur áfram
veigamiklu hlutverki í viðhaldi beina og
tanna. Beinin eru í stöðugri endurnýjun og
því þurfa allir kalk á hverjum degi.
Mjólk og mjólkurvörur eru auðugri af kalki en
nær allar aðrar fæðutegundir. Mjólkin er einnig
próteinrík og góð uppspretta fyrir A-vítamín, B-
vítamín (einkum B2, níasín og B12), joð og fosfór,
sem öll eru líkamanum nauðsynleg.
Eitt mikilvægasta framlag mjólkur til viðhalds og
heilbrigðis tanna byggist einmitt á víðtæku
hlutverki hennar í reglubundnu mataræði. Nart
milli mála er einhver versti óvinur tannanna og
því má halda fram að mjólkin stuðli að því beint
og óbeint að draga úr slíku narti. í morgunverði
allra og nesti skólabarna leggur hún grunninn
að því að orkuþörf líkamans sé fullnægt með
reglubundnum máltíðum yfir daginn. Og þegar
líkaminn krefst viðbótarorku milli mála eru
mjólkurglas og kornmatur, ávextir eða grænmeti
mun betri kostur en þær „tómu" hitaeiningar
sem gjarnan er gripið til.
Harðasta efni líkamans
Við 2 ára aldur hafa börn venjulega tekið allar
barnatennurnar. Þær byrja að tína tölunni um 6
ára aldur. Þá hefst taka fullorðinstanna sem lýkur
með því að endajaxlar koma í Ijós (oft með miklum
harmkvælum!) um 20 ára aldur.
Ráðlagðir dagskammtar (RI)S) af
ýmstim nœringanfmtm
1-IOára aldur Hlutfallaf RDSI2 mjólkur- glösum 11 -20 ára aldur ii 21 árs ogeldrí Hlutfall af RDSI2 mjólkur- glösum
A-vltamín 500 ng 50% 800 ng 31% 800 ug 31%
Bi 1.0 mg 80% l,6rrig 50% 1,6 rng 50%
nlasln 11 mg 21% 18 mg 13% 16 mg 14%
B» 2,5M 92% 3,0 |l» 77% 3,0 Hp 77%
fosfór 800 mg 60% 1200 mg 40% 800 mg 40%
joð 90 100% 150 60% 150m9 60%
kalk 800 mg 72% 1200 mg 48% 800 mg 72%
Við gerð töflunnar er miðað við meðaltal næringarefna I nýmjólk og lóttmjólk.
1 glas af mjólk er 2,5 dl. Nlasln reiknast sem nlasínjafngildi (NJ).
Framtennur
Framjaxlar
Glerungur tannanna
er hálfgagnsær
kalkríkur vefur sem
þekur tannbeinið og
ver það fy'rir sýklum
og sliti. Hann er
harðasta efni líkam-
ans og endurkalkast
afar hægt. Með réttri
umhirðu, reglulegu
eftirliti og nægilegu magni af kalki í fæðunni getur
tannglerungurinn þó enst alla ævi.
?
En jafnvel harðasta efni
líkamans eyðist sé það látið
liggja langtímum saman undir
sýruskán. Eftir hverja máltíð
- og í hvert skipti sem við
drekkum súra eða sykraða
drykki - lækkar sýrustigið í
munninum. Munngerlar, sem
mynda skán á tönnunum,
breyta sykrinum í mat og drykk
í sýru sem vinnur smám saman á glerungi
tannanna.
Gerlaskánin fær mestan vinnufrið á nóttunni. Á
meðan við sofum er önnur starfsemi munnholsins
í lágmarki og óvinir tannanna vinna
skemmdarverk sín í mestum friði fyrir
náttúrulegum vörnum líkamans. Því er
grundvallaratriði í góðri tannhirðu að bursta
tennurnar vel fyrir svefninn.
Tannslit og tanneyðing
Það er óhugnanleg staðreynd að hjá mörgum
íslenskum unglingum er glerungur tannanna
orðinn svo slitinn á stórum svæðum að tannbeinið
stendur berskjaldað frammi fyrir öllu því álagi
sem tennurnar þurfa að þola. Án glerungsins
eiga sýklar greiða leið að tannbeininu sjálfu og
þá eru tannskemmdir á næsta leiti. Og þar sem
mjúku tannbeininu er ekki ætlað að þola álagið
sem því fylgir að tyggja matinn er hröð tanneyðing
óumflýjanleg þegar hans nýtur ekki lengur við.
Þegar svo er komið getur þurft að smíða dýrar
postulínskrónur sem koma í stað glerungsins
- en jafnast þó aldrei á við hann.
MJÓLK ER GÓÐ
ÍSLENSKUR MJÓLKURtÐNAÐUR
■Kununglegur tímnur
Barnatennurnar byrja venjulega að koma í Ijós
við 5-8 mánaða aldur. Þó kemur fyrir að börn
fœðist með tennur. Frœgast þeirra er líklega franski \
prinsinn Louis Dieudonne sem síðar varð
Sólkonungurinn Loðvík 14. Hann fæddist 5.
september 1638 með tvcer tennur í munninum.
Shaun litli Keaneyfrá Newbury á Bretlandi er að
vísu ekki afkonungaættum en varþó um tíma enn
betur tenntur en Sólkonungurinn. Hann fœddist
10. apríl 1990 með lieilar 12 tennur. Svo bráð
tanntaka erþó óheppileg og voru þcer allar dregnar
úrpiltinum skömmu síðar.
Til þess að tennurnar endist þér alla œvi
þarftu að...
... fá nóg af kalki
Glerungur tannanna er beinlínis búinn til úr
kalksamböndum. Um 70% af þvi kalki sem við
fáum úr fæðunni kemur úr mjólkurvörum og þar
vegur mjólkin þyngst. Tvö til þrjú glös af mjólk
á dag tryggja að þú fáir nóg af kalki.
... minnka nartið
Öll þurfum við orku og oft er freistandi að hækka
blóðsykurinn dálítið með narti milli mála.
Hverskyns nart fer illa með tennurnar en sykurát
og súrir drykkir eru þó verst hvað þetta snertir.
Jafnframt því sem mjólkin er full af bætiefnum
er hún líka orkurík og fækkar því aukabitunum.
... og muna svo að bursta!
Allir þurfa að bursta tennurnar kvölds og morgna
með flúortannkremi og nota tannþráð til þess
að hreinsa vel á milli þeirra. Mikilvægast er að
sofa með hreinar tennur.
Helstu heimildir: „Drykkir valda tanneyðingu," Morgunblaðið 1. febrúar
1996. Manneldisráð Islands: Ráðlagðir dagskammtar 1991.
Heimsmetabók Guinness, 1993. Tannverndarráð.
ivö\ r Á DAG
** ■ - L - alla cevi!
HVÍTA'HÚSIÐ / SÍA GSP ALMANNATENGSL L JÓSM .: LÁRUS KARL