Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
*
Hagnaður af rekstri UA
141 milljón króna í fyrra
Mesta framleiðsla í sögu
útger ðarfélagsins
HAGNAÐUR Útgerðarfélags Ak-
ureyringa á síðasta ári varð 141
milljón króna, en árið áður nam
hagnaðurinn 155 milljónum króna.
A fyrri hluta síðasta árs varð tap
á rekstrinum tæpar 100 milljónir
króna. „Afkoman batnaði nokkuð
á síðari hluta ársins eins og við
höfðum gert okkur vonir um,“
sagði Gunnar_ Ragnars, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Ak-
ureyringa. „Því er samt ekki að
neita að þetta er lakari afkoma en
árið á undan. Landvinnslan hefur
átt í miklum erfiðleikum og til við-
bótar kemur slakt gengi dollarans,
en við seljum mikið af okkar fram-
leiðslu til Bandaríkjann," sagði
Gunnar, en hrun grálúðunnar og
sjómannaverkfall á síðasta ári settu
einnig sitt strik í reikninginn.
Sala eigna
bætti tapið
A síðasta ári varð tap af reglu-
legri starfsemi fyrirtækisins 20
milljónir króna. „Við erum með
talsverðar tekjur af sölu eigna og
það er aðalskýringin á útkomu lið-
ins árs,“ sagði Gunnar, en félagið
seldi m.a. togarinn Hrímbak og
einnig töluvert af hlutabréfum sín-
um í öðrum félögum.
Metframleiðsla
Heildarframleiðsla fyrirtækisins
af frystum afurðum var 12.117
tonn sem er mesta framleiðsla í
sögu félagsins, en framleiðsluaukn-
ing milli ára var 500 tonn. „Þrátt
fyrir aflaskerðingar hefur okkur
tekist að halda uppi stöðugt vax-
andi framleiðslu,“ sagði Gunnar.
Eigið fé ÚA í árslok 1995 var
1,970 milljónir króna og eiginfjár-
híutfall 37,7%. Hlutafé félagsins
nam 767,3 milljónum króna og
hækkaði um 133 milljónir á árinu
vegna útgáfu jþfnunarhlutabréfa.
Rekstrartekjur Útgerðarfélags Ak-
ureyringa og dótturfélaga þess,
Mecklenburger Hochseefischerei í
Þýskalandi og Laugafisks í
Reykjadal, námu 4,876 milljónum
króna. Alls voru hluthafar 1.791
um síðustu áramót sem er svipaður
íjöldi og var árið á undan.
Aðalfundur ÚA verður haldinn
mánudaginn 22. apríl næstkomandi
í matsal frystihúss félagsins.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
Úr reikningum 1995
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1995 1994 Breyt.
Rekstrartekjur 3.267 3.251 +0,5%
Rekstrargjöld 2.826 2.640 +7,1%
Afskriftir 352 317 +11,0%
Hreinn fjármagnskostnaður 109 185 -41,1%
Tap/hagnaður af reglulegri starfsemi (20) 109 -118,4%
Aðrar tekjur og gjöld 161 46 +250.0%
Hagnaður ársins 141 155 -9.0%
Efnahagsreikningur ' '
1 Eianir: | Milljónir króna
Veltufjármunir 1.233 1.191 +3,5%
Fastafjármunir 3.995 3.842 +4,0%
Eignir samtals 5.228 5.033 +3,9%
1 Skuiúir oa eiaið fé: 1 Milljónir króna
Skammtímaskuldir 779 1.074 -27,5%
Langtímaskuldir 2.479 2.116 +17,2%
Eigið fé 1.970 1.843 +6.9%
Skuldir og eigið fé samtals 5.228 5.033 +3,9%
Kennitölur
Eiginfjárhlutfall 4,7% -2,6%
Veltufjárhlutfall 0,56 0,43
Veltufé frá rekstri Miiljónir króna 45 101 -50,0%
z
-J
Gallerí ^
Listhúsinu í Laugardal
Erimi við með
bestu gjafavörurnar?
Mjmdlist - Leirlist
Glerlist - Smíðajárn
Listspeglar - Vindhörpur
F ermingargj afir
NEMAR A HASKOLASTIGI
Tækniþróunarsjóður auglýsir umsóknir um
styrki í Nýsköpunarsmiðju í Tæknigarði
Markmið með Nýsköpunarsmiðjunni er að opna
farveg fyrir hugmyndir að afurðum eða nýjungum
fyrir atvinnulífið, sem nemendur og/eða starfsfólk
skóla á háskólastigi eru með í fórum sínum.
Við val á verkefnahugmyndum verða eftirfarandi
atriði höfð til hliðsjónar:
Nýnæmi, markaðsmöguleikar, tæknileg útfærsla,
væntanleg arðsemi og gagnsemi fyrir íslenskt
atvinnulíf.
Miðað er við að vinnan við verkefnið standi í þrjá
mánuði frá byrjun júní til loka ágúst.
Þær verkefnahugmyndir, sem verða fyrir valinu,
fá 350 þús. kr. styrk ásamt rekstrarráðgjöf og
aðstöðu í Tæknigarði.
Þeir, sem áður hafa fengið styrk úr
Nýsköpunarsjóði námsmanna og vilja halda
áfram með hugmyndir sínar, eru sérstaklega
hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk.
Eyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá
Rannsóknaþjónustu Háskólans íTæknigarði,
Dunhaga 5 (sími 525 4900) og á skrifstofu
Stúdentaráðs v/Hringbraut (sími 562 1080).
Nýsköpunarsmiðjan er samstarfsverkefni
Nýsköpunarsjóðs námsmanna, Útflutningsráðs íslands,
Rannsóknaþjónustu Háskólans og Tækniþróunarsjóðs.
Höfði II í Grýtubakkahreppi
Morgunblaðið/J6nas Baldursson
A NÆSTUNNI verður tekinn í notkun einn fullkomnasti mjalta-
bás landsins á bænum Höfða II í Grýtubakkahreppi. A mynd-
inni er Kristinn bóndi lengst til vinstri með Gunnari Gíslasyni
þjónustufulltrúa Alfa-Laval á Norðurlandi og B.M. Andersen
frá Alfa-Laval í Noregi.
Einn fullkomnasti mjalta-
bás landsins settur upp
LOKIÐ hefur verið við að setja
upp einn fullkomnasta mjalta-
o
♦
6
'00
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tœkijœri
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fákafeni 11, sími 568 9120
I
<*
l
6
I
5
«
bás landsins á bænum Höfða
II í Grýtubakkahreppi.
í vetur hefur verið gengið
frá nýbyggðri viðbyggingu við
fjósið á bænum, húsið, sem er
hið snyrtilegasta, rúmar auk
mjaltabássins og mjólkurhúss,
biðbás og ungkálfauppeldi.
Mjaltakerfið í básnum er
sjálfvirkt, af Alfa-Laval gerð,
og fylgist kerfið með nyt ein-
stakra kúa og skráir með
tölvuhugbúnaði. Að mjöltum
loknum opnar kerfið básinn og
sér um að önnur kýr komi í
básinn í stað þeirrar sem fer,
en alls eru sex kýr mjólkaðar
í einu.
í Höfða II búa hjónin Krist-
inn Ásmundsson og Stefanie
Lohmann og reka þau þar
myndarlegt kúabú með 165
þúsund lítra framleiðslurétti.
Jónínu F.
Jóhannes-
dóttur
veitt lyf-
söluleyfi
JÓNÍNA F. Jóhannesdóttir
hefur verið ráðin til að hafa
á hendi faglega forstöðu í
Stjörnu-apóteki en það er í
samræmi við ný lög um lyfja-
versiun og hefur hejlbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið
veitt henni lyfsöluleyfi við
Stjörnu-apótek.
Baldur Ingimarsson lyfja-
fræðingur mun áfram veita
apótekinu stjórnunarlega og
rekstrarlegá forstöðu þar til
hann lætur af störfum vegna
aldurs 31. ágúst næstkom-
andi, en þá mun Jónína einn-
ig taka við stjórn og rekstrar-
legri ábyrgð apóteksins.
Jónína er 34 ára, fædd á
Akureyri og á hún eina dótt-
ur. Hún fékk heimild til að
starfa sem lyfjafræðingur
1987. Hún yann sem lyfja-
fræðingur í Ólafsfirði, í útibúi
apóteksins á Dalvík til ársins
1991. Á árunum 1991 til
1995 starfaði hún við rann-
sóknir á Raunvísindastofnun
Háskóla íslands og einnig
sem kennari. Hún lauk meist-
araprófi í efnafræði frá Há-
skóla íslands í febrúar 1995
og hóf störf við Stjörnu-apó-
tek 1. ágúst sama ári.
Passíusálm-
arnir lesnir í
Akureyrar-
kirkju
PASSÍUSÁLMAR sr. Hall-
gi'íms Péturssonar verða
lesnir í Akureyrarkirkju á
morgun, föstudaginn langa,
og hefst lesturinn kl. 11.00.
Áætlað er að lesturinn taki
um fimm klukkustundir og
taka um 50 manns þátt í
honum. Björn Steinar Sól-
bergsson organisti leikur á
orgelið á klukkustundar
fresti. Fólk getur komið í
kirkjuna hvenær sem er með-
an á flutningi stendur. Lest-
urinn er helgaður minningu
sr. Þórhalls Höskuldssonar.
Kyrrðarstund 'við krossinn
verður í kirkjunni kl. 21. ann-
að kvöld. Kveikt verður í kert-
um við stóran trékross, lesið
úr píslarsögunni og Þráinn
Karlsson leikari les sjö orð
Krists á krossinum.
Krossganga
Krists
DRAMAHÓPURINN Elí efn-
ir til sýningar á Ráðhústorgi
kl. 14 föstudaginn langa, en
þar verður Krossganga Krists
leikin. Hópurinn mun einnig
minnast krossdauðans á sam-
komu í Hvítasunnukirkjunni
ki. 15.30 sama dag og loks
verður opið hús í kjallara
Hvítasunnukirkjunnar á
laugardagskvöld, en þar er
nýlega búið að opna félags-
miðstöð fyrir ungt fólk á öll-
um aldri.
- kjarni málsins!