Morgunblaðið - 04.04.1996, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Austur-Eyjafjöll
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
UNNIÐ við plægingfu.
Plæging
og sáning
hafin
Holti - Á Þorvaldseyri undir Eyja-
fjöllum var plægt og sáð korni í síð-
ustu viku og má með sanni segja
að vorstörf hafi aldrei hafist fyrr
hér undir fjöllum.
Ólafur Eggertsson, bóndi á Þor-
valdseyri, sagði að kornrækt hefði
verið stunduð á Þorvaldseyri í 35
ár með góðum árangri og aldrei
mistekist með uppskeru. Oft hefði
verið sáð í blauta akra síðast í apríl
eða bytjun maí en það væri eins-
dæmi að sá í frostlausa og þurra
jörð síðast í mars. Núna í vor yrði
sáð í um 23 ha á Þorvaldseyri eins
og oft áður en ánægjulegust væri sú
mikla aukning í kornrækt hjá bænd-
um víða um land sem nú lægi fyrir.
Undir Eyjafjöllum eru nú 20 bændur
með kornrækt í um 100 ha og á land-
inu öllu eru líklega um 180 bændur
sem munu sá komi í um 800 ha lands
og er það líklega um helmings aukn-
ing frá í fyrra að sögn Ólafs.
Ólafur sagði hækkandi kornverð
í heiminum og góða nýtingarmögu-
leika með súrsun hjá bændum gera
það að verkum að kornrækt sé orðin
fýsilegur kostur við fóðuröflun og
endurvinnslu túna. Meðaluppskera í
Mið-Noregi er um 3,8 tonn á ha og
sagði Ólafur að meðaluppskera á
Þorvaldseyri síðustu ár hefði verið
meiri; uppskeran hefði verið léleg
1992 en ári síðar farið upp í 5,8
tonn á ha, 1994 rúm 5 tonn og um
4 tonn á ha í fyrra úr tilraunasveit-
um. Ólafur sagði nýjar frætegundir
gefa vonir um betri árangur, einkum
nýjasta afbrigðið, x21-7. Tilraunir
hafi hins vegar sannað nauðsyn þess
að sá snemma og það gerði ekkert
til þótt sáð væri í jörð á klaka því
það tæki fraeið um þijár vikur að
spíra, sagði Ólafur að lokum.
Gamla
íþróttahúsið
á Akranesi
rifið '
Akranesi - Gamla íþróttahúsið við
Laugarbraut á Akranési hefur nú
verið jafnað við jörðu og með því
lýkur merkri sögu þessa húss, sem
svo vel og lengi þjónaði íþrótta-
fólki og skólum á Akranesi í fjöl-
breyttri íþróttastarfsemi.
íþróttahúsið þótti mikil bygg-
ing þegar hún var reist en þetta
var stærsta íþróttahús sem Islend-
ingar höfðu byggt. Bygging þess
hófst 7. október 1944 og það voru
íþróttafélögin á Akranesi sem
bundust samtökum um bygging-
una og reis hún á mjög skömmum
tíma og var húsið tilbúið og vígt
3. mars 1945. Byggingarvinna vár
að mestu unnin í sjálfboðavinnu
af bæjarbúum á Akranesi, aðeins
yfirsmiðrium, Lárusi Þjóðbjörns-
syni, sem lengi var húsasmíða-
meistari á Akranesi, voru greidd
laun. Ágúst Steingrímsson í
Reykjavík teiknaði húsið.
A árunum í kringum 1945 var
að ganga í gegn'samstarf íþrótta-
félaganna tveggja, Knattspyrnu-
félagsins Kára og Knattspyrnu-
félags Akraness, sem allt íþrótta-
starf Akraness byggist á í dag.
Árangur þessa samstarfs kom vel
í Ijós við byggingu þessa húss.
Er ekki nokkur vafi á að það sam-
starf er eitt mesta gæfuspor sem
stigið hefur verið í íþróttasögu
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
Leirdúfurn-
ar sallaðar ;
niður ‘
Grundarfirði - Fyrir nokkru hélt
Skotveiðifélag Grundarfjarðar
námskeið í leirdúfuskotfimi. Leið-
beinandi var Einar Páll Garðarsson,
valinkunn leirdúfuskytta.
Námskeiðið var fjölsótt og mjög
vel heppnað, enda Einar afbragðs |
kennari og nemendur áhugasamir, .
því leirdúfuskotfimi er mjög góður '
undirbúningur úndir fuglaveiði með I
haglabyssu.
Skotveiðifélag Grundarfjarðar
hefur komið upp aðstöðu til skotæf-
inga rétt austan við þorpið og er
þar hægt að æfa bæði riffil- og
haglabyssuskotfimi. Þar eru tveir
kastturnar fyrir leirdúfur og lítil
díselrafstöð til að knýja kastarana.
Til framkvæmdanna hefur félagið )
m.a. aflað fjár með því að sjá um |
námskeið I meðferð skotvopna á .
Vesturlandi í samvinnu við lög- ’
regluyfirvöld.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
STÓRVIRKAR vinnuvélar sáu um að jafna gamla íþróttahúsið við jörðu.
Akraness fyrr og síðar og með
tilkomu iþróttahússins skapaðist
ekki aðeins frábær íþróttaaðstaða
heldur ekki síður sú mikla sam-
staða milli félaganna sem ekki
hefur rofnað síðan. Húsið gegndi
fjölbreyttu hlutverki því auk þess
að vera íþróttahús var það oft
einnig aðalsamkomustaður bæj-
arbúa og var lengi notað til
skemmtanahalds og minnast
margir dansleikja bæði á sjó-
mannadaginn og 17. júní svo
nokkuð sé nefnt.
íþróttahúsið var í notkun fram
til ársloka 1975 þegar nýtt og
fullkomið hús var risið og tók við
hlutverki þess. Þá seldi Iþrótta-
bandalag Akraness húsið til
Skipasmíðastöðvarinnar Knarrar
sem rak þar starfsemi sína þar
til nú í vetur. Þar með var hlut-
verki þessa merka húss lokið og
það þurfti að víkja. Hvort nýtt
mannvirki mun rísa á grunni þess
gamla liggur ekki fyrir, en aug-
ljóst þykir að lóðin verði notuð
fyrr en síðar. Þess má að lokum
geta að íþróttabandalag Akra-
ness notaði söluandvirði gamla
hússins til byggingar nýs íþrótta-
húss sem það reisti á Iþróttasvæð-
inu á Jaðarsbökkum á árunum
1985-1988. Þannig héldu nýjar
kynslóðir uppi merki hinna gömlu
og styrktu enn frekar þá
íþróttaaðstöðu sem fyrir er á
Akranesi.
Morgunbiaðið/Sigurður Aðaistemsson , FJOLMENNI var á árshátíð Brúarárskóla.
KRAKKAR í 7.-9. bekk sýndu leikrit.
Þijú leikrit sett upp á
árshátíð Brúarásskóla
Vaðbrekku, Jökuldal - Nemendur
Brúarásskóla héldu árshátíð sína
nýlega, þar voru sett upp þijú leik-
rit sem verður að teljast harla
gott miðað við ekki stærri skóla,
en nemendur við skólann eru alls
fjörutíu.
Fyrst sýndu krakkarnir í fyrsta
til fjórða bekk Litla Kláus og Stóra
Kláus í leikstjórn kennara síns
Arnar Þorleifssonar, leikritið er
gert eftir hinu kunna ævintýri
H.C. Andersens. Því næst sýndu
nemendur fimmta til sjöunda
bekkjar Náttröllið í leikstjórn Dag-
bjartar Kristjánsdóttur kennara.
Að endingu sýndu krakkarnir í
sjöunda til níunda bekk leikrit um
krakka frá því þau eru í barna-
skóla þar til þau eru komin í há-
skóla, leikritið segir frá vandamál-
um þeirra þegar þau eru á þessu
viðkvæma aldursskeiði og pæling-
um þeirra um lífið ogtilveruna.
Leikstjóri var Gréta Sigurjónsdótt-
ir kennari og tónlistamaður. Inn á
milli leikinna atriða spilaði popp-
hljómsveit skólans lög sem tengd-
ust efninu í leikritinu.
PRENT
MESSA
* %
Éí *
Prentmessa '96 verður haldin 4.-6. október
í Iþróttahöllinni, Laugardal.
Þema sýningarinnar verður:
Márgmiðlun
Fjölmiðlun, útgáfa, grafísk hönnun, prentun,
bókband, margmiðlun, tölvur.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni eru
beðnir að hafa samband við
PRENTTÆKNISTOFNUN í síma 562 0720, fax 562 0758.