Morgunblaðið - 04.04.1996, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERIINIU
'i ÍL' ÆSfliiMj
, V ^ \ - > I Jl"' 1 f 1| JL
ygÉjljJÉM , M li /1 1 ^’MP
ALLIR íslensku þátttakendurnir, sem voru á kynningarbás Útflutningsráðs, saman komnir.
Islensku fyrirtækjunum
gekk vel á Boston Seafood
ISLENSKU fyrirtækjunum, sem
sýndu á sjávarafurðasýningunni
Boston Seafood, gekk vel þar.
Katrín Björnsdóttir, starfsmaður
Útflutningsráðs íslands, segir að
betur hafí gengið nú, en á sýning-
unni í fyrra og mikið hafi verið
um fyrirspurnir. Þátttaka í sýningu
af þessu tagi sé útflutningsfyrir-
tækjunum mikilvægur þáttur í
markaðssetningunni.
íslenskur þjóðarbás
Sjávarafurðasýningin í Boston
var haldin fyrir skömmu, en það
er stærsta sýning sinnar tegundar
í heiminum. Þátttakendur voru
rúmlega þúsund og komu hvað-
anæva að úr heiminum. Alls sóttu
um 25 þúsund manns sýninguna.
Mörg íslensk fyrirtæki voru á
meðal þátttakenda. Á íslenska
þjóðarbásnum, sem Útflutningsráð
skipulagði, voru fyrirtækin Um-
búðamiðstöðiin, Eimskip, Marel,
Fjárfestingaskrifstofa íslands,
Kassagerð Reykjavíkur, Norfisk,
66 gráður norður, Sæplast og Sam-
starfsvettvangur sjávarútvegs og
iðnaðar. Einnig kynnti Útflutn-
ingsráð starfsemi sína.
Á eigin vegum voru m.a. Bor-
garplast, sem sýndi með sínum
umboðsmanni á svæðinu, íslenskar
sjávarafurðir og Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, sem bæði tóku þátt
í sýningunni ásamt dótturfyrir-
tækjum sínum í Bandaríkjunum.
íslendingar sýndu sýningunni mik-
inn áhuga og er áætlað að fjöldi
þeirra á meðal sýningargesta hafi
verið vel á þriðja hundrað.
Reynslunni ríkari
„Það gekk mjög vel,“ segir Katr-
ín Bjömsdóttir, sem sá um þátttöku
Útflutningsráðs í sýningunni. „Það
gekk betur í ár en í fyrra. Þá voru
fímm fyrirtæki með í fyrsta skipti
og þau mættu því reynslunni ríkari
til leiks að þessu sinni.“
Hún segir að það hafí verið
meira um fyrirspurnir núna, en
einnig hafi verið stór þáttur í sýn-
ingunni að treysta þau viðskipta-
tengsl sem þegar eru fyrir hendi.
Þarna séu fyrirtæki frá öllum
heimshornum og því tilvalið fyrir
fyrirtæki sem séu í samstarfi að
halda fundi og ræða málin.
j
OFtCÉU)]
m mm sj
trade council
OF ICELAND
RAGNHEIÐUR Árnadóttir frá skrifstofu Útflutningsráðs í New York og Katrín Björnsdóttir, sem
sér um þátttöku Útflutningsráðs í sýningum.
Vitni saksóknara í Whitewatermálinu
Segir Clinton hafa
fengið hluta af
sviksamlegu láni
Little Rock. Reuter.
LYKILVITNI í Whitewater-málinu
svokallaða bar fyrir rétti í fyrradag,
að Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hefði fengið hluta af sviksam-
legu 20 millj. kr. láni, sem hann hefði
sjálfur komið í gegn þegar hann var
ríkisstjóri í Arkansas fyrir 10 árum.
David Hale, aðalvitni óháðra sak-
sóknara í máíinu, sagði, að Clinton
hefði lagt að sér að framselja lánið
til eins viðskiptafélaga síns í Whitew-
ater-fasteignaframkvæmdunum og
fengið sjálfur hluta af því. Er þetta
í fyrsta sinn, sem Clinton er beinlínis
sakaður um að hafa hagnast á lán-
veitingunni, sem var með ríkisábyrgð
að hluta. Er ásökunin mjög alvarleg,
bæði hvað varðar Whitewater-málið
sjálft og vonir Clintons
um endurkjör í forseta-
kosningunum í haust.
Dulbúið lán
Hale, sem var með
lítinn flárfestingar-
banka á þessum tíma,
kvaðst hafa hitt Clin-
ton og kaupsýslu-
manninn James
McDougal í janúar 1986 til að ræða
um lánið. Þegar aðalsaksóknarinn,
Ray Jahn, spurði hann hvort hann
hefði vitað hvert peningarnir færu,
svaraði hann: „Til Jim McDougals
og Bill Clintons.“
Hale sagði, að fjárútvegunin hefði
verið dulbúin sem lán til markaðsfyr-
irtækis í eigu Susan, fyrrverandi
eiginkonu McDougals, en þau McDo-
ugalshjónin voru á þessum tíma fé-
lagar Bills og Hillary Clintons í
Whitewater-fyrirtækinu.
Hale sagði einnig, að Clinton hefði
reynt að sjá til, að nafn hans kæmi
hvergi fyrir á neinum skjölum um
lánið, sem var upphaflega upp á 10
millj. kr. en var tvöfaldað þegar fyr-
irtæki Hales uppfyllti skilyrði fyrir
opinberu láni að auki.
„Nafn mitt má ekki sjást á þessu,“
hafði Hale eftir Clinton og sagði,
að McDougal hefði þá fullyrt, að
nafn hans myndi hvergi koma fram.
„Tómur þvættingur"
Clinton hefur sagt, að fullyrðingar
Hales um, að hann hafí tvisvar lagt
að honum að svíkja út lánið, séu
„tómur þvættingur“ og mun bera
um það vitni eða halda því fram á
myndbandi, sem sýnt verður í rétin-
um.
Bandamenn Clintons og sakborn-
ingarnir þrír, McDougalshjónin fyrr-
verandi og Jim Guy Tucker, núver-
andi ríkisstjóri I Ark-
ansas, segja, að rann-
sókn Whitewater-
málsins og allur mál-
atilbúnaður séu ekk-
ert annað en norna-
veiðar repúblikana og
tilgangurinn sá einrt
að koma höggi á Clin-
ton.
Bobby McDaniel,
lögfræðingur Susan McDougals,
sagði eftir vitnisburð Hales á þriðju-
dag, að þar hefði hann aðeins verið
að uppfylla samning við saksóknar-
ana um að færa þeim höfuð Clintons
á silfurfati gegn því að fá vægari
dóm sjálfur.
Hale var dæmdur í 28 mánaða
fangelsi í síðustu viku fyrir að hafa
svikið út opinbert fé og hafði þá
fallist á að vitna gegn öðrum sak-
borningum. Hafa saksóknararnir
haft hann í felum í tvö ár.
Lögfræðingar varnarinnar segja,
að Hale hafi margoft verið staðinn
að lygum og segjast þeir munu tæta
hann í sig lið fyrir lið við réttarhöld-
in í næstu viku.
Verjendur segj-
ast munu tæta
framburð vitnis-
ins í sundur lið
fyrir lið
Getnaðarvörn fyrir karlmenn lofar góðu
Jafn áreiðanleg
og p-pillan
London. The Daily Telegraph.
GETNAÐARVÓRN fyrir karl-
menn, sem reynd hefur verið á
400 karlmönnum í Bretlandi og
átta öðrum ríkjum fyrir tilstilli
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO), er jafn áreiðanleg og p-
pillan sem konur taka. Getnaðar-
vörnin er fólgin í testósterón-
stungulyfi sem sprautað er í not-
andann vikulega.
Aðeins fjórir karlanna þunguðu
konur sínar á 12 mánaða tímabili
sem tilraunin stóð yfir en það eru
sömu öryggismörk og hjá konum
og mun minni þungunaráhætta en
hjá körlum sem nota smokk.
Árangur rannsóknanna hefur
orðið til þess að breskir vísinda-
menn hafa að nýju hafíð tilraunir
með getnaðarpillu fyrir karlmenn.
Margir karlmenn virðast treysta
betur stungulyfi en pillu en finnst
óþægilegt að fá sprautu vikulega.
Verið er að gera tilraunir með
annað stungulyf sem ætlunin er
að dugi í ijóra mánuði. Af mönn-
unum 400 sem þátt tóku í rann-
sóknunum reyndist sæðishlutfallið
hafa fallið niður í núll hjá 60%
þeirra með vikulegri lyfjagjöf, og
hjá 38% til viðbótar fór það niður
fyrir þijár milljónir sæða á millilít-
er, en undir þeim mörkum þarf
sæðistalan að vera til að getnaðar-
vörnin geti talist áreiðanleg.
Fred Wu, vísindamaður við há-
skólann í Manchester á Englandi,
sagði að litlar sem engar aukaverk-
anir hefðu komið I ljós við tilraun-
imar með nýju getnaðarvömina.
i —■ i f ■ f ■ f- ■— -i- i f ■ t. _ ■ **r. ■ i. ■ f. ■ -r- -f—■ ■ -r- ■ «-»- ■ -r ■ ■ t1 ■ A
■*! I . I I .WlW ,1 1 |W ,JV|Vk (|W ,«r|U||
HEIMILISIÐNAÐARSKOLINN, laufásvegi 2, reyktavík, sími 551-7800 fax 5515532
ALLAR UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ Á SKRIFSTOFU SKÓLANS f SÍMA 551 7800 MÁNUDAGA TIL FIMMTUDAGA KL. 10.00 - 15.00 OG FÖSTUDAGA KL. 13.00 -17.00. FAX 551 5532.
í
í
i
I
i
i
ÚTSAUMUR NYT4AHLUTIR ÚR LOÐSKINNI ALM. VEFNAÐUR SPJALDVEFNAÐUR
9. til 12. apríl kl. 19.30-22.30. Kennarar: Anna, Sigríður og Ragnheiður. 15. aprll-13. maí mánudagarkl. 19.30-22.30. Kennari: Lára Sigurbjörnsdóttir. 15. aprll-8. mal mánu- og miðvikudagar kl. 19.30-22.30. 16. aprll-30. apríl þriðju- og miðvikud. kl. 19.30-22.30. Kennari: Ólöf Einarsdóttir.
ÞJÓÐBÚNINGASAUMUR PAPPÍRSGERÐ DÚKAPRJÓN PRJÓNTÆKNI
11. apríl-13. júní fimmtudagar kl. 19.30-22.30. Kennarar; Vilborg og Oddný. 15. apríl—13. maí mánudagarkl. 19.30-22.30. Kennari: Þorgerður Hlöðvers. 15. april-13. maí mánudagar kl. 19.30-22.30. Kennari: Ragna Þórhallsdóttir. 17. aprfl—22. maí S miðvikudaga kl. 19.30-22.30. Kennari: Ragna Þórhallsdóttir.
UTSKURÐUR
23. aprll-21. maí
þríðjudaga kl. 19.30-22.30.
Kennari: Bjarni Þór Kristjánsson.
PERLUSAUMUR
amkvasmisveski, skreytingar á föt og fl
Ótimasett. Skráningu lýkur 22. apríl.
Kennari: Elin Jónsdóttir.
FYRIRLESTRAR í NORRÆNA HÚSINU
KEMBING - SPUNI - SNÆLDA - ROKKUR
28. apríl kl. 16.00.
Elínbjört Jónsdóttir og Marta Hoffmann.
SÝNING í ANDDYRI NORRÆNA HÚSSINS
í TENGSLUM VIÐ FYRIRLESTRANA.
,1,