Morgunblaðið - 04.04.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 45
BREF TIL BLAÐSINS
Frá Stefáni M. Stefánssyni:
í RITSTJÓRNARGREIN yðar 30.
mars sl. er fjallað um starfsaðstöðu
Sinfóníuhljómsveitar íslands í hús-
næði Háskólabíós. Þar gætir nokk-
urs misskilnings sem undirrituðum
þykir rétt að gera leiðréttingu á.
Sáttmálasjóður er eigandi þess
húsnæðis sem Háskólabíó hefur nú
yfir að ráða. Sáttmálasjóður var
stofnaður á grundvelli sambands-
lagasamnings milli íslands og Dan-
merkur og 14. gr. sambandslaga
nr. 39/1918. Honum var á sínum
tíma sett stofnskrá sem staðfest
var og auglýst. Stofnframlag til
hans í upphafi kom frá ríkissjóði
Danmerkur en gert var ráð fyrir
að það skyldi ávaxta með tilteknum
hætti. Sambandslögin voru sett til
að fullnægja þjóðrétttarskuldbind-
ingu og verður að hafa það eðli
þeirra í huga.
Sáttmálasjóður hefur ávallt full-
nægt öllum skilyrðum laga til þess
að vera talinn sérstök sjálfseignar-
stofnun. Hann hefur aðskilinn fjár-
hag, bæði reikningslega og raun-
verulega, ræður málum sínum sjálf-
ur og hefur sérstaka stjórn. Hann
Háskóla-
bíó eign
Sáttmála-
sjóðs
ber og einn ábyrgð á skuldbinding-
um sínum. Sjóðurinn er hvorki eign
íslenska ríkisins né Háskóla Is-
lands. Hann var og stofnaður til
að þjóna ákveðnu og sérstaklega
skilgreindu langtímamarkmiði,
einkum í þágu vísinda, sem ekki
hefur breyst.
Háskólaráð fer með yfirstjórn
sjóðsins samkvæmt 3. gr. stofn-
skrár Sáttmálasjóðs. Háskólaráð
ákvað þann 17. október 1941 að
Sáttmálasjóður skyldi eiga og reka
kvikmyndahús það sem þá var ver-
ið að setja á stofn, þ.e. Tjarnarbíó.
Var þetta talin hagkvæm aðferð til
að ávaxta fé sjóðsins. Háskólaráð
hefur ávallt kosið sérstaka stjórn
til að sjá um rekstur kvikmynda-
hússstarfseminnar. Er Tjarnarbíó
hætti rekstri var starfseminni hald-
ið áfram í húsnæði því sem nú er
Háskólabíó. Núverandi starfsemi
fer fram í samkeppni við önnur
fyrirtæki á markaðinum. I allri
starfseminni gilda eingöngu venju-
leg markaðs- og viðskiptalögmál.
Allt húsnæði Háskólabíós er í eigu
Sáttmálasjóðs og er Háskóli Islands
þar sjálfur leigutaki ásamt Lands-
banka íslands og öðrum aðilum.
í ritstjórnargrein yðar segir m.a.
svo: „Að sjálfsögðu er fráleitt, að
Sinfóníuhljómsveitinni verði vísað á
brott úr húsnæði, sem er í eigu
Háskóla íslands. Ekki verður séð,
að kvikmyndasýningar geti haft
forgang umfram tónlistina."
Svo sem rakið hefur verið hér
að framan er tilvitnaður grundvöll-
ur ritstjórnargreinar yðar á mis-
skilningi byggður og því einnig þær
ályktanir sem fylgja í kjölfarið og
á honum eru reistar.
f.h. stjórnar Háskólabíós,
STEFÁN M. STEFÁNSSON.
Stríðið
gegn nú-
tímanum
Frá Jóni Kjartanssyni:
NÚ ÞEGAR hin „séríslenska" hús-
næðisstefna er löngu hrunin og
helsta atvinnusköpunin er fólgin í
stofnun ráðgjafarstöðva m.a. til að
draga skuldaþræla húsnæðiskerfis-
ins uppúr botnlausu feni og ungir
sjálfstæðismenn hafa reiknað út að
ungt fólk hefur ekki efni á að kaupa
íbúðir, þá kemur í ljós að íslenska
þjóðin hefur eignast Foringja með
stórum staf. Húseigendafélagið í
sóknarham, er fyrirsögn í Mbl. 15.
mars sl. Sókninni virðist helst beint
gegn þeim sem ekki eiga húsnæði,
a.m.k. virðist hún ekki beinast gegn
hreppaflutningum gjaldþrotamanna.
Þótt allar skýrslur sýni að fjárfest-
ing í húsnæði sé vonlaus, því hún
skilar engum arði og ekki einu sinni
endurgreiðslu kostnaðar, en fjöldi
hagkvæmra kosta í boði, þá ríður
Foringinn milli fjölmiðla og krefst
þess að íbúðir landsmanna séu eigna-
musteri líkt og var á gullöld verðbólg-
unnar. Þannig er sókninni stefnt aft-
urábak. Foringinn veifar lagagrein-
um og heldur víst að lausn húsnæðis-
vandans sé lagatæknileg atriði. Þar
ríður hann einn í heilögu stríði gegn
nútímanum, boðberi hruninnar
stefnu og málsvari forréttinda.
Helsta afrek Foringjans heitir
„Lög um íjöleignarhús", þar segir í
56. gr.: „Réttindi og skyldur til þátt-
töku í húsfélagi eru óijúfanlega
tengd eignarrétti." Við ákvarðana-
töku greiða menn atkvæði „bæði
miðað við fjölda og eignarhluta“.
(41. gr.) Aðrir hafa því engin áhrif
á húsreglur eða framkvæmd þeirra
og hvernig á að taka fyrir ágreinings-
efni innanhúss milli annarra en eig-
enda innbyrðis?
Það er ekki nýtt í sögunni að for-
ingjar heimti aðskilnað fólks eftir lit-
arhætti, trú eða þjóðerni. Sigurður í
sóknarham krefst aðskilnaðar eftir
eignarformum á húsnæði. I anda
nútímans, þar sem eignarfonn á hús-
næði skiptir ekki máli, samþykkti
borgarstjórn Rvk. að notaðar íbúðir
skyldu keyptar fyrir húsnæðisnefnd-
ina í stað dýrra nýbygginga. Sigurður
Foringi breiðir sóknarhaminn gegn
svo skynsamlegri ákvörðun með þeim
t'ökum að þetta „falli ekki allskostar
að fyrirmælum íjöleignarhúsalöggjaf-
arinnar" auk þess sem þetta geri
„íbúðir í viðkomandi húsum verð-
minni“. Með öðrum orðum fyrst eru
sett lög um „ijöleignarhús" og síðan
eru þau lög notuð sem rök gegn eðli-
legri og nauðsynlegri þróun og gegn
hagsmunum þeirra sem ekki eiga
húsnæði. Þar með hefur lagahöfund-
urinn staðfest að gagnrýni mín á laga-
smíðar hans er réttmæt.
JÓN KJARTANSSON
frá Pálmholti,
formaður Leigjendasamtakanna.
Opinber tillaga
til þingmanna Islands
Frá Jóni Trausta Halidórssyni:
ALTALAÐ er, að stór hluti verka-
manna nái ekki endum saman, þeg-
ar að reikningar eru borgaðir og
eftir er að eiga afgang, til fram-
færslu heimilis, matar, húsnæðis,
bíls. Ef viðkomandi er að reyna
koma þaki yfir höfuð, sem er ekki
auðvelt með um 70 þúsund á mán-
uði.
Ef til ætti að vera mannlegt rétt-
læti, þá þarf þessi verkamaður að
hafa mannsæmandi laun. Þegar að
búið er að borga öll nauðsynleg
gjöld, þá þarf að vera afgangur til
að eiga fyrir húsnæði, bíl, fatnaði
og mat.
Þess vegna geri ég það að tillögu
minni að þetta, að geta lifað af laun-
um sínum, eftir að búið er að borga
reikninga, afborganir af húsi og bíl
og eiga þá nóg eftir til að kaupa í
matinn, föt og frí í sumbarbústað
yfir helgi og setja inná bankareikn-
inginn, að þetta réttlætismál verði
sett í stjórnarskrána svo að ríkið
hirði ekki allt í vanskilaskuldir og
viðkomandi verði ekki gerður gjald-
þrota, og missi allt, sem er helm-
ingi dýrara fyrir þjóðfélagið, þegar
á heildina er litið.
Að fólkið með þessu lágu laun
sé ekki fangar rangrar stefnu i
launamálum. Það getur ekki lifað
lífinu lifandi með íjölskyldu og ætt-
mennum. Er þetta sú framtíð sem
við ætlum börnum okkar? Nei. Því
setjum við þetta í íslensku stjórnar-
skrána að allir í landinu verði að
hafa mannsæmandi laun til að geta
eins og áður segir haft fyrir því
allra nauðsynlegasta þegar búið er
að borga öll opinber gjöld af öllu.
Og lagt inn á bankareikninginn
afganginn. Vona að góð svörun við
þessu opinbera bréfi til þingmanna
lslands verði sem allra fyrst.
Verkamaður sem vill sjá breyt-
ingar í þessa átt í dag og næstu
daga.
JÓN TRAUSTIHALLDÓRSSON,
Völlum við Breiðholtsveg, 109 Rvík.
Vedurþolinn hand-farsími
fyrir NMT-450 farsímakerfið
freeway 450 RL
Simonsen Freeway RL er
rétti farsíminn fyrir allt
útivistarfólk.
- Vatns 00 rakavarnir.
- Rykþéttur.
- Höggvarinn.
- Innbyggður símsvari.
- 24. stafa skjár.
- 255 númera minni.
- Vaitextakerfi á skjá.
-Veguraðeins 360 gr.
- Ýmiss aukabúnaður fáanlegur t.d.
tenging við faxtæki og módem.
Verð kr,
99.964,- stgr.
Innifaliá: Farsími,
rafhlada, boró-
hleáslutæki, loftnet
og leiábeiningar.
SIMONSEN
MOBtUE TEIEPHONE
±1 hirA
Síðumúla 37 Sími 588-2800
Nú höldum við til Kanada og N-Dakota,
á slóðir íslenskra landnema.
Gist verður á fyrirmyndarhótelum og
fjölmargir áhugaverðir sögustaðir sóttir
heim.
Ferðin hefstí Winnipeg og þaðan haldið
upp til sveita. Vestur-íslendingar taka á
móti okkur af sinni alkunnu gestrisni.
Við förum til Cavalier, Thunder Bay,
Kenora og Gimli. Gist verður í þrjár nætur
á Lakeside Resource Centre þar sem
tími gefsttil að liggja í sólinni og baða
sig í Winnipeg-vatni.
Þetta er fróðleg og spennandi ferð sem
sameinar skemmtun og hvíld.
Bókanir hjá Bændasamtökunum
í síma 563 0300
VerO:
87.500 kr.
* Staðgreitt á mann. Innifalið: Flug, gisting, akstur skv. áætlun, íslensk
fararstjórn og flugvallarskattar.
Síniiviiiiiiilerúii'-Laiiilsýii
ftsfj OATIAS^
LESaj EUROCARD
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 569 1010 • Símbréf 552 7796 og 569 1095 Telex 2241 • Innanlandsferðir S. 569 1070
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 • Símbréf 562 2460 Hafnartjörður: Bæjarhrauni 14 • S. 5651155 • Símbréf 565 5355
Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 421 3400 • Símbréf 421 3490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 431 3386 • Símbréf 431 1195
Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 • Símbréf 461 1035 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Símbréf 481 2792
Einnig umboðsmenn um land allt