Morgunblaðið - 04.04.1996, Side 46
46 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
TILBOÐ A
FERMINGARVÖRUM
Fermingarkerti - Kertahringir
Fermingarservíettur frá 95 kr. pakkinn
Sérprentum á servíettur *
c| Avn
X 1 V/ X d í bláu húsunum við Faxafen, sími 588 5250
Opið mán.-fos. kl. 12-18 og Lau. kl. 10-14.
SPARISJÓÐUR
REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
Aðalfundur
Aðalfundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis
verður haldinn í Þingsölum Hótels Loftleiða
föstudaginn 12. aprfl 1996 kl. 16.30 .
Dagskrá:
1. Skýrsla stjómar um starfsemi sparisjóðsins á árinu 1995.
2. Lagður fram til staðfestingar endurskoðaður ársreikningur
sparisjóðsins fyrir á árið 1995, ásamt tillögu um ráðstöfun
tekjuafgangs fyrir liðið starfsár.
3. Kosning stjómar.
4. Kosning endurskoðanda.
5. Tillaga um ársarð af stofnfé.
6. Tillaga um þóknun stjómar.
7. Önnurmál.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir
á fundarstað í fundarbyijun.
Sparisjóðsstjórnin.
MikiII mannfjöldi samfagnaði þegar markaðstorg Kolaportsins flutti
á nýja staðinn við Geirsgötu fyrir tveimur árum.
Kolaportið 7 ára!
-furðuverur gefa afmælisblöðrur í dag,
skírdag, laugardag og annan í páskum
Kolaportið verður sjö ára um þessar mundir og af því tilefni er
efnt til mikilla hátíðarhalda um páskana. Opið verður á skírdag,
laugardag og annan í páskum og boðið upp á kamivalstemmningu
með skemmtilegum uppákomum. Ýmsar furðuverur verða á
sveimi og gefa bömum helíumblöðrur í tilefni afmælisins.
Meira en 200 seljendur á mark-
aðstorginu taka þátt í afmælis-
hátíðinni með sérstöku páska-
tilboðum og Kaffi-Port verður með
rjúkandi gott afmæliskaffi á
könnunni. Ekki má heldur gleyma
hinum sívinsæla Kolportbarnaís.
Kamival stemmning
Fjölmargt verður gert til
skemmtunar þessa afmælisdaga
og seljendur munu ekki láta sitt
eftir liggja til að skapa sannkallaða
karnival stemmningu með alls
konar uppákomúm og tilboðum.
“Við skorum líka á gesti að taka
þátt í þessu með okkur” segir
Guðmundur G. Kristinsson hjá
Kolaportinu. “Allt frá upphafi
Kolaportsins hafa þessar afmælis-
hátíðir verið að þróast í þá átt að
vera skemmtilegar uppákomur í
borgarlífinu og ekki skaðar nú
veðrið þessa dagana til að fagna
vorinu rækilega”.
Breskir og írskir seljendur
“Að undanförnu hafa að vera að
týnast hingað breskir og írskir
seljendur sem svo sannarlega gefa
Kolaportinu ennþá skemmtilegra
yfirbragð” segir Guðmundur.
“Þeir hafa verið að koma með
margvíslegar nýjar vörutegundir
og eru alveg himinlifandi með
undirtektirnar. Það er á hreinu að
þeir munu koma skemmtilega á
óvart þessa þrjá afmælisdaga. Það
er reyndar svo að salan hefur verið
mjög góð í Kolaportinu síðustu
helgar sem þýðir að margir hafa
verið að gera góð kaup hjá okkur.”
Opið á skírdag, laugardag og
annan í páskum
Markaðstorg Kolaportsins
verður opið í dag, skírdag, laugar-
dag og annan í páskum, alla dagana
kl. 11-17. Sölubása á afmælis-
hátíðinni er hægt að panta alla
markaðsdaga í síma 561 70 63.
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
pT/\ÁRA afmæli. Á morgun 5. apríl, föstudaginn langa,
tMJverður fimmtugur Hjálmar W. Hannesson, sendi-
herra íslands í Kína. Kona hans Anna Birgis, varð fimm-
tug 11. janúar sl. Þau hjónin eiga þrjátíu ára brúðkaupsaf-
mæli á páskadag, 7. apríl. Þau taka á móti gestum í Rúg-
brauðsgerðinni, Borgartúni 6, laugardaginn 6. apríl kl.
17-19.
LEIÐRÉTT
í Karíbahafi
um páskana
„AUK einstaklinga eru
tveir hópar á vegum
Heimsklúbbs Ingólfs
komnir til Karíbahafsins
að halda páska og sá
þriðji á leiðinni. Þrjátíu
manna hópur er nú á sigl-
ingu milii eyja á lúxus-
skipinu Sensation frá
Camival skipafélaginu,
en þegar siglingunni lýk-
ur á páskadag koma
flestir farþeganna hingað
til vikudvalar í viðbót.
Við erum búin að
þræða slóð Kristófers
Kólumbusar í höfuðborg-
inni Santo Domingo og
aka þessa undurfogru leið
þvert yfir eyna í blíðskap-
arveðri. Hér bíður okkar
sældarlíf á Puerto Plata
Village, þar sem allt er
innifalið og ætlum við að
eiga hér friðsæla páska í
fegurðinni og veðurblíð-
unni. Öllum líður vel og
biðja fyrir bestu páska-
kveðjur heim.“
Ingólfur Guðbrandsson.
Hundaeigendur
í Efra-Breiðholti
VINSAMLEGAST hafið
ekki hunda ykkar lausa
á göngustígum við
Vesturberg því þar eru
böm að leik, og munið
að taka upp hundaskítinn
eftir hunda ykkar.
Móðir í Breiðholti.
Tapað/fundið
Hestasvipa
tapaðist
GÖMUL hestasvipa með
tréskafti og silfri og
leðuról tapaðist fyrir
nokkrum_ árum í Gmnd-
arfirði. Áletmn á skafti
er SH. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í
síma 587-0144.
Karlmannsúr
fannst
KARLMANNSÚR
fannst í Bankastræti að-
faranótt laugardagsins
30. mars. Uppl. í síma
552-8995.
Gæludýr
Þoka
ertýnd
PERSALÆÐA datt nið-
ur úr glugga á Klepps-
vegi í fyrradag. Hún
gæti jafnvel verið slösuð.
Læðan er grá með kopar-
lit augu og gegnir nafn-
inu Þoka. Hún er frekar
stygg. Ef einhver getur
gefið upplýsingar um
Þoku vinsamlegast
hringið í síma 588-3751.
Köttur
á flækingi
ÞESSI svarti og hvíti
fressköttur er búinn að
vera á flækingi á Heiðar-
vegi í Kópavogi í 2-3
mánuði. Hann er sýni-
lega heimavanur, blíður
og góður, en vill komast
heim til sín. Upplýsingar
í síma 554-4894.
Sýning Önnu í
Stöðlakoti
Það misritaðist í fréttatil-
kynningu að sýningu Önnu
G. Torfadóttur í Stöðlakoti
við Bókhlöðustíg lyki 4.
apríl. Hið rétta er að sýn-
ingunni lýkur 14. apríl. Er
beðist velvirðingar á þessari
villu.
Sala
Andakílsárvirkjunar
TVÖ nöfn féllu niður í
myndatexta um undirskrift
vegna samnings um eig-
endaskiptj á Andakílsár-
virkjun. Á myndinni voru
auk þeirra sem upp voru
taldir Einar Ole Pedersen,
oddviti Álftárnehrepps, og
Gunnar Bjarnason, oddviti
Reykholtsdalshrepps. Beð-
ist er velvirðingar á þesum
mistökum
Prestur, líttu þér nær!
í Morgunblaðinu í gær,
þriðjudag, er birt bréf til
blaðsins, „Prestur, líttu þér
nær“, frá Þórdísi Tóm-
asdóttur, sóknarbarni í
Langholtssókn. Villa slædd-
ist inn í eina setningu bréfs-
ins. Rétt er setningin svona:
„Á hann [sóknarpresturinn]
von á að í kjölfarið fari
óánægt fólkið að sækja til
hans embættisverk eða
sálusorgun, sem spurning
er [ekki yfirlýst eins og
misritaðist] hvort sé hans
hlutverk að veita“? Þetta
leiðréttist hér með.
Frestun
Vegna rangra upplýsinga
stóð í Morgunblaðinu í gær,
að tillaga um stofnun
rekstrarfélags um Fjöl-
skyldu og húsdýragarð hafí
verið samþykkt í borgar-
ráði. Það er ekki rátt. Til-
lögunni var frestað.
Hallelújakórinn á
páskadag
Missagt var í frétt um
tónlistarflutning í Lang-
holtskirkju í blaðinu í gær
að flytja hafi átt Hallelúja-
kórinn eftir Handel við
guðsþjónustu í Langholts-
kirkju á föstudaginn langa.
Hið rétta er að tónverkið
átti að flytja á páskadag.
Pennavinir
ÞRÍTUGUR finnskur karl-
maður með áhuga á mótor-
hjólum, kraftlyftingum og
ferðalögum:
Sami Laurikainen,
Box 20,
05401 Jokela,
Finland.
TVÍTUG japönsk stúlka
með áhuga á kvikmyndum
og tónlist auk þess sem hún
safnar frímerkjum og póst-
korum:
Naomi Tatsuzaki,
563-19 Wattsu,
Hiroshima-cho,
Sapporo-gvn,
Hokkaido 061-12,
'Japan.
FRANSKUR 24 ára ljós-
myndari með áhuga á tón-
list, dansi, ferðalögum, o.fl.:
David Canneaux,
Résidence l’Obiou,
19 Rue Eug?ne Sue,
F-38100 Grenoble,
Franee.
Víkveiji skrifar...
BÆNADAGARNIR svokölluðu
og páskahátíðin ganga nú í
garð. Þetta er lengsta fríhelgi árs-
ins og er skírdagur í dag.
Skírdagur er fimmtudaginn fyrir
páska, en þá er minnst heilagrar
kvöldmáltíðar og þess að Kristur
þvoði fætur lærisveina sinna. Þenn-
an dag var altari þvegið og olía
vígð í kaþólskum sið og varð hann
fljótt aflausnardagur syndara. Af
slíkri hreinsun er skírdagsheitið
dregið. Kirkjuklukkum var jafnan
hringt á skírdagskvöld í kaþólskum
sið, til messu, í síðasta sinn fram
að páskum. í Sögu daganna segir
dr. Árni Björnsson að heimildir séu
fyrir því frá 18. og 19. öld, að þá
hafi menn haldið föstulok í mat og
taiað er um sérstakan gijónagraut,
sem etinn var, skírdagsgraut.
xxx
ÖSTUDAGURINN langi er á
morgun eða langifrjádagur,
föstudagur fyrir páska. Þá er
minnst pínu Krists á krossinum.
Dagurinn var mesti sorgardagur
ársins með strangri föstu í kaþólsk-
um sið. Heimildir munu vera fyrir
því að börn og jafnvel vinnuhjú
hafi verið hýdd þennan dag til af-
bötunar drýgðum syndum. Dr. Árni
telur jafnvel staðfest að þetta hafi
sums staðar verið tíðkað á 18. og
19. öld. Kynni í slíkri venju að eima
eftir af yfírbótahýðingum úr ka-
þólsku. Sú þjóðtrú var meðal ann-
ars á föstudeginum langa að hann
hentaði vel til að verða sér úti um
huliðshjálmstein eða sögustein.
xxx
ÁSXADAGUR' er fyrsta
sunnudag eftir fullt tungl að
loknum voijafndægrum, þó ekki
fyrr en 22. marz og ekki síðar en
25. apríl. Aðrar hræranlegar kirkju-
hátíðir miðast allar við páska.
Páska héldu gyðingar að fornu til
þess að fagna sauðburði og fyrstu
komuppskeru, en síðar tengdust
páskarnir flóttanum frá Egypta-
landi. Páskarnir eru aðalhátíð krist-
innar kirkju og er þá minnst upp-
risu Krists frá dauðum.
xxx
ÓTT ýmsum finnist kannski
páskahátíðin löng, þá hafa
páskar stytzt talsvert í gegnum ald-
anna rás. Þannig var fj'órheilagt á
páskum í kaþólskum sið á íslandi.
Sést það bæði í Kristinna laga
þætti Grágásar og Kristnirétti Árna
biskups Þorlákssonar frá 1275. Við
siðaskiptin varð hins vegar þríheil-
agt og stóð svo fram til 1770 þegar
þriðji í jólum, páskum og hvíta-
sunnu voru felldir úr tölu helgidaga
ásamt, nokkrum fleiri.
IDAG ER 4. apríl. Sá dagur heit-
ir Ambrósíusmessa, andlátsdag-
ur Ambrósíusar biskups, sem dó
397 í Mílanó á Ítalíu. Hann var
helzti fulltrúi kirkjunnar í skiptum
hennar við Rómarkeisara og hélt
uppi vörnum við Aríusarvillu eða
stefnu, sem kennd var við Aríus
prest í Alexandríu og talið er að
hafi verið uppi á tímbilinu frá 250
til 336. Samkvæmt Aríusarstefnu
er Guð af einu óskiptanlegu eðli og
því væri Kristur, sonur Guðs, skap-
aður af föðurnum en ekki fæddur,
og því annars eðlis en faðirinn.
Þessi stefna kom fram árið 315 en
var hafnað af Nikeuþinginu 325.
Ambrósíus var í hópi fjögurra
helztu kirkjufeðra og eftir hann
liggja predikanir og trúarljóð.
Sálmasöngur í messu er rakinn til
hans. Messa hans, 4. apríl, var lög-
tekin á Alþingi 1179. Til er saga
hans á íslenzku heil og í brotum
frá 13., 14. og 16. öld Hann var
aukadýrlingur í Höfða í Höfða-
hverfi í Suður-Þingeyjarsýslu.
xxx
ÍKVERJI óskar að þessum
fróðleik loknum um bæna-
dagana, páska og Ambrósíusmessu
lesendum sínum alls góðs og segir: