Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 56
m
<33>
AS/400 er...
...þar sem grafísk
notendaskil eru
í fyrirrúmi
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
pjpVéctra^
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1996
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Stjórn SVR
Rafmagns-
, vagn um
Laugaveg
STJÓRN Strætisvagna Reykjavíkur
hefur skipað vinnuhóp til að kanna
möguleika á að strætisvagn knúinn
rafmagni verði í ferðum frá
Hlemmi, niður Laugaveg og upp
Hverfisgötu. Að sögn Arthurs
Morthens, formanns stjórnar SVR,
hafa rafmagnsvagnar ekki verið
samkeppnisfærir við venjulega
vagna til þessa.
Arthur sagði að ennþá væri raf-
knúinn. vagn heldur dýrari. Hver
24 farþega vagn kostar 10-11
mílljónir króna og er það svipað
verð og þeir vagnar kosta sem nú
eru í notkun. Að auki kemur til
hleðslubúnaður, sem kostar 5-6
milljónir króna og settur yrði upp
inni við Kirkjusand og á Hlemmi.
Sagði Arthur að til þessa hefði förg-
un á rafhlöðunum, sem endast í um
tvö ár, verið vandamál en þær yrði
væntanlega að flytja út til förgunar
með þeim kostnaði sem því fylgdi.
„Tækninni fleygir reyndar hratt
fram,“ sagði hann. „Við þurfum
ef til vill að bíða í eitt ár en hug-
myndin er að kaupa einn slíkan
vagn í tilraunarskyni." Arthur
sagði að óskað yrði eftir viðræðum
við umhverfisráðuneytið, iðnaðar-
ráðuneytið og fleiri aðila til að
kanna hvort áhugi væri fyrir slíkri
tilraun.
Hafísinn
hopar frá
ÚTLIT er fyrir að hafís þokist
frá landi næstu daga_ vegna
* hagstæðra vindátta. í gær-
morgun voru ísjakar á dreif
úti af Vestfjörðum, 1,8 sjómíl-
ur frá Deild, og stakir jakar
voru í mynni Önundarfjarðar.
Þór Jakobsson, hafísfræð-
ingur hjá Veðurstofu íslands,
segir að hafís sé á siglinga-
leiðum en þó sé vel greiðfært.
Góðu fréttirnar séu þær að
austanátt sem nú ríkir hreki
meginjaðarinn vestur á bóg-
inn frá landi. Útlit er fyrir
austanáttir næstu sólar-
hringa.
Morgunblaðið/RAX
VARÐSKIPIÐ Ægir fylgdist með rússneska togaranum Dmitríj Pokromovítsj þar sem hann var að veiðum í gær skammt fyrir utan
200 mílna mörkin á Reykjaneshrygg. Landhelgisgæslan hefur ekki sleppt togaranum úr augsýn frá því á þriðjudag.
Rússnesk stjórnvöld beðin um afskipti
Varðskipið með
togarann í gæzlu
VARÐSKIPIÐ Ægir fylgdi rúss-
neska togaranum Dmitríj Pokromo-
vítsj enn eftir skammt utan við 200
mílna landhelgismörkin á Reykjanes-
hrygg um miðnætti í nótt. Fulltrúar
Landhelgisgæslunnar áttu fundi með
dómsmálaráðherra og starfsmönnum
dómsmálaráðuneytis, utanríkisráðu-
neytis og sjávarútvegsráðuneytis í
gær. Af þeim fundum fengust ekki
aðrar fréttir en þær að menn vonuðu
að ekki kæmi til átaka. Þorsteinn
Pálsson dómsmálaráðherra vildi ekk-
ert segja um málið, né næstu skref
í því, í samtali við Morgunblaðið seint
í gærkvöldi.
Sendiherra Rússlands var kallaður
á fund í utanríkisráðuneytinu í gær-
morgun. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins var sendiherrann beðinn um
að fá rússnesk stjórnvöld til að beita
sér fyrir því að togarinn færi að lög-
um og hlýddi skipunum Landhelgis-
gæslunnar um að sigla til hafnar á
Islandi.
Landhelgisgæslan hefur veitt tog-
aranum óslitna eftirför frá því hann
var staðinn að meintum ólöglegum
veiðum um 2,4 mílur innan efnahags-
lögsögunnar síðdegis á þriðjudag.
Við eftirförina hefur verið beitt
tveimur flugvélum og varðskipi.
Samkvæmt hafréttarsáttmála Sam-
einuðu þjóðanna hefur strandríki rétt
til að taka landhelgisbijót, þótt hann
sé kominn út fyrir lögsögu, hafi skip
eða flugvélar strandríkisins veitt
honum óslitna eftirför.
Skipstjóri togarans hefur hunsað
fyrirmæli skipherra varðskipsins um
að stöðva togarann og hleypa varð-
skipsmönnum um borð. Mun hann
hafa sagt að hann tæki ekki „her-
menn“ um borð. Síðdegis í gær sagð-
ist togaraskipstjórinn hafa fyrirmæli
frá útgerð skipsins um að hleypa
varðskipsmönnum ekki um borð.
Hann væri á opnu hafsvæði. Þá neit-
aði skipstjórinn því að hafa verið
með veiðarfæri í sjó innan lögsög-
unnar.
Veðurstofan spáir heldur versn-
andi veðri á miðunum á Reykjanes-
hrygg í dag eftir sólskin og blíðu
undanfarna daga.
■ Tekekki/4
Kvörtun til ESA vegna
útboös fyrir RÚY
FRANSKA fyrirtækið Thomcast hef-
ur sent Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
kvörtun vegna útboðs Ríkiskaupa á
langbylgjusendum fvrir Ríkisútvarp-
ið. Auk Thomcast buðu fyrirtækin
Continental og bandaríska fyrirtækið
Harris í verkefnið. Samþykkt var að
ganga til samninga við Harris.
Franska fyrirtækið telur að sam-
keppnisreglur hafi ekki verið haldnar
og vill að hlutlaus aðili meti hvort
reynsla og kunnátta bjóðenda hafi
verið rétt metin með tilliti til útboðs-
gagna. Um var að ræða útboð, sem
náði til alls EES-svæðisins, á 300
kílówatta langbylgjusendi, sem setja
á upp á Gufuskálum ásamt fylgibún-
aði, og endurnýjun langbylgjusendis
og loftnets fyrir langbylgjustöðina á
Eiðum, skv. upplýsingum Eyjólfs
Valdimarssonar, yfirmanns tækni-
sviðs RÚV.
Eru þetta ein stærstu vörukaup
íslenska ríkisins á árinu og er innlend-
ur og erlendur kostnaður áætlaður
um 300 milij. kr. að sögn Júlíusar
S. Óiafssonar, forstjóra Ríkiskaupa.
Samningaviðræður við Harris
liggja niðri á meðan athugun ESA
fer fram. Útboðið var birt í ESB-tíð-
indum sl. sumar og tilboð opnuð í
september sl. í lok janúar var ákveð-
ið að ganga til samninga við Harris.
„Við vonumst til að koma okkar skýr-
ingum og svörum við fyrirspurn frá
þessari stofnun út í næstu viku.
Málið er brýnt vegna þess að stefnt
er að því að iangbylgjusendirinn á
Gufuskálum komist í gang fyrir jól,“
sagði Júlíus.
Bæði Thomcast og Continental
voru ósátt við hvað lagt var til grund-
vallar við mat á tilboðunum og einn-
ig gerir franska fyrirtækið athuga-
semdir við að fyrir valinu hafi orðið
fyrirtæki sem það telur að hafi enga
reynslu í langbylgjusendingum.
Júlíus sagði að bæði Harris og
Thomcast hefðu langa reynslu á sínu
sviði en litið hefði verið til fjöl-
margra þátta þegar tilboðin voru
metin, s.s. áreiðanleika í rekstri.
Ríkiskaup hafa haldið fundi með
fulltrúum fyrirtækjanna til að út-
skýra niðurstöður útboðsins. „Cont-
inental sætti sig við þær skýringar
en franska fyrirtækið hefur af ein-
hveijum ástæðum talið ástæðu til
þess að láta athuga nánar hvernig
að þessu var staðið," sagði Júlíus.
Innbrotum í
bíla fjölgaði
um 142%
INNBROT í bíla á Stór-Reykja-
víkursvæðinu eru 152 fleiri
fyrstu þijá mánuði ársins en á
sama tíma í fyrra, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu. Það
er 142% aukning milli ára. Þá
eru innbrot á heimili 59 talsins
það sem af er árinu en voru
38 á sama tíma í fyrra. Það
telst vera 55,3% aukning.
Hinn 1. apríl í fyrra var búið
að tilkynna 450 innbrot til lög-
reglu, þar af voru 107 í bíla,
38 á heimili sem fyrr er getið,
og fimm í sumarbústaði. Það
sem af er þessu ári er búið að
tilkynna innbrot á 59 heimili,
í fimm sumarbústaði og 259
bíla, að sögn lögreglu. Samtals
eru innbrot á starfssvæði lög-
reglunnar það sem af er árinu
473 þegar allt er talið.
Forvarnadeild lögreglunnar
í Reykjavík ráðleggur þeim sem
hyggja á ferðalög að leita að-
stoðar nágranna til þess að
auka öryggi heimilisins. Til
dæmis má biðja nágrannann
um að leggja í stæði við húsið,
nota ruslatunnur og tæma
póstkassa. Þá má skilja við
gluggatjöld þannig að það líti
út fyrir að einhver sé heima
eða skilja lykil eftir hjá ein-
hveijum í nágrenninu.
Hvað bílinn áhrærir má alls
ekki skilja lykil eftir í kveikju-
lásnum eða skilja hann eftir í
gangi. Fólki er ennfremur bent
á að skilja ekki eftir í bílnum
veski, töskur eða önnur verð-
mæti.
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út miðvikudaginn 10.
apríl.
Morgunblaðið óskar lesend-
um sínum gleðilegra páska.