Morgunblaðið - 19.06.1996, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1996 41
I
I
I
1
I
i
i
i
;
;
(
i
(
(
]
i
i
i
i
AÐSENDAR GREINAR
Hrapað að löggjöf
um náttúruvernd
ÞAÐ
vekja undrun og
áhyggjur margra að
stjórnarmeirihlutinn á
Alþingi skuli sýna
náttúruverndarmálum
þá lítilsvirðingu sem
varð á síðustu vikum
þingsins. í marsbytjun
kom fram stjórnar-
frumvarp til laga um
náttúruvernd. Vinna
við það hófst 16. apríl
en málið var rifið út
úr nefnd af meirihluta
umhverfisnefndar
hálfunnið 7. maí. Síðan
beið það umræðu í
þinginu í fjórar vikur
eða þar til komið var að þingfrestun
samkvæmt ákvörðun meirihlutans
5. júní. Þá beitti forseti þingsins
óvanalegum aðferðum til að hafa
áhrif á gang umræðna um frum-
varpið. Lögin um náttúruvernd voru
þannig sett í miklum ágreiningi en
þeim er ætlað að leysa af hólmi 25
ára gamla löggjöf.
Hvers vegna svona
vinnubrögð?
Undirbúningur að endurskoðun
laga um náttúruvernd á vegum
umhverfisráðuneytisins hefur verið
afar óhönduglegur, bæði í tíð fyrr-
verandi og núverandi ríkisstjórnar.
í stað þess að láta fara fram heildar-
endurskoðun á lögunum eins og
full þörf var á völdu ráðherrar að
taka einstaka þætti út úr en láta
aðra óhreyfða. Aðaláhersla var á
stjórnunarþátt náttúruverndar en
jafnframt krukkað í önnur atriði
eins og af handahófi.
Núverandi umhverfisráðherra
valdi þann kost að flytja heildar-
frumvarp, þótt aðeins væri um tak-
markaða endurskoðun laganna að
ræða. Þannig lögfesti stjórnarmeiri-
hlutinn nú mörg löngu úrelt ákvæði
óbreytt, m.a. um almannarétt og
efnistöku. Þingmannafrumvarp
sem lá fyrir nefndinni um ný ákvæði
um efnistöku og landslagsvernd
fékkst ekki einu sinni tekið þar á
dagskrá þótt margar jákvæðar
umsagnir lægju fyrir um síðustu
áramót. Svona flumbrugangur er
afar óheppilegur og einkennilegt
að ekki skuli reynt að stilla saman
strengi um slíkan málaflokk.
Samgönguráðherra stjórnar
náttúruvernd
Ný ríkisstofnun, Náttúruvernd
ríkisins, er sett undir fimm manna
stjórn. Umhverfisráðherra tilnefnir
þijá stjórnarmenn, Náttúruverndar-
ráð einn en þann fimmta á sam-
gönguráðherra að til-
nefna, „en undir hann
heyra öll samgöngu-
mál, m.a. öll vegagerð,
auk ferðamála," eins
og sagði í greinargerð
frumvarpsins. Fáheyrt
verður að telja að ætla
sérstökum fulltrúa
annars fagráðuneytis,
sem oft á tíðum gætir
allt annarra hags-
muna, að vera hluti af
æðsta valdi í málefnum
Náttúruverndar ríkis-
ins. Gildir þá einu hvað
ráðherrann heitir, en
fáir munu öfunda um-
hverfisráðherra af því
að bera núverandi samgönguráð-
herra á öxl sér næstu þrjú ár. Hags-
munaárekstrarnir blasa hér við og
var þó nóg komið fyrir með því að
sami maður gegnir störfum land-
búnaðar- og umhverfisráðherra í
núverandi ríkisstjórn.
Við umfjöllun um frumvarpið
kom fram að stjórnvöld ráðgera
ekki að auka fjárframlög til nátt-
úruverndarmála frá því sem nú er
með tilkomu Náttúruverndar ríkis-
ins.
Náttúruverndarnefndir
úti í kuldanum
Ný ákvæði um náttúruverndar-
nefndir bera ekki vott um áhuga á
að renna stoðum undir störf þeirra
frá því sem verið hefur. „Á vegum
hvers sveitarfélags eða héraðs-
nefndar skal starfa þriggja til sjö
manna náttúruverndarnefnd."
Oljóst er hvernig kosningu í þær
skuli háttað, og þó er hlutverk
þeirra enn óskýrara samkvæmt lög-
unum. Nefndunum er ekki tryggð
nein aðstoð í störfum sínum svo sem
eðlilegt væri og kostnað eiga sveit-
arstjórnir að bera. Að mati minni-
hluta umhverfisverndar hefði verið
rétt að koma á samræmdri, svæðis-
bundinni skipan þessara mála og
tengja náttúruverndarnefndirnar
við náttúrustofur með ríkisaðild í
kjördæmum landsins.
Náttúruverndarráð skilið
eftir févana
Þótt Náttúruverndarráði sé ætlað
ráðgefandi hlutverk og margvísleg
W\Vestfrost
Frystikistur Staðgr.verð
HF201 72 x 65 x 85 45.768,-
HF 271 92 x 65 x 85 50.946,-
HF 396 126x65 x 85 59.170,-
HF 506 156 x 65 x 85 69.070,-
Frystiskápar
FS 205 125 cm 62.092,-
FS 275 155 cm 74.314,-
FS 345 185 cm 88.194,-
Kæliskápar
KS 250 125 cm 58.710,-
KS 315 155 cm 62.933,-
KS 385 185 cm 71.055,-
Kæli- og frystiskápar
KF285 155 cm 88.524,-
kælir I99 llr frystir 80 Itr 2 pressur
KF 283 155 cm 77.472,-
kælir 199 Itr frystir 80 ltr 1 pressa
KF 350 185 cm 103.064,-
kælir 200 Itr frystir 156 Itr 2 pressur
KF 355 185 cm 97.350,-
kælir271 Itr frystir 100 Itr 2 pressur
i
Faxafeni 12. Sími 553 8000 <
verkefni samkvæmt lögunum er
ekki fyrirhugað að gera ráðinu
kleift að sinna þessum verkefnum.
Samkvæmt greinargerð fjármála-
ráðuneytis er árlegur heildarkostn-
aður við Náttúruverndarráð metinn
á 1,5-2 milljónir króna. Ekki er
gert ráð fyrir neinum starfsmanni
á vegum ráðsins né fastri skrif-
stofuaðstöðu. Hafnað var ítrekaðri
beiðni umhverfisnefndar um að fá
áætlun um hvernig rekstri ráðsins
skuli háttað miðað við lögboðin
verkefni.
Þá verður sú breyting á að mik-
ill minnihluti Náttúruverndarráðs
verður kosinn af náttúruverndar-
þingi eða aðeins þrír, en ráðherra
Margt hefur því miður,
segir Hjörleifur Gutt-
ormsson, illa til tekist
við þessa endurskoðun
laga um náttúruvemd.
skipar sex fulltrúa í ráðið. Með
þessu er enn dregið úr áhrifum
frjálsra félagasamtaka á stefnu-
mótun í náttúruvernd. Gengur það
þvert á ráðgjöf Ríó-ráðstefnunnar
og stefnu í nágrannalöndum þar
sem áhugamannafélög um náttúru-
vernd gegna mikilvægu hlutverki
og njóta stuðnings stjórnvalda.
Amerísku
Fléttumotturnar
komnar aftur
VIRKA
Mörkin 3. Sími 568 7477
Lokað á laugdaginn frá 1. júní -1. september.
TANAKA 422 vélorf fyrir
bæjarfélög- og verktaka 2,3 hö
kr. 45.790 stgr.
TANAKA 355 vélorf fyrir
sumarbústaði 2,0 hö.
kr 43.605 stgr.
TANAKA 4000 vélorf fyrir
heimili og sumar-
bústaði 0,8 hö.
kr.1 9.760 stgr.
TANAKA 2800
heimilisvélorf
0,9 hö.
kr17.670 stg,
VFTRARSOL
Hamraborg 1-3, norðanmegin
Kópavogi. 564 18 64
Akstur utan vega heimilaður!
í stað þess að styrkja laga-
ákvæði til að koma í veg fyrir akst-
ur utan vega og vegslóða er niður-
staðan samkvæmt frumvarpinu öll
önnur. Þar er akstur utan vega
heimilaður sem meginregla! „Að
fenginni tillögu Náttúruverndar rík-
isins setur umhverfisráðherra
reglugerð um akstur utan
vega.... Þar sem hætta er á nátt-
úruspjöllum er akstur utan vega og
merktra slóða óheimill,“ segir í 16.
grein þessara laga. Minnihluti um-
hverfisnefndar lagði áherslu á að
þessu yrði snúið við, akstur utan
vega væri óheimill nema í skýrt
afmörkuðum undantekningartilvik-
um.
Aðgangseyrir að
náttúruverndarsvæðum
í fyrsta sinn er lögleitt hér á landi
að „rekstraraðili náttúruverndar-
svæðis getur enn fremur [til viðbót-
ar við þjónustugjöld] ákveðið gjald
fyrir aðgang að svæðinu ef spjöll
hafa orðið af völdum ferðamanna
eða hætta er á slíkum spjöllum."
(35. gr.) Minni hluti umhverfis-
nefndar lagðist gegn slíkri gjald-
töku og taldi fráleitt að rekstrarað-
ili geti ákveðið slíkt upp á sitt ein-
dæmi. Ólíklegt er að slíkur að-
gangseyrir að náttúru landsins nái
þeim tilgangi að auðveldara sé að
stjórna aðgangi að svæðum, hvað
þá að þar verði um teljandi tekju-
lind að ræða.
Tvísýnar breytingar
á friðlýsingu
Ýmsar breytingar eru gerðar á
ákvæðum laga um friðlýsingu land-
svæða og tegunda. Frumkvæði að
friðlýsingum er flutt til ráðherra,
og getur það ýtt undir óvönduð
vinnubrögð." Ákveði umhverfisráð-
herra friðlýsingu og liggi ekki þeg-
ar fyrir samþykki eigenda eða ann-
arra rétthafa eða sveitarfélags þess
er hlut á að máli skal Náttúruvernd
ríkisins semja tillögu að friðlýsing-
unni.“ (33. gr.) Oæskilegt er að
ráðherra taki slíkar ákvarðanir
nema að undangengnum vönduðum
undirbúningi og kynningu á hug-
myndinni.
Þá er nú lögfest ákvæði þess
efnis að unnt sé að lýsa svæði í
einkaeign þjóðgarð ef sérstakar
ástæður mæla með slíku. Enginn
rökstuðningur kom fram við með-
ferð málsins á þingi, hvers vegna
eigi að hverfa frá þeirri reglu sem
hingað til hefur gilt að landsvæði
þjóðgarða séu í ríkiseign. Unnt er
að ná hliðstæðum markmiðum um
vernd á einkalendum með ákvæðum
um friðlönd skv. 28. grein laganna.
Sums staðar erlendis þar sem und*
antekning hefur verið gerð frá skil-
yrðinu um ríkiseign á landi hefur
það ekki gefist vel, t.d. á Hardan-
gervidda í Noregi.
Lokaorð
Margt hefur því miður illa til
tekist við þessa endurskoðun laga
um náttúruvernd. Ábyrgðin hvílir
bæði á umhverfisráðherra og ríkis-
stjórn en einnig á meiri hluta um-
hverfísnefndar sem ekki hirti um
að vanda vinnu að frumvarpinu.
Áberandi er m.a. hversu lítið tillit
var tekið til margra gagnrýninna
umsagna um frumvarpið.
Náttúruvernd og góð umgengni..
við landið er hjartans mál þorra
íslendinga. Því ber að vanda til lög-
gjafar á þessu sviði þannig að hún
taki í senn tillit til fenginnar reynslu
hérlendis og nýrra viðhorfa á al-
þjóðavettvangi. Erfítt verður í bráð
að bæta úr þeim mistökum sem hér
hafa orðið.
Höfundur er þingmaður
Alþýðubandalags fyrir
A usturlandskjördæmi.
VW Golf GL 2000i '96, 5 dyra, óekinn, 5 g.,
vínrauður. V. 1.385 þús.
Suzuki Vitara V-6 5 dyra ‘96, 5 g., ek. 10 þ.
km., upphækkaður, lækkuö hlutföll, rafm. í
rúðum o.fl. Jeppi í sérflokki. V. 2.680 þús.
(Skipti mögul. á stærri jeppa).
M. Benz 190E '84, ek. 200 þ. km, hvítur, álfel-
gur, sóllúga o.fl. Fallegur bíll. V. 790 þús.
Renault 21 Nevada 4x4 station '90, rauð ur,
ek. 110 þ. km, 5 g., rafm. I öllu. V. 870 þús. Sk.
ód.
Toyota Corolla GLi Sedan 1600 '93, grá
sans., rafm. í rúðum o.fl., ek. 70 þ. km. V. 990
þús.
Toyota Corolla Liftback GTi '88, ek. 136 þ.
km. Toppeintak, álfelgur, rafd. rúður o.fl. V. 630
þús.
Saab 900 Turbo 16v '86, 5 dyra, sjálfsk., ný
vél, allur nýyfirfarinn. Einn m/öllu.
V. 690 þús.
Range Rover Vouge '88, blár, sjálfsk., ek. 90
þ. km, toppeintak. V. 1.480 þús.
Toyota Corolla DX 3ja dyra '87, rauður, sjálf-
sk., ek. 115 þ. km. Óvenju gott ein tak. V. 340
þús.
Volvo 460 GLE '90, 5 g., ek. 93 þ. km, rafm. í
rúöum, hiti í sætum, ABS o.fl. V. 830 þús.
(Skipti á dýrari station bíl mögul.)
Range Rover breyttur fjallabíll" '72.
V. 570 þús.
Porsche 944 '87, álfelgur, þjófavörn, topplúga,
sjálfsk., leöurklæddur. V. 1.450 þús.
M. Benz 230 E '91, sjálfsk., ek. 130 þ. km,
m/öllu. Gott eintak. V. 2,2 millj.
Toyota 4Runner
ek. 66 þ. km. V. 1.890
Nissan Sunny SLX Sedan '95, græn- sans., 5
g., ek. 12 þ. km, rafm. í rúðum, hiti í sætum
o.fl. V. 1.250 þús.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
567-1800
Löggild bflasala
Grand Cherokee Laredo 4.0L '93, graenn,
sjálfsk., m/öllu, ek. 59 þ. km. V. 2.850 þús.
Toyota 4Runner diesel Turbo '94, 5 g„ ek. 26
þ. km. V. 2.750 þús.
Nissan Sunny SR 1.6 '93, 3ja dyra, rauð ur, 5
g„ ek. 82 þ. km, rafm. i rúðum, spoil er o.fl. V.
870 þús.
Subaru Legacy 2.2 Sedan 4x4 '91, 5 g„ ek.
75 þ. km, rafm. í öllu, spoiler o.fl. V. 1.150 þús.
Höfum kaupendur að
góðum bílum árg. '90-'96.
GMC Safari 4x4 XT '94, 4,3, rafm. í öllu, extra
langur, ek. 52 þ. km, 7 manna. V. 2.400 þús.
Dodge Caravan LE 4x4 '91, 7 manna, rafm. i
öllu. V. 1.890 þús.
Toyota Hilux Ex Cap V-6 '93, sjálfsk., ek. 120
þ. km, 31 “ dekk, brettakantar o.fl. V. 1.480 þús.
Suzuki Swift TWin Cam GXi 87, 5 g„ ek. 120
þ. km, 5 dyra. Gott eintak. V. 340 þús.
Subaru Legacy 2.0 station '92, grár, 5 g„ ek.
aðeins 49 þ. km. V. 1.490 þús.
Toyota Carina E '93, 5 dyra, rauður, 5 g„ ek.
55 þ. km. V. 1.450 þús.
Nissan Patrol diesel turbo Hi Roof (lang ur)
'86, 5 g„ ek. 220 þ. km, 36" dekk, spil o.fl.
Mikið endurnýjaður. V. 1.550 þús.
Hyundai Accent GS Sedan '95, ek. aðeins 4
þ. km. V. 960 þús.
Toyota Landcruiser GX diesel flirbo '93. 5
dyra, sjálfsk., ek. 77 þ. km, 33“ dekk, bret-
takantar, álfelgur o.fl. V. 3,9 millj. Sk. ód.
Nissan Primera 2.0 SLX '93, 5 g„ ek. 38 þ.
km, spoiler, álfelgur, rafm. i öllu, 2 dekkjagan-
gar. V. 1.300 þús.
Mazda 323 GLX 1600 '92, 3ja dyra, 5 g„ ek.
52 þ. km, rafm. í rúðum, álfelgur o.fl. V. 890
þús.
Toyota Corolla 4x4 GLi Touring '91, grár, 5 g„
ek. 91 þ.km rafm. í rúöum, álfelgur o.fl. V.
1.130 þús.
Nissan Sunny SLX Sedan '90, rauður, sjálfsk.,
ek. 89 þ. km, nýskoðaður. V. 670 þús.
Suzuki Fox 413 '87, 33" dekk, heillegur bíll,
grásans., ek. 140 þ. km. V. 450 þús. Tilboðsv.
380 þús.
Toyota Corolla Touring XL station 4x4 '91, 5
g„ ek. 88 þ. km. V. 970 þús.
Grand Cherokee 4.0L Limited '94, rauð ur,
sjálfsk., ek. aöeins 27 þ. km, leður innr., rafm. í
öllu, ABS, þjófavöm o.fl. V. 3.790 þús.
Toyota Landcruiser stuttur '86, stein- grár, 5
g„ ek. 15 þ. km á vél. Gott eintak. V. 850 þús.
Nissan Patrol GR langur '94, diesel, turbo,
steingrár, 31" dekk, rafd. rúður o.fl. Ek. 98 þ.
km. V. 3.280 þús.
MMC Pajero V-6 '91, blár, 5 g„ ek. 90 þ. km„
rafm. í rúðum o.fl. Fallegur jeppi. V. 1.430 þús.
Útvegum bílalánFord Ranger V-6 4x4 PUP '91,
blár, 5 g„ ek. 85 þ. km, álfelgur o.fl.
Tilboðsverð 870 þús.
Grand Cherokee V-8 Limited '93, græn sans.,
sjálfsk., ek. aðeins 42 þ. km„ rafm. Töllu,
leðurinnr. o.fl. V. 3.3 millj. Tilboðsv. 3 millj.
Nissan Sunny SLX 1.6 Sedan '92, sjálfsk., ek.
aðeins 54 þ. km, rafm. í rúöum, spoil er, 2
dekkjagangar o.fl. V. 930 þús.
Fjörug bílaviðskipti!
Vantar nýlega bíla
á sýningarsvæðið.