Morgunblaðið - 30.06.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30.JÚNÍ 1996 B 13
Guðsmenn
guldu ekki
skattinn
Varsjá. Reuter.
ÞRIR prestar sem tilheyra pólsku
rétttrúnaðarkirkjunni hafa verið
ákærðir fyrir tollsvik en þeir fluttu
fjórar bifreiðar inn til lands með
ólögmætum hætti.
Að sögn pólsku fréttastofunnar
PAP voru mennirnir þrír kærðir
eftir að þeir höfðu lagt fram fölsuð
innflutningsskjöl í því augnamiði
að losna við að greiða tolla af bif-
reiðunum. í plöggum guðsmann-
anna sagði að bifreiðirnar væru
gjöf til kirkjunnar. Hefði svo verið
hefði enginn tollur lagst á ökutæk-
in, samkvæmt pólskum lögum.
Auk prestanna þriggja tók
ónefndur háskólakennari þátt í
ráðabruggi þessu en með þessu
móti sviku þeir ríkissjóð Póllands
um 25.000 zloty sem svara til
tæplega 600.000 íslenskra króna.
-----»-■»-■♦----
Rívíeran
úr tísku
París. Reuter.
FRANSKA Rívíeran er dottin úr
tísku en vinsælasti sumarleyfis-
staðurinn í Frakklandi nú er vest-
urströnd landsins.
Þetta kemur fram í franska
dagblaðinu Le Monde sem lýsti
þessari þróun svo í fyrirsögn: „Ve-
strið í tískujferðamönnumn í suðri
fækkar."
Cote d’Azur, Miðjarðarhafs-
strönd Frakklands, hefur löngum
verið vinsælasti sumarleysisstað-
urinn en nú virðist sem bæði út-
lendingar og Frakkar hafi fengið
nóg af mannþrönginni á ströndun-
um, steyptu fjölbýlishúsunum og
umferðarþunganum gífurlega. Sí-
fellt fleiri halda þess í stað til
Atlantshafsstrandarinnar þar sem
mannmergðin er ekki jafn kæf-
andi, verðlagið hagstæðara og
hreinlætið meira.
- kjarni málsins!
Alklætt hornsófasett 2+horn+2
á hreint frábæru verði aðeins kr. 146.000 stgr.
Litir: Svart, rautt, grænt, brúnt, bleikt.
Greiðslukjör við allra hæfi
E
Ath
takmarkaö
magn
i\RMl 'LA «. slMAR 581 2275,568 5375
-.-2—........:..;;
Alklædd leðursófasett 3+1+1
á tilboðsverði aðeins kr. 159.0CX) stqr.
Við sendum
skattfrjálst
til íslands
Litir: Svart, brúnt, bleikt, koníak, Ijósbrúnt.
Hringið eða skrifið
og fáið nýja pöntunar-
listann fyrir 1996
sem er með allt
fyrir barnið þitt.
Framandi ferðir
á frábæru verði!
Bali og Singapore
- austurlensku perlurnar
10. - 27. sept.
Fararstjóri: Friðrik Haraldsson
Fá lönd eru jafnhjartfólgin ferðamönnum og
hið einstæða Thailand. I loftinu erframandi
keimur, iðandi mannlíf á þröngum strætum,
stórfengleg fjallahéruð og dásamlegar
strandlengjur. Dvalið verður í Bangkok, borg
englanna, í nokkra daga. Thailendingar eru
boðnir og búnir að leiða okkur um töfrandi
borgina sem státar af gullskreyttum
Búddalíkneskjum, musterum og skrautlegum
blómagörðum þar sem hinn fínlegi austræni
stíll ræður rikjum.
Þá fljúgum við til Chang Mai þar sem
gríðarfögur náttúran er skoðuð á gönguferðum
og jafnvel af baki fíla. Rúsínan í pylsuendanum
er svo hin ótrúlega eyja Phuket sem gleymist
beim aldrei sem þangað leggja leið sína.
Gist verður á hinum glæsilegustu hótelum.
Thailand
- heillandi heimur
16. okt. -1. nóv.
Fararstjóri: Friðrlk Haraldsson
í bessari ferð kynnumst við tveimgr ólíkum
perlum Austurlanda. Bali er fögur eldfjallaeyja
austur af Jövu þar sem menningin er á vissan
hátt ósnortin og framandi en í borgríkinu
Singapore mætast hins vegar helstu
menningarstraumar heimsins meö einstæðum
hætti.
Á Bali taka innfæddir okkur opnum örmum af
sinni einstæðu gestrisni. Þar er margt að sjá.
Vart er hægt að hugsa sér meiri náttúrufegurð.
Listiðnaöur stendur meö miklum blóma, s.s.
silfursmíði, tréútskurður og listilega skreytt
hof og hallir. Dvalið verður á hinu glæsilega
Bali Hilton International hóteli.
Leið liggur okkar svo til Singapore. Hótelið
okkar er í hjarta borgarinnar. Hér ægir saman
ýmsum bjóðarbrotum sem á aðdáunarverðan
hátt hefur tekist að lifa saman í sátt og
samlyndi. Boðið verðu'r upp á spennandi
skoðunarferðir um borgina og til Sentosa sem
er nærliggjandi eyja.
Allir velkomnir
á ferðakynningu!
Ferðakynning í
lcvöld kl. 20.30
í A-sal á
Hótel Sögu
Kynning á feröunum til Thailands og
Bali/Singapore verður sunnudaginn
30. júní í A-sal Hótel Sögu kl. 20.30
og þar mun Friðrik Haraldsson
fararstjóri sýna kynningarmyndir og
halda erindi.
SamriMiBfepðir-Laiiilsýii
Reykjavfk: Austurstrætl 12 • S. 569 1010 • Slmbrét 552 7796 og 5691095 Telex 2241 • Innenlandsteröir S. 569 1070
Hótel Sðgu vlð Haoatoro • S. 562 2277 • Slmbrét 562 2460 Halnartjörður: Bæjarhraunl 14 • S. 5651155 • Sfmbréf 565 5355 -frr
Keflavfk: Hatnarflðtu 35 • S. 421 3400 • Slmbrét 421 3490 Akranai: Breiðargötu 1 • S. 431 3386 • Stmbrét 431 1195 » VÉW hUFXDCARD
Akurayrl: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 • Slmbrét 461 1035 Vestmannaeylar: Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Slmbrét 481 2792
Elnníg umboðsmenn um land allt
VJS / GISHH VIJAH