Morgunblaðið - 30.06.1996, Side 21

Morgunblaðið - 30.06.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996 B 21 ATVINNU Bflstjóri Vantar bílstjóra með meirapróf. Framtíðarstarf. Upplýsingar í síma 852 2544. Rekstrarstjóri íþróttahúss Laus er til umsóknar staða rekstrarstjóra í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Starfið felur í sér 50% baðvörslu og 50% yfirstjórn á baðvörðum. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst 1996. Umsóknir, með upplýsingum um aldur, mennt- un og fyrri störf, skilist til HK - aðalstjórnar, pósthólf 529, 202 Kópavogi, fyrir 8. júlí 1996. Aðalstjórn HK. Þúsund gyllina verðlaun fýrir verðmæta ábendingu Hollensk fjölskylda (eiginmaður, eiginkona og tvö börn) hafa hug á að setjast að á íslandi. Ég þarf því á vinnu að halda. Æviágrip: Dirk Slagter, fæddur 28/8 1955. Hollensk menntun: Rafvirki, vélfræðingur, vökvakerfi og þrýstiloftskerfi, plc. tech. með leyfi til að vinna að rafkerfum fyrirtækja jafnt sem í almennu húsnæði. Alhliða hollenskt þungapróf (sjö tonn og yfir). Starfsreynsla af viðhaldi og viðgerðum á alhliða rafkerfum og vélbúnaði, viðhaldi á verksmiðjusvæðum þar á meðal smíðavinnu, logsuðu, málningar- vinnu o.s.frv. Viðhaldi og viðgerðum á OTIS- lyftukerfum og rafmagnsstigum. Uppsetn- ingu og viðhaldi á rafmagns- eða vökvaknún- um krönum á vörubílum. Viðhaldi og viðgerð- um á sláttuvélum, vélsögum, litlum dráttar- vélum, hita- og vatnsúðarakerfum o.s.frv. í gróðurhúsum fyrir landbúnað. Heimilisfang: Hunzestraat 13, 3812HTAmersfoort, Hollandi. Sími 00 31 334617818. Félagsmálastofnun Reykj avíkurborgar Störf í eldhúsi Fyrirhugað er að nýtt þjónustueldhús í félags- og þjónustumiðstöð aldraðra við Lindargötu 59, Vitatorg, taki til starfa í byrjun ágúst. Starfsfólk vantar þar til ýmissa starfa. Um er að ræða heilsdags- og hlutastörf og er unnið á vöktum. Nánari upplýsingar gefur Bragi Guðmundson yfirmatreiðslumaður, í síma 561 0300 frá kl. 14-16 og í þjónustumiðstöðinni á sama tíma. Umsóknarfrestur er til 10. júlí nk. og skal umsóknum skilað á Lindargötu 59. Félagsráðgjafi Félagsráðgjafi óskast í fullt starf á hverfa- skrifstofu Félagsmálastofnunar Reykjavíkur, Skógarhlíð 6. Um er að ræða barnaverndarstarf og stuðn- ing við barnafjölskyldur. Nánari upplýsingar veita Halldóra Gunnars- dóttir og Ella Kristín Karlsdóttir í síma 562 5500. Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk. og skal umsóknum skilað á hverfaskrifstofu Félags- málastofnunar Reykjavíkur, Skógarhlíð 6, á eyðublöðum sem þar fást. Tannlæknastofa Rösk, áreiðanleg og reglusöm aðstoðar- manneskja óskast á tannlæknastofu við Laugaveg. Þarf að geta byrjað sem fyrst. Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt- ar: „Aðstoðarstúlka - 4373“, fyrir 5. júlí. Sumarafleysingar Óskum eftir að ráða sumarafleysingafólk í eftirfarandi störf með möguleika á fastráðn- ingu. Einungis réttindamenn koma til greina. Mikil vinna framundan: Vélvirkja, plötu- og ketilsmiði, skipasmiði, rafsuðumenn. Einnig óskum við eftir vönum mönnum í vatnsblástur. Upplýsingar veita Eiríkur eða Guðmundur á milli kl. 18 og 20 næstu daga í síma 555 4199 og á staðnum. Vélsmiðja Orms og Víglundar sf. var stofnuð árið 1973. Hún hefur verið sérhæfð í nýsmíði á tækjum og vélbúnaði fyrir iðnað og virkjan- ir. Fyrirtækið er vaxandi í viðhaldi og þjónustu á skipum og bátum, þar sem lögð er rík áhersla á vönduð vinnubrögð. Grunneiningar þess eru plötuverkstæði, trésmíðaverkstæði, renniverkstæði, slippur og flotkví. Vélsmiðja ORMS & VÍGLUNDAR sf. Kaplahrauni 14-16, Strandgötu 82-84, Háabakka - í nýjabrum og náttúru - Grunnskólakennara og tónlistar- skólakennara vantar á Kópasker og í Lund í Öxnarfirði Grunnskólarnir: 1) Skólastjórn. 2) Almenna kennslu 1.-7. bekkjum á Kópa- skeri (tvær stöður), almenn kennsla Lundi í 1.-10. bekkjum (fjórar stöður). 3) Sérkennslu (rúmt stöðugildi samtals við báða skólana). 4) Mynd-, hand- og tónmenntakennslu. 5) íþróttakennsla, nýtt íþróttahús í Lundi. (sund að hausti og vori). Kópaskersnemendur koma af Sléttu, Kópa- skeri og Núpasveit. Lundarskólanemendur úr Kelduhverfi, Öxar- firði, Núpasveit, Kópaskeri og Sléttu. Við báða skóla er skólaakstur úr héraðinu og mötuneyti starfrækt í Lundarskóla. Tónöx: 1) Skólastjórn m/kennslu. 2) Tónlistarkennsla. Tónlistarskóli Öxarfjarðarhéraðs þjónareinn- ig Kelduhverfi, með kennslu í grunnskólun- um. í Lundarskóla standa nú yfir úrbætur á húsakosti fyrir Tónöx. Þá eru kórstjórnar- og organistastörf laus við: Snartarstaðakirkju, Skinnastaðarkirkju og Garðskirkju í Kelduhverfi, en þau störf gefa tónlistarfólki talsverða möguleika í samhengi við Tónöx. Upplýsingar um þessi störf, skólahverfin, umhverfi, kjör, húsnæði, búsetu- og atvinnu- möguleika (makar!), gefa: Finnur M. Gunnlaugsson skólastj. Lundi, sími 465 2244 og 465 2245. Iðunn Antonsdóttir skólastj. Kópaskeri, sími 464 2105 og 464 2161. Ingunn St. Svavarsdóttir sveitarstj. Öxarfhr., sími 464 2188. Björn Guðmundsson oddviti Kelduneshr., sími 465 2297. Hildur Jóhannsdóttir skólanefndarformaður, sími 465 2212. Flutningsstyrkur - húsnæðishlunnindi. Umsóknarfrestur er til 10. júlí 1996. Skólanefndirnar. Trésmiðir Tveir vanir trésmiðir óskast strax. Upplýsingar eftir helgi í símum 565 3847 og 565 3845, bílasími 854 2968. Súfistinn kaffihús - kaffibrennsla - Hafnarfirði - Reykjavík Súfistinn óskar eftir starfsfólki í eftirfarandi störf frá og með 1. september nk.: Heilar stöður: Tvær stöður vaktstjóra, dagvinna. Afgreiðsla og þjónusta í sal, vaktavinna og/eða kvöld- og helgarvinna. Afleysingar í eldhúsi í ágúst. Hlutastaða: Aðstoð í eldhúsi, dagvinna. Einungis ætlað fyr- ir laghentan, geðgóðan og natinn einstakling. Umsækjendur vinsamlegast mæti á skrif- stofu Súfistans, Strandgötu 9, Hafnarfirði, milli kl. 18.00 og 19.00 mánudaginn 1. júlí eða þriðjudaginn 2. júlí. Skeljungur hf. Einkaumboð fyrir Shell-vörur á islandi Mötuneyti Viljum ráða snyrtilegan og duglegan starfs- mann til framtíðarstarfa í mötuneyti Skelj- ungs hf. í Örfirisey. Starfið felur í sér aðstoð við matargerð, vinnu í matsal og frágang í eldhúsi. Vinnutími mánudag til föstudags frá kl. 8.00-14.00. Vaktmaður Viljum ráða starfsmann til öryggisgæslu í þjónustustöð Skeljungs hf. í Skerjafirði. Um er að ræða helgar-, kvöld- og næturvinnu. Framtíðarstarf. Starfið krefst samviskusemi, heiðarleika og snyrtimennsku, auk þess sem viðkomandi þarf að eiga auðvelt með að vinna að nóttu til. Umsóknareyðublöð liggja frammi í starfs- mannahaldi Skeljungs hf., Suðurlandsbraut 4, 5. hæð. Umsóknir berist fyrir 5. júlí nk. Stafræn myndvinnsla - þrívíddar grafík Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að ráða fólk í eftirtaldar stöður hjá fyrirtækinu: Þrívíddar listamenn: Umsækjendur verða að hafa góða tölvukunnáttu, þekkingu og reynslu í notkun á þrívíddar hugbúnaði. Klipparar: Umsækjendur verða að hafa reynslu í klippingu eða samsetningu á hvers konar myndefni s.s. kvikmynda, auglýsinga og myndbanda. Þekking á stafrænum klippi- kerfum s.s. Media100 er æskileg svo og þekk- ing á forritunum AfterEffects og ProTools. í boði eru krefjandi en spennandi störf fyrir hugmyndaríkt og jákvætt fólk hjá ört vaxandi fyrirtæki, sem starfar á auglýsinga- og kvik- myndamarkaði. Umsóknum skilað til afgreiðslu Mbl. merkt- ar: „STAFRÆN - 593“, fyrir 15. júlí nk. Rauði dregillinn ehf. Grensásvegur 7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.