Morgunblaðið - 30.06.1996, Side 18
18 B SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNII/A UGL YSINGAR
Fjölverk
verktakar ehf.
Vantar menn vana hellu- og steinalögnum
strax. Mikil vinna framundan.
Upplýsingar gefaTrausti eða Guðmann í sím-
um 892 9177 og 852 9177.
EIMSKIP
Hf. Eimskipafélag íslands annast þjónustu
og ráðgjöf á sviði alhliða flutninga- og vöru-
þjónustu.
Vegna aukinna umsvifa EIMSKIPS hérlendis
og erlendis leitar fyrirtækið eftir starfsfólki í
nokkur sérhæfð störf. Lögð er mikil áhersla
á sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að tak-
ast á við nýja þætti í krefjandi umhverfi.
Aðferðum gæðastjórnunar er alls staðar
beitt í fyrirtækinu og markvisst hópstarf er
veigamikill þáttur við gerð áætlana og stýr-
ingu verkefna.
Forstöðumaður
skiparekstrardeildar
EIMSKIP óskar eftir að ráða í starf forstöðu-
manns skiparekstrardeildar.
Starf forstöðumanns felur í sér yfirumsjón
með rekstri skipa EIMSKIPS, ábyrgð á kaup-
um og sölu skipa, leigutökum, viðhaldi og
öryggiseftirliti, ásamt mönnun flotans.
Á skrifstofu skiparekstrardeildar starfa 6
manns og á skipum félagsins eru 180 skip-
verjar. í rekstri fyrirtækisins eru 12 skip, þar
af 3 leiguskip. Þann 21. júní bættist nýtt
skip, ms. Brúarfoss í flotann.
Starfs- og ábyrgðasvið:
• Gerð og eftirfylgni rekstrar, fjárfestingar-
og markmiðaáætlunar.
• Yfirumsjón með kaupum og sölu skipa
og gerð leigusamninga.
• Ábyrgð á öryggismálum um borð í skipum.
• Ábyrgð á rekstrarvöru- og eldsneytis-
kaupum fyrir skipin.
• Ábyrgð á því að tryggja sem mesta hag-
kvæmni og öryggi í rekstri skipa félagsins.
• Yfirumsjón með viðhaldi og viðgerðum
skipa.
• Yfirumsjón með starfsmannamálum deild-
arinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun á sviði verkfræði og tæknifræði.
• Stjórnunarreynsla.
• Starfsreynsla hérlendis og /eða erlendis.
• Frumkvæði og skipulagshæfileikar.
• Góð enskukunnátta.
Forstöðumaður
upplýsingavinnslu
EIMSKIP óskar eftir að ráða í starf forstöðu-
manns upplýsingavinnslu.
EINSKIP rekur umfangsmikið, samtengt upp-
lýsingakerfi á íslandi og erlendis. Tölvuum-
hverfið tengir saman 18 starfsstöðvar í 9
löndum, með samtals um 500 útstöðvum.
Starf forstöðumanns upplýsingavinnslu felur
í sér mótun framtíðarstefnu EIMSKIPS á
sviði upplýsingavinnslu og yfirumsjón með
rekstri hugbúnaðarþróunar og tækniþjón-
ustu EIMSKIPS á íslandi og erlendis.
Starfs- og ábyrgðasvið:
• Stefnumótun EIMSKIPS íupplýsingamálum.
• Mótun og eftirfylgni verkefna-, rekstrar-
og fjárfestingaáætlana fyrir upplýsinga-
vinnslu.
• Samræming verkefnastjórnunar.
• Yfirumsjón með samskiptum og sam-
starfi við birgja og viðskiptaaðila á sviði
upplýsingamála.
w
Islenskukennarar!
Vegna mikillar aðsóknar leitar Fjölbrauta-
skóli Suðurlands á Selfossi enn eftir kennara
til að kenna íslensku. Góð vinnuaðstaða.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, berist skólameistara, Sigurðí
Sigursveinssyni, eigi síðar en 8. júlí nk.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði viðskipta, verk-
fræði og /eða upplýsingavinnslu.
• Starfsreynsla hérlendis og/eða erlendis.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Frumkvæði og skipulagshæfileikar.
• Áhugi á sviði tölvumála.
• Þekking á viðskiptalífinu og tölvumálum
því tengdu.
• Góð enskukunnátta.
Sérfræðingur
á fjármálasviði
EIMSKIP óskar eftir að ráða viðskiptafræðing
með framhaldsmenntun og reynslu á sviði
fjármála. Leitað er að duglegum og metnað-
arfullum starfsmanni til starfa á fjármálasviði
EIMSKIPS.
Um er að ræða nýtt starf sem felst m.a. í
vinnu við gerð rekstrar- og fjárfestingaáætl-
ana og einnig eftirfylgni áætlanagerðar.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu á
sviði áætlanagerðar og hafi jafnframt þekk-
ingu og reynslu á íslenskum fjármagnsmark-
aði. Góð þekking á PC-kerfum, svo sem
excel er nauðsynleg.
Tækniþjónusta
kerfisstjóri/
tæknimaður
EIMSKIP leitar að starfsfólki til starfa í tækni-
þjónustu upplýsingavinnslu.
Upplýsingakerfi EIMSKIPS byggjast á stað-
arnetum ásamt IBM AS/400 tölvum sem
tengjast saman á einu samskiptaneti með
3Com beinum. Tölvuumhverfið tengir saman
skrifstofur félagsins í 9 löndum, með sam-
tals um 500 útstöðvum, 12 staðarnetum og
9 AS/400 tölvum.
Netstýrikerfi staðarneta er Windows NT
Server og helstu netþjónustur byggjast á
Microsoft BackOffice hugbúnaði.
Helsti hugbúnaður á útstöðvum er Windows
3.11, Microsoft Office, Lotus cc:Mail, Eicon
skjáhermir og Lotus Notes. Að auki eru í
notkun nokkur sértækari kerfi.
Algengustu samskiptahættir eru NetBEUI,
SNA og TCP/IP.
Óskað er eftir starfsfólki með hagnýta
menntun á sviði tölvumála og/eða reynslu
af tölvum og tölvukerfum.
Um er að ræða krefjandi og áhugavert fram-
tíðarstarf, þar sem áhersla er á eftirfarandi
þætti:
• Þekkingu á Windows forritum og Micro-
soft stýrikerfum, Lotus Notes, AS/400
umhverfi, einkatölvum, útstöðvum og jað-
artækjum.
• Útsjónarsemi og skipulagsgáfu.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
Fyrir rétt starfsfólk eru í boði fjölbreytt og
krefjandi störf með margvíslegum tækifær-
um til faglegs og persónulegs þroska.
Umsóknum skal skilað til Hjördísar Ásberg,
starfsmannastjóra EIMSKIPS, Pósthús-
stræti 2, 101 Reykjavík, fyrir 8. júlí nk.
EIMSKIP
EIMSKIP leggur áherslu á að auka hlut kvenna í ábyrgðarstöðum
hjá félaginu og þar með stuðla að því að jafna stöðu kynjanna á
vinnumarkaði.
LANDSPITALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
BARNASPÍTALI HRINGSINS
Hjúkrunarfræðingar/sjúkraliði
Hjúkrunarfræðingar óskast á eftirtaldar
deildir:
Móttökustöð til afleysinga í eitt ár í 60%
starf frá 15. september nk. Starfið felst í
móttöku innkallaðra barna ásamt fræðslu
og skipulagsþætti.
Vinnutími er dagvinna frá kl. 09.00.
Upplýsingar veitir Rósa Einarsdóttir, hjúkrun-
ardeildarstj., s. 560 1054 og Hertha W. Jóns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastj., s. 560 1033.
Vökudeild (gjörgæsla nýbura) frá 1. septem-
ber nk. í 100% starf eða hlutastarf á allar
vaktir. Góður aðlögunartími og fjölbreytt
starf.
Barnaskurðdeild sem fyrst eða frá 1. sept-
ember nk. á allar vaktir, unnið er þriðju
hverja helgi. Unnið er með einstaklingshæfða
hjúkrun.
Upplýsingar veita Ragnheiður Sigurðardóttir,
hjúkrunardeildarstj., s. 560 1040 og Anna
Ólafía Sigurðardóttir, hjúkrunardeildarstj.
s. 560 1030.
Sjúkraliði óskast á barnaskurðdeild í 60%
starf á næturvaktir frá 1. september nk.
Nánari upplýsingar veitir Anna Olafía Sigurð-
ardóttir, s. 560 1030.
KVENNADEILD LANDSPITALANS
Líffræðingur
Líffræðingur óskast til starfa á glasafrjóvgun-
ardeild kvennadeildar Landspítalans. Um-
sóknarfrestur er til 15. ágúst 1996, en gert
er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf í
september 1996 eða eftir samkomulagi.
Um er að ræða fullt starf á rannsóknastofu
deildarinnar, þar sem unnið er með kynfrum-
ur og fósturvísa og ræktun þeirra. Vinnutími
er frá kl. 08.00-15.00 virka daga auk nokkurr-
ar helgarvinnu. Umsækjandi skal hafa lokið
háskólaprófi í líffræði.
Umsóknareyðublöð fást hjá Helgu Tryggva-
dóttur, fulltrúa á kvennadeild Landspítalans.
Umsóknum skal fylgja greinargerð um nám
og fyrri störf m.a. líffræðirannsóknir.
Nánari upplýsingar veita Júlíus Gísli Hreins-
son og Elín Ruth Reed, líffræðingar í s.
560 1175 eða Reynir Tómas Geirsson, pró-
fessor í s. 560 1000.
Umsóknum skal skilað til Reynis Tómasar
Geirssonar, prófessors, kvennadeild Land-
spítalans, 105 Reykjavík.
ENDURHÆFINGARDEILD
LANDSPÍTALANS
Iðjuþjálfi
Laus er staða iðjuþjálfa við endurhæfingar-
deild Landspítalans í eitt ár frá 1. september
1996 til 31. ágúst 1997. Æskileg reynsla í
sómatískri meðferð.
Upplýsingar veittar í sÍMUM 560 1421 og
560 1427.
Umsóknir sendist á endurhæfingardeild
Landspítalans.
ÞVOTTAHÚS RIKISSPÍTALA
Yfirsaumakona
Óskað er eftir yfirsaumakonu á saumastofu
þvottahúss Ríkisspítala. Æskilegt er að við-
komandi hafi menntun og/eða reynslu við
að sníða, búa til snið og sauma.
Ráðning er frá 1. ágúst 1996.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí 1996.
Umsóknum skal skila til Karólínu Guðmunds-
dóttur, tæknideild Ríkisspítala, Rauðarárstíg
31, 105 Reýkjavík.