Morgunblaðið - 05.09.1996, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ovprianrli
USS, þið eruð bara að plata, þetta eru bara krókodílatár. Þið viljið ekkert fá hann Sig-
hvat aftur . . .
Mál Israelsmannsins Emanuel Blass
Gögnum safnað til að
undirbúa málsókn
PÁLL A. Pálsson hæstaréttarlög-
maður hefur tekið að sér mál flug-
vélaverkfræðingsins Emanuel Blass
frá ísrael, sem lenti ásamt eigin-
konu sinni og ferðafélögum í hrakn-
ingum á Vatnajökli fyrir rétt rúmu
ári.
Páll hefur óskað eftir því við
samgönguráðuneytið að fá þau
gögn sem ráðuneytið studdist við
þegar það tók ákvörðun um að
hafna beiðni Blass um að skipa
sérstaka rannsóknarnefnd, til að
fara í saumana á tildrögum þess
að ferðafólkið lenti í hrakningum.
Kanna viðurkenningu
bótaábyrgðar
Hann hefur jafnframt sent erindi
til ferðaskrifstofunnar Samvinnu-
ferðir-Landsýn, til að kanna hvort
fyrirtækið og tryggingafélag þess
viðurkenni bótaábyrgð vegna at-
burðarins, en SL stóð að skipulagn-
ingu ferðarinnar.
Páll sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann hafi rætt við Blass
og lögfræðing hans í ísrael í júlí-
mánuði, og óumflýjanlegt sé að
málið fari dómstólaleiðina, náist
ekki samkomulag áður á milli deilu-
aðila. Þáttur í undirbúningi fyrir
þá málsmeðferð sé söfnun um-
ræddra gagna.
Páll segir að Blass og eiginkona
hans hafi greinilega orðið fyrir
miklu andlegu áfalli vegna atburð-
anna á Vatnajökli, auk líkamlegra
meiðsla.
„Þau og ferðafélagar horfðust í
augu við dauðann klukkustundum
saman og var ekki veitt nein áfalla-
hjálp eftir atburðinn, sem hefði þó
verið nauðsynlegt að mínu mati,“
segir hann.
Blass sendi samgönguráðuneyt-
inu erindi fyrir skömmu vegna
ákvörðunar um að skipa ekki rann-
sóknarnefnd, þar sem hann segir
m.a. að með því sé lokið bréfaskrift-
um hans til ráðuneytisins en málinu
verði haldið áfram á lagalegum
grundvelli. Hann sé lostinn vantrú
og furðu yfir ákvörðun ráðuneytis-
ins.
Afstaða stjórnvalda
vonbrigði
„Ég varð fyrir gífurlegum von-
brigðum með þá afstöðu sem ís-
lensk stjórnvöld hafa tekið með því
að stinga slíku máli undir stól,“
segir Blass.
33 kynningarbæklingar um iðnnám gefnir út
Iðnnám spennandi kostur
SAMSTARFSNEFND iðnfræðslu-
verkefnisins INN telur að með því
að gera iðnnám að spennandi val-
kosti fyrir ungt hæfileikaríkt fólk
aukist líkur á að nýsköpun eflist í
atvinnulífinu. INN-samstarfshópur-
inn hefur gefið út 33 bæklinga um
iðnnám sem dreift verður af Náms-
gagnastofnun til nemenda 9. bekkjar
grunnskóla. I bæklingunum kemur
fram almenn starfslýsing iðngreina,
námstími og hvar hægt sé að leita
nánari upplýsinga um námið.
Markmið iðnfræðsluverkefnisins
INN, iðnaður, nemendur, nýsköpun,
er að benda ungu fólki á iðn- og
starfsnám sem raunhæfan kost til
að afla sér hagnýtrar og góðrar
menntunar, sem getur leitt til eftir-
sóknarverðra starfa, segir Guðrún
Þórsdóttir, fulltrúi Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur í samtarfs-
nefnd INN.
„Ef bæta á samkeppnisstöðu ís-
lands þarf að efla menntunarstig
íslensks vinnuafls, koma í veg fyrir
viðvarandi atvinnuleysi og eyða for-
dómum um iðnnám," segir Guðrún.
Brottfall nema
óvenju hátt
Guðni Olgeirsson, fulltrúi
menntamálaráðuneytis í samstarfs-
nefndinni, segir að hlutfall ung-
menna sem fara í framhaldsnám
strax að loknu grunnskólanámi sé
óvenjulega hátt á íslandi. „Á sama
tíma er hlutfall þeirra sem aldrei
ljúka námi einnig óvenju hátt hér-
lendis. Unglingum hefur hingað til
ekki boðist fræðsla um aðrar náms-
leiðir s.s. iðn- og starfsnám," segir
Guðni.
í skólasóknarskýrsiu Hagstofu
Islands kemur í ljós að árið 1992
hafði einstaklingum sem hófu al-
mennt bóknám hér á landi ljölgað
um 40% frá árinu 1980. Á sama
tímabili hafði nýnemum í iðnnámi
einungis fjölgað um 18%. Litlar
breytingar höfðu orðið á námskrám
iðnbrauta í verknámi aðrar en þær
að hlutur bóknámsgreina í iðnnámi
hafði aukist um 62% á tímabilinu.
Þýskur bæjarstjóri í heimsókn
Hreifst mjög af
jafnréttisbaráttu
íslenskra kvenna
Ulriche Höfer
HÉR á landi er stödd
þýsk kona, dr.
Ulriche Höfer, að
nafni. Hún er bæjarstjóri
í Planigg, sem er ellefu
þúsund manna bær í ná-
grenni Múnchenr og er
hún hér í vikufríi ásamt
tveimur börnum sínum.
Ulriche hefur mikinn
áhuga á Islandi og ís-
lenskri menningu og hefur
komið hingað reglulega á
síðastliðnum tuttugu
árum, sem fararstjóri fyrir
þýska ferðamenn. Hún
hefur lesið sér mikið til
um land og þjóð, talar
góða íslensku og hefur
verið að kynna Island í
Suður-Þýskalandi. Morg-
unblaðið náði tali af Ulric-
he og spurði hana meðal
annars um áhuga hennar á ís-
landi, en viðtalið fór að sjálfsögðu
fram á íslensku.
Hvers vegna fékkstu svona mik-
inn áhuga á Islandi?
„Það vildi svo vel til að fyrir
tuttugu árum, þegar ég starfaði
ásamt eiginmanni mínum sem far-
arstjóri í Finnlandi, var haldinn
fararstjórafundur þar í landi þar
sem við hjónin kynntumst Herði
Erlingssyni, sem nú rekur ferða-
skrifstofu fyrir þýska ferðamenn
á íslandi. Við hjónin fengum mik-
inn áhuga á því að koma til js-
lands og spurðum Hörð ráða. Ári
síðar, eða árið 1977, fór svo að
ég kom hingað fyrst sem farar-
stjóri. Síðan þá hef ég komið nán-
ast á hveiju sumri og hef unnið
sem fararstjóri fyrir Ferðaskrif-
stofu Harðar Erlingssonar.
Ég varð strax mjög hrifin af
íslandi, einkum vegna þess hve
náttúran er víðáttumikil. í Þýska-
landi eru alltaf hús, skógar eða
fjöll, sem standa í vegi fyrir út-
sýninu, en á íslandi er allt svo
opið. Hér er líka gott að vera einn
út af fyrir sig og slaka á. Til
dæmis þarf maður ekki að fara
langt frá Reykjavík til að komast
í friðsæld náttúrunnar. Það er
hins vegar ekki svo auðvelt í
Þýskalandi, því þar eru bílar og
fólk út um allt. Þá líkar tnér vel
hve lítið er um glæpi á íslandi,
en þeir eru mun fleiri í Þýska-
landi. Hér þarf maður ekki að
vera eins var um sig og til dæmis
í nágrenni Múnchen."
Hvenær hyrjaðir þú að læra ís-
lensku?
„Árið 1980 fór ég í háskólann
i Múnchen til þess að læra ís-
lensku, en eftir eitt ár kunni ég
allt það sem hægt var að læra í
íslensku þar. Ég brá því á það ráð
að halda íslenskunni við með því
að lesa íslenskar bækur og Morg-
unblaðið, sem ég fékk
einu sinni í viku. 1
gegnum árin hef ég
svo lesið ýmis fræg
verk á íslensku eins
og til dæmis skáld-
sögur Halldórs Laxness og Islend-
ingasögurnar. Þá má ekki gleyma
því að það hefur verið mjög góð
æfing fyrir mig að komast til Is-
lands á sumrin.
Að mörgu leyti hefur mér ekki
fundist erfitt að læra íslenskuna.
Ástæðan er fyrst og fremst sú hve
mörg orð í íslensku eru svipuð
þýskum orðum, en einnig vegna
þess hve málfræði þessara tungu-
mála er um margt svipuð. Þrátt
fyrir þetta fínnst mér íslenskan
mun erfiðari, en þau tungumál
sem ég hef Iært áður, eins og til
dæmis enska og franska."
► Ulriche Höfer er fædd í
Karlsbrunn í Suðvestur-Þýska-
Iandi, 16. júní, 1946. Hún lauk
menntaskólaprófi árið 1965, en
þá um haustið hóf hún nám í
tannlækningum við háskólann í
Göttingen. Þaðan lauk hún
tannlæknaprófi árið 1971. Fyrst
eftir útskriftina starfaði hún við
tannlækningaháskólann í
Miinchen, en síðar hóf hún störf
á tannlæknastofu. Eftir að hún
eignaðist börn hætti hún þeim
störfum. Hún hefur tekið mik-
inn þátt í stjórnmálum í
heimabæ sínum Planigg. Hún
hefur meðal annars verið full-
trúi í bæjarráði og síðastliðinn
maí var hún kosin bæjarstjóri.
Hún er gift Frank Höfer Iög-
fræðingi og eiga þau tvö börn.
Hefur þú getað lært eitthvað af
íslendingum í gegnum tíðina?
„Já, því það er margt á íslandi
sem hefur haft mikil áhrif á líf
mitt. Það helsta sem má kannski
nefna er að á fyrstu árunum eftir
að ég fór að venja komur mínar
hingað var mikið að gerast í jafn-
réttisbaráttu íslenskra kvenna og
hreifst ég mjög af því. Vigdís Finn-
bogadóttir var fyrst kvenna til að
vera kosin forseti á íslandi og
Kvennalistinn var stofnaður.
Þessu var öðruvísi háttað í Bæj-
aralandi, þar sem ég átti heima.
Þar var hlutverk kynjanna mjög
hefðbundið; karlarnir voru í
áhrifastöðum þjóðfélagsins á með-
an konurnar voru heima og sinntu
börnunum. Þegar ég hins vegar
sá hvernig þetta var á íslandi fékk
ég loks kjark til að gera eitthvað
í mínu heimalandi, því hvers vegna
ekki þar eins og hér. Og þar með
hófust í raun afskipti mín af
stjórnmálum. Síðan þá hef ég
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir heimabæinn minn Planigg
og í maí síðastliðnum
var ég fyrst kvenna
til að vera kosin
bæjarstjóri þar í bæ.“
Hefur þú áhuga á
að koma sem farar-
stjóri til Islands, nú þegar þú ert
orðin bæjarstjóri?
„í fyrstu vissi ég ekki hversu
tímafrekt það yrði að sinna bæjar-
stjórastarfinu, en eftir að hafa
sinnt því starfi í þijá mánuði hef
ég ákveðið að koma hingað næsta
sumar, sem fararstjóri. Það er
mjög afslappandi vinna, því ég
þarf bara að hugsa um það sem
ég ætla að segja ferðamönnunum
um ísland. Eftir þá ferð mun ég
örugglega koma endurnærð aftur
til Þýskalands og tilbúin til að
takast á við þau verkefni sem bíða
mín þar.
Gott að slaka
á í íslenskri
náttúru