Morgunblaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 9
Hreifst af Jóni
Arnari í Atlanta
Millilenti til
__ að sjá land
Islendingsins
Selfossi.
BANDARÍKJAMAÐUR, George
Maxwell að nafni, kom gagngert
hingað til íslands til þess að sjá hei-
maland Jóns Arnars Magnússonar
tugþrautarmanns. George hafði við-
dvöl á Selfossi á fimmtudagskvöld
og gisti í Gesthúsum.
Hann sagðist fljúga mikið á milli
Bandaríkjanna og Evrópu og sagðist
hafa ákveðið að stoppa einn dag á
íslandi vegna þess að hann hefði
verið í Atlanta og fylgst með Jóni
Arnari þar. Björn S. Lárusson rekstr-
arstjóri Gesthúsa sagði að George
hefði greinilega hrifist af Jóni Arn-
ari og haft á orði að hann langaði
til að sjá heimaland Jóns. Þegar hann
fór sagðist hann ætla að koma aftur
næsta sumar og þá með konu og
börn með sér.
Þarna sagði Björn greinilegt að
landkynning íþróttamannsins hefði
skilað sér vel.
------» » 4-----
Mikil eftir-
spurn eftir
Kanarí og
London
HEIMSFERÐIR bjóða í vetur vikuleg-
ar ferðir til Kanaríeyja og hafa undir-
tektir meðal fólks verið góðar að sögn
Andra Más Ingólfssonar forstjóra.
Hann segir að þegar sé búið að selja
í yfir 50% af þeim ferðum, sem fyrir-
tækið hafi upp á að bjóða, bókað
hafi verið í 1.300 sæti til eyjanna.
Andri Már segir, að Heimsferðir
séu sú ferðaskrifstofa sem flytji flesta
íslendinga til Kanaríeyja á ári hveiju.
Hann sagði einnig mikla eftirspurn
vera eftir ferðum til London og væru
margar ferðir þegar uppseldar í sept-
ember, október og nóvember til borg-
arinnar. Hann kvað Heimsferðir nú
vinna að því bæta við sætum með
því að fá stærri vélar, en í vetur fljúga
Heimsferðir til London tvisvar í viku,
á fímmtudögum og mánudögum.
• •
Orn Friðriks-
son tekur við
formennsku í
Samiðn
ÖRN Friðriksson,
varaformaður
landssambandsins
Samiðnar, tók við
formennsku í sam-
bandinu af Grétari
Þorsteinssyni, for-
seta ASÍ, á mið-
stjórnarfundi í
Samiðn sl. mánu-
dag.
Grétar lét af formennsku í Samiðn
vegna starfa á vettvangi ASÍ en mun
sitja áfram í miðstjórn Samiðnar.
Kjarasamning-ar undirbúnir
Fulltrúar Samiðnar ætla að taka
þátt í fundahöldum aðildarfélaga
Samiðnar um allt land á næstu vikum
vegna undirbúnings kjarasamninga,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá sambandinu. Á fundunum
á að ræða með hvaða hætti félögin
og sambandið koma til með að standa
að gerð samninga og viðræðuáætl-
ana, og um kjarakröfur og skipan
samninganefndar. í byijun október
verður svo haldinn sambandsstjórn-
arfundur með fulltrúum allra aðildar-
félaga Samiðnar þar sem draga á
meginlínur í komandi samningagerð
en núgildandi kjarasamningar renna
út um áramótin.
ÖrnFriðriksson.
FRÉTTIR
Kanarí
að seljast upp
í vetur
frá
39.932
Kanaríferðir
Heimsferða hafa
fengið ótrúlegar
undirtektir og nú eru
margar ferðir okkar
uppseldar eða að seljast upp. Bókaðu
strax og tryggðu þér þá ferð sem hentar þér best í
vetur. Glæsilegt úrval gististaða í boði, beint flug með
glæsilegum Boeing 757-200 og þú nýtur traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða í fríinu.
39.932
19. nóv., hjón mcð 2 böm, Aus
54.132
ars, m.v. hjón með 2 börn, Ausi
58.760
Verð frá kr.
Vikuferð til Kanarí 19. nóv., hjón mcð 2 böm, Australia.
Verð frá kr.
Ferð í 2 vikur, 4. mars, m.v. hjón með 2 börn, Australia.
Hvenær er laust?
20. okt. - 11 sæti laus
19. nóv. - laus sæti
26. nóv. - laus sæti
17. des. - uppselt
24. des. - 21 sæti laust
31. des - laus sæti
07.jan. - 12 sæti laus
14. jan. - laus sæti
04. feb. - 18 sæti laus
VISA
Verð frá kr.
M.v. 2 í íbúð, Sonnenland, 26. nóv, 3 vikur.
Innifalið í vcrði, flug, gisting, ferðir til og frá
flugvelli, íslensk fararstjóm.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17,2. hæð • Sími 562 4600
NÝKOMNAR VÖRUR
Antik munir, Klapparstíg 40, sími 552 7977
Nýkomnar haustvörur
á mjög góðu verði
Suðurlandsbraut 52. Sími 588 3800. Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-14.
Fyrir frjálslega vaxnar konur á öllum aldri.
ÓTTU ÞESS BESTA
MAT OG DRYKK.
ÞAÐ KOSTAR EKKl MEIRA.
^SALAT „NigOlSE".
Aambavöðvi.
BAKAÐUR í
KARTÖFLUHJÚP MEÐ
RÓSMARÍN-SÓSU.
‘MÖKKAMÚS
f SÚKKULAÐITURNI
MEÐ HINDBERJASÓSU.
B E RG STAÐAST RÆT1 37
SÍMl: 552 57 00, FAX: 562 30 25 SÝNISHORN ÚRMATSEÐLl