Morgunblaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 13 AKUREYRI Ymsar hliðar lauslætis ræddar á ráðstefnu KENNARADEILD Háskólans á Akureyri efnir til ráðstefnu um lauslæti í Oddfellowhúsinu við Sjafnarstíg næstkomandi laugar- dag, 7. september og hefst hún kl. 14. „Það er oft sagt að heimspek- in sé dálítið loftborin og ekki í tengslum við jarðlífið. Það er í rauninni ekki rétt og mörg við- fangsefni siðfræðinnar tengjast daglegu lífi og hegðun. Kennara- deildin vildi halda ráðstefnu sem væri í senn heimspekileg og hag- nýt og þetta viðfangsefni varð fyrir valinu," sagði dr. Kristján Kristjánsson dósent við háskól- ann og einn fyrirlesara. „Þetta er verðugt viðfangs- efni, en þar sem kennaradeildin stendur fyrir ráðstefnunni mun- um við einkum einbeita okkur að ungu fólki og meðal annars velta fyrir okkur spurningunni um hvort það að vera laus í rás- inni í kynferðisefnum á unga aldri er siðferðilega rétt eða rangt.“ Haraldur Bessason, fyrrver- andi rektor Háskólans á Akur- eyri, flytur fyrsta fyrirlesturinn og nefnist hann Innan garðs og utan - þankar um veraldarinnar lausung. Þar mun Haraldur m.a. ræða um hugtakið lauslæti og hvernig lauslæti birtist í fornum bókmenntum. Dr. Kristján Kristjánsson dós- ent flytur fyrirlestur sem nefnist Gegn lauslæti þar sem hann mun koma fram með helstu rökin gegn lauslæti. í fyrirlestri sínum einbeitir hann sér að ungu fólki og leiðir m.a. rök að því að laus- læti geri fólk grunnt eins og hann kallar það og geti komið í veg fyrir að að geti myndað var- anleg ástarsambönd síðar. Dr. Mikael Karlsson prófessor við Háskóla ísland flytur fyrirlest- ur sem nefnist Til vamar lauslæt- inu þar sem hann væntanlega mótmælir ýmsu því sem fram kemur í fyrirlestri Kristjáns. Að lokum flytur dr. Guðmund- ur Heiðar Frímannsson forstöðu- maður kennaradeildar Háskólans á Akureyri erindi sem nefnist Fjölskyldur og framhjáhald og greinir m.a. frá áhrifum lauslæt- is á börn. Að fyrirlestrum loknum verða almennar umræður. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og öllum heimill. Mun færra fé slátrað hjá KEA en áður Nýjar reglur kalla á fleira starfsfólk FJOLGA þarf starfsmönnum Slát- urhúss KEA á Akureyri um 4-6 vegna nýrra reglna þar sem kveðið er á um að ekki megi selja óverkuð svið út úr sláturhúsinu. Fleiri starfs- menn við sláturverkun þýðir, að sögn Óla Valdimarssonar sláturhússtjóra, hækkun á slátri. í sláturtíðinni, sem hefst 13. sept- ember næstkomandi, verður slátrað mun færra fé en gert var í fyrra, eða um 5 þúsund færra. Alls verður slátr- að um 29.300 fjár á komandi vikum, en á síðustu árum hefur talan verið á bilinu 34-35 þúsund. „Það er veru- leg fækkun hjá okkur núna, en ég geri ráð fyrir að við tökum álíka lang- an tíma í slátrunina," segir Óli. Nokkrar breytingar verða gerðar á slátursölunni á þessu hausti, m.a. verða boðnir til sölu saumaðir kepp- ir og lagðað slátur. Óli segir margt eldra fólk ekki hafa möguleika á að taka sjálft slátur en vilji fyrir alla muni eiga það í frystikistum sínum til vetrarins. Borgar sig að henda sviðunum? Eftir að bann var lagt við því að selja óverkuð svið út úr sláturhúsinu segir Óli það spurningu hvort ekki borgi sig frekar að henda sviðunum í haust. „Þetta er nokkur höfuðverk- ur, við þurfum að leggja í umtals- verðan kostnað við að verka sviðin en getum allt ejns átt von á að selja þau ekki öll. Eg geri ráð fyrir að þurfa að fjölga starfsfólki í sláturtíð- inni miðað við það sem var í fyrra, það þurfa að vera 4-6 bara í því að verka sviðin. Ég býst við að slátrin verði um 50 krónum dýrari fyrir vikið,“ segir Óli. Um 110 manns starfa í sláturhúsi KEA i sláturtíðinni, sem stendur til 18. október og segir Óli að ágætlega hafi gengið að fá fólk til starfa. Messa GUÐSÞJÓNUSTA verður í Greni- víkurkirkju næstkomandi sunnudag, 8. september kl. 14. TILB0ÐSB0K mánaðarins Lífenauðsynleý handb Kíwh's —----OG---— SKTOuimv? I A S ' Ný og aðgengileg handbók fyrir foreldra og uppalendur þar sem lýst er réttum viðbrögðum við hvers kyns slysum og annarri óvæntri neyð sem böm geta orðið fýrir. Ómissandi bók! Á ótrúlega gódu verdi! Tilboðsverð: Fullt verð: 3.980 kr. Þú sparar: 1.990 kr. Fjórða hvert barn á aldrir 0-4 ára verður fyrir slysi SLYSAGILDRURIS ERU MARGAR A HEIMILINU ^'■rriiað þyí að í okkar "r‘ Tryggðu þér eintak í september. Frá 1. október kostar bókin 3.980 kr. VAKAHELCAFELL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.