Morgunblaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Aldarminning hógværs meistara Jón Kaldal: Séra Arnór Jón Kaklal: Dr. Helgi Jón Kaldal: Jóhannes Arnason, Hvammi í Lax- Pjeturs, jarðfræðingur. Kjarval. Um 1939. árdal. Um 1930. Um 1940-44. MYNPLIST Nýlistasafnið LJÓSMYNDIR Jón Kaldal — yfirlitssýning. Opið kl. 14-18 alla daga til 15. septomber; aðgangur kr. 200, sýningarskrá kr. 2500. ÞAÐ er óvenjuleg sýning sem nú fyllir sali Nýlistasafnsins við Vatnsstíg — óvenju- leg í samhengi þeirrar listar sem þar er oftast í fyrirrúmi. Tengslin við starf safns- ins eru þó skýr; hér er á ferðinni sýning helguð mikilvægu framlagi einstaklings til íslenskrar listasögu, listsköpun sem er í senn tímalaus og ætíð ferskt — en þannig list hlýtur að vera helsta markmið safnsins að ýta undir. Nafn Jóns Kaldals kann að vera framandi ýmsum hinna yngstu sem gjarna sækja þenn- an stað en er þeim mun kunnara meðal hinna eldri. Jón rak ljósmyndastofu í Reykjavík í nær hálfa öld og þar tók hann myndir af þúsundum einstaklinga; þær myndir sem þjóðin þekkir best af merkustu skáldum, lista- mönnum og stjómmálaforingjum aldarinnar eru nær allar frá Kaldal komnar. Jón var einn af stofnendum Ljósmyndarafélags ís- lands 1926 og varð heiðursfélagi þess hálfri öld síðar; og loks varð hann fyrsti einstakling- urinn til að halda hér einkasýningu á ljós- myndum þegar hann opnaði sýninguna „Svart og hvítt“ árið 1966. í fræðandi og skemmtilegri ritsmíð í sýn- ingarskrá kemur Einar Falur Ingólfsson beint að kjarnanum: Jón Kaldal var fyrst og síð- ast portrettljósmyndari. „Ljósmyndarinn bar ákaflega mikla virðingu fyrir fólki; fólk var efniviðurinn sem hann vann úr alla tíð. I bestu portrettmyndum sínum dregur hann einkenni fólksins fram og skapar sterk blæ- brigði með lýsingunni, en á henni hafði hann mikið vald og vissi hvernig átti að beita.“ Staðfesting þessa kemur best fram í þeim rúmlega eitt hundrað myndum sem fylla sýninguna. Hér ber fyrir augu sterkan svip, alvarlegt yfirbragð, hvasst tillit eða trega- blandað; það er eins og kátína eða hlátur hafi tæpast átt við það fólk sem Jón mynd- aði, heldur er það sem upphafið í þeirri virð- ingu sem ljósmyndarinn ljær því. Og þetta síðastnefnda á ekki aðeins við landsþekktar persónur, heldur ekki síður við ábúðarmikla bændur, sjómenn og sérstaka persónuleika, sem hann sat um að ná að ljósmynda. í þessu mikla safni væri leikur einn að benda á fjölmörg meistaraverk en hér verða fáeinar tilvísanir að duga. Myndin af séra Arnóri Árnasyni frá Hvammi í Laxárdal (nr. 15) er dæmi um allt hið besta í persónu- ljósmyndun; sterkan svip, einfalda umgjörð og lýsingu sem dregur athyglina að augum sem þekkja allt, skilja allt — geyma sögu aldanna. Myndir af tregablöndnu skáldinu (Steinn Steinarr, nr. 8), björtum svip fræði- mannsins (Dr. Helgi Pjeturs, jarðfræðingur, nr. 28), angist listamannsins (Jóhannes Kjarval, nr. 22), íbyggnu andliti stjórnmála- foringjans (Jónas Jónsson frá Hriflu, nr. 33) og veðurbörðum vanga fjallamannsins (Guð- mundur Einarsson frá Miðdal, nr. 64) eru allt dæmi um sterkustu þætti myndgerðar Jóns Kaldal. Þar ráða einföld uppsetning, dökk prentun myndanna og loks skarpur augnasvipur, sem er lykiilinn að öllu saman, eins og ljósmyndarinn sagði sjálfur í sjón- varpsviðtali: „Ef augun eru ekki í lagi finnst mér bara ekkert varið í myndina — augun þurfa fyrst og fremst að vera góð.“ Augun í þeim myndum sem hér hafa verið valdar eru vissulega góð; jafnvel kisa (nr. 58) verður eftiiTninhileg fyrir augun. Jón tók nær allar mannamyndir sínar á ljósmyndastofunni, við næsta frumlegar aðstæður; einföld vél, umgjörð og lýsing. Árangurinn var því ekki að þakka tækni, heldur kunnáttu og reynslu listamannsins, sem úrvinnsla og listræn hæfni sá um að koma til skila í ljósmyndunum sjálfum. Hann tók einnig myndir úti í þjóðfélaginu — í verksmiðjum, verslunum eða utan dyra, og vegna þeirra vakna upp spurningar um hvers vegna hann gerði ekki meira af slíku. Svarið felst líklegast í áhuga hans á fólkinu handan linsunnar; hann vildi gera einstakl- ingnum þau bestu skil sem hægt var — og gerði það best í því vinnuumhverfi stofunn- ar sem þjónaði honum óslitið í nær hálfa öld. í setustofu Nýlistasafnsins hefur ýmsum gripum úr þessu umhverfi verið komið fyrir og er líklegt að yngri ljósmyndurum þyki lítið til koma. Vélarnar bera þó aldurinn vel, eru traustar og sterklegar — dyggir þjónar þeim sem kann með að fara. Hér er einnig hægt að skoða myndband með sjón- varpsviðtali við listamanninn vegna sýningar hans 1966; þar kemur margt fram um við- horf hans til miðilsins og þeirrar listar sem ljósmyndunin vissulega er. Ekki verður skilið við þessa sýningu án þess að sýningarnefndin fái sérstakt hrós fyrir þær einföldu en áhrifamiklu breytingar sem hafa verið gerðar á sölum Nýlistasafns- ins í tilefni hennar. Gluggar hafa verið byrgðir og veggir málaðir; horfinn er hinn náhvíti litur verksmiðjusalanna og í staðir ríkir mildur grámi sem líkt og skerpir sjón- ina hjá þeim sem inn koma. Sérstaklega uppsett lýsing verður síðan til að kóróna breytinguna, og myndar fullkominn bak- grunn fyrir dökkar ljósmyndirnar. I þessum ham öðlast salir safnsins nýtt líf og ættu að geta þjónað með góðum árangri mun fjölbreyttari list en fyrr. í tengslum við sýninguna hefur einnig verið gefin út vegleg bók með myndum Jón Kaldal undir ritstjórn nafna hans og barna- barns. Þessi bók er að mörgu leyti ítarlegri og fróðlegri en sú bók sem gefin var út um ljósmyndir Kaldal 1982, og ræður þar mestu fjölbreyttara myndaval, áðurnefnd ritgerð Einars Fals Ingólfssonar um ljósmyndarann og list hans sem og æviágrip. Bókinni fylg- ir einnig textainnlegg á ensku þannig að hún ætti að eiga markað víðar en meðal íslenskra unnenda góðrar ljósmyndunar. Loks ber að nefna að prentun myndanna (og pappírsval) hefur tekist með miklum ágætum, þannig að dökkar ímyndirnar skiia sér ekki síður en í þeim stækkunum, sem prýða sýninguna sjálfa. Sýningin var opnuð á aldarafmæli ljós- myndarans upp á dag; hún mun hafa slegið aðsóknarmet í Nýlistasafninu þegar á fyrstu sýningarhelgi og á það sannarlega skilið. Hér getur að líta listilega unna persónusköp- un í ljósmyndun þar sem árangurinn byggð- ist fyrst og fremst á listrænu innsæi, þol- gæði og geysilegri tilfinningu ljósmyndarans fyrir leyndardómum miðilsins. Slík list er góð áminning um gildi ljós- myndarinnar, nú þegar æ fullkomnari tölvu- tækni er vel á veg komin með að véfengja alla myndræna sköpun — það er maðurinn en ekki tæknin sem ræður hinum endanlega árangri. Listunnendur eru hvattir til að fjölmenna á þessa merku sýningu verka hins hógværa meistara sem undirritaður telur hiklaust með merkustu viðburðum ársins í íslenskri myndlist. Eiríkur Þorláksson Frjálsir o g óháðir tónlistarmenn Strengjakvartettar njóta æ meirí vinsælda enda segja tónlistarmennimir þá veita mögnleika á meira sjálfstæði í túlkun og að einstaklingnrinn njóti sín betur en í sinfóníuhljómsveit. SKAMPA-kvartettinn hefur náð langt í Bretlandi. ÞEGAR nýjasti geisladiskur Bjarkar Guðmundsdóttur, „Post“, kom út fyrir rúmu ári, kvað við nýjan en þó einkennilega kunnu- legan tón; hljóm strengjakvartetts. Og þetta var ef til vill skýrasta dæmið um það að þeir eru að kom- ast aftur í tísku, að því er segir í The European. Samstarf Brodsky-kvartettsins og Bjarkar heldur áfram en áður hafði kvartettinn komið fram með Paul McCartney og Elvis Costello. Og bandaríski Kronos-kvartettinn, sem tekur stuttermaboli fram yfir kjólföt, hefur unnið með framúr- stefnulegum tónlistarmönnum á borð við Kraftwerk og Steve Reich. Kvartettar áberandi á tónlistarhátíðum Þessi samvinna virðist ekki vera dæmi um það að sígild tónlist hafi verið verið soðin niður svo að poppunendur geti melt hana og henni því fórnað á altari poppsins. „Síður en svo,“ segir Ian Belton, fiðluleikari í Kronos-kvartettinum. „Þegar við komum fram með El- vis Costello á Spáni, urðu áhorf- endur svo hrifnir að þeir mættu á Sjostakovitsj-tónleika sem við héldum daginn eftir.“ Hinar auknu vinsældir strengja- kvartetta hafa orðið ungum tón- listarmönnum hvatning til að stofna slíka kvartetta. Þessa hefur séð stað á tónlistarhátíðum sum- arsins, en leikur strengjakvartetta hefur verið áberandi á efnisskrám margra þeirra. Flestir halda sig á hefðbundnari nótum en Brodsky- kvartettinn og njóta þessir oft á tíðum frísklegu kvartettar meiri vinsælda en þeir hafa gert frá því á ljórða áratugnum. Tengsl tónlistarsmekks og slj órnmálaástands? George Zeisel stofnaði Pro- Quartet árið 1987, sjóð til að auka vöxt og viðgang kammertónlistar. Hann segir að fyrir tveimur ára- tugum hafi kammermúsík aðeins vakið áhuga þröngs hóps áhorf- enda, „elítunnar". Telur hann að tónlistarsmekkur fólks endur- speglist í stjórnmálaástandi hvers tíma. Kammertónlist hafi t.d. tekið við sér um svipað leyti og ógnar- stjórn kommúnista í Evrópu leið undir lok. „Þegar ný ríki fóru að lýsa yfir sjálfstæði, höfðuðu raddir fögurra einstaklinga mun frekar til tónleikagesta en samhljómur stórrar sinfóníuhljómsveitar," seg- ir Seisel. Jonas Krejci, 27 ára gamall sellóleikari í hinum tékkneska Skampa- kvartett, tekur undir það að sjálfstæði, pólitískt sem per- sónulegt, hafi mikið aðdráttarafl fyrir tónlistarmenn. „Ég gekk til liðs við kvartettinn þvi mér fannst sinfóníuhljómsveit of ópersónuleg og mér fannst ég ekki geta komið hugmyndum mínum á framfæri þegar ég var einn í sextíu manna hópi.“ Ungir tékkneskir námsmenn stofnuðu Skampa-kvartettinn árið 1989 og hefur hann náð tölu- verðri viðurkenningu í Evrópu, ekki síst Bretlandi. Krejci viður- kennir þó að það sé enginn dans á rósum að koma sér á framfæri. Menn njóti ekki sömu verndar og í sinfóníuhljómsveit og ekki sömu athygli og einleikarar. í upphafi æfi menn sleitulaust án þess að til komi nokkur umbun. Og þannig verði það að vera, dreifi menn kröftum sínum og reyni að kenna með eða leika í öðrum hljómsveit- um, nái kvartettinn aldrei viðun- andi árangri. Náið samstarf Og samstarfið getur tekið á taugarnar enda mjög náið. Auk þess að æfa allan daginn, geta kvartettarnir verið á tónleika- ferðalögum svo mánuðum skiptir. Líkir Krejci samstarfinu við hjónaband og segir óhjákvæmi- legt að hraustlega blási í sam- starfinu. Það hefur gengið vel í Skampa-kvartettinum, svo mjög að meðlimir hans fara stundum í frí saman. Slík tilhugsun er Vicci Ward- man, víóluleikara Sorrel-kvart- ettsins, hins vegar ekki að skapi. Hún segir tónlistarmennina leggja mikla áherslu á að halda einkalífi sínu fyrir utan samstarfið, annars verði álagið einfaldlega of mikið. Sorrel-kvartettinn sé eingöngu skipaður konum, svo að hættan sé lítil á því að stofnað verði til ástarsambanda, en hún sé að jafn- aði mjög mikil vegna þess hversu mikil tilfinningaspenna fylgi því að leika saman í kvartett. Sorrel- og Skampa-kvartettarn- ir halda sig báðir við sígilda efnis- skrá en hafa hins vegar látið hinn hefðbundna kvöldklæðnað, kjólföt og síðkjóla, lönd og leið á tónleik- um. Hins vegar segjast tónlistar- mennirnir í báðum kvartettum gera sér fulla grein fyrir því að þeim beri að kynna nýja tónlist fyrir áheyrendum, til að sýna fram á að kvartettarnir hafi eitthvað að segja, fram að færa. Æ meira máli skiptir að skapa sér sérstöðu, í tónlistinni eða jafn- vel klæðaburði. Brodsky-kvartett- inn var stofnaður þegar meðlimir hans voru enn í barnaskóla og töldu að þeir hlytu ekki viðurkenn- ingu fyrr en þeir yrðu gamlir og lúnir. Þeir létu hefðbundinn klæðnaðinn róa því þeir voru and- vígir rykföllnu yfirbragði kvartett- anna og gerðu óhræddir tilraunir með nýja tónlist. Enda hafa þeir vakið furðu en áhuga margra sem hafa sér til undrunar heyrt að „hipparnir" væru í raun afbragðs klassískir tónlistarmenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.