Morgunblaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 64
00
<Ö>
AS/400 er...
...með PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
<33> NÝHERJI
SKAFTAHLID 24 - S!MI S69 7700
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBLtálCENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Saga var aðeins rúmar
tvær merkur við fæðingu
XÐEINS tveggja sólarhringa
gamalli var henni gefið nafn
enda var talið tvísýnt um líf
hennar. Nafnið Saga varð fyrir
valinu og fljótlega var farið að
kalla hana ýmsum nöfnum.
Læknarnir á Landspítalanum
kölluðu Sögu t.a.m. Smásögu
og aðrir töluðu um Ævintýra-
sögu.
Saga er dóttir Einars Páls-
sonar og Ardísar Bjarnþórs-
dóttur og felst ævintýrið í því
að léttara barn hefur ekki kom-
ist yfir erfiðasta hjallann á
Vökudeild Landspítalans frá
upphafi. Saga var 524 g, rúmar
tvær merkur, eða rétt rúmlega
þyngd smjörlíkisstykkis við
fæðingu. Nú, fjögurra og hálfs
mánaðar, er hún um 4.000 gr.
Fyrsti hluti meðgöngu Árdís-
ar, móður Sögu, gekk eðlilega
fyrir sig. Meðgöngueitrun gerði
hins vegar skyndilega vart við
sig og var Saga tekin með keis-
araskurði eftir tæplega 28
vikna meðgöngu þann 11. apríl
sl. Eðlileg meðganga er talin
um 40 vikur.
Við fæðingu var Saga 524 g
að þyngd og 31 sentimetri. Líf-
færin virtust hins vegar hafa
þroskast vel og hún þurfti ekki
að dvelja lengi í öndunarvél.
Saga var í hitakassa á Vöku-
deild Landspítalans í tvo og
hálfan mánuð. Heim til foreldra
sinna kom Saga svo 30. júní, þá
rúmlega 2.000 grömm.
■ Eðlilegtað/4
Morgunblaðið/Ásdís
SAGA litla er orðin fjögurra og hálfs mánaðar og tæplega 4.000 grömm að þyngd. Hún horfði
forvitin á svip framan í ljósmyndarann þar sem hún hvílir örugg á öxl Einars Pálssonar pabba síns.
Samstarf Alþýðuflokks og Þjóðvaka
Þingflokkarn-
ir sameinaðir
SAMKOMULAG hefur náðst milli
viðræðunefnda þingflokka Alþýðu-
flokks og Þjóðvaka um sameiningu
þingfiokkanna í haust og mun hann
bera nefnið Þingflokkur jafnaðar-
manna. Rannveig Guðmundsdóttir,
þingflokksformaður Alþýðuflokks,
verður formaður hins nýja þing-
flokks og Svanfríður Jónasdóttir,
þingflokksformaður Þjóðvaka,
verður varaformaður.
Forystumenn flokkanna og þing-
menn kynntu sameininguna í gær
og lögðu áherslu á að með henni
væri stigið fyrsta skrefið í átt til
aukins samstarfs eða kosningasam-
vinnu jafnaðarmanna á íslandi.
Jóhanna Sigurðardóttir, formað-
ur Þjóðvaka, og Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Alþýðuflokksins,
sögðust fagna þessari niðurstöðu
og sögðust vænta góðs af sam-
starfi innan raða jafnaðarmanna í
framtíðinni.
Breytir litlu að mati
formanns Alþýðubandalags
Þingflokkar Alþýðubandalags og
Kvennalista komu ekkert nálægt
viðræðunum sem leiddu til þessa
samkomulags en Margerét Frí-
mannsdóttir, formaður Alþýðu-
bandalags, sagði að sameiningin
kæmi sér ekki á óvart. Hún sagðist
hafa átt fund með formönnum Al-
þýðuflokks og Þjóðvaka í gær þar
sem henni var kynnt samkomulag-
ið. Margrét gerir ekki ráð fyrir að
þessi atburður breyti miklu fyrir
viðræður um aukið samráð á milli
stjórnarandstöðuflokkanna á Al-
þingi. Auk sameiningar þingflokk-
anna hefur Einar Karl Haraldsson,
fyrrv. framkvæmdastjóri Alþýðu-
bandalagsins, verið ráðinn til starfa
fyrir hinn nýja þingflokk og á m.a.
að laða til samstarfs fólk sem að-
hyllist jafnaðarstefnuna. Einar ger-
ir ráð fyrir að verða áfram flokks-
bundinn í Alþýðubandalaginu.
Margrét Frímannsdóttir sagði að
þetta væri persónuleg ákvörðun Ein-
ars Karls en hún vekti engu að síð-
ur upp bæði pólitískar og siðferðileg-
ar spurningar. „Ég sé ekkert gegn
því að Einar Karl hefji þama störf
ef hann treystir sér til að leggja til
hliðar allt sem tilheyrir Alþýðu-
bandalaginu og störfum hans þar,
því framkvæmdastjóri hvers flokks
er mikið inni í öllum málefnum
flokksins," sagði Margrét.
■ Fyrsta skref/6
Vilja breyta stefnu-
yfirlýsingu ráðuneytis
HEIMILISLÆKNAR fengu ein-
dregna stuðningsyfirlýsingu í
kjarabaráttu sinni & aukaaðal-
fundi Læknafélags íslands í gær.
Stefnuyfirlýsingu heilbrigðis-
ráðuneytisins um fagleg málefni
í heilsugæsluþjónustu var aftur á
móti hafnað í óbreyttri mynd.
Lýst var yfir vonbrigðum með að
samráð hafi ekki verið haft við
heildarsamtök lækna. Katrín
Fjeldsted, formaður Félags ís-
lenskra heimilislækna, segir að
læknasamtökin standi sterkari
eftir fundinn. Hún kveðst vongóð
um að ólíkar fylkingar lækna nái
samstöðu um endanlega útfærslu
tillagna um valfrjálst stýrikerfi.
■ LI lýsir eindregnum/4
*
Alþýðusamband Islands knýr á um verðlækkun landbúnaðarafurða
Hætta í opinberum nefnd-
um ef ekki næst árangnr
ALÞÝÐUSAMBAND íslands álykt-
aði á miðstjórnarfundi í gær að ef
ekki næðist jákvæður árangur af
starfi opinberra nefnda um land-
búnaðarmál, sem ASÍ á fulltrúa í,
til hagræðingar í landbúnaði og
lækkunar verðs landbúnaðarafurða
fyrir lok nóvember muni sambandið
draga fulltrúa sína út úr nefndun-
um. Ákveðið var að endurtilnefna
fulltrúa í nefndirnar til bráðabirgða
eh meta árangur af starfi þeirra á
fundi sambandsstjórnar ASÍ í lok
nóvember.
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
ASÍ, segir að umræður um mark-
mið með þátttöku ASÍ í nefnda-
starfi um Iandbúnaðarmál hafí bor-
ið hæst á miðstjórnarfundinum.
„Spurningin er sú hvort Alþýðu-
sambandið á að halda áfram eða
hætta samstarfi við bændur og
stjórnvöld í landbúnaðarmálum sem
við hófum árið 1990,“ segir Ari.
„Það hafa verið háværar raddir inn-
an okkar raða að undanförnu um
að samstarfið hafi ekki skilað mikl-
um árangri, við ættum að draga
okkur út úr því og taka upp aðrar
aðferðir til að ná markmiðum okkar
í landbúnaðarmálum."
Framtíðartollastefnu þörf
Ari segir að meginmarkmið með
þátttöku ASÍ hafi verið að stuðla
að lægra verði landbúnaðarvöru og
vernda störf í landbúnaði, bæði
bænda og starfsmanna í úrvinnslu-
greinunum. „Við teljum að ef ekki
komi til hagræðingar og verðlækk-
unar landbúnaðarafurða muni inn-
flutningur landbúnaðarafurða
ganga af íslenskum landbúnaði
dauðum einn góðan veðurdag," seg-
ir hann.
Að mati miðstjórnar ASÍ þarf
fyrst og fremst að marka framtíðar-
stefnu varðandi tolla og innflutn-
ingshöft á landbúnaðarafurðum og
ákveða hvernig slíkum ráðstöfunum
verði beitt til stjórnunar á fram-
leiðslu og til aðhalds og lækkunar
á verði landbúnaðarafurða. í álykt-
un ASÍ segir að opinber verðlagning
landbúnaðarafurða sé orðin úrelt
og stefna beri að því að hætta henni.
Ennfremur segir í ályktuninni að
ekki sé veijandi að vernda eina
grein landbúnaðar á kostnað ann-
arrar og þess vegna verði að endur-
skoða reglur um kjarnfóðurgjald,
sjóðagjöld, lán til fjárfestinga og
stjórnkerfi landbúnaðarins.
Ef ASÍ afræður að draga fulltrúa
sína út úr opinberu nefndastarfi
telur Ari koma til greina að tekin
verði upp hrein neytendastefna og
lægra vöruverðs landbúnaðarafurða
krafist hvaðan sem þær komi.
Tilhögun viðræðuáætlana
óplægður akur
Á fundinum var ennfremur rætt
um nýja vinnulöggjöf. Ari segir að
einkum hafi verið rætt um tilhögun
og gerð viðræðuáætlana við undir-
búning kjarasamninga. Hann segir
að þetta sé óplægður akur og fjall-
að hafi verið um hveijir ættu að
gera viðræðuáætlanir, hvað þær
eigi að vera margar og hvernig þær
eigi að líta út. Engar ályktanir voru
samþykktar um þetta efni á mið-
stjórnarfundinum.
Morgunblaðið/Kristinn
Strætis-
vagnaskýli
fauk á bíl
FÓLKSBÍLL varð fyrir skemmd-
um á afturbretti þegar strætis-
vagnaskýli SVR fauk á hann í
hvassviðrinu í Reykjavík eftir há-
degið í gær. Atvikið átti sér stað
á Sundlaugavegi á móts við Dal-
braut og var lögregla kölluð á
vettvang.