Morgunblaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 43 d 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 < 4 4 < < 4 < < < < < < AÐSENDAR GREINAR Af rétti landvætta MIKIL umræða fer nú fram um framtíð hálendisins og sýnist sitt hvetjum eins og von er. Það sem vekur mesta athygli mína er sú staðreynd að þeir sem kveðja sér hljóðs 5 þessu mikilvæga máli eru svokallaðir hagsmunaaðilar. Sveitarfélög, sem eiga land að hálendinu, Orkustofnun, með sín áform um virkjanir, skotveiðimenn og lax- veiðimenn og nú síðast fulltrúar ferðaþjón- ustunnar. Svo eru það auðvitað þeir sem vilja friða land- ið. Allir ætla þessir aðilar að selja landið þó á mismunandi hátt sé. Sú skoðun hefur meira að segja heyrst, að landið sé einskis virði ef ekki sé hægt að nota það eða njóta þess á einhvem hátt, allt gegn greiðslu, að sjálfsögðu. Land- ið sjálft, hin lifandi náttúra með sínu fjölbreytta lífi, hefur gleymst í umræðunni allri. Hvar er réttur landsins? Hvar er réttur landvætt- anna? Hvar er réttur almennings? Það er upphaf hinna heiðnu laga, að menn skyldu eigi hafa höfuðskip í haf, en ef þeir hefðu, þá skyldu þeir af taka höfuðið áður en þeir kæmu í landsýn, og sigla eigi að landi með gapandi höfðum eða gín- andi tijónum, svo eigi fælist land- vættir við. Vona ég svo sannarlega að þessi grein sé enn í fullu gildi, því einmitt á þennan hátt eiga menn að umgangast náttúmna, með virðingu og lotningu. Þegar forfeður okkar komu til þessa lands fyrir meira en 1100 árum gerðu þeir samning við land- vættirnar, landið sjálft, um nytja- og búseturétt. Um eign- arrétt á landi, að nú- tímaskilningij var ekki að ræða. A hinum byggðu svæðum landsins hefur nú fýrir margt löngu verið þinglýst eignarhaldi að nútímahætti. Þar verður ekki aftur snú- ið. Þar eiga nú víða við orð Jónasar; Flúinn er dvergur dáin hamratröll dauft er í sveitum hnípin þjóð í vanda. Sömu örlög vofa nú yfir fiskimiðunum. En hálendið er enn vemdað af landvættunum, þó hafa þar nú verið framin óbætanleg spjöll, í Hálendið, segir Jörmundur Ingi Hansen, er enn vemdað af landvættunum. raun og vera helgispjöll, þá er ekki of seint að snúa við. Gífurleg svæði hafa verið nöguð niður í rót, í nafni framfara í land- búnaði. Stórum spildum hefur ver- ið drekkt, sökkt undir uppistöðu- lón, í nafni rafvæðingar og orku- sölu til erlendrar stóriðju. Nú skilst manni að malbika eigi afganginn, í nafni ferðaþjónustu og ferðafrelsis. Höfum við algjörlega tapað átt- um? Halda menn í raun og vera að íslenskir eða erlendir ferðamenn séu að leita að malbikuðum vegum, brúuðum ám, sjoppum, stöðu- mælavæddum bílastæðum og sótt- hreinsuðum sundlaugum inni á hálendinu? Nú karpa menn um það hvej eigi að stjórna eyðileggingunni. Á að friða hálendið? Á að gera það að þjóðgarði? Á að gera það að sérstakri stjómsýslueiningu, eða á bara að skipuleggja það og gleyma því svo? Margar sagnir era til um það hvernig fer fyrir þeim sem vanvirða náttúrana og misbjóða vættunum. Nægir þar að benda á nýleg dæmi um vegagerð. Ég vara menn við, því yfir hálendinu hvflir hulinn verndarkraftur, líkt og hólmanum, þar sem Gunnar sneri aftur. Uggvænlegustu fréttirnar koma svo frá Alþingi, þaðan er ekkert að frétta. Álþingismenn geta ekki tekið á málinu og allar tillögur þar að lútandi eru hálfkák og mála- miðlanir. Sannast nú hið fom- kveðna að þeir sem vilja þóknast öllum þóknast engum. Að lokum vil ég gera upphafs- orð Halldórs Laxness í Fegurð him- insins að mínum. Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt, þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu. Á slíkum stað á hvorki stjóm- sýsla né kaupsýsla að ríkja. Þar á fegurðin ein að ríkja, ofar hverri kröfu. Höfundur er allsherjargoði. Bruðhjón Allur boröbUnaður Glæsilucj (jjafavara Briiöai hjona listai 5'yrv)//N/vV\V VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Jörmundur Ingi Hansen Blombeng Excellent fyr\r þá sem vilja aöeins það besta! OFNAR: 15 gerðir í hvítu, svörtu, stéli eða spegilálfenð, fjölkenfc eða Al-kerfa með Pyrolyse eða Katalyae hreinsikenfum. HELLUBORB: 16 gerðir, með háhitahellum eða hinum byltingarkenndu, nýju Spansuðuhellum, sem nota segulorku til eldunar. Ný frábær hönnun á ótrúlega góðu verði. Blomberd Hefur réttu lausnina fyrir þig! Einar Farestveít & Co. hf. Borgartúni 28-Slmi 562 2901 og 562 2900 To d d u n i rín í eldunartækjum Blomberg SK0LATILB0Ð H m Ef þú kaupir loxrún ■ ■ m -v n MMil Hii i sængurverasett og heilsukodda í kauphæti Fré kr. 19.400 Boxrúm Stæráir: 120x200, 105x200, 80x200, 90x200 Lengdir: 190, 200 og 210 Eftirtaldar verslanir selja Boxrnm: Suðurland: Húsgagnaverslunin Reynistaður, Vestmannaeyjum Austurlandi: Hólmar lif., Húsgagfnaverslun Reyðarfirði Vestfirðir: Htisgagnalofíið, Isafirði Norðurland: Vörubær bf., Abureyri Vesturíand: Verslunin Bjarg bf., Akranesi Suðumes: HK Inisgöp’n, Keflavík Reykjavík og nágrenni: Lystadún- Snælaná, Ing'var og Gylfi SjúJírajijálfari veráur á staðnum á laugardagfinn og leiðbeinir um val á réttum dýmirn milli ld. 12 og 16. II Mikið úrva I áklœða — klæðskerasaumað eftir óskum. DUNLUX-SVAMPDÝNUR15% AFSL í SEPTEMBER Dúnlúx-svampdýnur eru til í margs konar Jiéttl eika, allt frá útileg’udýnum til þykkra og vandaári dýna sem upp fylla kröfur vandlátra um mýkt og' stuðning. Þær fást sérsniánar í bvaáa rúmstærá sem er. SLútu vog! 11 • Sími 568 5588 og 581 -4655 Opiá: VirLa da^a 9-18, lau^arda^ 10-16 < ( (
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.