Morgunblaðið - 05.09.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 11
FRETTIR
Morgunblaðið/Júlíus
GUÐRÚN Margrét Pálsdóttir og Eva Alexander.
Borgarráð um rekstur sjúkrahúsa
Byg-gt verði á
raunhæfum vænt-
ingum um sparnað
Islendingar
styrkja
barnaheimili
á Indlandi
í MADRAS á Indlandi rekur kona
að nafni Eva Alexander heimili
fyrir börn vændiskvenna, ein-
stæðra foreldra og götubörn.
Rekstur heimiiisins er fjármagn-
aður með styrk frá ABC-hjálpar-
starfi á íslandi. Eva hefur verið
hér á landi í stuttri heimsókn
undanfarna daga og í gær sat hún
fund með stuðningsaðilum og
kynnti starfsemina.
Á heimilinu dvelja um 60 börn
og 100 eru á biðlista eftir að kom-
ast þar að. „Eins og er getum við
ekki tekið við fleiri börnum því
að við erum í þröngu leiguhús-
næði og sárvantar land fyrir utan
borgina til að byggja á. Þar gæt-
um við svo ræktað hrísgijón og
grænmeti og verið sjálfum okkur
nóg um mat. Okkur vantar líka
rútu til að koma börnunum til og
frá skóla,“ segir Eva.
Fjölskyldan flutti í
leiguhúsnæði
Eva er gift og fjögurra barna
móðir. Hún hafði starfað að
stjórnmálum en þegar hún varð
alvarlega veik árið 1980 tók líf
hennar aðra stefnu. „Eg ákallaði
Jesú Krist og bað hann að gefa
mér líf. Ef hann gerði það þá
myndi ég þjóna honum. Eg fékk
að lifa,“ segir hún.
Hún opnaði heimili sitt vændis-
konum og öðrum konum sem
höfðu verið misnotaðar og þeim
útskúfað úr samfélaginu. A end-
anum gaf hún heimili sitt undir
starfsemina og fjölskyldan flutti
í leiguhúsnæði.
Heimilið nýtur engrar opin-
beiTar aðstoðar en er rekið með
frjálsum framlögum vina og vel-
unnara. Sökum mikillar fátæktar
í landinu eru þau framlög þó stop-
ul. Á heimilinu læra konurnar að
sauma til þess að þær geti sjálfar
framfleytt sér án þess að stunda
vændi.
Mikið traust
Seinna fór Eva að taka að sér
heimilislaus börn vændiskvenna.
Hún var komin með tuttugu börn
inn á heimili sitt og það var orðið
þröngt um þau. Árið 1994 hitti
hún í Jerúsalem íslending að
nafni Ólafur Jóhannsson og hann
gaf henni heimilisfang ABC-
hjálparstarfs á íslandi. Hún skrif-
aði samtökunum bréf og sótti um
styrk til að geta leigt stærra hús-
næðj og tekið við fleiri börnum.
„Ég skrifaði bréfið í júní 1995
og í september sama ár kom fyrsti
styrkurinn frá íslandi," segir
Eva. Hún segist vera hrærð yfir
því mikla trausti sem henni var
sýnt með því að peningarnir voru
sendir án þess að fulltrúi samtak-
anna kæmi fyrst á staðinn til þess
að kynna sér starfið.
ABC-hjálparstarf er sam-
kirkjuleg samtök sem stofnuð
voru fyrir átta árum og er allt
unnið í sjálfboðavinnu. Guðrún
Margrét Pálsdóttir, sem er einn
af stofnendunum, segir að sam-
tökin stundi uppbyggingarstarf
fremur en neyðarhjálp. „Mark-
miðið er að veita hjálp sem ekki
er hægt að taka frá mönnum aft-
ur. Þannig höfum við stutt lestr-
arkennslu og kostað skólagöngu
barna sem annars hefðu ekki
notið hennar," segir Guðrún Mar-
grét.
Stuðningsaðilar ABC-hjálpar-
starfs eru nú um 1.500. Að sögn
Guðrúnar Margrétar er hveijum
og einum það í sjálfsvald sett
hversu mikið hann lætur af hendi
rakna. Möguleiki er á að styrkja
eitt ákveðið barn með föstum
framlögum eða styrkja starfið í
heild sinni með lágum jafnt sem
hærri upphæðum.
í TRAUSTI þess að meðal annars
fjárveitingar til Sjúkrahúss
Reykjavíkur á næsta ári byggi
ekki á óraunhæfum væntingum
um sparnað samþykkir borgarráð
fyrirliggjandi samkomulag milli
heilbrigðis- og tryggingaráðherra,
fjármálaráðherra og borgarstjóra
um aðgerðir í rekstri Sjúkrahúss
Reykjavíkur og Ríkisspítala.
I samþykkt borgarráðs er lýst
ánægju með að óvissu sem ríkt
hefur varðandi rekstur Sjúkrahúss
Reykjavíkur á þessu ári skuli hafa
verið eytt. Þá segir að ekki sé síð-
ur mikilvægt að náðst hafi sam-
komulag við ráðuneytin um hvaða
þjónustu sjúkrahúsið eigi að veita.
Þær breytingar sem samkomulag-
ið feli í sér geti, ef vel tekst til,
VEIÐI hefur verið lítil í Smugunni
upp á síðkastið. Að sögn Kristjáns
Þ. Jónssonar, skipherra á varð-
skipinu Óðni, eru þar 29 íslensk
skip. Hann segir að þeim hafi far-
ið smáfækkandi síðustu tvær vikur
frá því að Óðinn lagði af stað frá
Reykjavik.
Óðinn kom með ýmsar sending-
ar til íslensku skipanna en eftir
að þær höfðu verið afhentar hefur
verið lítið að gera. Kristján segir
leitt til skýrari verkaskiptingar og
aukinnar hagkvæmni í heilbrigðis-
þjónustu.
Borgarráð leggi hins vegar
áherslu á að enn sé ákveðin óvissa
um þær sparnaðartölur sem
reiknað sé með í greinargerð með
samkomulaginu að breytingar
muni skila. Mikilvægt sé að hafa
í huga að framkvæmd samkomu-
lagsins byggist meðal annars á
því að fjárveitingar til sjúkrahúss-
ins á næsta ári byggi ekki á
óraunhæfum væntingum um
sparnað, heldur verði tryggt
nauðsynlegt fjármagn á fjárlög-
um til þess að veita þjónustuna
sem samkomulagið gerir ráð fyrir
og viðhalda því þjónustuhlutverki
sem sjúkrahúsið gegnir.
að gert hafi verið að sárum og
smákvillum nokkurra sjómanna og
farið um borð í togara til fiskmæl-
inga. Ekki hefur verið ákveðið
hversu lengi varðskipið verði í
Smugunni, en Kristján segir það
ráðast af því hversu margir ís-
lenskir togarar verði þar eftir.
Auk íslendinganna eru 5-6 port-
úgölsk skip í Smugunni og fjöl-
mörg rússnesk. Norskt varðskip
er einnig stöðugt í nágrenninu.
Lítil veiði í Smugnnni
Mesa-ball til sfyrkfar Rúnari Júlíussyni
laugardaginn 7. september kl. 10-3.
Landsliðið mæfir ofi fíefur alif í bofn.
Allir öefa vinnu sína.
Gunnars Þórðarsonar leikur fyrir dansi.
Kynningar:
Porgeir Ástvaldsson og Hemmi Gunn
¥
ball verður aldrei endur
rtekið! ö
i af neinu
til að missa
Verð aðgöngímuiða aðem
0 kronur!
Forsala aðgöngumiða a Hotel Islandi daglega frá kl. 13-17.
Fram koma:
Bubbi Morthens,
Björgvin Halldórsson.
BjarniArason, / SVOII
Pálmi Gunnarsson, íMætið snem
Engiibert Jenssen
Magnús og Jóhann,
Einar Júlíusson,
Arí Júnsson.
Pétur Kristjánsson,
Þorsteinn Eggertsson.
HÓTEL íjÖflND
Þar að auki:
Hljómar,
Trúbrot
Lónlí Blú Bojs,
' Sléttuúlfarnir,
Brimkló,
GCD,
Pops,
Gömiu brýnin.