Morgunblaðið - 05.09.1996, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
ÓLAFUR Guðmundsson, annar framkvæmdastjóra hlaupsins,
og Kristín Gunnarsdóttir, einn af starfsmönnum, merkja rás-
mark Brúarhlaupsins á Ölfusárbrú.
Fullkomin tímataka í Brúarhlaupinu 7. sept.
Stærsti íþróttavið-
burður á Suðurlandi
Selfossi - Fullkomin tímataka verð-
ur í Brúarhlaupi Selfoss sem fram
fer á laugardag, 7. september. Bún-
aður frá Reykjavíkurmaraþoninu
verður settur upp í markinu og tími
keppenda færður strax inn á tölvur
sem skila tímunum mjög fljótt frá
sér eftir hlaupið. Skráning í hlaupið
hófst síðastliðinn föstudag og er
greinilegt að verulegur áhugi er fyr-
ir hlaupinu. Þennan áhuga má einn-
ig merkja á því að margir undirbúa
sig nú undir hlaupið á iaugardaginn
me_ð því að hreyfa sig.
í þessari viku geta keppendur
skráð sig í Kjarnanum í KÁ síðdeg-
is fimmtudaginn 5. september og
eftir hádegi föstudaginn 6. septem-
ber. A höfuðborgarsvæðinu er unnt
að skrá sig á skrifstofu UMFÍ í
Fellsmúla 26. Afhending númera
verður í Tryggvaskála laugardaginn
7. sept. frá klukkan 10 um morgun-
inn til 13. Brúarhlaupið er orðinn
stærsti viðburður í almennings-
íþróttum á Suðurlandi, en í fyrra
tóku 1.100 manns þátt og nú er
stefnt að því að þátttakendur verði
1.500.
Hlaupaleiðin tilbúin
Hlaupa- og hjólaleiðin hefur verið
merkt og geta þeir sem vilja, mátað
þrek sitt við leiðina með því að fara
hana, frá Ölfusárbrú og fylgja bláum
örvum á hlaupaleiðinni austur Aust-
urveginn, um Langholt, Fossheiði,
Gagnheiði og Eyraveg á Tryggva-
torg. Boðið er upp á 10 km hjólreið-
ar, 2,5 km, 5 km og 10 km hlaup
og 21 km hálfmaraþon.
Helgað heilbrigðu líferni
Verndari hlaupsins er Ingibjörg
Páimadóttir heilbrigðisráðherra
enda er hlaupið helgað heilbrigðu
líferni fólks. Einkunnarorð þess eru:
Betra líf án tóbaks, en tóbakið er
stærsti skaðvaldur heilsu manna og
mikilvægt að stemma stigu við út-
breiðslu þess. Þá er lögð á það
áhersla að þátttaka í hlaupinu er lóð
á metaskálar þeirra sem vilja stuðla
að auknu heilbrigði almennings á
Islandi með hollri hreyfíngu. Það er
því hlaupið til heilbrigðara lífs á
Selfossi á laugardag. Mikill áhugi
er fyrir því hjá þeim sem beijast
gegn reykingum, að sem flest fyrir-
tæki á Suðurlandi verði reyklaus á
næsta ári.
Allir aldursflokkar
Hlaupið er fyrir fólk í öllum ald-
urshópum sem vill gera sér glaðan
og heilbrigðan dag með því að
ganga, skokka, hlaupa eða hjóla á
Selfossi 7. september.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
FJÖLMENNI var í Víðirhólskirkju þegar séra Örn Friðriksson predikaði þar í árlegri messu.
Egilsstöðum - Messað var í Víðir- prestur á Skútustöðum í Mý-
hólskirkju á Fjöllum á laugar- vatnssveit.
dag, en þar er einungis messað Víðirhólskirkja er lítil og var
einu sinni á ári nú orðið. Prestur byggð 1926. Altaristaflan er frá
var sr. Örn Friðriksson, þjónandi 1674 og er ótrúlega vel farin. í
Fjallahreppi er búið á tveimur
bæjum. íbúar hreppsins, sem búa
þar allan ársins hring, eru þrír
að tölu. Fjallahreppur var nýverið
sameinaður Öxarfjarðarhreppi.
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Festi
málað
Grindavík - Félagsheimilið
Festi í Grindavík er í huga
margra samnefnari fyrir
sveitaböll á árum áður. Festi
var málað nú nýlega og ákveð-
ið var að mála húsið í litum
UMFG.
Líklega munu margir sem
sækja bæinn heim reka upp
stór augu þegar þeir líta lita-
dýrðina augum.
^Aaga vikUf}/f
-kjarni málsins!
Fjölmenni
við útför
Hólmfríðar
ÚTFÖR Hólmfríðar ísfeldsdóttur á
Helluvaði var gerð frá Skútustaða-
kirkju föstudaginn 30. ágúst að
viðstöddu fjölmenni. Sóknarprest-
urinn séra Örn Friðriksson flutti
útfararræðu og jarðsöng. Kór
kirkjunnar söng, organisti var Jón
Árni Sigfússon. Einsöng Baldvin
Kr. Baidvinsson, einleikur á fiðlu
Hlíf Siguijónsdóttir, undirleikari
Sólveig Anna Jónsdóttir.
Hólmfríður var fædd á Kálfa-
strönd 16. júlí 1907, foreldrar
hennar voru Elín Halldórsdóttir og
ísfeld Einarsson. Hólmfríður gift-
ist Jónasi Sigurgeirssyni á Heltu-
vaði 1929 og þau hófu þar búskap
og hefur heimili þeirra verið þar
alla tíð. Þau eignuðust 5 börn sem
öll eru á lífi.
Morgunblaðiö/Stofán Ólafsson
VERÐLAUNAHAFAR ásamt Hrönn Pálsdóttur, formanni umhverfisnefndar, og Sturlaugi Þorsteinssyni, bæjarstjóra.
U mhverfisverðlaun
Homafjarðar veitt
Höfn - Umhverfisnefnd Horna-
fjarðar verðlaunaði fyrir
skömmu einstaklinga og fyrir-
tæki fyrir fagra garða og snyrti-
legt umhverfi. Lagði Hrönn Páls-
dóttir, formaður umhverfis-
nefndar, áherslu á að verðlaunin
væru veitt til að hvetja til bættr-
ar umgengni í sveitarfélaginu.
Hjónin Elínborg Pálsdóttir og
Benedikt Þorsteinsson fengu
verðlaun fyrir garðinn sinn sem
þau hafa af eljusemi ræktað í
harðri baráttu við sjávarseltuna
á Ránarslóðinni. Hjónin Hildur
Gústafsdóttir og Björn Eymunds-
son fengu verðlaun fyrir garð-
og skógrækt. Hafa þau ásamt
nágrönnum sínum ræktað veg-
Iegan skóg umhverfis híbýli sín
skammt frá Höfn. Fiskvinnslu-
og útgerðarfyrirtækið Skinney
fékk verðlaun fyrir snyrtilegt
umhverfi sem fyrirtækið hefur
lagt metnað sinn í. Veittu þau
Guðrún Ingólfsdóttir, Ingólfur
Ásgrímsson og Birgir Sigurðsson
verðlaununum móttöku.
Grunnskóli Skútustaðahrepps
Nýtt íþróttahús
um áramót
Mývatnssveit. Grunnskóli Skútu-
staðahrepps í Reykjahlíð var settur
mánudaginn 2. september.
Hólmfríður Guðmundsdóttir skóla-
stjóri flutti skólasetningarræðu og
kom víða við. Hún bauð alla nemend-
ur, bæði nýja og eldri, velkomna í
skóiann, ennfremur kennara, þá sem
kennt hafa áður og einnig þá sem
nú eru að hefja þar störf, svo og
annað starfslið skólans.
Nemendur í vetur verða 73 og
kennarar ásamt skólastjóra 10.
Nemendum í 10. bekk verður kennt
í skólanum í vetur, en svo hefur
ekki verið undanfarin ár. Gert er
ráð fyrir að taka í notkun nýtt og
glæsilegt íþróttahús um næstu ára-
mót. Við lok skólasetningar var
sungið; Fjalladrottning móðir mín
og Blessuð sértu sveitin mín. Fjöl-
menm var:
i
I
I
I
)
)
í
i
i
i
í
i
1'
I
i
>
I
í