Morgunblaðið - 05.09.1996, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 37
Ásmundur Gunnlaugsson
YOGA#
Innritun hafin í alla flokka frá kl. 12-18
í síma 581 3760
Byrjendaflokkar - framhaldsflokkar
Tökum nemendur inn frá 7 ára aldri
Ballet
María
-Anna
zzballet
Magga,
María,
Guðný,
Anna,
Bára o.fl.
María
AÐSENDAR GREiNAR
Heildarjóga y
Jógafyrir alla
Ókeypis kynning á hcildarjóga
laugardaginn 7. sept. kl. 14 og 16.
Asmundur Gunnlaugsson kynnir.
Allir velkomnir.
Næsta námskeið:
Grunnnámskcið 10. sepi.-l.okl (7 skipti), þri. og fim. kl. 20.00-22.15.
LeiÖbeinandi Pétur Valgeirsson.
Kenndar vcröa hatlia jógastöður, öndunartækni, slökun og
hugleiösla. FjallaÖ veröur um jógahcimspekina, mataræði o.fl.
Hátúni 6A, 105 Reykjavík,
sími511 3100. ki.11—18.30.
Hlaupið o g
leikið fyrir betra
líf án tóbaks
LAUGARDAGINN
7. september næst-
komandi fara fram
tveir stórviðburðir í
íþróttum á Selfossi
sem dregið hafa að sér
íjolda fólks. Um er að
ræða Brúarhlaup Sel-
foss og Hálandaleik-
ana. Báðir þessir við-
burðir eru studdir af
fjölmörgum aðilum og
bæjaryfirvöld hafa
veitt þeim beinan og
óbeinan stuðning á
undanförnum árum.
Þessi stuðningur og
góð þátttaka almenn-
ings hefur gert það að verkum að
þessir viðburðir eru nú orðnir ár-
vissir og skapa sérstaka stemmn-
ingu og gefa bæjarlífinu nýjan og
örari takt.
Laugardagurinn 7.
september verður, segir
Sigurður Jónsson, stór
dagur í íþróttalífi Sel-
fyssinga
Holl hreyfing fyrir alla
Brúarhlaupið dregur nafn sitt
af Ölfusárbrú sem er staðarein-
kenni Selfoss. Hlaupið, sem fór
fyrst fram 1991, er orðinn stærsti
viðburðurinn í almenningsíþróttum
á Suðurlandi þar sem fólk kemur
til þátttöku hvaðanæva af landinu.
Fólki gefst kostur á hollri hreyf-
ingu með því að hlaupa eða hjóla
ákveðna vegalengd og í lokin fá
allir verðlaunapening að launum
en stærstu launin eru ánægjan sem
fólk hefur af þessari hreyfingu og
sú vellíðan sem fylgir eftir átökin.
Þá eru það margir sem
strengja þess heit eftir
þátttökuna að taka sig
á og hreyfa sig meira
á komandi mánuðurn
og er það vel.
Fyrir betri heilsu
Að þessu sinni legg-
ur Brúarhlaupið sitt af
mörkum í baráttunni
gegn reykingum með
einkunnarorðunum:
Betra líf án tóbaks.
Með þessu er lögð
áhersla á nauðsyn þess
að stemma stigu við
útbreiðslu tóbaksnotk-
unar meðal fólks og þá
helst meðal barna og unglinga.
Þeir sem hlaupa eða hjóla á iaugar-
daginn leggja þessu lið með þátt-
töku sinni og víst er að þeir eru
margir sem vilja leggja sitt af mörk-
um til að draga úr reykingum, Sel-
fossbúar, Sunnlendingar og aðrir
sem fara munu Brúarhlaupsleiðirn-
ar á laugardaginn.
Kraftakarlar við Ölfusá
Hálandaleikarnir fara fram á
bökkum Ölfusár neðan brúar. Þeir
eru skemmtileg keppni kraftakarla
sem reyna nú með sér í lokakeppni
á laugardaginn og sá sem sigrar
er útnefndur íslandsmeistari.
Keppnin er krydduð með þátttöku
almennings í nokkrum greinum og
fulltrúar frá fyrirtækjum reyna
með sér í reiptogi. Keppnin í fyrra
var sérlega skemmtileg og dró að
sér mikinn íjölda fólks. I sumar
hafa Hálandaleikarnir verið vel
sóttir þar sem þeir hafa farið fram
og þeir leggja einnig sitt lóð á
vogarskálarnar í baráttunni gegn
reykingum.
Heimsækið Selfoss
Það er ástæða til að hvetja fólk
til þess að heimsækja Selfoss á
Sigurður Jónsson
laugardaginn til þess að taka þátt
í þeim viðburðum sem þar eru og
til að fylgjast með því sem fram
fer. Auk Brúarhlaupsins og Há-
landaleikanna verður tjaldmarkað-
ur í Tryggvagarði og síðan munu
verslanir á staðnum bjóða fram
góða þjónustu eins og þær hafa
gert á þeim dagskrárdögum sem
fram hafa farið í sumar undir heit-
inu Sumar á Selfossi. í leiðinni er
ekki úr vegi fyrir fólk að fara í
skoðunarferð um Selfossbæ til að
virða fyrir sér þá möguleika sem
fyrir hendi eru á staðnum.
Verið velkomin á Selfoss.
Höfundur er formaður
bæjarráðs Selfoss
HW
ifT
Ríkulega útbúinn á sérstöku tilboðsverði
• Sjálfskiptur
• ABS-bremsukerfi
• Tveir loftpúðar (SRS)
• 15" álfelgur
• Vindskeið
•131 hestöfl
Á götuna:
2.185.000,-
María Gísladóttir hjá JSB í vetur.
Fáum einnig gestakennara frá London í slutta heimsókn.
00,... „ __
Lágmúla 9, símar 581 3730 og58l 3760.
FÍLD - Félag íslenskra listdansara Dl - Dansráð (slands