Morgunblaðið - 05.09.1996, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
AÐSEIMDAR GREIINIAR
MORGUNBLAÐIÐ
Lögð áhersla á hópvinnu
við þróun leiðakerfis SVR
Á MYNDINNI eru frá vinstri: Kristján Kjartansson, vagnsljóri,
Þórhallur Halldórsson, deildarstjóri, Baldur Guðmundsson, varð-
stjóri, Lilja Olafsdóttir, forstjóri, Jóhannes Sigurðsson, forstöðu-
maður þjónustusviðs, Þórhallur Guðlaugsson, forstöðumaður
markaðs- og þróunarsviðs, Þórarinn Söebech, vagnstjóri, og Hörð-
ur Gíslason, forstöðumaður fjármála- og starfsmannasviðs.
LEIÐAKERFI SVR
tók gildi 15. ágúst sl.
Undirbúningur og þró-
un tillagna hafði þá
staðið yfir í rúm tvö
ár en það var snemma
árs 1994 sem danska
ráðgj af afyrirtækinu
Anders Nyvig A/S var
"íalið það verkefni að
gera úttekt á leiðakerfi
SVR. Vinna ráðgjaf-
anna fólst fyrst og
fremst í því að greina
þágildandi leiðakerfi
og leggja fram grunnt-
illögur að breytingum
á því. Þar voru hafðar
að leiðarljósi þær
breytingar sem orðið hafa á ferða-
munstri í borginni sl. ár. Snemma
vors 1995 lögðu ráðgjafarnir fram
tillögur og var strax ákveðið að
mynda sérstakan starfshóp hjá
SVR sem hefði það hlutverk að
útfæra tillögurnar í endanlegt
_ horf.
' Hópvinna/teymisvinna
Frá því í maí 1995 hafa starfað
hópar sem hver um sig gegndi
ákveðnu hlutverki í undirbúnings-
vinnunni. Tekin var sú stefna að
leggja áherslu á hópvinnu, þar sem
slík vinnubrögð hafa ótvíræða
kosti. Skipulag vinnunnar var með
þeim hætti að um var að ræða
verkefnisstjórn, framkvæmdahóp
og svo smærri vinnuhópa sem
®ttiinu að afmörkuðum verkefnum,
tengdum undirbúningi verksins.
Yfir hveijum vinnuhóp var hóp-
stjóri en hlutverk
hans var að stjórna
vinnu hópsins, boða
til funda, halda fund-
argerðir, tryggja
þátttöku hópmeðlima
og sjá til þess að tíma-
setningar stæðust.
Verkefnisstjórn
gegndi því hlutverki
að hafa yfirumsjón
með verkefninu og
fara yfir öll stefnu-
markandi mál. Má
þar nefna endanlega
lagningu leiða, stefnu
í tímasetningum
o.s.frv. Verkefnis-
stjórn er samsett af
einstaklingum með mikla en ólíka
reynslu. Þar áttu sæti forstjóri,
allir forstöðumenn, deildarstjóri,
varðstjóri og vagnstjórar. Til gam-
ans má geta þess að samanlögð
Leiðakerfið á, segir
••
Þórhallur Orn Guð-
laugsson, að spegla
ferðaþarfir almennings.
reynsla verkefnisstjórnar af akstri
strætisvagna er u.þ.b. 100 ár.
Framkvæmdahópur gegndi því
hlutverki að sjá til þess að einstak-
ir verkliðir yrðu framkvæmdir. Fór
yfir vinnu undirhópa, skilgreindi
verkefni og vísaði þeim til nánari
úrvinnslu. Lagði jafnframt mat á
hvort nauðsynlegt væri að taka
ákveðin mál fyrir í verkefnisstjórn.
Myndaður var vinnuhópur til að
leggja mat á ýmis aksturstæknileg
atriði, s.s. vegalengdir, tímasetn-
ingar, hindranir í gatnakerfí o.þ.h.
Allar leiðir voru eknar og gerðar
tillögur að breytingum á aksturs-
leið þar sem þess þurfti með. Allar
leiðir voru tímamældar og einnig
var vegalengd þeirra mæld.
Reynsla starfshópsins af akstri
reyndist ómetanleg í þessu verk-
efni. Leggja þurfti mat á þær fram-
kvæmdir sem gera þurfti í gatna-
kerfinu vegna breytinganna. Mikil
og náin samvinna var höfð við
gatnamálastjóra vegna þessara
verkefna. Áætlaður var fjöldi nýrra
viðkomustaða ásamt þeim fjölda
sem myndi leggjast niður. Til gam-
ans má geta þess að alls eru tæp-
lega 500 viðkomustaðir í leiðakerfi
SVR. Lagt var mat á nauðsynlegan
útbúnað viðkomustaða og við þá,
s.s. útskot og merkingar. Vinnu-
hópurinn sá jafnframt um flutning
og endurmerkingar viðkomustaða
við gildistöku leiðakerfisins en alls
þurfti að skipta út tæplega 1.000
leiðaspjöldum daginn fyrir breyt-
ingamar.
Sérstakur hópur vann að upp-
setningu tímataflna ásamt ákvörð-
un brottfarartíma frá endastöð.
Hér var mjög mikilvægt verkefni
á ferðinni en segja má að leiða-
kerfi samanstandi af tveimur meg-
inþáttum, þ.e. hvert er ekið og svo
hvenær er ekið. Lagt var mat á
kosti og galla mismunandi út-
færslna og gerð tillaga til fram-
kvæmdahóps. I þessum vinnuhóp
varð t.d. til sú áhersla að hnika
til öllum brottfarartímum með það
í huga að auka sveigjanleika kerf-
isins og gefa fólki kost á tíðari
ferðum milli staða.
Unnið var sérstaklega að endur-
skoðun upplýsingaefnis. Með upp-
lýsingaefni er átt við leiðaspjöld á
biðstöðvum, leiðakort og leiðabók.
Segja má að algjör bylting hafi
átt sér stað í þessum þáttum.
Leiðabók er nú öll skýrari og skil-
merkilegri, birtir m.a. teikningu
af hverri leið ásamt tímatöflu.
Leiðaspjöldum á biðstöðvum var
einnig breytt töluvert. Þau einföld-
uð, letur stækkað og dregið úr
magni upplýsinga. Leiðakort SVR
má nú finna í símaskránni. Einnig
eru aðgengilegar upplýsingar í
Textavarpinu og á heimasíðu
Þórhallur Örn
Guðlaugsson
Markvissar æfingar
fyrir karla á öllum al
• Kvöldtímar
• Fitumælingar
• Ráðgjöf um matarræói
• Æfingar i CYBEX tækjun
Kennari:
Skráning hafin í síma
Reykjavíkurborgar á Internetinu.
Mikilvægt var að búa starfsmenn
sem best undir breytingarnar. Því
var myndaður starfshópur sem sá
um innri kynningu breytinganna.
Tryggt var að allir starfsmenn
fengju nauðsynlegar upplýsingar,
haldin voru námskeið og ýmsu
efni dreift til starfsmanna. Kynn-
ingu á breytingunum var skipt í
tvo meginþætti:
1. Hverfafundir og fundir með
hagsm unaaðilum.
Haldnir voru þrír hverfafundir
og voru þeir ágætlega sóttir.
Margar ábendingar komu fram og
verður reynt að taka tillit til þeirra
eins og frekast er unnt. Jafnframt
voru haldnir nokkrir fundir með
ýmsum hagsmunaaðilum.
2. Almenn kynning.
Gerð var kynningaráætlun sem
hafði það að meginmarkmiði að
vekja athygli á breytingunum og
að upplýsa í hveiju þær væru
fólgnar.
Segja má að vel hafi tekist til
við kynningu á breytingunum og
má nánast fullyrða að þær hafi
ekki farið fram hjá nokkrum
manni.
Mikilvægt var að sjá til þess
að leiðakerfið hefði nauðsynlegan
mannafla og tæki til ráðstöfunar.
Myndaður var hópur sem lagði
mat á vagnaþörf og gerði tillögu
að niðurröðun þeirra á leiðir. Einn-
ig þurfti að fara yfir mönnun kerf-
isins og í þeim tilvikum þar sem
færa þurfti menn til, var það gert
í eins mikilli sátt við þá og frek-
ast var unnt.
Hvað er framundan?
Á næstu vikum verður safnað
gögnum um virkni nýja kerfisins.
Ljóst er að upp koma ýmsir agnú-
ar sem sníða þarf af og því er
markviss upplýsingaöflun nauð-
synleg. Nokkuð hefur borist af
ábendingum frá viðskiptavinum
og verður farið yfir þær á næstu
vikum. Leiðakerfishópurinn mun
því starfa áfram, en ráðgert er
að þær breytingar og lagfæringar
sem gerðar verða, komi til fram-
kvæmda næsta vor. Það er trú
okkar hjá SVR að þær breytingar
sem tóku gildi 15. ágúst sl. séu
spor í rétta átt. Lögð er áhersla á
að leiðakerfið endurspegli ferða-
þarfir almennings eins og þær eru
á hveijum tíma. Það er okkur einn-
ig ljóst að þjónusta SVR er ekki
fullkomin frekar en önnur mann-
anna verk. Því eru allar ábending-
ar vel þegnar. Góða ferð með
strætó.
Höfundur er forstöðumaður
markaðs- ogþróunarsviðs SVR.
Ki’ftchen/lticfl
Draumavél
heimilanna!
5 gerðir
Margir litir
Fæst um land allt.
50 ára frábær reynsla.
Einar
Farestveit & Co. hf.
Ðorgartúni 28 W 562 2901 og 562 2900