Morgunblaðið - 15.09.1996, Side 18

Morgunblaðið - 15.09.1996, Side 18
18 B SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ atvi n n ua ugl ysingar M KÓPAVOGSBÆR Lausar stöður við leikskóla Lausar eru stöður leikskólakennara við eftirtalda leikskóla: Grænatún v/Grænatún, sími 554-6580 80% staða, 4 dagar í viku. Smárahvammur v/Lækjarsmára, sími 564-4300, heil og hálf staða. Efstihjalli v/Efstahjalla, sími 554-6150 eftir hádegi. Furugrund v/Furugrund, sími 554-1124 eftir hádegi. Marbakki v/Marbakkabraut, sími 564-1112 eftir hádegi. Upplýsingar um stöðurnar gefa leikskóla- stjórar viðkomandi leikskóla. Ennfremur gefur leikskólafulltrúi upplýs- ingar í síma 554-1988. Starfsmannastjóri. Margmiðlun hf. óskar eftir að ráða starfsmenn í neðangreind störf Ritari. Starfið felst í öllum almennun ritara- störfum, s.s. bréfaskriftum, (íslenskum og enskum), skjalagerð, bókhaldsvinnu auk ann- arra verkefna. Leikni í ritvinnslu og almennri tölvunotkun nauðsynleg auk góðrar ensku- kunnáttu. Um hlutastarf er að ræða (9-13/14). Internetþjónusta (hlutastarf eftir samkomu- lagi). Þjónustustarf, aðallega gegnum síma til einstaklinga. Tilvalið starf með skóla fyrir unga og áhugasama aðila. Forritari. Starf við Internetforritun í Visual Basic/Visual C++/Lotus Notes. Æskileg menntun er tölvunarfræði frá HÍ eða kerfisfræði frá TVÍ. Mörg og spennandi verkefni framundan. Umsóknarfrestur er til og með 19. septem- ber nk. Áhugaverð störf hjá framsæknu fyrirtæki. Nánari upplýsingar um ofangreind störf fást eingöngu á skrifstofu Liðsauka, sem opin er frá kl. 9-14, Skipholti 50c. Fólk og þekking Lidsauki ehf. W Skipholt 50c, 105 Reykjavík simi 562 1355, fax 562 1311 Grunnskóii Siglufjarðar Myndmennta- kennarar Vegna veikinda vantar okkur myndmennta- kennara í fulla stöðu nú þegar. í flestum árgöngum eru tvær bekkjadeildir af þægi- legri stærð og er mikil áhersla lögð á stuðn- ingskennslu. Við erum þegar byrjuð að móta skólastarf framtíðarinnar og viljum fá fleiri kennara með ferskar hugmyndir til að leggja hönd á plóginn. Hafin er endurbygging á skólahúsnæðinu. Upplýsingar gefa Pétur, skólastjóri, vs. 467 1184 og hs. 467 1686, Eyjólfur, aðstoð- arskólastjóri, vs. 467 1184 og hs. 467 2037. Siglufjörður, sem er rúmlega 1700 manna kaupstaður, er í fallegu umhverfi og samgöngur við bæinn góðar. Tómstundastarf og félags- líf er margskonar, t.d. klúbbastarfssemi, mikiö tónlistarlíf og fjöl- breytt íþróttalíf. Einnig er nýtt íþróttahús, sundlaug, mjög gott skíða- svæði og fallegar gönguleiðir. Fjöldi ferðamanna heimsækir bæinn á sumrum. I bænum er nýr leikskóli, góður tónlistarskóli, sjúkrahús og heilsugæsla og svo mætti lengi telja. Hafðu samband við okkur og ræddu málin. Þú ert velkomin(n) til Siglufjarðar. Heimilisaðstoð Er sjúkralíði. Tek að mér að vera hjá fólki á daginn, kvöldin og næturlangt, ef þörf er á, t.d. leysa aðstandendur af, bæði hjá sjúku fólki, öldruðu og þroskaheftu. Áhugasamir vinsamlegast sendi upplýsingar til Mbl. merktar: „H - 18144“ fyrir 20. sept- ember. Viðskiptafræðingur Viðskiptafræðingur óskar eftir fjölbreyttu ábyrgðarstarfi. Mikil starfsreynsla við al- menna stjórnun, fjármálastjórnun, stjórnun launamála, samninga, bókhald, erlend sam- skipti o.fl. Fyrirspurnir óskast innlagðar á afgreiðslu Mbl. eigi síðar en 30. sept. 1996 merktar: „Reyndur viðskiptafræðingur - 4053“. FJÓROUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREYRI Ritari hjúkrunarfor- stjóra Laus er til umsóknar 50% afleysingastaða ritara hjúkrunarforstjóra frá og með 1. októ- ber nk. í eitt ár. Helstu þættir starfsins eru: Almenn skrif- stofustörf vegna starfsmannahalds, vinnsla tölfræðilegra upplýsinga, ritvinnslustörf, s.s. bréfaskriftir og fundargerðir. Við ráðningu verður lögð áhersla á ritvinnslu og tungumálakunnáttu, sjálfstæði í vinnu- brögðum, góð samskipti og samvinnuhæfi- leika. Næsti fyrirmaður er hjúkrunarforstjóri. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi starfsmannafélags Akureyrarbæjar. Umsóknarfresturert.o.m. 28. september nk. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar til Ólínu Torfadótt- ur hjúkrunarforstjóra sem gefur nánari upp- lýsingar í síma 463 0271. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Fjóröungssjúkrahúsið á Akureyri. - reyklaus vinnustaður - Framtíðarstörf 1. Skrifstofustarf hjá sérhæfðu fyrirtæki í miðborginni. Starfið felst í móttöku, síma- vörslu, ritvinnslu, auk tilfallandi verkefna. Æskilegt er að viðkomandi hafi bíl til umráða. 50 - 70% starf. Vinnutími er f.h. Reyklaus vinnustaður. 2. Afgreiðslustarf f gleraugnaverslun mið- svæðis í Reykjavík. Starfið, sem er mjög krefj- andi, felst í ráðgjöf og þjónustu við viðskipta- vini. Vinnutími 9-18 (ekki unnið laugardaga). 3. Afgreiðslustarf í fallegri sérverslun með gjafavöru. Gerð er krafa um að viðkomandi sé snyrtilegur og hafi opið og þægilegt við- mót. Vinnutími sveigjanlegur (50 - 100% starf). 4. Umsjón með mötuneyti í framleiðslufyr- irtækilaustarlega í Reykjavík. Morgunkaffi, léttur hádegisverður og innkaup. Góð að- staða. Um er að ræða gott starf hjá traustu fyrirtæki. Vinnutími 8-16. Umsóknarfrestur er til og með 18. september nk. ' Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofu Liðsauka, sem opin er frá kl. 9 - 14, að skipholti 50c, 4. hæð. Fólk og þekking Lidsauki ehf. Skipholt 5Oc, 105 Reykjavik sími 562 1355, fax 562 1311 Starfsmaður -tölvudeild Bændasamtök íslands óska að ráða starfs- mann í tölvudeild. Viðkomandi þarf að hafa: ★ Góða þekkingu á notendabúnaði. ★ Menntun á tölvusviði, æskileg. ★ Hæfni í mannlegum samskiptum og góða þjónustulund. Frekari upplýsingar veitir Jón Baldur Lorange, forstöðumaður tölvudeildar. Skriflegar umsóknir sendist Bændasamtök- um íslands fyrir 25. september nk. Bændasamtök íslands, Bændahöll v. Hagatorg, 127 Reykjavík, sími 563 300. Hjúkrunarfræðingar - Seyðisfjörður Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa við Sjúkrahúsið á Seyðisfirði sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Sjúkrahúsið á Seyðisfirði er 26 rúma sjúkra- hús með 6 stöðugildi hjúkrunarfræðinga. Sjúkrahúsið er í nýlegu húsnæði þar sem öll aðstaða til hjúkrunar og umönnunar er mjög góð. Aðalviðfangsefnin eru á sviði öldrunarhjúkr- unar, en einnig er fengist við margskonar læknisfræðileg („medicinsk") vandamál, bæði bráð og langvarandi. Næturvaktir hjúkrunarfræðinga eru í formi bakvakta, heima. Hafir þú áhuga á skemmtilegu en oft krefj- andi starfi, hafðu þá samband við Sigrúnu (hjúkrunarforstjóra) í síma 472 1406 sem gefur nánari upplýsingar. Sjúkrahús Seyðisfjarðar. Eskifjarðarkaupstaður Tæknimaður/ byggingarfulltrúi Eskifjarðarkaupstaður auglýsir laust til um- sóknar starf tæknimanns/byggingarfulltrúa. Starfssviðið er blandað milli byggingarfull- trúastarfa og almennra tæknistarfa. Starfsmaður verður m.a. yfirmaður áhalda- húss kaupstaðarins. Starfssviðið er mjög víðtækt og gerir miklar kröfur til skipulagshæfileika og víðtækrar þekkingar. Umsækjendur skulu uppfylla kröfur bygging- arreglugerðar um menntun byggingarfull- trúa. Umsóknum skal skila á skrifstofu Eskifjarðar- kaupstaðar og skulu vera ítarlegar upplýs- ingar um menntun, starfsferil og meðmæl- endur umsækjenda. Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 26. september nk. Eskifjarðarkaupstaður er kröftugt og um- svifamikið sjávarpláss með liðlega 1.000 íbúum. Mikil uppbygging sjávarútvegsfyrir- tækja hefur verið í plássinu á síðustu miss- erum. í bænum er boðið upp á alla nauðsynlega þjónustu. Rétt við bæjardyrnar er eitt besta skíðasvæði landsins og inn af bænum er frábær 9 holu golfvöllur auk annarrar hefð- bundinnar afþreyingar. Bæjarstjóri eða byggingarfulltrúi veita allar frekari upplýsingar í síma 476 1170. Bæjarstjórinn á Eskifirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.