Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 1
104 SÍÐUR B/C/D/E
212. TBL. 84.ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nýtt kosningamál breska Verkamannaflokksins
Stríð á hendur hávaða
London. Reuter.
KOMIST Verkamannaflokkurinn til valda í Bretlandi
í næstu kosningum mun hann lýsa yfir stríði gegn
hávaða og fólki, sem er til ama fyrir nágranna sína.
Hefur hann heitið að setja á stofn sérstakar lögreglu-
sveitir til að sinna þessum málum eingöngu.
„Andfélagsleg hegðun er að eyðileggja allt of mörg
íbúðarhverfi og þúsundir manna verða að búa við
áreitni og yfirgang af völdum nágranna," sagði Jack
Straw, talsmaður Verkamannaflokksins, en sam-
kvæmt tillögum flokksins eiga brot á væntanlegum
lögum um samfélagslegt öryggi að varða allt að fjög-
urra ára fangelsi.
Hávaðamengun verður æ meira vandamál í Bret-
landi og ef umferðarskarkali er undanskilinn er oft-
ast kvartað undan hundgá og háværri tónlist. Breska
stjórnin setti raunar nýlega lög, sem heimila starfs-
mönnum heilbrigðiseftirlits að gera hávaðavaldana
upptæka, til dæmis hljómflutningstæki, og frá og
með apríl nk. ganga í gildi ný lög um hámarkshávaða
eftir að sól er sest.
Verkamannaflokkurinn vill einnig koma á fót sér-
stakri ieynilögreglusveit til að vinna að þessum málum
og sérstaklega þegar fólk er hrætt við að vitna gegn
tillitslausum nágrönnum sínum.
Reutér
Kosningar í Bosníu
Izetbeg-
ovic spáð
sigri
Sarajevo. Reuter.
FLEST bendir nú til þess að múslim-
inn Alja Izetbegovic, forseti Bosníu,
hafi hlotið flest atkvæði til forsætis-
ráðs Bosníu í kosningunum sem
fram fóru um helgina. Er talið full-
ljóst að niðurstaða kosninganna
verði sú að harðlínumenn úr stjórn-
arflokkum þjóðarbrotanna þriggja;
múslima, Serba og Króata, muni
fara með stjórn landsins. Búist er
við að úrslit kosninga til forsætis-
ráðs liggi fyrir í dag.
Þegar um 80% atkvæða höfðu
verið talin var ljóst að tilraunir hóf-
samari stjórnmálaflokka til að kom-
ast til áhrifa höfðu mistekist. Izet-
begovic hafði þá hlotið um 630.000
atkvæði, Momcilo Krajisnik, fram-
bjóðandi Bosníu-Serba, hafði hlotið
um 500.000 atkvæði og Króatinn
Kresimir Zubak hafði fengið um 88%
atkvæði Króata.
Ekki var búist við að Krajisnik
myndi auka verulega við fylgi sitt
þar sem fyrstu tölurnar væru úr
sterkustu vígjum flokks hans. Þá
þótti ljóst að framboð Haris Silajdzic,
fyrrverandi forsætisráðherra
Bosníu, myndi ekki taka svo mikið
fylgi af Izetbegovic, að Bosniu-Ser-
bar hefðu sigur.
Þrátt fyrir bölspár undanfarnar
vikur um að kosningarnar muni
treysta aðskilnað þjóðarbrotanna í
Bosníu í sessi sögðust vestrænir
stjórnarerindrekar í gær vongóðir
um að Bosníu-Serbar hefðu fallið frá
kröfum um aðskilnað frá Bosníu.
■ Bosníu-Serbar sagðir/18
Perot
ekki með í
sjónvarpi
Washington. Reuter.
NEFND demókrata og repúblikana,
er undirbúa skal sjónvarpsumræður
forsetaefna í Bandaríkjunum í
haust, hefur ákveðið að efnt verði
til einvígja þeirra Bills Clintons for-
seta og Bobs Doles án þátttöku
Ross Perots. Hótar Perot málsókn
vegna niðurstöðu nefndarinnar.
Nefndin sagði að hægt yrði að
endurskoða ákvörðunina ef hagur
Perots vænkaðist í skoðanakönnun-
um en samkvæmt þeim er fylgi
hans undir 10%. Akvörðunin var
samhljóða en Mickey Kantor, aðal-
fulltrúi Clintons í viðræðum um ein-
vígin, sagðist engn að síður harma
niðurstöðuna.
Forsetaefnin geta hafnað ákvörð-
un nefndarinnar. Vitað er að Dole
er andvígur þátttöku Perots sem
margir telja hafa valdið ósigri Ge-
orge Bush í kosningunum 1992.
Kjarnorkuverið í Tsjernobyl
Geislavirkni
hefur aukist
Kiev. Reuter.
GEISLAVIRKNI hefur aukist mjög
í tvígang í fjórða kjarnakljúf Tsjerno-
byl-kjamorkuversins í Úkraínu á
einni viku og rannsaka vísindamenn
nú hvort keðjuverkun sé að fara af
stað í verinu. Tíu ár eru liðin frá því
að eitt alvarlegasta kjarnorkuslys,
sem orðið hefur, varð í kjarnakljúfin-
um og var steypt utan um hann stein-
þró til að draga úr geislavirkninni
frá honum. Miklar steypuskemmdir
hafa komið fram í þrónni á síðustu
árum.
Valentín Kupny, sem hefur umsjón
með steinþrónni, segir að geislavirkni
inni í kjarnakljúfinum hafi aukist
skyndilega á mánudag og sl. fimmtu-
dag. Er þetta í þriðja sinn á tíu árum
sem þetta gerist.
Kupny segir geislavirknina hafa
aukist um tíma en að ekki sé vitað
hver ástæðan sé. Þá hafi vísinda-
menn ekki komist að neinni niður-
stöðu um hvað hafí átt sér stað í hin
skiptin. Keðjuverkun geti leitt til
þess að geislavirkni aukist gífurlega
í umhverfi kjarnakljúfsins.
Yfirvöld í Úkraínu leggja höfuð-
áherslu á að steypa að nýju í kringum
kjarnakljúfinn og hafa þau einnig
lofað því að loka þeim tveimur
kjarnakljúfum, sem enn eru í gangi
í verinu, fyrir árið 2000. Talið er að
það kosti um 80 milljarða ísl. króna
að steypa^ í kringum kjarnakljúfínn
og segja Úkraínumenn að til aðstoð-
ar Vesturlanda verði að koma til að
loka megi verinu og draga úr hættu
á geislavirkni.
Krefjast
hreins vatns
ÍBÚAR í Dhaka, höfuðborg
Bangladesh, gengu í gær um
götur borgarinnar og kröfðust
þess að gerðar yrðu úrbætur í
vatnsmálum. Um níu milljónir
manna búa í Dhaka og um helm-
ingur þeirra hefur ekki aðgang
að hreinu vatni.
3.500 banda-
rískir hermenn
til Kúveits
Washington, Kúveit. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti fyr-
irskipaði í gær að 3.500 bandarísk-
ir hermenn yrðu sendir til Kúveits
og sagði að það væri hluti áætlunar
um að halda Saddam Hussein for-
seta íraks í skefjum þannig að ná-
grönnum hans stafaði ekki ógn af
honum.
Dagblaðið The Washington Post
birti í gær frétt um að í ráði væri
að hætta við að senda til Kúveits
5.00Q hermanna liðsauka, sem
greint var frá fyrir helgi.
Clinton sagði að þessi frétt hefði
vakið furðu sína, en hins vegar
hefði verið ákveðið að aðeins þyrfti
að senda 3.500 menn, en ekki
5.000.
Ekki var sagt hvenær hermenn-
irnir yrðu sendir, en í Kúveit eru
þegar 1.500 bandarískir hermenn.
Clinton er nú gagnrýndur harka-
lega af andstæðingum sínum heima
fyrir og sagði John McCain, þing-
maður repúblikana, að aðgerðir
Clintons hefðu mistekist. Saddam
væri nú styrkari í sessi, en fyrir
tveimur vikum. Hann hefði nú náð
völdum í norðurhluta íraks og
brestir væru komnir í samstöðu
þeirra ríkja, sem sneru bökum sam-
an í Persaflóastríðinu.
Perry segir samstöðu
enn fyrir hendi
William Perry varnarmálaráð-
herra sagði hins vegar í gær að
hann hefði í ferðum sínum til Saudi
Arabíu, Kúveits, Bahrains, Tyrk-
lands og Bretlands, þar sem hann
ræddi við utanríkisráðherra Breta
og Frakka, komist að því að sam-
staðan væri enn fyrir hendi og ein-
ing væri um það markmið Banda-
ríkjamanna að halda Hussein í
skefjum. Aðeins Frakkar hefðu
verðið ósammála Bandarikjamönn-
um um að stækka flugbannsvæðið
í suðurhluta íraks um eina lengd-
argráðu til norðurs.
Reuter
VAKTASKIPTI hjá bandarískum hermönnum, sem eru í Kú-
veit, um 45 km frá írösku landamærunum. Nú eru um 1.500 á
Persaflóasvæðinu og hyggst Bandaríkjastjórn senda 3.500 her-
menn til viðbótar þangað.