Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 2

Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gróðurskemmdir á landgræðslusvæðum í hvassviðrinu sem gekk yfir landið í gær Tafir hjá skipum og flugvélum MIKIÐ hvassviðri gekk yfir sunn- an- og vestanvert landið í gær, með allt a_ð 60 hnúta hvössum vind- hviðum. í Reykjavík náði meðal- veðurhæðin 9 vindstigum. Loftið í lægðinni, sem flutti þetta veður :■! landsins, er óvenju hlýtt. Hitinn :or hátt í 20 gráður á Norðurlandi, cn þar sem vindurinn og úrkoman var mest, þ.e. á Suðvesturlandi, var hitinn að jafnaði um 13 gráður. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var lægðin, sem var fyrir sunnan land í gær og færist austur á bóginn, ekki angi af neinum fellibylnum, sem gengið hafa yfir vestanhafs nýverið. Mið- að við árstíma er hitinn óvenju mikill, en hann fór í 19,6 gráður á Bergstöðum. Úrkoma var einnig þó nokkur, en mældist illa vegna hvassviðrisins. Veðrið olli töfum á skipaumferð og umferð um Reykjavíkurflugvöll var í lágmarki. Millilandaflug rask- aðist hins vegar ekkert vegna veð- ursins og umferð um Keflavíkur- flugvöll var samkvæmt áætlun. Eina undantekningin var vél Flug- leiða frá Kaupmannahöfn, sem lenti þremur klukkustundum á eft- ir áætlun síðdegis í gær. Orsök þeirrar tafar var ekki veðurhamur- inn, heldur þurfti að sögn Flugleiða að bíða eftir varahlut, sem kom með öðru flugi, þegar vélin var í Hamborg árdegis í gær. Tvö flutningaskip, Mælifell og Vikartindur, sem siglir fyrir Eim- skip, þurftu að bíða í margar klukkustundir á ytri höfninni við Reykjavík áður en hættulaust var talið að sigla þeim inn í Sunda- höfn. Einnig varð Stapafell að fresta því að leggjast að Eyjagarði. Sand- og moldrok veldur tjóni Að sögn Guðrúnar Láru Pálma- dóttur, héraðsfulltrúa Landgræðsl- unnar á Norðausturlandi, veldur veður sem þetta miklum skemmd- um á landgræðslusvæðum. Veðrið í gær var mesta skaðræðisveður fyrir gróður, sem gert hefur í lang- an tíma. Erfitt er að meta tjónið, en það veldur annars vegar miklum skemmdum á gróðri almennt, bæði á há- og láglendi, og hins vegar líði gróður á jöðrum sandfoks- svæða sérstaklega. Verst úti í veðrinu í gær urðu svæði á Mývatnsöræfum, Hólsfjöll- um og HólaSandi, en þar hefur úrkoma verið í lágmarki undanfar- ið. Þar var sandrokið slíkt, að sögn Guðrúnar, að það fýllti vit manna, sem út úr bíl stigu. Hún sagði þær plöntur, sem notaðar eru til land- græðslu á Hólasandi vera það harðgerar, að þær ættu flestar að standa af sér veðrið án varanlegs skaða. Þessar plöntur eru lúpína og melgresi. Guðrún segir, að þrátt fyrir mik- inn árangur landgræðslustarfs lið- inna ára sýni sig í svona veðri, að enn er langt í land áður en tekst að ráða niðurlögum þess skað- valds, sem landfok er. Morgunblaðið/Sigurður Jönsson FARÞEGAR um borð í Fagranesinu létu fara vel um sig meðan þeir biðu þess að lægði. Fagranesið veðurteppt í Þorlákshöfn í 15 tíma Óðs manns æði að fara út í þetta veður Borgarbyggð Sjálfstæðis- og Fram- sóknar flokkur í viðræðum Borgarnesi. Morgunblaðið. VIÐRÆÐUR Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um myndun nýs bæjarstjórnarmeirihluta í Borgar- byggð hófust í gærkvöldi eftir að slitnaði upp úr viðræðum Fram- sóknarflokks og Alþýðuflokks um slíkt samstarf. Ekki hefur verið starfhæfur meirihluti í bænum síð- an fulltrúi Alþýðubandalags sleit samstarfi við framsóknarmenn. Sigrún Símonardóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn, sagði þessa þróun mála ekki koma henni á óvart, samstarf þessara tveggja flokka sé eini möguleikinn að hennar mati eftir seinasta bæjar- stjómarfund. Sigurður Már Einarsson, fulltrúi Alþýðuflokksins, sagði í samtali við Morgunblaðið að viðræðurnar hefðu strandað á hugmyndum um hag- ræðingu innan áhaidahúss bæjarins með uppsögnum starfsmanna og sölu tækja og launaspamað hjá leik- skólum með breyttu vinnufyrir- komulagi. Menn hafi verið sammála um margt, en það ekki nægt til. Aðrar aðferðir betri „Við alþýðuflokksmenn töldum það höfuðmál að fá þessu_ breytt og því strandaði á þessu. í sjálfu sér erum við ekki á móti því að hagræða í rekstri bæjarfélagsins, en erum á móti því að gera það með fyrirhuguðum hætti og teljum farsælla að ná samkomulagi við viðkomandi starfsmenn í stað vald- boðs,“ segir Sigurður. MILLI þrjátíu og fjörutíu manns voru strandaglópar í um 15 klukkustimdir um borð í Fagra- nesinu í Þorlákshöfn frá hádegi í gær en brottför til Vestmanna- eyja var ráðgerð um klukkan 3 í nótt. Að sögn Hjalta Hjaltason- ar skipstjóra var ekki talið ráð- Iegt að sigla í veðrinu eins og það var í gær þegar vindhraðinn stóð í tíu til tólf vindstigum. „Við erum með milli 30 og 40 farþega sem ætla að fara með okkur út klukkan þijú í nótt,“ sagði Hjalti. „Það leggst ekki illa í mannskapinn enda fer veðurhæðin ört minnkandi og þá er um leið sléttur sjór. Ég tel að það hefði verið óðs manns æði að fara út í þetta veður eins og það var í dag. Það hefði ekki haft neitt upp á sig. Jafnvel getað farið þannig að halda hefði þurft sjó og þá er eins gott að vera í höfninni." Fljótlcga Ijóst að ekkiyrði farið Hjalti sagði að fljótlega eftir að Fagranesið kom til Þorláks- hafnar í gærmorgun hefði orðið þost að ekki yrði snúið til baka á hádegi eins og ráðgert var. „Það er ekki þannig að ekki sé ferðafært," sagði hann. „Þetta er upp á að lenda ekki í vand- ræðum með bíla á dekkinu. Það er aðalatriði að skemma ekki farm og skip. Við erum með fullt skip af bílum og aftaní- vögnum. Það er aðalvandamálið að liemja þann farm. Allt er súrrað niður með keðjum enda erum við að sigla fyrir opnu hafi.“ Hjalti sagði að farþegar gætu lagt sig á bekkjum um borð í skipinu ef þess þyrfti með en auk þess væru nokkrir klefar sem farþegar hefðu aðgang að. „Það væsir ekki um fólkið," sagði hann. „Það horfir á sjón- varp og myndbönd og fær sér kaffi. Það er nóg til af öllu.“ BLAÐIÐ MEÐ blaðinu í dag fylgir fjögurra síðna auglýsingablað frá BYKO. Hvalfjarðargöng Samið við iðnaðarmenn VINNUVEITENDASAMBAND íslands, Rafiðnaðarsambandið og Samiðn hafa undirritað nýjan kjarasamning vegna vinnu við göng undir Hvalfjörð. Þar með hafa öll verkalýðsfélög, sem koma að vinnu við göngin, gengið frá samningum vegna félagsmanna sinna. Samningsaðilar vildu ekki tjá sig um hversu miklar kaup- hækkanir fælust í samningnum. Rafiðnaðarsambandið og Sam- iðn höfnuðu því að skrifa undir samninga um Hvalfjarðargöng í sumar þegar stéttarfélögin innan Verkamannasambandsins sömdu við VSÍ. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri VSÍ, sagði að samningurinn fæli í sér óverulegar breytingar frá þeim samningsdrög- um sem lágu fyrir sumar. Þá hefði legið fyrir góður samningur, ef horft væri á málið frá sjónarhóli iðnaðarmanna, og forystumenn iðn- aðarmannafélaganna hefðu sann- færst um það eftir að hafa skoðað málið í sumar. Guðmundur Gunnarsson, for- maður Rafiðnaðarsambandsins, sagði að með þessum samningi hefði tekist að fá VSÍ til að skrifa undir samning þar sem taxtar væru færðir að greiddu kaupi. Samningurinn fæli þar að auki í sér umtalsverða launahækkun fyr- ir iðnaðarmenn sem starfa við göngin. Þetta værj því mun betri samningur en VSÍ hefði boðið í sumar þegar upp úr slitnaði. Samningurinn gildir út verktím- ann og gildir frá 1. júní 1996. Ólympíuskákmótið Sigurí 2. umferð ÍSLENDINGAR unnu EI Salvador- búa í annarri umferð Ólympíuskák- mótsins í Jerevan í gær með 3'/2 vinningi gegn 'h. Jóhann Hjartarson, Hannes Hlíf- ar Stefánsson og Þröstur Þórhalls- son unnu sínar skákir en Margeir Pétursson gerði jafntefli. ■ Stórsigur/37 Eiríkur Ellertsson Ungur mað- ur lést í eldsvoða t KARLMAÐUR á fertugsaldri lést s í fyrrakvöld þegar eldur kom upp ( í íbúð hans í Keflavík. Hann hét Eiríkur Ellertsson, 35 ara að aldri, og var til heimilis að Ásabraut 16. Slökkviliðinu í Keflavík barst tilkynning um reyk frá íbúð í fjöl- býlishúsi við Ásabraut rétt fyrir hálftólf á mánudagskvöldið og reyndist maðurinn látinn þegar að var komið. Eldurinn er talinn hafa komið upp í sófa í íbúðinni en hafði ekki ) náð að breiðast verulega út þegar | slökkvilið var kallað út. Áð sögn slökkviliðs var íbúðin reykræst að slökkvistarfi loknu og hafði reyk- urinn ekki náð að berast í aðrar íbúðir hússins þegar á vettvang var komið. Ragnhildur Petra Helgadóttir Lést í bíl- slysi undir j Hafnarfjalli í KONAN, sem lést af slysförum undir Hafnarfjalli í fyrrakvöld, hét Ragnhildur Petra Helgadóttir. Hún var á tuttugasta og áttunda aldurs- ári. Sjö mánaða sonur hennar er talinn úr lífshættu eftir slysið. Ragnhildur Petra skilur eftir sig tvo syni, Bergþór Breiðfjörð Björns- . son, sjö ára, og Sigþór Mána Ragn- i’ hildarson, sjö mánaða. Sambýlis- ) maður hennar var Júlíus Kristins- | son.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.