Morgunblaðið - 18.09.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 9
FRÉTTIR
Þörf á meiri þjónustu í höfuðborginni fyrir
heilabilaða og aðstandendur þeirra
Fleiri rými á næsta ári
leysa brýnasta vandann
MEÐ fleiri rýmum á dvalar- og
hjúkrunarheimilum fyrir aldraða
verður brýnustu þörfinni fyrir vist-
un heilabilaðra, að sögn Þóris Har-
aldssonar, aðstoðarmanns heil-
brigðisráðherra, sæmilega svarað
í höfuðborginni á næsta ári. Össur
Skarphéðinsson, formaður heil-
brigðisnefndar Alþingis, segir
nauðsynlegt að veita fé til að koma
upp aðstöðu sem mæti þörfum
hinna sjúku og aðstandenda þeirra.
í grein undir yfirskriftinni „Far-
aldur næstu aldar“ í Morgunblað-
inu á sunnudag kemur fram að
brýn þörf sé fyrir aukna þjónustu
fyrir heilabilaða og aðstandendur
þeirra.
Þórir sagði að víða væri sæmi-
lega búið að heilabiluðum hér á
landi. Hins vegar væri því ekki að
neita að ástandið hefði ekki verið
gott í höfuðborginni. Reykjavíkur-
borg hefði t.a.m. þurft að senda
fólk austur fyrir fjall í stofnana-
vist. Með fjölgun rýma á dvalar-
og hjúkrunarheimilum fyrir aldr-
aðra væri vonast til að brýnustu
þörfinni fyrir vistun heilabilaðra í
höfuðborginni yrði sæmilega svar-
að á næsta ári.
Hann nefndi í því sambandi að
20 rými yrðu tekin í notkun á dval-
ar- og hjúkrunarheimili fyrir aldr-
aða í Víðinesi um áramót. Fyrstu
rýmin á nýju hjúkrunarheimili fyr-
ir aldraða í Skógarhlíð yrðu tekin
í notkun 1. apríl á næsta ári og
allt næsta ár yrðu 75 rými tekin í
notkun á sama heimili. Sex rými
bættust við á hjúkrunarheimilinu
Skjóli á næsta ári.
Þórir tók fram að mörg smærri
sveitarfélögin ættu í erfiðleikum
með úrræði fyrir heilabilaða enda
væri dýrt að halda uppi þjónustu
fyrir fáa einstaklinga. Auðvitað
væri neyðarúrræði að leita eftir
vistun utan heimabyggðar. Á hinn
bóginn hefði aukið framboð í borg-
inni áhrif á ástandið á öllu land-
inu. Eins mætti gera ráð fyrir að
með fjölgun rýma á dvalar- og
hjúkrunarheimilum í borginni
minnkaði þörfin fyrir hvíldarinn-
lagnir.
Ríkisstjórnin móti stefnu
Össur sagði nauðsynlegt að veita
fjármagn til að koma upp aðstöðu
sem mætti þörfum hinna sjúku og
aðstandenda þeirra. „Ég tel að ríkis-
stjómin og fyrst og fremst heilbrigð-
isráðherra eigi að hafa frumkvæðið
að því að móta stefnuna í þessum
málum og hef enga ástæðu til að
ætla á þessu stigi að ekki verði úr
því. Ef hins vegar heilbrigðisnefnd
þingsins þykir ekki nægilega vel að
verki staðið af hálfu stjórnvalda
hygg ég að nefndin og einstakir
nefndarmenn láti málið til sín taka.
En ég held að það sé langt frá því
komið á það stig,“ sagði hann.
Hann sagðist telja nauðsynlegt
að undirstrika að vitund manna um
vandann hefði verið að aukast hratt
á síðustu árum. „Og staðreyndin er
því miður sú, hver sem er í ríkis-
stjórn, að stjómvöld eru alltaf svolít-
ið á eftir. Eigi að síður held ég að
menn hafi í vaxandi mæli reynt að
grípa til einhverra ráða. Við skulum
sjá hvað setur.“
Forsetahjónin heim-
sækja Patreksfjörð
ísafjörður
Ráðist á
starfsmann
skemmti-
staðar
ísafirði. Morgunblaðið.
RÁÐIST var á einn af starfsmönnum
skemmtistaðarins Sjallans á ísafirði
er hann var á heimleið að lokinni
vinnu aðfaranótt síðastliðins sunnu-
dags.
Sá sem réðst á manninn mun hafa
verið einn af gestum staðarins um-
rætt kvöld. Að sögn lögreglunnvar
árásin algjörlega að tilefnislausu. í
fyrstu var talið að sá sem fyrir árás-
inni varð hefði slasast mikið en við
nánari rannsókn kom í ljós að brotn-
aði hafði úr tveimur tönnum auk þess
sem hann er mikið bólginn í andliti.
Maðurinn sem árásinni olli var
handtekinn sömu nótt og fékk að
gista fangageymslur lögreglunnar
um nóttina.
FORSETI íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, og frú Guðrún
Katrín Þorbergsdóttir munu verða í
opinberri heimsókn í Barðastranda-
sýslu 20.-22. september næstkom-
andi. Gestgjafar forsetahjónanna
eru sveitarfélög í sýslunni, það er
Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur
og Reykhólahreppur.
Forsetahjónin munu fýrsta daginn
skoða Þörungaverksmiðjuna í Karls-
ey, hjúkrunar- og dvalarheimilið
Barmahlíð, framkvæmdir við Gils-
fjarðarbrú og minnisvarða um Matt-
hías Jochumsson á fæðingarstað
hans að Skógum í Þorskafirði. Um
kvöldið verður boðið upp á veitingar
í Hótel Bjarkalundi og þá verður
snæddur kvöldverður í Flókalundi í
Vatnsfirði.
Á laugardag heíja forsetinn og
kona hans för til Bíldudals og
þvínæst verður boðið upp á hádegis-
verð á Tálknafirði. Að því búnu verð-
ur haldið að Hnjóti i Örlygshöfn þar
sem byggða- og flugminjasafnið
verður skoðað.
Á laugardagskvöld bjóða bæjar-
stjórn Vesturbyggðar og hrepps-
nefnd Tálknafjarðar til kvöldverðar
í félagsheimili Patreksfjarðar en að
honum loknum verður samkoma
fyrir íbúana með skemmtidagskrá
heimamanna. Að morgni sunnudags
verður sjúkrahúsið á Patreksfírði
heimsótt og Vatneyrarbúð skoðuð
undir leiðsögn bæjarstjóra. Síðan
leggur forseti blómsveig að minnis-
varðanum um þá sem fórust í snjó-
flóðinu á Patreksfirði árið 1983.
Heimsókn forseta lýkur síðan á Pat-
reksijarðarflugvelli að kvöldi sunnu-
dags.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
bendir þeim, sem áhuga hafa á að
fylgjast með heimsókninni, að vera
á vel búnum bílum, vegna ástands
vega í sýslunni.
Nýkomið
Ullarjakkar, kápur, dragtir
Tískuskemman
Bankastræti 14-, sími 561 4118.
Ný sending frá Frakklandi.
Stakir jakkar og buxur.
TKSS
v neð
neðst við
Dunhaga,
sími 562 2230
Opið virka daga
kl.9-18,
laugardaga
kl. 10—14.
Gallastretchbuxurnar
vinsælu komnar aftur
í stærðum 27-60
Verð kr. 4.500
Eddufelli 2,
sími 557 1730.
of nyjum rúmun
BRIO
barnarúmin
komin aítur
jkum, stuðköntum, himnasængum og sængurverasettum.
Harðviðarrúm, staerð 120x60 sm
Fáanleg í hvítlökkuðu, viðarlituðu og
antikbæsuðu.
Stillanlegur botn.
Frábært verð kr. 10.990
St.gr. kr. 10.440
Dýnur fáanlegar í mörgum gerðum.
...blabib
-kjarnimálsins!
• •
Orugg ávöxtun sparifjár
Spariskírteini ríkissjóðs með mismunandi gjalddaga
• Við bjóðum eldri flokka spariskírteina ríkissjóðs með gjalddaga
eftir 'h ár, Vh ár, 2'h ár, 3'h ár og 4'h ár.
• Þú getur raðað saman mismunandi flokkum spariskírteina þannig að
þú sért alltaf með laust fé þegar þú þarft á því að halda.
• Spariskírteini eru tæki til að skapa þann hreyfanleika sem þú þarfnast.
Helstu flokkar
spariskírteina:
Hafðu samband við ráðgjafa
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa
og fáðu nánari upplýsingar.
Sími 562 6040.
1992 1D5 Gjalddagi 1/2 1997
1993 1D5 Gjalddagi 10/4 1998
1994 1D5 Gjalddagi 10/2 1999
1995 1D5 Gjalddagi 1/2 2000
1990 2D10 Gjalddagi 1/2 2001
Fjölmargir aðrir flokkar spariskírteina eru einnig til sölu. Hafa skal í huga að spariskírteini ríkissjóðs eru markaðsverðbréf sem eru skráð á Veröbréfaþingi Islands,
og eru því auðseljanleg á lánstímanum. Kynntu þér möguleika spariskírteina ríkissjóðs.
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfísgötu 6,2. hæö (neðsta húsið við Hverfisgötu)
sími 562 6040, fax 562 6068.
Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum