Morgunblaðið - 18.09.1996, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Óskar Gíslason
AFTAKAVEÐUR var þegar Sargon strandaði undir Hafnarmúla að kvöldi 1. desember. Einn skipbrotsmanna dreginn að landi.
Félagar hans bíða frammá meðan sjórinn gengur yfir skipið.
Skipbrotsmaður í heimsókn tæplega hálfri öld eftir strand hér við land
ÁTJÁN ára piltur, Fred Collins,
var einn sex skipverja sem björg-
uðust þegar togarinn Sargon frá
Grimsby strandaði undir Hafnar-
múla við Patreksfjörð 1. desember
1948. Ellefu menn fórust með skip-
inu. Fred er nú kominn á sjötugs-
aldur og hættur sjómennsku. Hann
er sá eini sem eftir lifir af þeim
sem var bjargað. Hingað til lands
kom hann síðastliðinn föstudag og
fór á strandstað tæpum fjörutíu
og átta árum eftir atburðinn.
Það er ekki langt síðan hann
sá kvikmyndina „Björgunarafrek-
ið við Látrabjarg", sem Oskar
Gíslason ljósmyndari gerði um
björgun tólf manna úr áhöfn ann-
ars bresks togara, Doohn, sem
strandaði undir Látrabjargi í des-
ember árið áður. Þá fórust þrír
menn.
Eitt atriði kvikmyndarinnar
var ekki leikið, heldur þvert á
móti blákaldur raunveruleiki. Það
var sjálf björgunin. Reyndar var
ekki verið að bjarga mönnunum
af Doohn heldur skipverjunum af
Sargon, þar á meðal Fred Collins.
Þannig vildi til að Óskar Gíslason
og menn úr slysavarnadeildinni
Bræðrabandinu í Rauðasands-
hreppi voru að vinna að gerð
kvikmyndarinnar í Kollsvík þegar
Sargon strandaði undir Hafnar-
múla. Þeir voru kallaðir á vett-
vang og Óskar myndaði björgun-
ina. Myndin var síðar sýnd í kvik-
myndahúsum og sjónvarpi víða
um heim.
I för með Fred Collins hér á
landi voru þeir Malcolm Doab,
systursonur hans, og Ken Stand-
ing, fyrrum sjómaður, sem nú er
kominn á eftirlaun. Hann hefur
um árabil rannsakað sögu fiski-
manna í Grimsby og Hull. Eftir
að hafa séð kvikmyndina reyndi
hann að komast að því hvort ein-
liver væri eftirlifandi frá strandi
Sargon. Eftir langa leit komst
hann loks í samband við Fred
Collins og sýndi honum myndina,
en hann hafði ekki hugmynd um
að hún hefði verið tekin.
Einn af björgunarmönnunum
við Hafnarmúla forðum er Egill
Ólafsson á Hnjóti í Örlygshöfn.
Hann og sonur hans, Kristinn Þór
Grimsby, í samband við þá Fred
Collins og Ken Standing og var
ferðin hingað þá skipulögð.
Einar Guðbjartsson, kaupfé-
lagssljóri á Gjögrum, varð fyrstur
manna var við strandið. Hann fór
með ljósker niður í fjöru og seg-
ist Fred muna vel eftir því að
hafa séð Ijósið. Hann segir að
menn hafi að vonum orðið því
fegnir. „Við sáum sandfjöruna og
héldum að við myndum lenda
uppi í henni. En þá tók togarann
niðri, vélarrúmið fylltist af sjó og
rafmagnið fór af,“ segir Fred.
Kristinn segir að menn hafi
undrast að skipið skyldi ekki
beygja frá landi fyrst skipverjar
sáu til lands en nú sé ljóst að það
hafi rekið stjórnlaust undir Hafn-
armúla og þeir hafi engu fengið
ráðið.
Meðal þeirra sem Fred og fé-
lagar hans heimsóttu fyrir vestan
var Emma Kristjánsdóttir, hús-
freyja í Efri-Tungu. Urðu þar
miklir fagnaðarfundir. Þar var
forðum hlúð að Fred og tveimur
öðrum skipbrotsmönnum en hinir
þrír voru fluttir að Gjögrum til
Einars Guðbjartssonar. Emma
var þá tólf ára að aldri og aðstoð-
aði Dagbjörtu móður sína við að
hjúkra mönnunum. Þar voru þeir
í sex daga áður en þeir voru flutt-
ir til Reykjavíkur.
Fred segir margt hafa rifjast
upp fyrir sér þegar hann kom
aftur að Efri-Tungu, til dæmis
hvar hann hafi sofið. Eins rifjuðu
þau Emma upp þegar þeir félagar
hjálpuðu henni við uppþvottinn
eftir að þeir voru farnir að hress-
ast. Auðsjáanlegt er að Fred er
snortinn. „Hlýjan og gestrisnin
er hreint. ógleymanleg," segir
hann og undir það taka þeir Malc-
olm Doab og Ken Standing, sem
segjast mjög þakklátir fyrir mót-
tökurnar á Patreksfirði.
Til stendur að reisa minnis-
varða um hina látnu við minja-
safnið að Hnjóti 1998 til að minn-
ast þess þegar fimmtíu ár verða
liðin frá strandinu. Hugmynd
þeirra feðga er, að sögn Kristins,
sú að í minnisvarðanum verði ell-
efu ^jós eða jafnmörg og mennirn-
ir sem fórust.
Bjargaðist úr breska
togaranum Sargon
undir Hafnarmúla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SKIPBROTSMAÐURINN Fred Collins, systursonur hans Malc-
olm Doab og grúskarinn Ken Standing glugga í Morgunblaðið
frá því í desember 1948, en þar birtist frásögn og mynd af
skipbrotsmönnunum af Sargon.
Egilsson, hafa um nokkurt skeið fórust með Sargon. Nýlega kom-
gengið með þá hugmynd að minn- ust þeir svo fyrir milligöngu Jóns
ast á einhvern hátt þeirra sem Olgeirssonar, ræðismanns í
Stúdentaráð
vill ekki að
ráðherra
skipi há-
skólarektor
STÚDENTARÁÐ Háskóla ís-
lands hefur sent frá sér ályktun
þar sem það mótmælir harðlega
öllum hugmyndum um að
menntamálaráðherra skipi
rektor HÍ og fulltrúa í háskóla-
og deildarráð. Yrðu slíkar hug-
myndir að veruleika telur ráðið
að HÍ væri gerður að pólitískri
stofnun sem væri háð duttlung-
um stjórnmálamanna.
í samþykkt ráðsins er greint
frá því að á heimasíðu Björns
Bjarnasonar menntamálaráð-
herra á alnetinu hafi nýlega
birst grein undir yfirskriftinni
Stjórnsýsla innan Háskólans.
Sjálfstæði háskóla
mikilvægt
Þar „orðar ráðherrann þá
hugsun að það komi til álita
að ráðherra menntamála skipi
rektor Háskóla Islands. I sömu
grein kemur fram að mennta-
málaráðherra telur að ráðherra
menntamála eigi að skipa full-
trúa sína í háskóla- og deildar-
ráð,“ segir í upplýsingum frá
ráðinu. Af þeim sökum hafi
umrædd ályktun verið sam-
þykkt.
Stúdentaráð minnir á að
hvarvetna á Norðurlöndum og
annars staðar í Evrópu hafi
verið talið mikilvægt að háskól-
ar séu sjálfstæðir. „Háskóli ís-
lands hefur núna í nokkur ár
ekki fengið að þróast eins og
stjórnendur hans hefðu talið
æskilegast sökum þess hve
fjárveitingavaldið hefur sniðið
honum þröngan stakk.
Nú hefur það gerst að
menntamálaráðherra hefur orð-
að þá hugsun að bijóta Háskóla
íslands undir sína stjóm með
því að ráðherra menntamála
skipi háskólarektor og ákveðinn
flölda fulltrúa í háskóla- og
deildarráð. Stúdentaráð Há-
skóla íslands hafnar algjörlega
hugmyndum menntamálaráð-
herra, en með því væri Háskóli
íslands gerður að pólitískri
stofnun sem væri háð duttlung-
um stjórnmálamanna," segir að
lokum í ályktun ráðsins.
Skoðanakönnun
Gallups
86% telja að
forsetinn
standi sig vel
SAMKVÆMT skoðanakönnun
Gallups telja tæplega 86% þjóð-
arinnar að forseti Islands, Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, muni
standa sig vel í embætti en 8%
telja að hann muni standa sig
illa.
Mun fleiri í eldri aldurshóp-
um þjóðfélagsins en þeim yngri
hafa trú á Ölafur Ragnari eða
93% þeirra sem eru 55 ára eða
eldri en 76% þeirra sem eru
25 ára eða yngri.
Fjölskyldur með lágar tekjur
telja fremur en þær sem efn-
aðri eru að forsetinn muni sýna
góða frammistöðu.
Um 77% kjósenda Sjálfstæð-
isflokksins telja Ólaf Ragnar
muni standa sig vel en á bilinu
90-98% kjósenda Alþýðuflokks,
Framsóknarfloks og Alþýðu-
bandalagsins.
Ekki er marktækur munur á
skoðunum kvenna og karla tii
væntanlegrar frammistöðu Ól-
afs Ragnars, né munur á af-
stöðu höfuðborgarbúa og
landsbyggðarfólks.