Morgunblaðið - 18.09.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 13
KA um byggingu
knattspyrnuhúss á svæði Þórs
Ottast ójafnræði
við úthlutun tíma
FULLTRÚAR íþrótta- og tóm-
stundaráðs Akureyrar áttu á dög-
unum fund með aðalstjórn Knatt-
spyrnufélags Akureyrar þar sem
rætt var um bókun ráðsins frá því
í ágúst síðastliðnum varðandi bygg-
ingu knattspyrnuhúss á svæði
íþróttafélagsins Þórs.
Ráðið mælti með þvl á fundinum
í síðasta mánuði að gerður yrði samn-
ingur við íþróttafélagið Þór um bygg-
ingu og rekstur knattspyrnuhúss.
Lýstu forsvarsmenn KA yfir
áhyggjum sínum varðandi hugsan-
legt ójafnræði við úthlutun tíma í
viðkomandi húsi. Til að forðast að
svo yrði, lögðu þeir á það áherslu að
Akureyrarbær byggði og ræki húsið,
en staðsetning hússins er ekki ágrein-
ingsefni.
Nefndarmenn í íþrótta- og tóm-
stundaráði fullvissuðu KA-menn um
að þeir myndu að sjálfsögðu beita
sér fyrir því að fyllsta jafnræðis verði
gætt við úthlutun á tímum í knatt-
spymuhúsinu.
Morgunblaðið/Hólmfríður
Kúrekar norðursins
Grímsey. Morgunblaðið.
LAGFÆRINGAR standa yfir á
leikvellinum í Grímsey. Um
verkið sáu þrenn ung hjón í
eyjunni en Kvenfélagið Baugur
og Kiwanisklúbburinn Grímur
hafa styrkt verkið með fjár-
framlögum og einn útgerðar-
maður í eynni, sem úrelti trillu
sína, fékk undanþágu frá því að
eyðileggja hana en gaf bátinn
þess í stað á leikvöllinn. Eins
og gefur að skilja bíður unga
kynslóðin spennt eftir að verk-
inu \júki og voru litlir „kúrekar
norðursins" að líta á aðstöðuna
þegar fréttaritara bar að.
Félagsmálaráð um Halló Akureyri
Utihátíð í þéttbýli
óviðunandi án leyfis
FÉLAGSMÁLARÁÐ ræddi á dög-
unum greinargerð félagsmálastjóra
vegna hátíðarinnar Halló Akureyri.
Fram kom að ráðið telur óviðun-
andi að hægt sé að halda útihátíð
inni í þéttbýli án leyfis og skilyrða
bæjaryfirvalda.
Leggur félagsmálaráð áherslu á
að á Akureyri verði ekki aftur hald-
in samkoma með því sniði sem var
um síðustu verslunarmannahelgi og
að bæjaryfirvöld veiti einungis leyfi
fyrir vel undirbúinni fjölskylduhátíð
sem standi undir nafni. Meðal skil-
yrða verði að hagsmunir barna og
ungmenna verði hafðir að leiðarljósi
og að unnið verði eftir þeim sjónar-
miðum sem ráða ferðinni í barna-
verndar- og æskulýðsstarfi bæjar-
félagsins.
■H'".... ...».....
Herþotur
tíðir gestir
AKUREYRARFLUGVÖLLUR hef-
ur verið eins konar herflugvöllur
síðustu daga en vegna erfíðra flug-
skilyrða í Keflavík hafa nokkrar
herþotur, svo og fjölmargar aðrar
vélar, þurft að lenda á Akureyri. Á
miðvikudag lentu tvær þýskar her-
þotur á Akureyri og á föstudag
lentu þar þrjár herþotur frá
Kanada.
Tvær vélanna eru komnar til ára
sinna en þær eru af gerðinni T-33
og voru smíðaðar árið 1954. Reynd-
ar voru þessar vélar hannaðar árið
1944 en þær hafa tekið nokkrum
breytingum í tímans rás. Vélarnar
eru ekki lengur notaðar í bardaga,
heldur eingöngu við þjálfun flug-
manna. Þriðja vélin er mun stærri
og öflugri en er af Challenger-gerð.
Herþoturnar komu frá Skotlandi og
eru á leið heim til Kanada. Á stærri
myndinni sést önnur T-33 vélanna
og á minni myndinni er flugmaður
vélarinnar að ljúka pappírsvinnu
uppi á vængnum.
Morgunblaðið/Kristján
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Gilfélagsins verður haldinn
í Deiglunni laugardaginn 28. september
1996 kl. 15.00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf
og önnur mál.
Stjórnin.
Yale Jk Kentruck fe*r?. •• ^f^TDCKA
LYFTARASÝNING
~<
í
z
-I
•o
í tiíefni Sjávarútvegssýningarinnar efnir ÁRVÍK til sýningar á Yale og
Halla lyfturum í húsakynnum sínum að Ármúla 1 í Reykjavík dagana
18. til 21. september 1996. Sýningin stendurfrá kl. 9:30 til kl. 18:00
frá miðvikudegi til laugardags. Einnig sýnum við margar gerðir af
stöflurum, handvögnum og trillum frá Kentruck, Stocka og Fetra.
Öll lyftitæki á sýningunni eru boðin með sérstökum
afslætti á meðan sýningin stendur.
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1* SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
BÍLATORG FUNAHÖFDA 1 S: 587-7777
Ragnar Lövdal,
lögg. bifrei&asali
Opel Astra SXW
árg. 1995, hvítur, álfelgur, ek.
37.000 km.
Verð kr. kr. 1.250.000.
Mercury Sable
árg. 1995, grænsans, einn með
öifu, *' ----
, ek. 35.000 km.
Verð kr. 2.100.000.
VW Vento GL,
árg. 1994, vínrauður, ek. 30.000
km., einn með öllu, álfelgur,
húddhlíf, spoiler, 5 gíra.
Verð kr. 1.3 30.000. Sldpti.
Toyota Corolla GL Sedan,
árg. 1991, special series, rafm. í
rúðum, samlæsingar, ný spraut-
aður, smurbók íylgir, eíc. 127þ
km. Verð kr. kr. 780.000. Skipti.
MMC Galant 2000 GLSI,
arg. 1992, grásans, sjálfsk., ek.
108 þús. km.
Verð kr. 1.100 þús.
Nissan Patrol,
árg. 1995, hvítur, upphækkaður,
32“ álfelgur, ek. 25.000 km.
Verð kr. 3.450.000. Skipti.
Subaru Legacy 1800 GL
STW,
árg. 1990, álfelgur, sjálfsk., ek.
95.000 km. Verð kr. 1.070.000.
Skipti.
Daihatsu Roclcy EL,
árg. 1991, grár, 31“ dekk, ek.
86.000 km. Verð kr. 1.290.000.
Nissan Double Cab,
árg. 1995, diesel, turbo,
Inercooler, 33“ dekk, ek. 51.000
kin. Verð kr. 2.250.000.
MMC Colt 1300 GL,
árg. 1991, hvítur, ek. 53.000 km.
Verð kr. 620.000.
Toyota Hi Ace 4wd,
árg. 1993, hvítur, innréttaður
sem húsbíll. Verð kr. 1.900.000.
Toyota Hi Lux Double Cab,
árg. 1988, vínrauður, diesel,
turbo, Intercooler, mikið
breyttur, ek. 9.000 km. á vél.
Verð kr. 1.250.000.
Skipti á dýrari bíl.
Arnþór Grétarsson,
söluma&ur
ÚTVEGUM BÍLALÁN - VANTAR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ
HloÍP