Morgunblaðið - 18.09.1996, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Kaþólska kirkjan á Bretlandi
Ihuga að slaka
á skírlífiskröfu
London. Reuter.
BASIL Hume kardináli, leiðtogi ka-
þólsku kirkjunnar í Bretlandi, kvart-
aði yfir því í gær að breska samfé-
lagið væri orðið „mjög gagntekið af
kynlífi" og sagði að kirkjan kynni
að slaka á aldagamalli kröfu sinni
um skírlífi presta.
Hume sagði þetta í tilefni af um-
ræðu um afsögn biskupsins af Ar-
gyll, Rodericks Wrights, sem hvarf
fyrir viku ásamt fráskildri þriggja
barna móður. Talið er að þau hafi
tekið saman.
Hume sagði að mörg efnileg
prestefni hefðu gengið í aðrar kirkj-
ur vegna kröfunnar um skírlífi ka-
þólskra presta. „Þetta eru ekki guð-
leg lög,“ sagði hann. „Þetta eru
kirkjulög, þannig að páfi eða æðstu
menn kirkjunnar gætu breytt þeim.“
Jóhannes Páll páfi er andvígur
breytingum á kirkjulögunum og af-
staða Páfagarðs er að prestar og
nunnur verði að vera skírlíf til að
geta helgað sig algjörlega guði og
störfum sínilm.
Ummæli Humes eru í andstöðu
við ósveigjanlega afstöðu erkibisk-
upsins af Glasgow, Thomasar Winn-
ings kardinála, sem sakaði Wright
um alvarlega hrösun. „Ef við settum
okkur ekki háleit markmið og kröfur
væri þetta ekki mikil kirkja."
Michael Winter, sem sagði af sér
sem prestur í kaþólsku kirkjunni og
kvæntist, sagði kröfuna um skírlífi
óeðlilega. „Hún leiðir til hræðilegra
þjáninga vegna þess að ýmsir, sem
vilja verða prestar, eru ekki skapað-
ir til skírlífis en reyna að sætta sig
við það og oft brotna þeir gjörsam-
lega niður eftir margra ára baráttu
við að bæla tilfinningarnar niður.
Þetta getur verið mjög átakanlegt.“
Hyggjast rann-
saka mál Bossis
Mantua. Reuter.
UMBERTO Bossi, leiðtogi Norður-
sambandsins á Ítalíu, sem lýsti yfir
stofnun sjáfstæðs ríks í norðurhluta
landsins um síðustu helgi, er kom-
inn á lista yfir þá, sem eru til rann-
sóknar hjá ítölskum dómsmálayfir-
völdum.
Var þetta haft eftir Mario Lup-
erto, saksóknara í borginni Mantua,
en hann nefndi ekki hvaða sakir
Bossi væru gefnar. Eftir öðrum
heimildum er haft, að þær geti ver-
ið að ráðast gegn einingu ríkisins,
bijóta bann við stofnun hópa með
herflokka að fyrirmynd og hvetja
til mismununar milli fólks eftir upp-
runa.
Samkvæmt ítölsku stjórnar-
skránni er það glæpsamlegt að ógna
einingu ríkisins eða sjálfstæði og
Ettore Gallo, fyrrverandi forseti
stjórnarskrárdómstólsins, hefur
hvatt til, að Bossi verði handtekinn.
Bossi svarar því hins vegar til, að
verði hann handtekinn, muni hann
strax lýsa yfir, að hann sé stríðs-
fangi.
Grænstakkar
Margir stuðningsmanna Bossis
klæðast grænum skyrtum og hefur
það minnt ítala á tímana fyrir stríð
og svörtu skyrtumar, sem fasistar
Mussolinis báru jafnan. Bossi sagði
um helgina, að hann ætlaði að
stofna þjóðvarðlið til varnar nýja
ríkinu, Padaníu, og sumir „foringja"
hans í göngunni um helgina voru
með áletranir þess efnis á skyrt-
unni.
Bossi talar jafnan í niðrandi tón
um þá, sem búa á Suður-ítaliu, og
segir, að Norður-ítalir eigi sér ann-
an uppruna, þeir séu komnir af
Keltum og Feneyingum. Sem dæmi
um hve þetta fólk sé ólíkt nefnir
hann, að sé skellinöðrunni stolið frá
Norður-ítala, þá fari hann til lög-
reglunnar en sé henni stolið frá
Suður-ítala, þá leiti hann á náðir
mafíunnar.
Reuter
NEFND á vegum stríðsglæpadómstólsins í Haag hefur fundið
tugi líka múslima sem voru myrtir eftir að hafa flúið Sre-
brenica. Einn nefndarmanna skoðar hér eitt Hkanna.
Brást
NATO?
London, Haag. Reuter.
RICHARD Goldstone, aðalsaksókn-
ari stríðsglæpadómstóls Sameinuðu
þjóðanna í Haag, gagnrýnir Atlants-
hafsbandalagið (NATO) fyrir að láta
hjá líða að handtaka Radovan
Karadzic og Ratko Mladic, fyrrver-
andi leiðtoga Bosníu-Serba, í viðtali
við breska dagblaðið The Independ-
ent í gær.
Goldstone sakar ráðamenn í aðild-
arríkjum NATO um að hafa brugð-
ist dómstólnum með „óheppilegri og
kjarklausri stefnu hvað handtökur
varðar". „Frá sjónarhóli fórnarlamb-
anna tel ég að þau hafí orðið fyrir
miklu óréttlæti," bætir hann við.
Goldstone segir að tregða NATO
til að handtaka mennina tvo geti
„reynst banahögg dómstólsins“.
Friðargæsluliðar á vegum NATO í
Bosníu hafi sagt saksóknurum dóm-
stólsins að þeir hafí orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum með að þeim skuli
ekki gert kleift að handtaka menn-
ina.
Beiðni Tadic hafnað
Dómstóllinn hafnaði í gær beiðni
Bosníu-Serbans Dusans Tadic um
að fallið yrði frá flestum ákærunum
á hendur honum. Tadic er fertugur,
fyrrverandi lögreglumaður, og sak-
aður um morð, nauðganir og pynt-
ingar á múslimum í fangabúðum í
norðvesturhluta Bosníu árið 1992.
Bosníu-Serbar sagðir
sáttir við óskipta Bosníu
Baiya Luka. Reuter.
VESTRÆNIR stjórnarerindrekar í
Bosníu sögðu i gær að serbneskir
harðlínumenn myndu sætta sig við
samstarf við múslima og Króata eft-
ir kosningamar um helgina þótt þeir'
hefðu lagt áherslu á aðskilnað í kosn-
ingabaráttunni.
Stjórnarerindrekarnir sögðu að
þótt Momcilo Krajisnik, forsetaefni
Serbneska lýðræðisflokksins, hefði
verið herskár í kosningabaráttunni
gerði hann sér ljóst að Bosníu-Serbar
yrðu að starfa með múslimum og
Króötum. Hann væri atkvæðamesti
stjórnmálamaður serbneska lýðveld-
isins og sú ákvörðun að tilnefna hann
sem forsetaefni sýndi að Bosníu-Ser-
bar tækju forsætisráðið alvarlega.
Stjórnarerindrekarnir sögðu að
þar sem Slobodan Milosevic, forseti
Serbíu, héldi að sér höndum þyrftu
Bosníu-Serbar að leita eftir efna-
hagsaðstoð annarra ríkja til að geta
byggt upp iðnfyrirtæki sín, sem eru
háð orku og hráefnum frá öðrum
svæðum í Bosníu. „Ef Serbneski lýð-
ræðisflokkurinn bætir ekki lífskjör
kjósendanna sem fyrst... stendur
hann frammi fyrir pólitískri tor-
tímingu í næstu kosningum," sagði
einn stjómarerindrekanna.
Serbneskir heimildarmenn viður-
kenndu að Bosníu-Serbar ættu ekki
annars úrkosti en að sætta sig við
einingu Bosníu.
Reynt að sætta fylkingarnar
Kosið var um helgina til þriggja
manna forsætisráðs, sem á að móta
utanríkisstefnu Bosníu. Ráðið verður
skipað fulltrúum múslima, Serba og
Króata og sá frambjóðandi sem fær
flest atkvæði verður forseti eða for-
maður forsætisráðsins.
Fyrsta kjörtímabil ráðsins er tvö
ár en eftir kosningar árið 1998 verð-
ur kjörtímabilið fjögur ár.
Samkvæmt stjórnarskrá verða all-
ir fulltrúarnir þrír að samþykkja
ákvarðanir forsætisráðsins. Svipað
fyrirkomulag gafst ekki vel í gömlu
Júgóslavíu en stjórnarerindrekar
segja þetta einu leiðina til sátta.
Sé ósamkomulag í ráðinu geta
tveir fulltrúanna tekið ákvörðun. Sá
þriðji getur þá vísað málinu til þinga
serbneska lýðveldisins og sambands-
ríkis múslima og Króata. Ákvörðun
telst ógild samþykki tveir þriðju full-
trúa annars þinganna mótmælin.
Rengja tölur um ávinning af ESB aðild
Finnar borga meira til
ESB en þeir fá á móti
FINNSKIR sérfræðingar rengja
tölur ríkisstjórnarinnar um ávinning
finnska ríkissjóðsins af aðild Finn-
lands að Evrópusambandinu á síð-
asta ári. Stjórnvöld höfðu haldið því
fram að Finnland væri eina nýja
aðildarríkið, sem fengi meira fé frá
ESB en það léti af hendi. Sam-
kvæmt nýjum útreikningi eru
Finnar hins vegar nettógreiðendur
í sjóði ESB, líkt og Svíar og Austur-
ríkismenn.
Samkvæmt tölum fínnsku stjórn-
arinnar fékk Finnland á síðasta ári
683 milljónir finnskra marka, eða
um 10 milljarða íslenzkra króna,
úr sjóðum ESB umfram það, sem
greitt var í þá. Samkvæmt opinber-
um tölum nam greiðsla Svíþjóðar í
sjóði ESB, umfram það sem fékkst
á móti í styrki og framlög, um 100
milljörðum króna. Austurríki lét af
hendi um 85 milljörðum króna
meira en það fékk í sinn hlut.
Ekki tekið tillit til tolltekna
Blaðið Helsingin Sanomat, sem
fékk til liðs við sig sérfræðinga frá
fínnsku hagstofunni og hagrann-
sóknastofnuninni, segir að tölurnar
séu ekki sambærilegar. Finnska
stjórnin hafí ekki tekið með í dæm-
ið tolltekjur, sem hefðu komið í hlut
Finnlands hefði það verið utan
ESB, en renni nú beint í sjóði sam-
bandsins. Sérfræðingarnir telja
þessa upphæð nema tæplega 13
milljörðum íslenzkra króna. Þá
segja þeir að styrkir til finnsks land-
búnaðar, að upphæð tæplega 15
milljarðar króna, hafí verið bók-
færðir á árinu 1995, þótt þeir hafi
ekki verið greiddir fyrr en í byijun
þessa árs. Finnska ríkisstjórnin seg-
ir að þessi háttur hafí verið hafður
á, þar sem ákvörðun um styrkina
var tekin í fyrra.
Sambærilegar, opinberar tölur
um greiðslur nýju aðildarríkjanna
til ESB og styrkina, sem þau fengu
á móti, munu liggja fyrir í nóvem-
ber, er endurskoðendur ESB hafa
lokið uppgjöri síðasta árs.
Reutcr
Niðurskurðarfj árlög
í Frakklandi
FRANSKA stjórnin opinberar
fjárlagafrumvarpið fyrir næsta
ár í dag og mun þar kveðið á
um mikinn niðurskurð í útgjöld-
um ríkisins. Talið er, að ráðgerð-
ur fjárlagahalli verði innan við
3% en það er skilyrði fyrir þátt-
töku i Evrópska myntbandalag-
inu 1999. Til að ná þessu marki
þarf mikinn niðurskurð og marg-
ir hagfræðingar eru vantrúaðir.
Segja þeir best að bíða og sjá
hvort um verði að ræða raun-
verulegan niðurskurð eða bók-
haldsleikfimi. Hollenska ríkis-
stjórnin lagði fram sín fjárlög í
gær og þar er gert ráð fyrir
hallinn verði 2,2% af þjóðarfram-
leiðslu í stað 2,6% halla á þessu
ári. Hér eru Jean Arthuis, fjár-
málaráðherra Frakklands, og
Theo Waigel, fjármálaráðherra
Þýskalands, á fundi i borginni
Kempten í Þýskalandi í gær.