Morgunblaðið - 18.09.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 19
ERLENT
Stjórn Sviss ákveður að láta kanna hvað varð af illa fengnu gulli nasista
Nefnd leitar inneigna gyðinga
Genf. The Daily Telegraph.
Botha
vissi um
aðgerðir
dauða-
sveita
EIJGENE de Kock, yfirmaður
dauðasveita hvítu minni-
hlutastjórnarinnar í Suður-
Afríku, hélt því fram við
vitnaleiðslur í gær, að P.W.
Botha fyrrverandi forseti
hefði vitað meira um aðgerðir
dauðasveitanna gegn stjórn-
arandstæðingum og fullyrti,
að yfirmenn sínir hefðu sagt,
að Botha hefði sjálfur fyrir-
skipað sprengjuárás á höfuð-
stöðvar launþegasamtaka
blökkumanna, Cosatu, seint á
síðasta áratug.
Ducruet í mál
útaf myndum
DANIEL Ducruet maður
Stefaníu Mónakóprinsessu
hefur stefnt tveimur ítölskum
blöðum sem birtu myndir af
hónum og belgískri fatafellu
samtvinnuðum á sólbekk á
evuklæðunum einum. Með því
vill hann reyna fá úr því skor-
ið hvort hafi verið leiddur í
gildru.
Sveitakonur í
Kína í hættu
UNGUM konum til sveita í
Kína er mun hættara við
sjálfsmorði en þeim sem í
þéttbýli búa, að sögn alþjóð-
legra hjálparsamtaka. Að
þeirra sögn voru 93% sjálfs-
víga í Kína síðustu fjögur ár
framin til sveita, og fer hlutur
15-39 ára kvenna í því efni
vaxandi. Eru þær undir mikl-
um þrýstingi að ala önn fyrir
fjölskyldu í samfélagi örra
breytinga.
150 útvarps-
stöðvar loka
STARFSEMI rúmlega 150
útvarps- og sjónvarpsstöðva
var í bönnuð í Beirút í Líban-
on í gær er nýjum reglum
um útvarpsstarfsemi var
beitt. Var starfsemi fjögurra
einkarekinna sjónvarpsstöðva
og 12 útvarpsstöðva heimil-
uð. Öðrum stöðvum var fyrir-
skipað að loka í lok nóvember.
Mannskæð
flóð í Víetnam
AÐ MINNSTA kosti 34 fór-
ust og tugir þúsunda misstu
heimili sín í miklum flóðum í
miðhéruðum Víetnams um
helgina, að sögn víetnamskra
fjölmiðla í gær. Manntjónið
var mest í Ha Tinh-héraði þar
sem 17 manns fórust og rúm-
lega 100.000 manns þurftu
þar neyðaraðstoð. Fárviðri og
flóð hafa kostað alls 420
manns lífið í mið- og norður-
héruðunum frá því í júlí og
valdið mesta eignatjóni í
norðurhlutanum í áratug.
STJORNVOLD í Sviss létu undan
alþjóðlegum þrýstingi í fyrradag og
ákváðu að skipa nefnd sérfræðinga,
sem á að grafast fyrir um reikn-
inga, sem gyðingar og ýmsir aðrir
áttu í svissneskum bönkum í stríð-
inu. Þá á nefndin að kanna hvað
varð um gull, sem nasistar stálu
og komu hugsanlega fyrir í Sviss.
Svissneska stjórnin skýrði frá
þessu daginn áður en Malcolm Rif-
kind, utanríkisráðherra Bretlands,
sótti hana heim en með ákvörðun-
inni hefur hún að nokkru rofið þá
miklu leynd, sem hvílt hefur yfir
svissneskum bankamálum.
Um er að ræða allt að 700 nafn-
lausa reikninga, sem gyðingar og
fleiri notuðu til að koma í veg fyr-
ir, að Gestapo, leynilögregla nas-
ista, gerði fé þeirra upptækt en
margir þeirra iétu lífið í Helförinni.
Fimm ára rannsókn
í nefndinni verða allt áð 12 sér-
fræðingar og fær hún fimm ár til
að vinna verkið. Fær hún heimild
til að skoða bankaskýrslur og leita
upplýsinga hjá tryggingafélögum,
lögfræðingum, endurskoðendum,
stjórnvöldum og fólki og stofnun-
um, sem ýmist hafa aðsetur eða
búa í Sviss. Verða niðurstöðurnar
síðan birtar opinberlega.
Þessi ákvörðun stjórnarinnar er
háð samþykki þingsins, sem getur
tekið allt að þremur mánuðum, og
hægt er einnig að krefjast þjóðarat-
kvæðagreiðslu eins og vinsælt er í
Sviss en hún er þó ekki skilyrði.
í yfirlýsingu svissnesku stjórnar-
innar sagði, að hún vildi upplýsa
þessi mál í eitt skipti fyrir öll. Kröf-
ur Heimsráðs gyðinga um rannsókn
væru réttmætar þótt þær hefðu að
vísu verið notaðar í pólitísku skyni
í Bandaríkjunum.
Fjórir milljarðar í nasistagulli
Svissneska bankasambandið
áætlar, að hugsanlega séu rúmlega
2,2 milljarðar ísl. kr. á reikningum,
sem enginn veit hver á, en ýmis
samtök gyðinga telja upphæðina
miklu hærri. Þá verður kannað hvað
varð um gull, sem nasistar stálu
og lögðu inn í svissneska banka.
Breska utanríkisráðuneytið telur,
að andvirði þess hafi verið rúmir
fjórir milljarðar kr. við stríðslok.
Allt að 64.000 kr.
verðlækkun á
Skoda Felicia
Seljum síðustu bílana afSkoda Felicia árgerð 1996 á einstöku sértilboði.
Verð nú frá
L OOO 895.000
Fyrirtæki og stofnanir
Bjóðum einnig vsk-útgáfu á einstöku verði, eða frá 659.000 kr.
Komdu núna í Jöfur og tryggðu þér glænýjan
Skoda Felicia á sértilboði.
Söluaðilar Jöfurs á landsbyggðinni
Akranes: Bílver, fsafjörður: Bílaþjónusta Daða, Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfiröinga,
Akureyri: Skálafell, Húsavik: Skipaafgreiðsla Húsavíkur, Egilsstaðir: Bilasalan Fell,
Höfn: Egill H. Benediktsson, Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Bragginn, Selfoss: Bílasala Suðurlands
9 9 6
Nýbýlavegur 2
Sími: 554 2600