Morgunblaðið - 18.09.1996, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Elskuleg systir mín,
PETRÍNA KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR DIGIORGIO,
fædd í Bolungarvík 23. október 1924, búsett í Boston, USA
sl. 50 ár, andaðist 12. september.
Bálför hefur farið fram.
Halldór Pétur Kristjánsson, Hlíð, ísafirði.
t
Faðir okkar,
VIGGÓ GUÐJÓNSSON,
Fellsmúla 5,
lést í Landspítalanum 15. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd barna og annarra vandamanna,
Jón Auðunn Viggósson,
Guðbjörg Viggósdóttir,
Erla Viggósdóttir,
Júliana Viggósdóttir.
t
Mágur okkar,
ÓLAFUR Þ. GUÐMUNDSSON,
Hvassaleiti 56,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir 15. september sl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erna Guðmundsdóttir,
fna S. Guðmundsdóttir,
Leifur Guðmundsson.
t
Elsku litli drengurinn okkar, bróðir og
barnabarn,
LEÓ FREYR ELÍSSON,
Eikarlundi 27,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri hinn 13. september.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 20. september kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á barna-
deild FSA.
Sigríður Hrönn Pálsdóttir, Elfs Árnason,
Viktor Páll, Árni Valdór,
Halldóra Höskuldsdóttir, María Ingibergsdóttir,
Páll Þorgeirsson, Árni Valdór Elisson.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
Skipasundi 52,
Reykjavík,
sem andaðist á Hrafnistu Reykjavík 12. september sl., verður
jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 19 september kl. 15.00.
Þuríður Ingibjörg Stefánsdóttir,
Þorgerður S. Guðmundsdóttir, Jón F. Steindórsson,
Guðrún Guðmundsdóttir, Ásmundur Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær bróðir okkar og frændi,
ÁRNI JÓNSSON,
frá Stórhólmi í Leiru,
sem lést í Elliheimilinu Grund 11. september síðastliðinn, verður
jarðsettur frá Fossvogskapellu fimmtud. 19. september kl. 15.
Systur hins látna, frændfólk og vinir.
t
Elsku drengurinn okkar, bróðir og
unnusti,
SÆMUNDUR BJARNASON,
sem lést eftir hetjulega baráttu að
morgni 7. september sl. í sjúkrahúsi í
Lundúnum, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 19. sept-
ember nk. kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna.
Hrafnhildur Ingimarsdóttir, Bjarni Óskarsson,
Sigurgísli Bjarnason, Óskar Björn Bjarnason,
Birta Fróðadóttir.
+ Alexíus Lúth-
ersson fæddist
á Ingunnarstöðum
í Kjós 28. septem-
ber 1921. Hann lést
í Landspitalanum
11. september síð-
astliðinn. Foreldr-
ar Alexíusar voru
Lúther Lárusson,
fæddur í Reykjavík
1886 og Guðrún
Sigtryggsdóttir
fædd 1879 á Þóru-
stöðum í Svinadal.
Alexíus átti þrjú
systkini og einn
uppeldisbróður: Hafsteinn
Lúther, f. 16.3. 1915, Björn, f.
28.3. 1917, Kristbjörg, f. 31.3.
1918 og Kristján Jóhann Olafs-
son, f. 24.12. 1932.
Alexíus kvæntist 10. júlí 1954
Ingibjörgu Magnúsdóttur frá
Fréttin um lát Alexíusar vinar
okkar kom ekki á óvart. Við höfð-
um vonað að honum hefði tekist
að vinna bug á krabbameininu, því
Hrauni i Grindavík,
f. 10.7. 1926. Þau
eignuðust fjögur
börn: Katrín Sigríð-
ur, f. 13.4. 1954 gift
Jónasi Helgasyni,
þau eiga þrjá syni;
Magnús Lúther, f.
11.12. 1955, kvænt-
ur Hrönn Pálsdótt-
ur, þau eiga eina
dóttur og frá fyrra
hjónabandi á hann
eina dóttur; Guðrún
Ingibjörg, f. 2.5.
1957, gift Guðjóni
Helgasyni, þau eiga
þrjú börn; Kristín Kristbjörg,
f. 4.10. 1964, gift Steingrími
Davíðssyni, þau eiga tvær dæt-
urL
Utför Alexíusar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
eftir fyrri átök við sjúkdóminn virt-
ist hann hafa náð nokkuð góðri
heiisu síðustu tvö árin, en það var
bara gálgafrestur.
Þegar við komum heim eftir
langa dvöl erlendis 1959 höguðu
atvikin því þannig að Ingibjörg og
Alexíus urðu nágrannar okkar.
Betri granna var ekki hægt að
hugsa sér. Ingibjörgu þekktum við
frá því áður og_ Alexíusi kynnt-
umst við fljótt. Áhugamálin voru
svipuð og börnin á líkum aldri.
Álexíus var fjölhæfur maður.
Allt lék í höndunum á honum og
hann var alltaf boðinn og búinn
til aðstoðar ef á þurfti að halda.
Hann var listrænn með afbrigðum
og um miðjan aldur tók hann sig
til og fór í Myndlista- og handíða-
skólann og bera margir fagrir
gripir meistaranum vitni. Oft leit-
aði hugur Alexíusar í Brynjudal
þar sem foreldrar hans höfðu
byggt sér eitt af elstu steyptu
húsum landsins. Þar hafði hann
og fjölskylda hans byggt sér sum-
arbústað og var farið þangað eins
oft og við varð komið. Alexíus bar
veikindi sín með reisn, vel studdur
af konu sinni, börnum og tengda-
börnum. Einnig talaði hann oft um
hve vel væri um sig hugsað á
sjúkrahúsinu.
Börnin okkar eru vaxin úr grasi,
en minningin um góðan dreng lifir
í hjarta okkar. Far þú í friði, kæri
vinur.
Sólveig og Guðmundur Orn.
ALEXIUS
LÚTHERSSON
SÓLVEIG
SNORRADÓTTIR
+ Sólveig Snorradóttir fædd-
ist í Keflavík 16. júlí 1956.
Hún Iést á Sjúkrahúsi Suður-
nesja 24. ágúst síðastliðinn og
fór útför hennar fram frá
Keflavíkurkirkju 31. ágúst.
Elsku Solla, ég man eftir því þeg-
ar ég fylgdi þér í sjúkrabílnum, þá
sagðir þú við mig: „Ég ætla ekki
að láta neinn segja mér hvað ég á
eftir að lifa lengi, það skal ég sýna
ykkur.“ Veistu Solla mín, ég held
að þú sért búin að sýna okkur það,
þú lifðir mun lengur en ég þorði að
vona. Alltaf sjáum við hvað það er
stutt á milli lífs og dauða, við eigum
að þakka Guði fyrir hvern dag.
Ég man morguninn 24. ágúst
þegar pabbi hringdi og sagði: „Lína,
hún Solla dó í nótt.“ Ég man ekki
meira af þessu samtali nema að
þegar ég var búin að tala við hann,
fann ég sömu tilfinningu og þegar
pabbi hringdi og sagði mér að
Magnús Þór væri dáinn, sem er
best lýst þannig, að það er eins og
hjartað sé tekið frá manni. Svona
sár gróa aldrei, maður lærir bara
að lifa með þeim. Þegar Solla og
pabbi bjuggu í Vestmannaeyjum
fékk ég að koma þangað á sumrin.
Svo fluttuð þið til Keflavíkur og þá
kom ég í heimsókn aðra hveija
helgi og alltaf tókstu vel á móti
mér, varst mér sem móðir og vorum
við góðar vinkonur. Þú hlustaðir á
mig þegar mér leið illa og gafst
mér góð ráð. Stunduny fékk ég þig
til að spá fyrir mér. Ég man líka
vel eftir fjöruferðunum sem við fór-
um í, áður en Sorri fæddist.
Mikið er ég þakklát fyrir hvað
það var alltaf kært á milli ykkar
og mömmu. Alltaf gerðuð þið það
besta fyrir mig og vilduð að mér
liði sem best hjá ykkur, og þar tókst
ykkur vel upp. Þegar Magnús var
veikur veittirðu Sólbjörgu og Óla
allan þinn styrk og eftir að þú veikt-
ist veittu þau þér sinn.
Það munaði ekki nema 1 tíma og
42 mín. að þú fengir hana Sigrúnu,
ömmubarnið þitt, í afmælisgjöf, en
ég var aðeins of sein. Manstu daginn
sem þið komuð í heimsókn til henn-
ar? Þú varst svo stolt af henni. Þeg-
ar þú sagðir við hann Snorra litla:
„Eigum við kannski að fá hana ein-
hverntíma lánaða og leyfa henni að
sofa heima?“ Þá mundi ég hvað mér
leið alltaf vel heima hjá ykkur og
vissi að Sigrúnu ætti eftir að líða
jafn vei.
Ég veit, Solla mín, að alltaf þegar
við förum í. heimsókn til pabba,
Kidda og Snorra eigum við eftir að
+ Hólmfríður Ingibjörg Jóns-
dóttir fæddist í Húsey í
Skagafirði 21. apríl 1917. Hún
lést á Landakoti 12. ágúst síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Áskirkju 22. ágúst.
Hún Imba, föðursystir okkar, var
alla tíð í huga okkar systkina „Imba
frænka". Það var alltaf gaman að
heimsækja hana; fá hjá henni sæl-
gætismola og spjalla. Um jól og
áramót var Imba oft hjá okkur og
þá var einatt glatt á hjalla.
finna fyrir anda þínum sem þú skild-
ir eftir, bæði í myndum og minning-
um. Við skulum ekki gleyma að
þakka Guði fyrir þá daga sem hann
leyfði þér og Magnúsi að vera hjá
okkur og fyrir daginn sem var þér
svo mikilvægur, 16. júlí 1996, þegar
Sólbjörg og Óli héldu upp á fertugs-
afmælið þitt í nýja húsinu.
Endalokin á þessari jörð eru allt-
af erfið fyrir þá sem eftir lifa, en
fyrir þá sem fara tekur nýr heimur
við. Solla mín, nú veit ég að þú
þarft ekki lengur að beijast við
þennan illskeytta sjúkdóm. Allt það
sem þú gafst okkur getur enginn
tekið í burtu, enda verður minning
þín vel varðveitt.
Um leið og ég kveð hana Sollu
mína vottum við elsku pabba,
Kidda, Snorra, Lillý, Sólbjörgu og
Óla okkar dýpstu samúð. Ég veit
að þið hafið staðið eins og klettur
við hlið Sollu í þessari erfiðu bar-
áttu. Guð veri með ykkur.
Nikólína, Hannibal og Sigrún.
Við systkinin kveðjum Imbu
frænku ög vitum að hún hefur nú
fengið langþráða hvíld eftir erfiða
sjúkdómslegu. Hvíldu í friði kæra
frænka.
Hin langa þraut er liðin.
Nú loksins hlaustu friðinn.
Og allt er orðið rótt.
Nú sæll er sigur unninn.
Og sólin björt upp runnin.
Á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem)
Guðlaug og Páll Kristján.
HALLDÓRA ÁSLA UG
GEIRSDÓTTIR
INGIBJORG H.
JÓNSDÓTTIR
Sérfræðingar
i blóniaskrcytinguin
vió öll lirkilæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 19090
+ Halldóra Áslaug Geirsdótt-
ir fæddist á Bjargi á Akra-
nesi 2. ágúst 1916. Hún lést á
Landspítalanum 24. ágúst síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Laugarneskirkju 4.
september.
Halidóra mín.
Við þökkum fyrir allt það góða
sem þú gerðir fyrir okkur í Bjarkar-
ási. Það var alltaf svo gaman þegar
þú og Guðni húsvörður komuð yfir
til okkar. Það var líka svo hlýtt og
gott hjá ykkur. Guðni smíðaði kop-
arhringa fyrir mig og Aldísi þegar
við opinberuðum. „Alveg sjálfsagt,
Stefán minn,“ sagði hann alltaf.
Guð veri með ykkur hjónum, Hall-
dóru og Guðna.
Stefán Konráðsson og
Aldís Ágústsdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár.
Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má
greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar
um má lesa á hcimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.