Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 37

Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER 1996 37 ____________FRÉTTIR_________ Ólympíuskákmótið í Armeniu Stórsigur vannst á E1 Salvador-búum Jerevan. Morgunbladið. ÍSLENDINGAR unnu stórsigur á E1 Salvador-búum í annarri um- ferð Ólympíuskákmótsins í Jere- van. Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þór- hallsson unnu allir örugga og fyr- irhafnarlitia sigra á stigalausum andstæðingum, og sigurinn hefði raunar getað orðið stærri því Mar- geir Pétursson hafði um tíma vænlega stöðu gegn eina E1 Salvador-búanum með alþjóðleg skákstig, en missti skákina niður í jafntefli. Enda þótt sigurinn, Z'h — 'h, virðist auðveldur er E1 Salvador-búum þó ekki alls varn- að, því þeir höfðu unnið öfluga sveit Kyrgystans í fyrstu umferð. Blómaskák Polgar Af öðrum úrslitum ber helst að nefna algjört afhroð Moldovu gegn einbeittri sveit Ungverja. Moldava teflir fram mjög þéttri og sterkri sveit sem er í 32. sæti styrkleika- listans, en hver af öðrum máttu moldavísku skákmennirnir játa sig sigraða gegn unglingunum í ung- versku skáksveitinni. Fyrstur til að vinna var að vísu Jozif Pinter sem kominn er yfir fertugt, en hinir ungversku skákmennirnir í þessari umferð eru allir kornungir. Judit Polgar og Zoltan Almasi eru tvítug og Peter Leko sextán ára. Síðust til að vinna sína skák var Judit Polgar sem yfirbugaði Viktor Bologan á efsta borði, en hann er mjög öflugur stórmeistari með 2.600 Elo-stig. Að launum fyrir sigur sinn fékk Judit lófaklapp áhorfenda og stóran blómvönd. Niðurstaðan varð sem sé 4-0 og Ungveijar virðast til alls líklegir á mótinu enda eru þeir einir í efsta sæti. I 3. umferð mæta Ungverjar væntanlega Rússum sem unnu Bangla Desh-menn 3 ‘/2—‘/2 í gær. Hvorki Kasparov né Kramnik hafa enn mætt til leiks og á efsta borði gerði Dreer jafntefli við Murshed, eina stórmeistara Bangla Desh. Hinir unnu létta sigra. Færeyingar unnu Þá má nefna að Þjóðveijar unnu Filippseyinga 3-1, Ástralíumenn og Georgíumenn gerðu jafntefli, sömuleiðis Bosníumenn og B-sveit Armena, Litháar og Kandamenn, Búlgarar og Kasakar, ísraelsmenn og Eistar, og Víetnamar og Tékk- ar. Úkraínumenn lögðu Króata 2V2-U/2, Grikkir unnu Norðmenn 3-1, Englendingar unnu Dani með sama mun, en útlit var fyrir í gærkvöldi að Svíar myndu gera jafntefli við ítali. Argentínumenn unnu Indveija 3-1 og einna óvæntustu úrslitin voru þau að Skotar unnu Slóvaka 2'h-Vh. Finnar gerðu jafntefli við Púerto Rico og tapaði stórmeistarinn Westerinen fyrir nær stigalausum manni. Irar unnu Nicaraqua 3-1 og Færeyingar unnu San Marino 2'h-Vh. Skagaströnd Bygging íþróttahúss boðin út Skagaströnd. Morgunblaðið. TILBOÐ í byggingu nýs íþróttahúss voru opnuð á skrifstofu Höfðahrepps í gær en ákveðið var síðastliðið vor hefja byggingu íþróttahúss á þessu ári. Tvö tilboð bárust í verkið og voru þau frá Helga Gunnarssyni á Skaga- strönd og Trésmiðjunni Stíganda hf. á Blönduósi. Kostnaðaráætlun á þeim hluta verksins sem boðin var út hljóðaði upp á 80,8 milljónir króna. Tilboð Helga var 78,1 milljón króna eða 96,65% af kostnaðaráætl- un en tilboðið frá Stíganda 79,4 milljónir króna sem er 98,29% af kostnaðaráætlun. Viðstaddir opnun- ina voru auk útbjóðenda fulltrúar bjóðenda og hönnuður hússins, Jó- hannes Ingibjartsson. Nýja íþróttahúsið á að rísa við hliðina á skólanum og mun bæta úr brýnni þörf því að leikfimi er kennd í félagsheimilinu við bágar aðstæður. Nýja húsið verður 1200 fm að gólfflatarmáli en í því verður löglegur körfuboltavöllur. Húsið verður með burðarvirki úr límtré 18X47 m að stærð og áætlað er að koma þar fyrir þremur kennslustof- um en það mun gera kleift að gera skólann einsetinn. í útboðsgögnun er gert ráð fyrir að húsinu sé skilað fullbúnu til nokt- unar 15. desember 1997. Islendingar nálgast efstu sveitirnar ■ NÝLEGA opnuðu Hugrún Helga Ólafsdóttir, löggiltur fóta- aðgerðafræðingur, og Guðrún Magnúsdóttir hárgreiðslumeistari Hárgreiðslu- og fótaaðgerða- stofu í Árskógum 4. Opið er alla virka daga frá kl. 9-17. Hugrún og Guðrún störfuðu áður í Gerðu- bergi. SKAK Jcrcvan, Armcníu ÓLYMPÍU SKÁKMÓTIÐ Ólympíuskákmótið er haldið í Jer- evan í Armeníu 15. september til 2. október. ÍSLENDINGAR unnu sveit frá E1 Salvador 3'/2 - 'h í annarri umferð á ólympíuskákmótinu í Jerevan í Armeníu. Margeir Pétursson varð að láta sér Iynda jafntefli á fyrsta borði, en Jó- hann Hjartarson, Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þórhallsson unnu sínar skákir. Andstæðingar ís- lendinga í þessari umferð hafa hingað til ekki verið álitnir sterkir skák- menn, en þeir unnu þó Kírgistan í fyrstu umferð, þrátt fyrir fá stig á alþjóðlegum listum. Með þessum sigri nálgast ís- lenska sveitin þær sterkustu í mótinu, hefur 6 vinninga af 8 mögulegum. Þröstur vann aftur snaggara- legan sigur og fylgir skákin hér á eftir. Síðustu tveir leikir svarts hafa verið nokkuð hægfara og nú er orðið erfitt að bregðast við hótun- inni 11. g5 ásamt 12. Rd5. Líklega hefði verið skárst að leika 10. — Rxd4 11. Bxd4 — Be6 o.s.frv. 11. Rxc6 - Dxc6 12. e5! - b4 Ekki gengur 12. — Rxg4 13. fxg4 — Dxhl 14. Bg2 og hvítur hefur vinn- ingsstöðu. 13. Re2 — Rxg4 Tapar baráttulítið, en eftir 13. — Rd7 14. exd6 - Dxf3 15. Rg3 - verður svarti kóng- urinn fastur á mið- borðinu. 14. Rd4 - Db7 15. fxg4 — Bxg4 16. Bg2 - d5 17. Hel - 0-0 18. Bh6 - e6 19. Bxg7 — Kxg7 20. Dg5 - Bh5 21. Df6+ - Kg8 22. Bh3 - Hae8 23. Hefl - De7 24. Df4 - a5 Svartur getur sig hvergi hrært og lokin eru skammt undan. 25. Hhgl - Kh8 26. Hg5 - a4 Þröstur Þórhallsson Hvítt: Þröstur Þórhallsson Svart: Chavez Sikileyjarvörn 1. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. Rc3 — d6 4. d4 — cxd4 5. Rxd4 — a6 6. Be3 - Rf6 7. Dd2 - g6 Svartur velur hið tvíeggjaða Drekaafbrigði, en önnur leið er að ]pij/o n __ 8. f3 - Bg7 9. 0-0-0 - Dc7?! 10. g4 - b5? 27. Hxh5! - gxh5 28. Rc6 og svartur gafst upp, því að hann tapar drottningunni, eftir 28. — Dc5 29. Df6+ - Kg8 30. Dg5+ - Kh8 31. Hgl - Dxgl+ 32. Dxgl o.s.frv. Bragi Kristjánsson Sértilboð til London 7. okt. frá kr. 16.930 Flug og hótel kr. 19.930 0m inm< og okto ber ^t^nber Síðustu 23 sætin 7. okt. tn^-6veím 0 g Nú seljum við síðustu sætin til London þann 7. október og bjóðum þér nú glæsilegt tilboð um leið og þú tryggir þér lægsta verðið á Islandi. Þú bókar á morgun eða hinn og tryggir þér sæti til London á hreint ótrúlegu verði. Við bjóðum nú sérstakt kynningartilboð á vin- sælasta London-hótelinu okkar, Butlins Grand. Gott þriggja stjörnu hótel í nágrenni við Oxford stræti, öll herbergi með sjón- varpi, síma, te- og kaffibúnaði og að sjálfsögðu fullbúnu baði. Verð kr. 16.930 Verð með flugvallar- sköttum, 7. okt., 3 nætur. Verð kr. 19.930 M.v. 2 í herbergi með morgunverð, Butlins Grand, 7. okt., 3 nætur. Verð kr. 29.930 Butlins hótel, 4 nætur, 3. okt. 2 í herbergi. Butlins Grand HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600 Byggingaplatan \OTnÍ2X§* sem allir hafa beðið eftir byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf \ÍDD3©<3 byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi \ÍDIð@<§' byggingaplatan er hægt að nota úti sem inni 'ííDIðSS byggingaplatan er umhverfisvæn ÞÞ &co \ýQ®(2X§' byggingaplatan er platan sem verkfræðingurinn getur fyrirskrifað blint. Leitið frekari upplýsinga fc». ÞORGRÍMSSON &CO ÁRMÚLA 29 • S: SS3 8640 & S68 6100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.