Morgunblaðið - 18.09.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 39
í
I
1
I
<
<
í
(
i
(
<
FRETTIR
Starfsnám
fyrir ungt
fólk í at-
vinnuleit
HITT húsið, menningar- og upplýs-
ingamiðstöð ungs fólks, stendur
fyrir starfsnámi fyrir ungt fólk í
atvinnuleit. Starfsnámið skiptist í
tvennt, námskeið og starfsþjálfun.
Námskeiðið er ólaunað en þátt-
takendur halda atvinnuleysisbótum
þær fjórar vikur sem það stendur.
Að námskeiði loknu hefst launuð
starfsþjálfun í fimm mánuði á
starfsstöðum ÍTR, hjá öðrum borg-
arstofnunum, félögum, menningar-
samtökum og í Hinu húsinu. Reynt
er að finna starf við hæfi og einnig
verða við sérstökum óskum þátttak-
enda. Þeim sem hafa áhuga á að
ljúka grunn- eða framhaldsskóla-
námi gefst kostur á námi á móti
hálfu starfi. Til að geta tekið þátt
í starfsnámi Hins hússins þarf um-
sækjandi að vera á aldrinum 18-25
ára, vera skráðir á Vinnumiðlun
Reykjavíkurborgar og eiga rétt á
atvinnuleysisbótum.
Umsóknarfrestur rennur út 18.
september en verkefnið hefst 30.
september. Umsóknum má skila á
Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar,
Engjateig 11 og í Hitt húsið, Aðal-
stræti 2, á eyðublöðum sem þar fást.
-----♦ ♦ ♦-----
Kynningar-
kvöld Biblíu-
skólans við
Holtaveg-
HAUSTMISSERI Biblíuskólans við
Holtaveg er nú hafið. Kennd verða
sex námskeið sem fjalla um fjöl-
breytt svið kristinnar trúar. Svo-
nefnt Alfa-námskeið verður nú
haldið í annað sinn en það er
grunnnámskeið í kristinni trú.
Alfa-námskeiðin eru sérstaklega
ætluð fyrir þá sem vilja forvitnast
um kristna trú, eru spyrjendur og
vilja fá betri innsýn í hvað er að
vera kristinn og hver er megin-
kjarni kristinnar trúar.
Leiðbeinandi á námskeiðinu verð-
ur Ragnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri KFUM og KFUK í
Reykjavík auk annarra. Sérstakt
kynningarkvöld Biblíuskólans, þar
sem Alfa-námskeiðið og önnur
námskeið verða kynnt, verður í
kvöld, 18. september kl. 20 í húsi
KFUK og KFUM við Holtaveg,
gegnt Langholtsskóla. Kynningin
er öllum opin, aðgangur er ókeypis
og engar skuldbindingar. Sjálft
námskeiðið hefst viku síðar á sama
stað.
Þegar er hafið námskeið Biblíu-
skólans um starf meðal barna og
unglinga. í október mun sr. Kjartan
Jónsson, kristniboði, verða leiðbein-
andi á námskeiði sem kallast
Kristniboð - hvað, hvers vegna,
hvernig? í nóvember verður síðan
námskeið um Spádómsbók Jesaja,
seinni hluta, og laugardagsnám-
skeið um bænina.
-----♦-♦--♦----
Heilbrigðismál
á fundi ABR
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ í Reykja-
vík heldur í kvöld sinn fyrsta fund
í fundaröð sem fengið hefur nafnið
Málstofa ABR. Þar er ætlunin að
brjóta til mergjar þau mál sem efst
eru á baugi í þjóðfélaginu.
Gestir fundarins verða Ingibjörg
Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra,
Margrét Frímannsdóttir, alþingis-
maður og formaður Alþýðubanda-
lagsins og Guðrún Ágústsdóttir,
borgarfulltrúi. Fundurinn verður
haldinn í Sunnusal (Átthagasal)
Hótel Sögu og hefst kl. 20.30.
Fundurinn er öllum opinn.
Morgunblaðið/Kristinn
FRÁ Skipholts apóteki. F.v. Elísabet Sigurðardóttir, afgreiðslu-
stúlka, Björg Eiðsdóttir, verslunarstjóri, Guðríður Einarsdóttir,
lyfsali, Guðrún Ólöf Þorbergsdóttir, lyfjatæknir og Sigrún Gunn-
arsdóttir, lyfjatæknir.
Nýtt apótek í Skipholti
NÝLEGA opnaði Guðríður Einars-
dóttir lyfsali nýtt apótek, Skip-
holts apótek, í Skipholti 50c. Guð-
ríður hefur starfað í tæpa tvo ára-
tugi sem lyfjafræðingur í ýmsum
apótekum í Reykjavík og víðar en
vann í Laugavegs apóteki þar til
hún fékk lyfsöluleyfi í Skipholti.
Skipholts apótek leggur
áherslu á ýmsar náttúruvörur og
nýjungar t.d. í vítamínum, húð-
snyrtivörum o.fl.
Skipholts apótek er opið alla
virka daga milli kl. 8.30 til 18.30
og á Iaugardögum milli kl. 10 til
14.
FRA versluninni Delhi á Klapparstíg.
Yerslun með
indversk
NÝ VERSLUN hefur tekið til
starfa, Delhi, Klapparstíg 35.
Eigendur eru Sigurður B. Sig-
urðsson og Lárus Guðmunds-
son.
Delhi sérhæfir sig í sölu á
handunnum gömlum og nýjum
húsgögnum frá Indlandi. Einnig
húsgögn
leggur Delhi áherslu á vandaða
handunna gjafavöru úr járni og
tré og vefnaðarvöru og teppum
sem eru unnin úr 100% bómull
og ull.
Verslunin er opin alla virka
daga frá kl. 11 -18 og á laugar-
dögum kl. 11-14.
HJÓLIÐ sem Svanur Ingvarsson hannaði og smíðaði.
Sýning á fjalla-þríhjóli
REIÐHJÓLAVERSLUNIN Hjól-
ið á Eiðistorgi er með fjalla-þrí-
hjól til sýnis í versluninni. Hjólið
er hannað og smíðað af Svani
Ingvarssyni smið á Selfossi.
Svanur segir að hugmyndin
að hjólinu hafi kviknað á Ólymp-
íuleikunum í Barcelona 1992. Þar
hafi hann séð svipað hjól og litist
vel á. „Hönnuninn og smíðin tók
rúmt ár en vinur minn sem er
vélsmiður aðstoðaði mig við
smíðina. Ég hef ferðast víða um
sléttlendi Suðurlands á hjólinu
og það hefur reynst vel.“
Starfsfólk reiðhjólaverslunar-
innar Hjólið býður þeim sem
hafa áhuga á að kynna sér hjólið
hans Svans að koma í verslunina
við Eiðistorg og prófa gripinn.
Ef áhugi er fyrir hendi stendur
fólki til boða að láta smíða sam-
bærileg hjól, sniðin að þörfum
hvers og eins.
Staða og fram-
tíð íslensks
málmiðnaðar
SAMTÖK iðnaðarins og Málmur,
samtök fyrirtækja í málm- og skipa-
iðnaði, gangast fyrir ráðstefnu um
stöðu og framtíð íslensks málmiðn-
aðar undir heitinu Sóknarfæri í
málmiðnaði í miðstöð ÍSÍ í Laugar-
dal fimmtudaginn 19. september
nk. kl. 13 og 17.
„Á undanförnum árum hefur ís-
lenskur málmiðnaður átt í vök að
veijast en erfiðleikaárin eru nú að
baki og nýtt tímabil sóknar að hefj-
ast. Markmið ráðstefnunnar er að
vekja athygli á þeim jákvæðu breyt-
ingum sem orðið hafa í málmiðnaði
og gera grein fyrir þeim möguleik-
um sem geta skapast í framtíðinni,
segir í fréttatilkynningu frá Sam-
tökum iðnaðarins og Málmi.
Ráðstefnan er öllum opin en hún
er einkum sniðin að þörfum þeirra
sem eiga viðskipti við fyrirtæki í
málm- og skipaiðnaði, opinberra
aðila, sem vinna að málefnum
greinarinnar, og þeirra sem hafa
áhuga á að kynnast hinum fjöl-
breyttu og tæknilega áhugaverðu
störfum í málmiðnaði.
Aðgangur er ókeypis en þeir sem
vilja sitja ráðstefnuna þurfa að skrá
sig hjá Samtökum iðnaðarins.
-----♦ ♦ ♦-----
Jass á Píanó-
barnum
JASSTRÍÓ Ástvaldar Traustasonar
leikur á Píanóbarnum í kvöld, mið-
vikudagskvöld, og fimmtudags-
kvöld.
Ásamt Ástvaldi, sem leikur á
píanó, leika þeir Matthías Hemstock
á trommur og Bjarni Sveinbjörns-
son á bassa.
Tríóið mun leika hefðbundna
jass- standarda ásamt fleiru.
Kyrrðarstundir
í Hallgríms-
kirkju
KYRRÐARSTUNDIR hefjast aðr
nýju 22. september í Hallgrímskirkju
í hádeginu á fimmtudögum. Þetta
eru stuttar og hljóðlátar stundir þar
sem áhersla er lögð á tónlist, íhugun
og þögn. Leikið er á orgel frá kl. 12
í um það bil 15 mínútur. Síðan leið-
ir prestur íhugun og bæn. Stundinni
lýkur um klukkan hálf eitt. Á eftir
er léttur hádegisverður á boðstólum
í safnaðarheimilinu.
I frétt frá séra Karli Sigurbjörns-
syni segir: „Kyrrðin og þögnin eru
munaður í nútíma samfélagi. Ys og
ærusta hverdagsins úthýsir henni .
og friðleysið verður hlutskipti
manns. í kyrrðinni talar Guð, í
kyrrðinni kemur orðið hans sem blíð-
ur blær og sefar og svalar. Kyrrðar-
stundirnar í hádegi eru all víða í
kirkjum höfuðborgarsvæðisins og
njóta æ meiri vinsælda. Kirkjan býð-
ur okkur velkomin í kyrrðarvin úr
ys og erli dagsins."
-----» ♦ ♦----
Sjávarút-
vegshringur
genginn
HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer í,
miðvikudagskvöldgöngu sinni, 18.
september, frá Hafnarhúsinu kl. 20
og gengur úr Grófmni með sjónum
frá Hlíðarhúsasandi inn á Laugar-
nestanga. Þaðan verður gengið úr
Norðurkotsvörinni upp Laugamýri og
yfir Rauðarárholt, Árnarhólsholt og
um Skildinganesmela niður í Grófina.
Stutt hlé verða á göngunni í Suð-
urbugt, við Hafrannsóknarstofnun
og sjávarútvegsráðuneytið, Sólfarið,
Laugardalshöllina, Sjómannaskól-
ann, Iðnskólann og Háskólann.
Göngunni lýkur í Hafnarhúsið.
Á ýmsum stöðum verður hægt að
yfirgefa gönguna og fara með SVR.
Einnig verður hægt að sleppa hléun-
um og ganga stanslaust alla leiðina
með fararstjóra. Allir velkomnir.
Námskeið til
að hætta að reykja
TVÖ reykbindindisnámskeið
verða í haust og fyrri hluta vetr-
ar hjá Krabbameinsfélagi
Reykjavíkur. Hið fyrra hefst 25.
september og lýkur 23. október.
Stjórnandi og aðalleiðbeinandi er
Valdimar Helgason, kennari.
Seinna námskeiðið byrjar 15.
október og endar 12. nóvember.
Þar heldur Ingileif Ólafsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, um taum-
ana. Bæði hafa þau Ingileif og
Valdimar mikla reynslu á þessu
sviði, segir í fréttatilkynningu.
Fundimir verða á kvöldin, sex
talsins á hvoru námskeiði fyrir
sig. Þeir verða haldnir í húsi
Krabbameinsfélagsins í Skógar-
hlíð 8. Námskeiðsgjald er 6.000
kr. en hjón og öryrkjar fá af-
slátt. Mörg dæmi eru um að
stéttarfélög taki þátt í nám-
skeiðsgjaldi fyrir félagsmenn
sína og fyrirtæki og stofnanir
greiði niður gjaldið fyrir starfs-
fólk sitt.
Athugasemd vegna
skaðabótamáls Bretans á
hendur íslenska ríkinu
EFTIRFARANDI athugasemd hef-
ur borist Morgunblaðinu frá lög-
manni Bretans, Ásgeiri Á. Ragnars-
syni:
„Af frétt Morgunblaðsins sem
birtist hinn 12. september sl. mátti
ráða að ég teldi málið bæði torsótt
og að í sams konar málum sem upp
hafí komið hér á landi á síðustu
árum hafi ríkið verið sýknað af
skaðabótakröfum. Þetta er ekki rétt.
Hið rétta er að það má ráða af dóm-
um Hæstaréttar í málum þar sem
sakbomingar hafa höfðað skaða-
bótamál á hendur íslenska ríkinu í
kjölfar sýknudóms að slík mál séu
erfið. Hins vegar er mál Bretans
mjög sérstakt og óvenjulegt þannig
að verulegar líkur era á því að bóta-
réttur hans verði viðurkenndur fyrir
dómstólum enda hefur aldrei fyrr
reynt á sambærileg tilvik.
Sérstaða málsins felst í því að í
fyrsta skipti mun reyna á ábyrgð -
ríkisins á rangri niðurstöðu DNA
rannsóknar, sem framkvæmd var
af starfsmönnum þess og í þágu
opinbers máls, en niðurstöðu þess-
ari var síðar hnekkt af rannsóknar-
aðilum bæði í Noregi og í Bandaríkj-
unum. Þá mun reyna á bótaábyrgð
ríkisins vegna annmarka á að færa
sakborning fyrir dómara án undan-
dráttar og vegna gæsluvarðhalds í
upphafi án þess að lagaskilyrði
væru fyrir hendi. Einnig mun reyna
á hvaða áhrif það hefur á skaða-
bótamál sakbornings ef verulegir
annmarkar eru á rannsókn málsins
um atriði er rennt hefðu stoðum
undir sakleysi hans.
Vegna fréttar Morgunblaðsins
vil ég einnig benda á að dómur
verður kveðinn upp í málinu en
ekki úrskurður eins og sagði í frétt-
inni.“