Morgunblaðið - 18.09.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 41
BRÉF TIL BLAÐSIIUS
Maharishi og Bítlarnir
Frá Guðjóni B. Kristjánssyni:
MAHARISHI Mahesh Yogi er
þekktur um heim allan. Sennilega
eru flestir tilbúnir að mynda sér
skoðun á honum án þess að kynna
sér staðreyndir um starf hans og
kenningar en tengja hann ósjálf-
rátt við blóm, frið, hippatíma og
ekki síst Bítlana. Undirritaður
vinnur við kennslu í fræðum Ma-
harishi, m.a. TM-hugleiðs]u (inn-
hverfri íhugun), á vegum Islenska
íhugunarfélagsins og er vanur að
þurfa að leiðrétta alls konar mis-
skilning og fáfræði sem virðist
loða við TM-hugleiðslu og aðra
þekkingu Maharishi. Því er ekki
úr vegi að kynna Maharishi og
starf hans stuttlega.
Eftir að hafa lokið námi í eðlis-
fræði við háskólann í Kalkútta
gerðist Maharishi lærisveinn eins
helsta yoga-meistara Indlands,
Brahmananda Saraswati. Eftir
fráfall hans gerðist sú hugsun æ
áleitnari í huga Maharishi að ger-
samlega ónauðsynlegt væri fyrir
mannkynið að þjást. Hann hefur
oft sagt frá þeirri mótsögn sem
hann sá milli þess sæluástands
sem yogafræðin kenndu að hveij-
um manni væri eiginlegt og svo
lífi fólksins sem greinilega hafði
ekki þá reynslu. Maharishi hóf því
fyrirlestraferð um Indland þvert
og endilangt og kenndi fólki sára-
einfalda tækni sem hann kallaði
Transcendental Meditation (TM-
hugleiðslu) Fyrir Indveijum vai'
tækni Maharishi og fersk túlkun
hans á Vedafræðunum eins og
opinberun.
Hugleiðslutækni Maharishi
virkaði fyrir venjulegt fólk. Það
tók eftir því að orka þess, vellíðan
og andlegt atgeiwi jókst með ein-
ungis 20 mínútna ástundun kvölds
og morgna. Tæknin var ekki bara
á færi fárra útvaldra og jafnvel
börn gátu tileinkað sér hana. Fyrst
tæknin bætti líf þeirra sem hana
stunduðu á allan máta hlaut að
vera hægt að setja allt mannkynið
í andlega endurhæfingu með því
að gefa öllum kost á að læra hana.
Alþjóðahreyfing Maharishi varð
því til á Indlandi árið 1957. Næstu
áratugi var Maharishi á stöðugu
ferðalagi heimshornanna á milli,
óþreytandi við skipulagningu
kennslumiðstöðva, menntun kenn-
ara, fyrirlestra og ráðstefnuhald.
í dag hafa um 4 milljónir manna
af öllum þjóðernum, trúarbrögðum
og starfsstéttum lært þessa tækni
Maharishi.
Rannsóknarstarf
Ævistarf Maharishi er orðið ærið
að vöxtum og vinnur hann enn við
túlkun vedískra fræða og stjórnun
hreyfingar sinnar sem starfar í
flestum löndum heims. Óhætt er
að segja að Maharishi sé áhrifa-
mesti túlkandi vedískra fræða í
heiminum í dag. Eftir hann liggur
aragrúi fyrirlestra í bóka- og
myndbandsformi. Fjöldi rann-
sóknarstofnana og háskóla vinnur
við rannsóknir á vedískum fræðum
Maharishi og hafa nú birst um 350
rannsóknir á þeim í yfir 100 vís-
indatímaritum. Sýna niðurstöður
að kenningar Maharishi eiga við
rök að styðjast og fela í sér hag-
nýtar og skapandi lausnir á mörg-
um knýjandi vandamálum sam-
tímans. Eins og frægt er orðið
fóru. Bítlarnir til Indlands árið
1967 til að nema fræði Maharis-
hi. Yoru ákveðin hagsmunaöfl
sem reyndu með öllum ráðum að
sverta hann í augum Bítlanna og
heimsins í þeim tilgangi að ná
þeim til baka enda voru milljarða-
hagsmunir í húfi að Bítlarnir
héldu áfram að spila saman. í
sllkum tilvikum duga slúðursögur
best enda merkilega auðvelt að
vekja upp tortryggni með þeim.
Slúðrið hefur verið lífseigt enda
verið notað sem krydd í sögu Bítl-
anna í gegn um tíðina þvert á
vilja þeirra sjálfra. Bítlarnir þrír
sem eftir lifa ásamt Yoko Ono,
Miu Farrow, Beach Boys og fleir-
um sem voru á áðurnefndu nám-
skeiði hafa reynt að bera slúð-
ursögurnar til baka á síðari árum
og hafa Bítlarnir lofað Maharishi
sem einstakan persónuleika og
þykir þetta tímabil á Indlandi
eftirminnilegt og skemmtilegt. í
það minnsta tveir þeirra iðka enn
TM-hugleiðslu. í apríl 1992 héldu
George Harrison og Ringo Starr
tónleika saman í Royal Albert
Hall til heiðurs Maharishi og
stofnun Náttúrulagaflokks Bret-
lands og var Paul einnig viðstadd-
ur ásamt fjölda fyrrverandi sam-
starfsmanna Bítlanna. Þetta er í
fyrsta sinn sem Bítlarnir komu
saman frá því þeir slitu samstarfi
og segir allnokkuð um viðhorf
þeirra til Maharishi.
Maharishi er nú orðinn hvít-
hærður öldungur sem er líklega
sama um allt heimsins slúður. Er
fullvíst að minning hans meðal
komandi kynslóða verður ekki háð
minningu Bítlana heldur þeirri
dýrmætu þekkingu sem hann hef-
ur veitt mannkyninu.
GUÐJÓN B. KRISTJÁNSSON
hefur lokið mastersprófi í vedískum
fræðum Maharishi og er kennari í _
TM-hugleiðslu.
Opið bréf til sjálf-
stæðiskvenna
Frá sjálfstæðiskonum:
UNDANFARIN misseri hafa sjálf-
stæðiskonur rætt mikið og skrifað
um stöðu kvenna í Sjálfstæðis-
flokknum. Konur í áhrifastöðum
innan flokksins eiga að hvetja
flokkssystur sínar um allt land til
að gefa kost á sér í pólitísku starfi
flokksins. Til að auka hlut kvenna
í starfi Sjálfstæðisflokksins verða
sjálfstæðiskonur að ganga til leiks
af fullri alvöru á öllum sviðum.
í kosningayfirlýsingu Sjálfstæð-
isflokksins 1995 „Betra ísland"
segir m.a. „Viðhorf líðandi stundar
gagnvart verkaskiptingu kynjanna
hafa beint konum og körlum inn á
ákveðnar brautir og þannig þrengt
frelsi beggja kynja til að ákveða
lífsstíl, starfsvettvang og barneign-
ir. Skilgreina þarf jafnréttismál
sem sjálfsögð mannréttindi en ekki
sem hluta af félagslegum úrræð-
um.“
Á Landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins sem haldinn verður 10.-13.
október nk. verður væntanlega
rætt um „Einstaklingsfrelsi - jafn-
rétti í reynd“ og haldnir í fram-
haldi af því opnir fundir um jafn-
réttismál. Við hvetjum konur og
karla sem sækja næsta landsfund
að kynna sér dagskrá þessara
funda og taka virkan þátt í þeim.
Einnig viljum við minna konur á
sameiginlegan kvöldverð fimmtu-
daginn 10. október á vegum af
Landssambands sjálfstæðiskvenna
fyrir konur í flokknum. Þar gefst
konum tækifæri til að hvetja konur
til að gefa kost á sér í þau emb-
ætti sem kosið verður um á lands-
fundi 10.-13. október nk. og á öðr-
um vettvangi, þar sem sjálfstæðis-
menn láta til sín taka.
Virk þátttaka kvenna í stjórn-
málastarfi er frumskilyrði þess að
unnt sé að styrkja stöðu þeirra í
Sjálfstæðisflokknum.
Kjörorð okkar er:
„Sjálfstæðiskonur, látið aðykkur
kveða og málefni flokksins ykkur
varða“.
ÁSGERÐUR HALLDÓRSDÓTTIR,
viðskiptafræðingur,
HELGA ÓLAFSDÓTTIR,
framkvæmdastjóri,
KATRÍN GUNNARSDÓTTIR,
fulltrúi,
MARGRÉT K. SIGURÐARDÓTTIR,
viðskiptafræðingur.
- kjarni málsins!
Við blöndum
litinn...
DU PONT bílalakk notað af
fagmönnum um land allt.
Er bíllinn þinn
grjótbarinn eða
rispaður ?
DU PONT lakk
á úðabrúsa er
meðfærilegt og
endingargott.
Faxafeni 12. Sími 553 8000
LINSAIM
Aðalstræti 9
HVlTA HÚSIÐ / SlA