Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 43
IDAG
Arnað heilla
Afmælistilkynn-
ingar þurfa að
berast blaðinu
með að minnsta
kosti tveggja
daga fyrirvara
og þríggja daga
fyrirvara í
sunnudagsblað.
Að gefnu tilefni
þarf samþykki
afmælisbarns að
fylgja með og
eða nafn ábyrgð-
armanns og
símanúmer.
BRIDS
IImsjón Gudmundur Páll
Arnarson
EFTIR mjög upplýsandi
sagnir andstæðinganna,
verður suður sagnhafi í
þremur spöðum, dobluð-
um. Byrjunin er sagnhafa
hagstæð - vestur tekur
AK í laufi og spilar gosan-
um í þriðja slag. Nú er
spilið óhnekkjandi, hvað
sem vörnin gerir.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ 104
4 1)102
♦ ÁG74
♦ D852
Vestur
♦ -
4 864
♦ K9865
♦ ÁKG104
Vestur Norður
2 grönd' Pass
3 hjörtu Pass
Ðobl Pass
Austur
♦ KG97
ii :s,,s
♦ 93
Suður
♦ ÁD86532
4 Á3
♦ 102
♦ 76
Austur Suður
2 tíglar' Pass
3 lauf' Pass
Pass 3 spaðar
Pass Pass
‘Hálitir, 6-10 punktar.
2Spurning.
’Fjórlítur í spaða og fimm-
litur í hjarta.
Hvernig á að spila til
að tryggja níu slagi?
Til að byija með er
nauðsynlegt að stinga upp
laufdrottningu blinds.
Austur á nú nokkra vonda
kosti:
(a) Ef hann kastar hjarta,
þá hendir sagnhafi tígli
heima, svínar spaða-
drottningu, spilar tígli á
ás og trompar tígul. Spil-
ar svo spaðaás og meiri
spaða. Vestur þarf þá að
spila frá hjartakóng.
(b) Ef austur trompar
með sjöu, yfirtrompar
suður með áttu og spilar
tígultíu! Leggi vestur á
tíuna, drepur sagnhafi
með ás og svínar spaða-
drottningu. Spilar svo
spaðaás og spaða (eða
tígli) og austur er aftur
endaspilaður. Vestur er
engu bættari með því að
iáta lítinn tígul á tíuna,
því þá fær austur að eiga
slaginn á drottningu, en
síðan má svína gosanum
og losna þannig við tap-
slaginn í hjarta.
(c) Ef austur trompar
laufdrottninguna með
níu, yfirtrompar suður
með drottningu og spilar
smáum spaða á tíu blinds.
Framhaldið rekur sig á
svipaðan máta og í b-lið.
Magnað spil.
■J /A/AÁRA afmæli. í
IUU dag, miðviku-
daginn 18. september, er
tíræður Þórður Kristján
Runólfsson, Haga í
Skorradal. Eiginkona
hans var Halldóra Guð-
laug Guðjónsdóttir, en
hún andaðist 1982. Þórður
mun vera elsti starfandi
bóndi á íslandi.
OiAÁRA afmæli. í dag,
OU miðvikudaginn 18.
september, er áttræður
Símon Kristjánsson,
Neðri-Brunnastöðum,
Vatnsleysuströnd. Eigin-
kona hans var Margrét
Jóhannsdóttir, en hún lést
árið 1985. Símon tekur á
móti ættingjum og vinum
laugardaginn 21. septem-
ber nk. frá kl. 18 í Glað-
heimum, Vogum.
pT/AÁRA afmæli. í dag,
t)U miðvikudaginn 18.
september, er fimmtugur
Ágúst Úlfar Sigurðsson,
tölvunarfræðingur, Lága-
bergi 3, Reykjavík. Vinum
og velunnurum er boðið á
afmælistónleika í Hall-
grímskirkju klukkan 9 í
kvöld. Orgelleikari er Hörð-
ur Áskelsson.
Ljósm. Norðurmynd Ásgrímur
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. júní í Minja-
safnskirkjunni á Akureyri
af sr. Birgi Snæbjörnssyni
Guðrún Karítas Bjarna-
dóttir og Halldór Sveinn
Kristinsson. Heimili þeirra
er í Hrísalundi 16e, Akur-
eyri.
Ljósm. Norðurmynd Ásgrímur
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 21. júlí í Akureyrar-
kirkju af sr. Birgi Snæ-
björnssyni Bryndís Viðars-
dóttir og Aðalsteinn
Helgason. Heimili þeirra
er á Kjalarsiðu 14b, Akur-
eyri.
Ljósm. Norðurmynd Ásgrímur
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 17. ágúst í Akur-
eyrarkirkju af sr. Birgi
Snæbjörnssyni Fríða
Oddsdóttir og Indriði
Þröstur Gunnlaugsson.
Heimili þeirra er í Ásgarði
18, Reykjavík.
HOGNIIIREKKVISI
// ndgmtvyOkrrúr en/ gnenmeiiideéur*
STJ ÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drakc
MEYJA
Afmælisbarn dagsins: Þú
kemur miklu í verk og
temur þér vönduð vinnu-
brögð.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl)
Láttu það ekki á þig fá þótt
hugmyndir þínar fái dræmar
undirtektir hjá sumum. Þú
átt hóp dyggra stuðnings-
manna, sem standa með þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Erfiðlega gengur að inn-
heimta gamla skuld, en það
kemur varla að sök, því fjár-
hagurinn fer batnandi með
nýjum tækifærum.
Tvíburar
(21. maí - 20.júní) 4»
Þú þarft að taka meira tillit
til annarra og gæta þess að
vanrækja ekki náinn ætt-
ingja. Sinntu fjölskyldumál-
unum í kvöld.
Krabbi
(21. júnf — 22. júlí) >"$0
Vertu ekki með óþarfa hlé-
drægni. Nýttu þér þau tæki-
færi sem bjóðast til að
bladna geði við aðra og
skemmta þér í vinahópi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki vanmeta góð ráð, sem
þér eru gefin í dag. Þau geta
vísað þér veginn til vel-
gengni og aukins frama í
vinnunni.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú hefur mikið að gera í
dag, en vinir rétta fram
hjálparhönd og gefa þér góð
ráð. Njóttu kvöldsins heima
með Qölskyldunni.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Reyndu að koma í veg fyrir
óþarfa deilur innan fjölskyld-
unnar. Það er hlustað á orð
þín og þú getur tryggt heim-
ilisfriðinn.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^$0
Láttu það ekki leiða til
óþarfa eyðslu þótt fjárhagur-
inn sé á batavegi. Með hag-
sýni getur þú tryggt þér ör-
ugga framtíð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þú ert að leysa spennandi
verkefni og vinnudagurinn
getur orðið langur. Alger
einhugur ríkir innan fjöl-
skyldunnar í kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú vinnur vel með öðrum og
kemur miklu í verk fyrri
hluta dags. Svo er óhætt að
slaka örlitið á og njóta sam-
vista við vini.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Reyndu að hafa hemil á
eyðslunni þótt horfur í pen-
ingamálum fari batnandi. Þú
átt mikilli velgengni að
fagna í vinnunni.
Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
Þú hefur verk að vinna
heima í dag og átt ánægju-
legar stundir með yngstu
kynslóðinni. Ástvinir fara út
saman í kvöld.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
)fcS/\INIÍ5URENT
STJÖRNUR HAUSTSINS
Oréta Boða, föröunarmeistari,
kynnir nýju haust- og oetrar-
litina í dag, á morgun og
föstudag..
• Glæsilegir litir.
• Frábær tilboð.
• Hægt er aö panta
tíma í förðun.
SNYRTI OG GJ AFAVÖRUVERSLUN
LAUGAVEGI 80 SÍMI 561 1330
i
alla daga
Amerísku dýnurnar frá
KINGSDOWN
tryggja þér hvíld og
vellíðan í svefni.
Þær eru framleiddar á
grunni gammalla hefða
með þv( að setja gorm
á gorm, það þýðir að
maður sefur
rauriverulega á 2
dýnum og fær þannig
hámarks stuðning.
Mjög gott úrval af
tré og járnrúmum
S.: 553 6011 & 553 7100
4
l
t
I
\