Morgunblaðið - 18.09.1996, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 18.09.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 43 IDAG Arnað heilla Afmælistilkynn- ingar þurfa að berast blaðinu með að minnsta kosti tveggja daga fyrirvara og þríggja daga fyrirvara í sunnudagsblað. Að gefnu tilefni þarf samþykki afmælisbarns að fylgja með og eða nafn ábyrgð- armanns og símanúmer. BRIDS IImsjón Gudmundur Páll Arnarson EFTIR mjög upplýsandi sagnir andstæðinganna, verður suður sagnhafi í þremur spöðum, dobluð- um. Byrjunin er sagnhafa hagstæð - vestur tekur AK í laufi og spilar gosan- um í þriðja slag. Nú er spilið óhnekkjandi, hvað sem vörnin gerir. Austur gefur; allir á hættu. Norður ♦ 104 4 1)102 ♦ ÁG74 ♦ D852 Vestur ♦ - 4 864 ♦ K9865 ♦ ÁKG104 Vestur Norður 2 grönd' Pass 3 hjörtu Pass Ðobl Pass Austur ♦ KG97 ii :s,,s ♦ 93 Suður ♦ ÁD86532 4 Á3 ♦ 102 ♦ 76 Austur Suður 2 tíglar' Pass 3 lauf' Pass Pass 3 spaðar Pass Pass ‘Hálitir, 6-10 punktar. 2Spurning. ’Fjórlítur í spaða og fimm- litur í hjarta. Hvernig á að spila til að tryggja níu slagi? Til að byija með er nauðsynlegt að stinga upp laufdrottningu blinds. Austur á nú nokkra vonda kosti: (a) Ef hann kastar hjarta, þá hendir sagnhafi tígli heima, svínar spaða- drottningu, spilar tígli á ás og trompar tígul. Spil- ar svo spaðaás og meiri spaða. Vestur þarf þá að spila frá hjartakóng. (b) Ef austur trompar með sjöu, yfirtrompar suður með áttu og spilar tígultíu! Leggi vestur á tíuna, drepur sagnhafi með ás og svínar spaða- drottningu. Spilar svo spaðaás og spaða (eða tígli) og austur er aftur endaspilaður. Vestur er engu bættari með því að iáta lítinn tígul á tíuna, því þá fær austur að eiga slaginn á drottningu, en síðan má svína gosanum og losna þannig við tap- slaginn í hjarta. (c) Ef austur trompar laufdrottninguna með níu, yfirtrompar suður með drottningu og spilar smáum spaða á tíu blinds. Framhaldið rekur sig á svipaðan máta og í b-lið. Magnað spil. ■J /A/AÁRA afmæli. í IUU dag, miðviku- daginn 18. september, er tíræður Þórður Kristján Runólfsson, Haga í Skorradal. Eiginkona hans var Halldóra Guð- laug Guðjónsdóttir, en hún andaðist 1982. Þórður mun vera elsti starfandi bóndi á íslandi. OiAÁRA afmæli. í dag, OU miðvikudaginn 18. september, er áttræður Símon Kristjánsson, Neðri-Brunnastöðum, Vatnsleysuströnd. Eigin- kona hans var Margrét Jóhannsdóttir, en hún lést árið 1985. Símon tekur á móti ættingjum og vinum laugardaginn 21. septem- ber nk. frá kl. 18 í Glað- heimum, Vogum. pT/AÁRA afmæli. í dag, t)U miðvikudaginn 18. september, er fimmtugur Ágúst Úlfar Sigurðsson, tölvunarfræðingur, Lága- bergi 3, Reykjavík. Vinum og velunnurum er boðið á afmælistónleika í Hall- grímskirkju klukkan 9 í kvöld. Orgelleikari er Hörð- ur Áskelsson. Ljósm. Norðurmynd Ásgrímur BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 15. júní í Minja- safnskirkjunni á Akureyri af sr. Birgi Snæbjörnssyni Guðrún Karítas Bjarna- dóttir og Halldór Sveinn Kristinsson. Heimili þeirra er í Hrísalundi 16e, Akur- eyri. Ljósm. Norðurmynd Ásgrímur BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 21. júlí í Akureyrar- kirkju af sr. Birgi Snæ- björnssyni Bryndís Viðars- dóttir og Aðalsteinn Helgason. Heimili þeirra er á Kjalarsiðu 14b, Akur- eyri. Ljósm. Norðurmynd Ásgrímur BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 17. ágúst í Akur- eyrarkirkju af sr. Birgi Snæbjörnssyni Fríða Oddsdóttir og Indriði Þröstur Gunnlaugsson. Heimili þeirra er í Ásgarði 18, Reykjavík. HOGNIIIREKKVISI // ndgmtvyOkrrúr en/ gnenmeiiideéur* STJ ÖRNUSPÁ cftir Franccs Drakc MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú kemur miklu í verk og temur þér vönduð vinnu- brögð. Hrútur (21. mars- 19. apríl) Láttu það ekki á þig fá þótt hugmyndir þínar fái dræmar undirtektir hjá sumum. Þú átt hóp dyggra stuðnings- manna, sem standa með þér. Naut (20. apríl - 20. maí) Erfiðlega gengur að inn- heimta gamla skuld, en það kemur varla að sök, því fjár- hagurinn fer batnandi með nýjum tækifærum. Tvíburar (21. maí - 20.júní) 4» Þú þarft að taka meira tillit til annarra og gæta þess að vanrækja ekki náinn ætt- ingja. Sinntu fjölskyldumál- unum í kvöld. Krabbi (21. júnf — 22. júlí) >"$0 Vertu ekki með óþarfa hlé- drægni. Nýttu þér þau tæki- færi sem bjóðast til að bladna geði við aðra og skemmta þér í vinahópi. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ekki vanmeta góð ráð, sem þér eru gefin í dag. Þau geta vísað þér veginn til vel- gengni og aukins frama í vinnunni. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú hefur mikið að gera í dag, en vinir rétta fram hjálparhönd og gefa þér góð ráð. Njóttu kvöldsins heima með Qölskyldunni. Vog (23. sept. - 22. október) Reyndu að koma í veg fyrir óþarfa deilur innan fjölskyld- unnar. Það er hlustað á orð þín og þú getur tryggt heim- ilisfriðinn. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) ^$0 Láttu það ekki leiða til óþarfa eyðslu þótt fjárhagur- inn sé á batavegi. Með hag- sýni getur þú tryggt þér ör- ugga framtíð. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Þú ert að leysa spennandi verkefni og vinnudagurinn getur orðið langur. Alger einhugur ríkir innan fjöl- skyldunnar í kvöld. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú vinnur vel með öðrum og kemur miklu í verk fyrri hluta dags. Svo er óhætt að slaka örlitið á og njóta sam- vista við vini. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Reyndu að hafa hemil á eyðslunni þótt horfur í pen- ingamálum fari batnandi. Þú átt mikilli velgengni að fagna í vinnunni. Fiskar (19. febrúar-20. mars) Þú hefur verk að vinna heima í dag og átt ánægju- legar stundir með yngstu kynslóðinni. Ástvinir fara út saman í kvöld. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. )fcS/\INIÍ5URENT STJÖRNUR HAUSTSINS Oréta Boða, föröunarmeistari, kynnir nýju haust- og oetrar- litina í dag, á morgun og föstudag.. • Glæsilegir litir. • Frábær tilboð. • Hægt er aö panta tíma í förðun. SNYRTI OG GJ AFAVÖRUVERSLUN LAUGAVEGI 80 SÍMI 561 1330 i alla daga Amerísku dýnurnar frá KINGSDOWN tryggja þér hvíld og vellíðan í svefni. Þær eru framleiddar á grunni gammalla hefða með þv( að setja gorm á gorm, það þýðir að maður sefur rauriverulega á 2 dýnum og fær þannig hámarks stuðning. Mjög gott úrval af tré og járnrúmum S.: 553 6011 & 553 7100 4 l t I \

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.