Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 14
14 E MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LÍFEFNAIÐNAÐUR
Þörungaiðnaður er í miklum blóma í Evrópu um þessar mundir
ÞÖRUNGAAFURÐIR eiga vaxandi
vinsældum að fagna út um heim
allan og möguleikar á framleiðslu
þörungaafurða á íslandi eru tals-
verðir að mati hollensks þörunga-
framleiðanda sem staddur var hér
á landi á dögunum. Hann segir að
hér sé að finna besta þara í heimi,
íslendingar geti boðið betra og
hreinna hráefni en flestar aðrar
þjóðir.
Þörungaiðnaður er í miklum
blóma í Evrópu um þessar mundir
og meðal annars er selt mikið af
þörungaafurðum til Japans, t.d.
þörungate, með þá ímynd að þar
sé um hreina og ómengaða þörunga
að ræða, þrátt fyrir umtalsvert
magn þumgmálma í hráefninu.
Vinna íslenska þörunga
Hollenska fyrirtækið Bihol Hold-
ing hefur notað íslenska þörunga í
heilsu- og matvælaframleiðslu sína
síðan árið 1974 og er framleiðsla
fyrirtækisins mjög umfangsmikil
og seld víðs vegar um heiminn,
m.a. á íslandi en Heilsuhornið á
Akureyri flytur vörurnar inn sem
hafa hlotið góðar viðtökur að sögn
Hermanns Huijbens, eiganda
Heilsuhornsins.
H.Hutting, eigandi Bihol Holding
var staddur hér á landi á dögunum
og segist hann hafa haft áhuga á
að koma til íslands til að sjá með
eigin augum þá þróun sem átt hafi
sér stað í þörungarannsóknum hér
á landi. Hann segir það einkum
vegna þess að fyritæki hans hafi
nýlega hafið framleiðslu á nýrri
vörulínu, Alga-line, sem byggi að
stórum hluta á íslenskri þörunga-
tegund úr Breiðafirði, Laminaria
digitata eða hrossaþara.
„Við viljum aðeins nota besta
hugsanlega hráefni og íslenskir
þörungar eru þeir bestu í heimi.
Mengun af völdum iðnfyrirtækja á
meginlandi Evrópu hefur gert að
að verkum að þörungar af til dæm-
BREIÐFIRSKUR hrossaþari
kominn í töfluform. Töflurnar
þykja hafa góð áhrif á húðina
og eru jafnvel megrandi líka.
Auðlindin fyrir hendl
gólfrennur
láréttar eða með innbyggðum halla fyrir fiskvinnslu-
og iðnaðarhúsnæði, bílastæði, bryggjur, flugvelli o.fl.
Steypujárns- og plastristar, sinkhúðaðar og ryðfríar, fyrir
alla álagsflokka allt frá gönguumferð upp I umferð
þyngstu farartækja. Allt að 90 m langar rennur með
einhliða halla. Ýmsir aukahlutir, s.s. sandföng, brunnar,
stútar o.fl.
Hafið samband viösölu- VATNSVIRKINNe.h.f
menn okkar og fáio Ármuia 21 -108 Reykjavík
nánari upplýsingar. fiáÉ simi: 5332020 - Fax: 5332022
1 ' J Groonl mimor OnHyiHOA
íslenskir þörungar
þeir bestu í heimi
Breiðafirði og Austurlandi er rann-
sakaður, sérstaklega með tilliti til
innihalds þungmálma. Hann segir
að markmið verkefnisins sé að
koma þessum þörungum á Japans-
markað og hugsanlega megi finna
nýja markaði vegna aukinnar með-
vitundar og kröfu almennings um
heilnæmari afurðir. „Hér á landi
eru ýmsir aðilar sem þegar eru far-
inir að vinna merkilegt starf hvað
varðar nýtingu þörunga. Til dæmis
hefur Bláa lónið unnið brautiyðj-
endastarf í þróun húð- og heilsu-
vara úr ræktuðum þörungum, upp-
runnunum úr Bláa lóninu," segir
Gunnar.
Gunnar Ólafsson, lífefna- og þör-
ungafræðingur, segir að Hutting
staðfesti það sem rannsóknir hér á
hafi sýnt. í fyrirtæki hans séu
stundaðar rannsóknir á þörungum
sem leggi hlutlaus mat á gæði hrá-
efnisins enda sé Hutting það kapps-
mál að selja sem bestu vöruna.
Gunnar segir að á Rannsókna-
stofnun fískiðnaðarins sé unnið að
verkefni með aðilum á Austfjörðum
og á Suðurnesjum þar sem þari frá
Morgunblaðið/Halldór
GUNNAR Ólafsson, líffræðingur, sýnir Hollendingunum þörungarannsóknir sínar.
is ströndum Frakklands innihalda
mikið af þungmálmum, en íslenskir
þörungar eru að mestu lausir við
þá,“ segir Hutting.
Þörungasnyrtivörur vinsælar
Hutting segir þörungaafurðir
eiga vaxandi vinsældum að fagna,
sérstaklega í snyrtivörum, einkum
á sviði fegrunarkrema og sömuleið-
is þyki þörungaafurðir vinna vel
gegn ýmiskonar húðvandamálum.
Því muni fyrirtækið í framtíðinni
hasla sér völl í sölu á snyrtivörum
unnum úr þörungum og þegar séu
framleiddar ýmsar vörur undir
Alga-line merki fyrirtækisins sem
deift er um alla Evrópu. Í för með
Hutting var blaðakona frá timarit-
inu Privé, útbreiddasta vikublaði
Hollands, og segir Hutting það sýna
í hnotskurn aukinn áhuga á þessum
afurðum.
Gunnar segir að hér á landi sé
gríðarlegt magn þörunga, þannig
að auðlindin sé fyrir hendi. „En það
er líka til mikið magn þörunga ann-
arsstaðar í heiminum. Framleiðsla
á ræktuðum þara hefur aukist mik-
ið, sérstaklega í Kína, þannig að
möguleikarnir eru að bjóða það sem
aðrir geta ekki boðið. Við getum
boðið upp á gæða hráefni frá nátt-
úrunnar hendi og mun minni meng-
un en annarsstaðar í heiminum.
Við þurfum því að finna nýjar að-
ferðir til að nýta þörungana."
Auk þess segist Gunnar vera að
vinna að rannsókn á náttúrulegum
eiginleikum íslenskra þörunga,
einkum andoxunarvirkni þörung-
anna. „Það er andoxunarvirkni til
staðar í íslenskum þörungum og
ætlunin er að reyna að finna út
hvað það er í þörungum sem gefur
þessa virkni og reyna að einangra
andoxunarefnin, en þau eru mikið
notuð í matvæli, snyrtivörur og sem
heilsubótarefni. Andoxunarefni eru
líka talin hafa forvarnaráhrif á
ýmsa hjarta- og æðasjúkdóma. Sýnt
hefur verið fram á að andoxunar-
efni í til dæmis rauðvínin sem hafa
þessi fyrirbyggjandi áhrif. Þau eru
rakin til sérstakra efna, svokallaðra
fjölfenola, en ýmsar tegundir þör-
unga innihalda mikið magn fjölfen-
ola og annara andoxunarefna. Þetta
sýnir frarn á enn eitt hollustugildi
þörunga. Ymsir japanskir vísinda-
menn hafa til dæmis rakið langlífi
þjóðar sinnar til þörunganeyslu,“
segir Gunnar.
Skila 700 milljónuin
króna til íslenskra
fyrirtækja og stofnana
Rannís kynnir rannsókna-
ISLENSKUM fyrir-
tækjum og stofnun-
um býðst fjöldi
og þróunarstyrki 1 Evrópu Slöguif Vá^a
rannsókna- og þróunarverkefni. Rannsóknarráð íslands kynnir á Sjávarút-
vegssýningunni ýmsa styrki sem veittir eru til slíkra verkefna, m.a. innan
4. rammaáætlunar ESB, EUREKA, COST og Norræna iðnlánasjóðsins.
íslendingar hafa góða reynslu af
þátttöku í samevrópskum verkefn-
um. Með aðildinni að samningum
um Evrópskt efnahagssvæði öðluð-
ust íslenskir aðilar þátttökurétt í
rammaáætlunum ESB um rann-
sóknir og þróun. Fjórða ramma-
áætlun ESB tekur til allra aðgerða
á sviði tækniþróunar sem fram fara
á vegum ESB á tímabilinu 1994-
1998.
Skilað jákvæðum árangri
Islendingar hafa verið aðilar að 4.
rammaáætlun ESB í þijú ár og
hefur það skilað mjög jákvæðum
árangri að sögn Elísabetar M.
Andrésdóttur, alþjóðafulltrúa hjá
Rannsóknarráði íslands. Kynningin
á áætluninni virðist hafa tekist vel
á hér á landi þar sem 99 umsóknir
fóru inn með íslenskri þátttöku í
fyrsta útboði áætlunarinnar. Fjöldi
verkefna með íslenskri þátttöku
hefur verið styrktur og skila þau
tæplega 700 milljónum króna til
íslenskra fyrirtækja og stofnanna á
næstu 2-3 árum og virðast ætla
að skila hærri upphæð inn í rann-
sóknakerfíð en íslendingar borga
til rammaáætlunarinnar á sama
tíma. Enn á eftir að bjóða út það
sem eftir er af fjármagni áætlunar-
innar og er þar eftir nokkru að
sækjast en 4. rammaáætlunin gildir
til ársins 1998.
Innan EUREKA og COST eru
nú í gangi fjölmörg verkefni sem
íslendingar eru aðilar að.
Rannsóknir á fiskveiðum
Ein af undiráætlunum
rammaáætlunarinnar er rannsóknir
á sviði landbúnaðar og fiskveiða og
er ætlað að stuðla að hagkvæmni
í framleiðslu og nýtingu lífrænna
hráefna í Evrópu með því að sjá
fyrir betri matvælum og drykkjar-
vörum og svara þörf atvinnulífsins.
Eitt af þeim sviðum sem Islending-
ar taka þátt í eru rannsóknir á fisk-
veiðum og fiskeldi og er stefnt að
aukinni fjölbreytni og þróun í fram-
leiðslu þessara sviða, auk þess sem
vistkerfí hafsins verða rannsökuð
og félagshagfræðilegir þættir kann-
aðir. Þessi verkefni hafa nú þegar
skilað um 200 milljónum króna til
íslenskra aðila.
Rannís með tvo sjóði
Ennfremur hefur Rannsóknarráð
íslands í vörslu sinni tvo sjóði sem
styrkja rannsóknastörf á innlendum
vettvangi; Tæknisjóð, sem styrkir
einkum fyrirtæki og stofnanir sem
fást við rannsóknir tengdar at-
vinnulífínu og hins vegar Vísinda-
sjóð sem veitir einkum styrki til
grunnrannsókna. Ráðstöfunarfé
Tæknisjóðs er um 200 milljónir
króna á ári en um 30% af því fé
4. fer til fyrirtækja.
I
>
I
I
I
!
!
D
\
!
í
i
i
i
L-
f
l
s
i
D
t
t:
i
t
D