Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Vanræksla áætlana, offjárfesting og slakt eftirlit hjá Byggðastofnun að mati Ríkisendurskoðunar S' Ú BYGGÐASTEFNA sem stofnunin heldur uppi kost- ar þjóðfélagið mikla fjár- muni og því er nauðsynlegt að þeim fjármunum sé deilt á milli þeirra er rétt hafa á fyrirgreiðslu stofnunarinnar eftir skýrum reglum og að jafnræðis sé gætt,“ eru ioka- orð stjórnsýsluendurskoðunar Ríkis- endurskoðunar á Byggðastofnun sem út kom í gær. Að mati Ríkisend- urskoðunar nemur svokallaður „fórnarkostnaður" við að reka byggðastefnu Byggðastofnunar sl. tíu ár liðlega 8,5 milljörðum kr. Skortir skýra atefnu um hvar styrkja á byggð og hvernig Ríkisendurskoðun bendir á að á þeim eliefu árum sem liðin eru frá því að lög um Byggðastofnun tóku gildi hafi stofnunin ekki skilgreint hvað felist í þjóðfélagslega hag- kvæmri þróun byggðar, hvað sé óeðlileg byggðaröskun og hvar sé lífvænleg byggð. „Stofnunin hefur því ekki skýr og mælanleg viðmið við úthlutun byggðastuðnings síns. Að mati Ríkisendurskoðunar skortir verulega á að stofnunin hafi markað skýra stefnu um það hvar eigi að styrkja byggð á land- inu, af hvaða ástæðu og með hvaða hætti," segir í skýrslunni. Almennt telur Ríkisendurskoðun að Byggða- stofnun hafi þó sinnt því hlutverki sínu að fylgjast með þróun byggðar í landinu. Hún hafi hins vegar van- rækt að gera áætlanir um þróun byggða og atvinnulífs. Byggða- stofnun hefur heldur ekki lagt mat á árangurinn af starfi sínu síðastlið- in ár eins og kveðið er á um í reglu- gerð um stofnunina, að mati Ríkis- endurskoðunar. „Ríkisendurskoðun telur á skorta að Byggðastofnun hafi gert fram- kvæmdaáætlun um hvernig stofnunin hyggst vinna að þeim stefnumálum sem sem fram koma í stefnumótandi byggðaá- ætlun fyrir árin 1994- 1997 með þeim fjármun- um er henni er ætlað til ráðstöfun- ar á því tímabili. Þá er ekki að sjá að við úthlutanir lána eða styrkja hafi verið fylgt þeim áherslum sem lagðar voru í stefnumótandi byggðaáætlun," segir í skýrslunni. Yfirstjórn Byggðastofnunar er m.a. gagmýnd fyrir að hafa ekki gripið til viðeigandi ráðstafana til að flýta vinnu við gerð svæðisbundinna byggðaáætlana. Á skorti að stofn- unin leggi fram tillögur um lausnir á þeim vanda sem tiltekin land- svæði standa frammi fyrir. Fyrirgreiðsla Byggðastofnunar sl. ellefu ár nemur 17,6 milljörðum kr. sem skiptist þannig að til Vest- Fyrirgreiðsla á 17. milljarð á 11 árum 61% af hluta- fjárkaupum voru afskrifuð Ríkisendurskoðun gagnrýnir fjölmargt í starfsemi og fyrir- greiðslu Byggðastofn- unar á tímabilinu 1985- 1995 í nýrri stjórnsýslu- úttekt. Á þessum tíma nam fyrirgreiðsla stofn- unarinnar 17,6 milljörð- um. Ómar Friðriksson kynnti sér skýrsluna. fjarða fór tæpur fjórðungur fyrir- greiðslunnar, til Norðurlands eystra tæpur fimmtungur, til Austurlands, Suðurlands og Norðurlands vestra fóru 10-15% og til Vesturlands og Suðumesja um 8%. „Á þessu ára- bili fækkaði fólki á landsbyggðinni um 0,2% meðan fólki á höfuð- borgarsvæðinu fjölgaði um 19,9%. Á landsbyggðinni fækkaði íbúum einna mest á Vestfjörðum en íjölg- unin var mest á Suðurnesjum. Að því gefnu að þjóðfélagslega hag- kvæm byggðaþróun feii í sér það -------- markmið löggjafans að komið sé í veg fyrir fækkun íbúa á lands- byggðinni hafa aðgerðir Byggðastofnunar síð- astliðin ellefu ár ekki leitt til þess að þessu tiltekna markmiði laganna hafi verið náð,“ segir i skýrslunni. Mest fyrirgreiðsla þar sem atvinnutekjur eru hæstar Ríkisendurskoðun bar saman fyr- irgreiðslu Byggðastofnunar við þró- un atvinnutekna, atvinnuleysis og íbúaþróun í kjördæmum landsins. „Sá samanburður sýndi að Byggða- stofnun virtist ekki líta til atvinnu- tekna og atvinnuleysis á tilteknum svæðum við ákvörðun um hvert beina skyldi fyrirgreiðslu stofn- unarinnar. Þannig fékk það land- svæði þar sem atvinnutekjur hafa HÚSNÆÐI Byggðastofnunar við Engjateig í Reykjavík sem stofn- unin keypti 1994. Ríkisendurskoðun telur að viðbótarkostnaður vegna fjárfestingarinnar hafi farið um 175% fram úr áætlun. verið hvað hæstar og atvinnuleysi eina minnst mesta fyrirgreiðslu hjá Byggðastofnun," segir Ríkisendur- skoðun. Lánveitingar Byggðastofnunar frá 1985 til 1995 námu 16,3 millj- örðum króna. Lánaði stofnunin mest til Vestfjarða eða 22% af heild- arlánveitingum og í kjölfarið kom Norðurland eystra með tæp 17% lánveitinga. Á þessu tímabili af- skrifaði Byggðastofnun lán að íjár- hæð 3,8 milljarða kr. eða sem svar- ar til 23% af heiidarlánveitingum. Mest var afskrifað á Vestfjörðum eða sem svarar til 30% af lánveit- ingum til þess landshluta. 93% af lánveitingum til fiskeldis voru af- skrifaðar á tímabilinu. Ríkisendurskoðun gagnrýnir þá ákvörðun stjórnar Byggðastofnun- ar að skilja á milli almennra lána og áhættulána og telur stofnunina komna í beina samkeppni við al- mennar lánastofnanir sem sé ekki hlutverk hennar. Þá hefur Byggða- stofnun ekki framfylgt ákvæði reglugerðar um útlánastefnu eins og vera ber. Byggðastofnun veitti 841 millj. króna i styrki 1985-1995. Norður- land eystra fékk mestu styrkina eða rúm 23%, því næst komu Vestfirðir en til þeirra fóru 16,5% styrkja. Bent er á að engin skipulögð athug- un hefur verið gerð á því hvernig til hefur tekist með þau verkefni sem styrkt voru. Þá hefur Byggða- stofnun ekki auglýst eftir umsókn- um um styrki að undanskildu árinu 1995 og telur Ríkisendurskoðun að stofnunin eigi skilyrðislaust að aug- lýsa eftir umsóknum um styrki. 61% af hlutafjárkaupum 1985-1995 voru afskrifuð Frá 1985-1995 tók Byggðastofn- un þátt í stofnun hlutafélaga eða hlutafjáraukningu hjá 44 fýrirtækj- um að fjárhæð rúmar 443 milljónir króna. Áttu mestu hlutafjárkaupin sér stað í fiskeldi eða ---------- fyrir tæplega 42% af heildarframlagi. „Á þessu tímabili hefur Byggðastofnun afskrifað hlutafé hjá 38 fyrirtækj- um af þeim 44 fyrirtækjum sem hún keypti hlut í. Afskriftirnar námu rúmum 270 milljónum króna sem er tæplega 61% af hlutafjárkaupum stofnunarinnar,“ segir í skýrslunni. Bent er á að í fundargerðum stjórnar megi finna dæmi um að stjórnarmenn hafi gert tillögur um lánveitingar sem voru í andstöðu við álit forstjóra. Tekin eru dæmi af áliti forstjóra Byggðastofnunar sem bókað var á stjórnarfundi 1991 um mikla rekstrarerfiðleika tveggja fiskeldisfyrirtækja. Lánveitingum til þeirra var þó haldið áfram. Ann- að fyrirtækið fór svo í þrot og var selt á 25 millj. króna í nóvember 2.800 fm hús rýmifyrir 35 starfsmenn 1994 og hafði stofnunin þá keypt hlutafé, styrkt og lánað því fyrir- tæki um 564 millj. króna frá árinu 1987 til og með árinu 1992 sem allt var afskrifað við gjaldþrotið. Hjá hinu hefur verið afskrifað hlut- afé og lán að ijárhæð 169 millj. króna en það fór í gjaldþrotameð- ferð í júní 1996. Gagnrýnt er að stjórn Byggða- stofnunar fylgist ekki markvisst með rekstri stofnunarinnar. „Um- fjöllun hennar um starfsáætlun stofnunarinnar á komandi ári og ársreikning liðins árs virðist lítil og ekki er leitað svara við því hvers vegna starfsemi og rekstur voru ekki í samræmi við áætlanir. Má í þessu sambandi nefna að íjárfest- ingar stofnunarinnar hafa farið langj; fram úr áætlunum,“ segir í skýrslunni. Heildarfjárþörf Byggðastofnunar nam tæpum 5,3 milljörðum á sl. ellefu árum. Rekstur stofnunarinn- ar kostaði ríflega 1,5 milljarða króna á þessu tímabili eða að jafn- aði rúmar 150 millj. króna á ári. Fjárfestingarkostnaður Byggða- stofnunar hefur aukist verulega á síðastliðnum árum þar sem Ijárfest hefur verið í húsnæði á öllum þeim stöðum sem stofnunin hefur starf- semi á. Byggðastofnun hefur þann- ig íjárfest fyrir 270 millj. króna í tæplega 2.800 fermetra húsrými fyrir starfsemi sína sem telur 35 starfsmenn. Stofnunin keypti nýtt húsnæði við Engjateig í Reykjavík 1994. Var kaupverð 68 millj. króna og var gerð áætlun um viðbótar- kostnað upp á 20 millj. króna sem kynnt var á stjórnarfundi 31. maí 1994. Viðbótarkostnaðurinn nam hins vegar í reynd tæplega 55 millj- ónum króna og hafði því hækkað um 175% frá upphaflegri kostn- aðaráætlun. „Að mati Ríkisendur- skoðunar hefur Byggða- stofnun flárfest í mun stærra húsnæði en þörf var á hvort sem er í Reykjavík eða á lands- byggðinni miðað við þá starfsemi sem fram fer í viðkomandi skrifstofum," segir í skýrslunni. Ríkisendurskoðun telur nokkuð skorta á að þær áætlanir sem lagð- ar eru fyrir stjóm stofnunarinnar uppfylli að fullu ákvæði laga og reglugerðar um starfsemi hennar. Einnig skortir á að Byggðastofnun hafi markað atvinnuráðgjöfum í hvetju kjördæmi skýra stefnu. Þá er eftirlit með starfi þeirra talið ábótavant. Gagnrýnt er að jafnhliða samningum við atvinnuþróunarfé- lög hafi ekki verið mörkuð skýr stefna um hvaða hlutverki svæðis- skrifstofum er ætlað að gegna í kjördæmunum. LEIKLIST L c i k í' c I a j» Akurcyrar Sigrún Ástrós Höfundun Willy Russell. Þýðandi: Þrándur Thoroddsen. Leikstjóri: Þráinn Karlsson. Leik- ari: Sunna Borg. Leikmynd og búningan Hall- mundur Kristínsson. Lýsing: Ingvar Bjömsson. Förðun: Áslaug Borg. Hárgreiðsla: Heiða Hrönn Hreiðarsdóttir. Föstudagur 27. september. LEIKSKÁLDIÐ Willy Russell virðist semja leikverk sem eru landanum að skapi. Auk söngleiksins Blóðbræðra þá hafa verið sýnd hér á landi eftir hann verkin Ríta gengur menntaveginn og Sigrún Ástrós, auk þess sem fjölmargir Islendingar hafa séð kvik- myndir gerðar eftir þessum tveimur síðar- nefndu verkum. í þeim fjallar Russell um konur sem hafa glatað sjálfum sér í samfélag- inu og sem hefja markvissa vinnu að því að endurheimta fyrri styrk. Verkin höfða því jafnt til íslendinga sem annarra þjóða þar sem fólk er meðvitað um hve konur standa oft höllum fæti og Sigrún Ástrós hefur það að auki sér til ágætis að leikritið býður upp á möguleika á að vera staðfært nær áhorfend- um í tíma og rúmi. Aðalpersónu verksins, Sigrúnu, finnst hún fangin í hlutverki sínu sem eiginkona og móðir. Börnin eru flogin úr hreiðrinu og sam- skipti hjónanna stöðnuð. Hún og eiginmaður hennar ræða ekki lengur saman sem mann- í landínu þar sem vínberin vaxa Morgunblaðið/Kristján LEIKSTJÓRI verksins, Þráinn Karls- son, og leikmyndahönnuður, Hall- mundur Kristinsson, samfagna Sunnu Borg á þrjátíu ára leikafmæli hennar að lokinni frumsýningu í gærkvöld. eskjur heldur beina orðum sínum að heimilis- tækjum og milliveggjum sem minnir á firr- ingu Guðrúnar í smásögunni og sjónvarpsleik- ritinu Líkamlegt samband í norðurbænum eftir Steinunni Sigurðardóttur. Draumur um ferð til útlanda, til lands þar sem vínberin vaxa, er það sem heldur í Sig- rúnu lífinu, auk þess sem hún er farin að dreypa á veigum vínviðarins sér til huggun- ar. Möguleg utanlandsferð verður tákn um fornt sjálfstæði Sigrúnar Ástrósar sem lífs- glöð gegndi fyrrum þessu tignarlega tví- nefni. Hin undirgefna einnefnda Sigrún lætur sér nægja smágrikki við eiginmanninn sem neitar að stíga fæti út fyrir landsteinana. En hinn Ijarlægi draumur - sem minnir á þrá Goethes eftir landi sítrónublómanna eins og hann orðar hana í ljóðinu Mignon - er nær því að rætast en Sigrún hyg-gur og hún heldur í langferð til að endurheimta sjálfs- traustið. Allir þessir meginþættir verksins koma vel fram í uppsetningu Leikfélags Akureyrar. Léikstjóri hefur kosið að hafa uppfærsluna afar raunsæja. Leikritið hefur verið mjög skemmtilega staðfært og gerist fyrri þáttur- inn nú því á Akureyri. Sunna leikur t.d. ekki aðeins húsmóður heldur sinnir hún eldhús- verkunum á meðan hún spjallar við millivegg- inn. Útlitshönnuður skapar tvær ólíkar leik- myndir, eldhúsið heima hjá Sigrúnu og kletta við sjávarströnd, sem eru hvor um sig skemmtilegt samspil lita og hárfínna smáat- riða. Lýsingin hjálpar við að skapa andrúms- Ioft þessara ólíku heima. Búningar eru í per- sónulegum stíl og undirstrika að Sigrún Ast- rós á ekkert skylt við staðlaðar manngerðir heldur er hún sjálf. Þessi atriði vega öll þungt er ákvarða skal trúverðugleika verksins og jafnframt erindi þess við áhorfendur hér og nú. Það er nokkur áhætta fólgin í því að setja upp þetta verk, þekkt bæði af túlkun Margrét- ar Helgu Jóhannsdóttur og Pauline Collins, beggja öndvegis leikkvenna. En allt leggst hér á eitt um að uppfærslan gangi upp: vand- virknisleg umgerð, skemmtileg staðfæring, styrk leikstjórn og kraftmikil túlkun leikkon- unnar. Það geislar af Sunnu Borg í þessu hlutverki þar sem henni gefst færi á að slá á þá fjölmörgTj strengi sem byggja upp sam- hljóm einnar persónu. Hún bregður sér einn- ig í gegnum aðalpersónuna í líki allra auka- persónanna á fjölbreyttan og sannfærandi hátt. Vegna þessa virkar verkið ferskt, sannt og sannfærandi og Sunna stendur uppi í endann með pálmann í höndunum. Sveinn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.