Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Herfor ingj astj órn Burma Stuðningsmenn Suu Kyi handteknir Rangoon. Reuter. LÖGREGLA í Burma handtók í gær 109 stjórnarandstæðinga í Rangoon og lokaði ölluin götum er liggja að húsi Aung Sang Suu Kyi, helsta leiðtoga stjórnar- andstöðunnar. Var markmiðið að hindra flokk hennar i að halda landsfund, að sögn emb- ættismanns hertöringjastjórnar- innar. Embættismaðurinn sagði að Þjóðarhreyfingin fyrir lýðræði (NLD), flokkur Suu Kyi, hefði ekki fengið leyfi til að halda fundinn eins og lög kvæðu á um. Athygli vakti að embættis- maðurinn sagði NLD hafa tíma- sett fundinn í samráði við Bandaríkjastjórn en nú eru að hefjast umræður á þingi í Wash- ington um refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum í Burma vegna mannréttindabrota auk þess sem allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna er nýhafið í New York. Fulltrúi Bandaríkja- stjórnar sagði þessar ásakanir „fáránlegar“, stjórn Bills Clint- ons forseta réði engu um að- gerðir NLD. Bretar hörmuðu í gær þróun mála í Burma og kváðu viðræð- ur hafnar innan Evrópusam- bandsins um það hvort grípa ætti til aðgerða gegn herfor- ineriastjórninni. Uppreisnin í Ungveijalandi 1956 Krústsjoff snerist hugur Búdapest. Reuter. SKJOL sem Borís Jeltsín Rússlandsforseti hefur leyft birtingu á sýna að Níkíta Krústsjoff, leiðtogi Sovétríkjanna 1953 -1964, var reiðubúinn að viður- kenna stjóm Imre Nagys í Ungveijalandi 1956 en skipti um skoðun, m.a. vegna þrýstings frá Kínveij- um. Samkvæmt upplýsingum sem birtar vora 1990 í Búdapest féllu um 2.500 manns í uppreisn Ung- veija gegn sovéska herliðinu sem bældi uppreisn landsmanna niður. Meirihluti æðstu ráðamanna var hlynntur stjórn Nagys, sem tók við að kröfu uppreisnarmanna en hann var umbótasinnaður kommúnisti. Var jafnvel rætt um að draga allan sovéskan her á brott frá Ungveijalandi en uppreisnarmenn vildu að landið yrði hlutlaust og gengi úr Varsjárbanda- laginu. Hinn 31. október sagði Krústsjoff á hinn bóg- inn að endurskoða yrði frá grunni afstöðuna til Nagys. Þá um morguninn hófst innrás Frakka og Breta í Egyptaland vegna deilna um Súesskurð- inn og virtist Krústsjoff sem Egyptaland myndi á ný verða vestrænt áhrifasvæði. Ef Sovétherinn yfirgæfi um sama leyti Ungveijaland myndi það „kæta heimsvaldasinna“ þ.e. Vesturveldin um of. Hann hafði um nóttina rætt við sendinefnd kínverskra kommúnista og var Deng Xiaoping meðal nefndarmanna. Að sögn Jian Chen, kín- versks fræðimanns er starfar nú í Bandaríkjunum, fengu Kínveijar fregnir frá sendiráði sínu í Búda- pest um að félagar í kommúnistaflokknum þar væru hengdir án dóms og laga. Var niðurstaða Kínveija því sú að Ungveijar væru á móti komm- únisma. Leiðtogamir í Peking sögðu Krústsjoff að koma yrði í veg fyrir að Ungveijar gengju Vesturveldun- um á hönd, að sögn Jians sem komist hefur yfir frásagnir túlks Dengs og ritara Mao Zedongs, leið- toga Kína. Reuter HERMENN í Rangoon, sumir í borgaralegum klæðum, gæta þess að almenningur fari ekki um götur er liggja að húsi aðalstöðva flokks Aung Sang Suu Kyi, leiðtoga lýðræðisafla í Burma. Jeltsín hlítir læknisráði Moskvu. Reuter. RÚSSNESK stjómvöld sögðu í gær að Borís Jeltsín forseti færi í einu og öllu eftir ráðum lækna sinna og hygðist draga úr vinnuá- lagi þar til hann gengist undir fyrirhugaða aðgerð á hjarta. Blaðafulltrúi Jeltsíns, Sergei Jastrzjembskí, sagði að forsetinn ynni í tvær til þijár klukkustundir á dag í sjúkrahúsinu, sem hann dvelur á í Moskvu, og ekki væri ráðgert að breyta því. Jeltsín er rúmfastur og sendi hann Tatjönu, dóttur sína, opin- berra erinda sinna í gær. Flaug hún til Rostov til að heimsækja börn, sem slasast höfðu í umferð- arslysi. Gert er ráð fyrir að Jeltsín ræði við ígor Rodíonov varnarmálaráð- herra í dag um vanda þann, sem blasir við rússneska hernum, og I tillögur um umbætur í málum v) hersins. Alexander Lebed, yfir- j maður öryggismála í Rússlandi, sagði fyrr í þessari viku að verið gæti að herinn væri á barmi upp- reisnar vegna vangoldinna launa. Níu fórust á strönd í Astralíu Grófust undir kletti Perth. Reuter. NÍU manns, Qórir fullorðnir og fimm böm, fórast í gær þegar 10 metra hár klettur hrundi ofan á þá á strönd í Vestur-Ástralíu. Þar voru skólabörn ásamt kennurum sínum og foreldram að fylgjast með keppni í brimbrettasigl- ingum. Síðasti skóladagur var í Ástralíu í gær og hafði um- ræddur hópur haldið upp á það með því að fylgjast með brim- brettareið skammt frá Cowar- amup-þjóðgarðinum um 200 km suðvestur af Perth, höfuð- stað Vestur-Ástralíu. Var veðr- ið fremur slæmt, rok og rign- ing, og sagði talsmaður lög- reglunnar, að fólkið hefði leitað skjóls undir klettunum. „Kletturinn hrandi og fólkið grófst undír tugum tonna af gijóti,“ sagði hann. John Jackovich, sem býr skammt frá ströndinni, sagði, að fólk leitaði gjama í var undir klettunum þegar þannig stæði á en það gæti verið mjög hættulegt. Þeir væra úr kalk- steini og mjög lausir í sér. Væri alltaf eitthvað um hrun úr þeim og einkum eftir miklar rigningar. Tvær manneskjur, stúlka og fullorðinn maður, slösuðust þegar kletturinn hrundi og lenti stúlkan raunar undir gijótinu að nokkru leyti. Taleban-skæruliðar við völd í Afganistan Lög íslains taka gildi í Kabúl Kabúl. Reuter. LIF virtist að mestu hafa færst í eðlilegt horf í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær eftir að Taleban, hreyfing heittrúaðra múslima, náði henni á sitt vald. Leiðtogi hennar, Mullah Muhammad Omar, lýsti þegar yfir því að landið væri nú „al- gerlega íslamskt ríki“. Lýsti Omar yfir skipun sex manna ríkisráðs til að stjórna landinu og að næstráðandi hans innan hreyfingarinnar, Mullah Mohammad Rabbani, yrði forseti ráðsins. Liðs- menn hreyfíngarinnar réðust gegn fyrrverandi forseta landsins, Najibullah og hengdu hann ásamt bróður hans, Saphur Ahmadzai. Héngu lík þeirra á umferðartumi í miðri Kabúl í gær. Svo virtist í gær sem Taleban hefði náð öllum stjómarbyggingum í Kabúl á sitt vald í gær. Stjórnar- hermenn voru hvergi sýnilegir á götum Kabúl, og Abdul Rahim Ghafoorzi, aðstoðarutanríkisráð- herra Afganistans, sem staddur er á fundi Allsheijarþings Sameinuðu þjóðanna, sagði að herinn hefði ákveðið að hörfa til að koma í veg fyrir mannfall á meðal óbreyttra borgara. Einn foringja Taleban sagði hins vegar í gær að stjómarhermenn réðu enn Jabal-us-Seraj herstöðinni norður af höfuðborginni en að liðs- menn Taleban sæktu nú að þeim úr suðri. Að sögn sendiherra Afgan- istans á Indlandi ræður stjórnarher- inn enn 13 hémðum af 31 og sagði hann að forsetinn, Burhanuddin Rabbani, væri ásamt mönnum sín- um um 25 km norður af höfuðborg- inni. Leita ekki hefnda Múgur manns hópaðist í miðborg- ina til að beija lík Najibullah aug- um. „Við drápum hann því hann myrti þjóð okkar,“ sagði Noor Hak- mal, einn foringja Taleban-hreyf- ingarinnar. Norbert Holl, sérlegur sendifull- trúi SÞ í Afganistan, lýsti í gær yfír „þungum áhyggjum“ vegna aftökunnar á Najibullah og skoraði á Taleban-hreyfinguna að þyrma lífverði hans og fyrrverandi herstjóra. Dularfull hreyfing Taleban-skæruliðamir lögðu hins vegar áherslu á það í gær að þeir leituðu ekki hefna. Var stjóm- arhermönnum heitið griðum og sakaruppgjöf, gæfu þeir sig fram. Var almenningur hvattur til að snúa aftur til daglegs lífs og talsmenn hreyfing- arinnar kváðust vona að sigur þeirra leiddi til þess að framboð á mat og annarri nauðsynjavöru ykist. Taleban-hreyfíngin hefur á síðustu tveimur áram náð að bera höfuð og herðar yfír aðrar skæruliðahreyfingar í Afganistan. Hún kom fram á sjónarsviðið síðla árs 1994 en hana stofnuðu heittrúaðir námsmenn. Fyrir þeim fór Mullah Muhammad Omar, sem hafði barist með skærulið- um gegn sovéskum hermönnum á níunda áratugn- um, og særst allnokkrum sinnum, m.a. missti hann annað augað. Omar hóf nám í íslömskum trúarfræðum árið 1989, er Sovétmenn héldu út úr Afganistan. Hann er sagður á fertugsaldri. Omar og aðrir trúaðir námsmenn stofnuðu Taleban vegna óánægju með stríðsherra landsins. Hófu þeir að beijast gegn muja- heddin-skæraliðum og óx fljótt fisk- ur um hrygg. Þrátt fyrir nokkur þung áföll í átökunum á síðasta ári, reyndist Taleban-hreyfingin betur skipulögð og einingin meiri innan hennar en hjá skæruliðum og stjómarhernum sem hún barðist við. Lítið er þó vitað um hreyfinguna, hvernig hún er byggð upp og hver pólitísk stefna hennar er. í breska tímaritinu Jane’s Defence Weekly segir að átta menn skipi yfirstjórn- ina, svokallaða Shura. Auk Omars má nefna Mohammad Rabbani, Borjan og Mohammad Abbas. Lítið er vitað um þá annað en að flestir eru fæddir í Kandahar-héraði, börð- ust gegn Sovétmönnum á síðasta áratug og sneru sér að trúarfræð- unum er sovéski herinn hrökklaðist á brott. Ljóst er að bókstafstrú Taleban- hreyfingarinnar nýtur takmarkaðra vinsælda á þeim svæðum sem hún hefur náð á sitt vald. Þar hefur Taleban lagt bann við sjónvarps- tækjum, látið loka stúlknaskólum og fyrirskipað konum að hylja and- lit sitt með blæju. Stjóm Taleban á þessum svæðum hefur reynst laus við spillingu en óvíst er hins vegar með öllu hvernig þeim mun farast stjórn alls landsins úr hendi. „Slátrarinn frá Kabúl“ ENDALOK Najibullah, sem hlaut viðumefnið „SÍátrarinn frá Kab- úl“ vegna grimmdar gagnvart andstæðingum sínum, urðu nöt- urleg en Taleban- skæruliðar í Afganist- an tóku hann af lífi í gær ásamt bróður hans og höfðu lík hans til sýnis í miðborg Kabúl. Najibullah var steypt af stóli árið 1992 þegar mujaheddin-skærul- iðar náðu Kabúl og hefur hann verið í nokkurs konar stofu- fangelsi í húsakynnum Sameinuðu þjóðanna frá þeim tima. Najibullah var 49 ára er hann var tekinn af lífi. Hann var kjörinn forseti til sjö ára, árið 1987, af fulltrúaráði sem hann hafði komið á fót. Naji- bullah var kommúnisti og undir verndarvæng þáverandi Sovét- leiðtoga, Míkhails Gorbatsjovs. Grimmd Najibullah þótti mikil, hann hikaði ekki við að láta myrða andstæðinga sina og gerði það stundum með eigin hendi. Honum var þyrmt er Burhanuddin Rabbani tók við forsetaembætt- inu en fulltrúar SÞ segja að áður en Naji- bullah var steypt af stóli, hafi hann verið búinn að bjóðast til þess að segja af sér, svo að boða mætti til kosn- inga. Lofuðu SÞ honum þvi að hann fengi að fara úr landi, en á leið á fiugvöllinn stöðvuðu hermenn, sem snúist höfðu gegn honum, forsetann fyrrverandi, sem leitaði skjóls hjá SÞ. Þar hefur Naji- bullah haldið sig í hálft fimmta ár en enginn vildi taka ákvörðun um örlög hans, hvorki afgönsk stjórnvöld né Sameinuðu þjóðirnar. NAJIBULLAH á fundi með fréttamönnum, skömmu áður en honum var steypt af stóli árið 1992. I I' I > I i i I i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.