Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ VIKU M LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 25 eru þau það ekki, en það er þessi umgengni við fjallið sem er sérstök. Þegar ég kom þangað í lok ágúst var búið að tína í þessu fjalli í heilan mánuð. Það skipti hundruðum, fólk- ið sem farið hafði í brekkurnar ofan við bæinn og alltaf var það að koma með þessa svörtu hnullunga, dísæt aðalbláber eins og þau gerast best. Þegar ég kom í berjamóinn þá sá ég ber svo langt sem augað eygði. Lyngið var eins og þar hefði enginn maður komið. „Það hefur enginn verið hér“, sagði ég við fólkið sem var með mér. „Jú, jú, hér hafa hundruð manna farið um. Það tínir bara stóru berin úr.“ Það er lykillinn að þessari hand- tínslu, að skilja minni berin eftir, sem halda svo áfram að vaxa og fólk getur haldið áfram að tína, sækja í þennan berjamó, í þessa brekku, al- veg endalaust þar til fer að frjósa. Þetta er mjög merkilegt, og eins hitt, að þegar maður fer að tína „MIN uppáhaldssaft er krækiberja-hrásaft." Morgunblaðið/Kristján LÆKNIR í lyngi. Sveinn Rúnar Hauksson les berin af lynginu, en sonurinn Guðfinnur stendur uppi á steini. „Sem læknir veit ég sáralítið um hollustu berja. Þau eru hins vegar talin vera járn- og vítamínrík, og þá einkum af B- og C-vítamínum. En hér er um að ræða óplægðan akur fyrir rannsóknir á þessu sviði og að mínu mati alveg þess virði að skoða nánar.“ tína í hi/al „Eitt sinn sem oftar var ég að tína á Seyðisfirði og tíndi af svo miklum ákafa að ég var búinn að leggja undir mig Farfuglaheimilið á staðnum. Matsalurinn var undir- lagður af berjum og ílátum, í eld- húsinu var farið að vinna afrakstur- inn og kraumaði í pottum, en þegar ég var farinn að nota gestina í hreinsunina var Þóni vinkonu minni, Farfuglaheimilisstýranni, nóg boðið, og spurði mig hvort ég færi ekki að fara. Tveir staðir era eftinninnilegir á Suðurlandi: Annars vegar Eld- hraunið, sem hefur verið mikill upp- áhaldsstaður hjá mér, yndislegur berjamór og þá sérstaklega gott að sækja krækiþer þangað, fyiir utan hvað umhverfið er fallegt. Hinn staðurinn er Skaftafell, einn dásam- legasti staður á jörðinni, sem ég þekki. Við fóram þangað nú í sept- ember og fengum 20 stiga hita og birtu svo góða að hver dráttur í jöklunum var skýr. Eg efast um að himnaríki sé fallegra en þessi stað- ur. Þarna er besta bláberjaland sem um getur. Læknirinn verður nú þungt hugsi en segir svo: Mér hleypur stundum svo mikið kapp í kinn við berjatínsl- una að ég gleymi að líta upp og njóta fegurðarinnar í umhverfinu. Akafinn verður svo mikill að maður er bograndi yfir þessu langtímum saman, rétt eins og sagt er um drykkjumennina, sem drekka í kvöl, að maður tínir í kvöl og er með bakverki lengi á eftir. Ég lenti einmitt í þessu í Skaftafelli í fyrra: Ég varð þá svo ákafur í bláberja- lynginu, að prófa norska bláberjat- ínu, sem mér líkaði engan veginn við, að hún festist í lynginu. I stað þess að draga hana út, eins og ég er van- ur og losa hana strax, þá slysaðist ég til að rykkja og tognaði þá svo í baki að ég var slæmur í þrjá mánuði á eftir. Ég fór miklu betur út úr þessu núna í sumar og ég þakka það Böggvistaðafjalli,“ segir Sveinn Rúnar með þessum fjarræna svip, sem kemur yfir hann í hvert sinn sem títtnefnt fjall ber á góma. Og þar sem það er nú aftur komið á dagskrá þykir blaðamanni tími til kominn að láta sig hverfa og leyfa lækninum að vera einum með hugs- unum sínum. TÍNT í BöggvistaðafjalIL bara fallegustu berin úr, þá verður tínslan svo miklu skemmtilegri. Ég var reyndar bú- inn að heyra það á þessu berja- tínslufólki, sem hefur verið að tína í kannski fimmtíu eða sex- tíu ár í fjallinu sínu. En nú upp- lifði ég þetta svo sterkt að mér finnst ég rétt vera að byrja að tína ber. Þarna uppgötvaði ég líka tilfinninguna fyrir því, hvað það er miklu skemmtilegra, að handtína aðalblá- ber og velja fal- legu berin úr. Það er gaman að koma eingöngu með þannig ber heim úr berja- mó.“ Er Böggvi- staðafjallið besti berjcitínslustiiður á landinu að þínu mati? „Það er nátt- úrulega efst í huga mér núna, af því ég er nýbú- inn að vera þar. En ég á líka óskaplega falleg- ar minningar úr Reykhólasveit- inni. Stöðum eins og Hafrafelli, ef við höldum okkur við aðalbláber. En hvað varðar blá- ber myndi ég kannski nefna Skafta- fell.“ Aá tína í shálmarnar Sveinn Rúnar reiðir nú fram skyr ogrjóma, með bláberjum úrSkafta- felli, tínd í september 1996 og við förum að ræða nokkur grandvallar- atriði berjatínslunnar: „Grundvallaratriði í berjamó er að hafa næg ílát,“ segir læknirinn með þunga. „Það er ómögulegt að lenda í því í berjamó að verða uppiskroppa með ílát og þurfa að fara úr flíkum, eins og menn hafa gert, fara úr skyrtunni og binda fyrir erm- ar. Sumir hafa jafnvel farið úr buxunum og tínt í skálmarnar og koma svo bara á nærbrókinni heim. Ég legg mikið upp úr því að hafa örugg- lega nóg af ílát- um og nota aðal- lega plastkassa utan af sælgæti, sem ég hef herj- að út úr sjoppu- og verslunareig- endum. Aðspurður segir Sveinn Rúnar að þetta áhugamál eigi sér djúpar rætur: „Eitt er þessi þrá að vera bara með sjálfum sér úti í náttúranni. Ég man ekki hvenær ég fór fyrst í berjamó, en það hefur áreiðan- lega verið með mömmu og ömmu. Stundum dettur mér í hug að þetta sé mér í blóð borið, þessi ákafí og sterka ástríða, og þá kannski ekki síður úr fóðurættinni. Það var mikill berja- tínsluáhugi í minni fóðurætt og mér var sögð sú saga af föður mínum, að hann hafi eitt sinn veikst nóttina eftir berjamó þannig að kalla varð til lækni, sem var fátítt í þá daga. En það fannst aldrei nein önnur skýring á veikindinum en sú, að hann hafi orðið svona berjasjúkur!" Hvað myndir þú, sem læknir, segja um hollustu berja? Bláberjaterta Bjarkar 2 egg 2 dl sykur 1 tsk. vanilludropar 1 tsk. lyftiduft 3 msk. hveiti 3 msk. kalt vatn 100 g suðusúkkulaði 100 g heslihnetur — flögur 21/2 dl döðlur 3 di bláber 1 peli rjómi Egg og sykur stífþeytt. Síðan er vökva og þurrefnum biandað varlega saman við. Síðast er niðurskornu súkkulaðinu, hnetuflögunum og smátt skornum döðlunum blandað varlega saman við. Sett í 24—26 cm lausbotna tertuform og bakað við 175°C f rúmlega 1 klukkustund. Botninn má frysta ef vill og þá látinn þiðna í nokkra klukkutíma áður en ber eru sett á. Fros- in eða fersk ósykruð bláber eða aðalbláber eru sett á kökuna og látin standa um stund. Síðan er þeyttur rjóminn settur ofan á. Ca mnim 'fjTJ-J Vefnaðarvörudagar í IKEA Úrval efna hefur oft verið gott en aldrei sem nú. Ásdís Jóelsdóttir Capella púðar ýmsir litir 490„- Lou felligardína 80x160 cm 1850 - Lou sængurv.sett 100% steinþvegin bómu 2.995 - jpg Halina metravara 150 cm gardínustöng 140 cm Blásippa rúmteppi 180x280cm 7.475 textílhönnuður verður til ráðgjafar um efnis- kaup, hugmyndir og saumaskap á gardínum, himnasængum, dúkum, púðum o.fl. í dag, laugardag milli 13 og-17. fyrir alla snjalla Holtagöröum við Holtaveg / Póstkröfusími 800 6850

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.